Vísir - 21.11.1966, Qupperneq 1
Mánudagur 21. nóvember 1966
BLAÐ II
RAFEINDAÖLD HAFIN Á ÍSLANDI
Öld rafeindatækni er nú að renna upp í öllum
löndum Vesturálfu og þeim löndum í austri, sem
iengst eru komin í tækni og verkmenningu. Þegar
í upphafi þessarar aldar er greinilegt að þróuð lönd
geta ekki án þessarar nýju þekkingar verið. — Þeir
erfiðleikar, sem sköpuðust ef þessari þekkingu yrði
viðstöðulaust rænt frá þeim, væru svo yfirgrips-
miklir að hver meðal félagsfræðingur þorir ekki að
hugsa þá hugsun til enda, né getur það.
Geimkapphlaupið svonefnda
hefur verið aðal driffjöörin í
þróun rafeindatækninnar.
Segja fróðir menn aö þær geysi-
legu fjárfúlgur, sem hefur verið
varið í geimskot og að því er
virðist einskisnýtra geimsigra,
muni þegar fram líða stundir
skiia margföldum ágóða. Hafi
reyndar gert það þegar með að
örfa rannsóknir m. a. í rafeinda-
tækni. Því hefur oft verið haldið
fram grínlaust, að fátt hafi verið
eins mikil blessun á þessari öld
eins og heimsstyrjaldimar
tvær. Þær hafi valdið hinni
geysiiegu tækniþróun, sem nú er
undirstaöa velferðarríkja nútím-
ans. Velferðarríkið er kannski
nokkuð dýru verði keypt meö
slíkan bakhjari. Það væri því
ánægjulegt ef geimkapphlaupið
svonefnda gæti tekið við hlut-
verki stríðsins, hvað viðvíkur
tækniframförum og orðið sú for
senda sem velferðarríki fram-
tíðarinnar munu byggja á. Einn
áberandi liður í rafeindatækn-
inni eru rafreiknar eða raf-
magnsheiiar eins og almenning-
ur hefur skýrt þá. Hafa þessar
dularfullu vélar, sem almenn-
ingur virðist oft á tíðum vera
háifhræddur við, tekið við
störfum sem her manna hafði
áður með höndum og opnaö
nýja möguleika í alls kyns vís-
indastörfum og stjórn fyrir-
tækja og þjóðfélaga.
JJér á landi á rafeindatæknin
ekki langa sögu, frekar en í
öðrum löndum heims, en ísland
eins og öll önnur lönd, sem vilja
síbæta velferðarþjóðfélagið hef-
ur skilið að án þessarar tækni,
er brautin fram á við óhugsandi.
Á þetta ekki hvað sízt við um
rafreiknana. Nútfma þjóðfélagið
krefst frekar en nokkru sinni
nákvæmrar og hraðvirkrar
stjórnar, yfirsýnir yfir alla þætti
þjóðlífsins og skilnings á því
hvernig sambandi eins þáttar
þjóðlífsins við annan er háttað.
Er þetta óhugsandi nema hægt
sé að afla nákvæmra og víð-
tækra upplýsinga um allt milli
himins og jarðar og með því að
að hægt/sé að reika út flókin
viðfangsefni með stuttum fyrir-
vara.
Skýrsluvélar og gatspaldavél-
ar eru fyrirrennarar hinna eig-
inlegu rafreikna eða „digital
computer'* eins og þeir nefnast
á ensku. (Dr. Jóhannes Nordal
hefur stungið upp á orðinu
tölva, þar sem vélarnar „hugsa“
í tölum). Munur á skýrsluvélum
og tölvum er sá, að skýrsluvél-
ar hafa reikningsútbúnað, sem
hreyfist meðan vélin reiknar út
eða leitar að uþplýsingum, með-
an enginn hluti hreyfist í tölv-
unni meðan hún „hugsar“. Þá
hefur tölvan minni og getur t.d.
þýtt með því þær fyrirspumir,
sem fyrir hana eru lagðar á sitt
eigið mál, sem byggist á tölum.
Þetta getur skýrsluvélin ekki og
Skýrslugerðarvélar ríkisins og
Reykjavíkurborgar var einn
fyrsti aðilinn, sem fékk skýrslu-
gerðarvélar í sína þjónustu hér-
lendis. Það var fyrsti aðilinn,
sem fékk tölvu til landsins
(digital computer). Þessi tölva
IBM 1401 er þó ólík tölvu
HSskólans að þvi leyti, að hún
er til þess gerð, að reikna út
tiltölulega einfalda reikninga,
þar sem háskólatölvan er til
þess gerð að reikna út fjölbreytt
og flókin verkefni.
Verkefni tölvu Skýrsluvéla
eru útreikningar velflestra
stærri fyrirtækja ríkis og Reykja
vikurborgar, eins og t.d. launa-
útreikningar, viðskiptareikninga,
manntalsskrá, skattaskýrslur o.
s. frv. Einnig hefur verið hægt
að vinna margt það, sem áður
var talið óhugsandi vegna mik-
illar vinnu, eins og úrvinnsla
Ottó Michelsen er eini um-
boðsmaöur IBM í heimi. 1 öllum
öðrum löndum, þar sem IBM-'
vélar eru á annað borð, rekur
fyrirtækið útibú.
Þaö er álit allra þeirra,
sem Vísir hafði tal af, að eng-
inn hefur stuðlað meir að fram-
gangi og farsælli þróun skýrslu-
gerðavéla og tölva hér á íslandi,
en Ottó. Þjónusta fvrirtækis
hans við þær 3 stofnanir, sem
hafa tölvur og þau 29 fyrirtæki
með skýrslugerðarvélar þykir
frábær.
Sjálfur segist Ottó hafa lagt
út í mikla tvlsýnu og fjárfest-
ingu, þegar hann fyrst hóf kynn
ingu og innflutning þessara véla
til landsins, en yfirmenn stofn-
ana og fyrirtækja hafi sýnt mik-
inn skilning á þjóðhagslegri
þýðingu þessara véla. Hafi það
gert gæfumuninn. — „Ef ég
ætti son, sem ekki vissi hvert
hann ætti að stefna, segir Ottó,
myndi ég ekki vera í vafa um,
hvað ég ráðlegði honum. —
Þessar vélar eru framtíðin.
Skiptir einu hvort menn vilja
fara í langskólanám eða ekki.
Gífurlegur skortur er fyrirsjá-
anlegur á verkfræðingum og
mönnum menntuðum í félagsleg-
um vísindum (hagræði, félags-
fræði, viðskiptafræði o.s.frv.)
til að vinna við þessar vélar við
hina margháttuðu útreikninga
og kannanir. Einnig mun vanta
tæknimenn og aðra, sem vilja
leggja sér til einhverja sérþekk-
ingu í þessum störfum.
Stórst'igar framfarir i notkun skýrsluvéla og tölva seinustu árin —
Þessar vélar vinna nú, sem her manna hafði ábur með höndum —
Þær gera nú, það sem áður var ekki hægt — Vélarnar forsenda fyrir
frekari framfórum á sviðum þjóðfélagsmála og visinda
veröur að undirbúa hana sérstak
lega undir hvert verkefni. Þess
vegna eru skýrsluvélar að
mestu leyti látnar sinna stöðugt
sömu verkefnum.
P'yrsta skýrslu- og gatspjalda-
vélin, sem kom til landsins,
var fengin til Hagstofu íslands
árið 1950. Upp úr 1952 haföi
alþjóðlega heilbrigðismálastofn-
unin, WHO, ákveðið að nota Is-
land til rannsókna £ sambandi
við berklaveíki og voru gerðar
ráðstafanir til að fá hingað til
gagna Veðurstofu Islands marga
áratugi aftur í tímann.
Tölva Skýrsluvéla vinnur að
jafnaði 110—150 klst. á mánuði.
Síðan hún kom til landsins í
september 1964 hefnr hún imnið
f um 3000 klst.
Á myndinni er Þorsteinn Þor-
steinsson skýrsluvélafræðingur
frá Ottó A. Michelsen h.f. (til
vinstri) að lagfæra sjálfa reikni-
vél samstæðunnar. Hann bendir
á lítinn kassa, en í honum felst
allt minni tölvunnar, 4000
minniseiningar. Til hægri á
myndinni er Agnar Ólafsson
aðalfulltrúi Skýrsluvéla.
landsins stærri og fullkomnari
skýrsluvélar, en Hagstofan
hafði til umráða. Var ákveðið
að Rafmagnsveita Reykjavikur
skyldi einnig hafa afnot af
skýrsluvélunum. Var vélin feng-
in til landsins áður en þeir að-
ilar WHO, sem áttu hugmynd-
ina að berklarannsóknunum hér
á landi, uppgötvuðu að mjög ó-
hagstætt var að gera rannsókn-
ir á berklaveiki hér, vegna þeirr
ar einföldu ástæðu að berkla-
veikin var svo að segja horfin
úr sögunni.
Þótti sýnt að Rafveitan gæti
ekki ein staðið undir kostn-
aðinum af þessum vélum og var
því ákveöið að Reykjavíkur-
borg og rfkið tækju að sér rekst-
ur skýrsluvélarinnar, enda lágu
næg verkefni fyrir. Heitir stofn-
unin nú Skýrsluvélar rfkisins og
Reykjavfkurborgar.
Tjað var Skýrsluvélar ríkis-
” ins og Reykjavíkurborgar,
sem keypti til landsins fvrsta
rafreikninn af IBM 1401-gerð.
Þessi rafreiknir getur unnið
mjög hratt, en getur aðeins
leyst tiltölulega einfökl verkefni
miðað við Háskólatölvuna. Sem
dæmi um verksvið Skýrsluvéla
rfkisins og Reykjavíkurborgar
má nefna Þjóðskrána, sem skrá-
setur alla l’slendinga og heldur
þeim skrásettum frá vöggu til
grafar. Er hægt að fylgjast með
fæðingum og dauðsföllum á
Þjóðskránni, fæðingarstað, kyn,
foreldrum, hvar í röð systkina
viðkomandi, er fæddur, öllum
flutningum hvers einstaklings
milli landshluta, bæjarhverfa og
gatna.
í gegnum Þjóðskrána fá
skattayfirvöld upplýsingar um
þegnana, kjörskrár eru byggðar
á gögnum þaðan. Frá Þjóð-
skránni er hægt að fá upplýsing-
ar um hvemig þjóðin skiptist
eftir atvinnugreinum, námi o. s.
frv. og með þessum upplýsing-
um er hægt að áætla hversu
hratt þarfir á hinum ýmsu svið-
um vaxa, eins og t. d. þörf fyrir
skóla, spftala, elliheímili o.s.frv.
— Hvað verða mörg böm á
skólaskvldualdri eftir nokkur
ár? Hvað fara margir í mennta-
skóla?, háskóla? Hvað verða
margir eldri en 70 ára? — Al-
mennar tryggingar og sjúkrasam
lögih fá þaðan sfnar upplýsingar.
Tölvan gefur þessar tölur
auövitað ekki upp ómengaðar,
heldur gefur hún forsendur,
sem síðan er hægt að vnna
eftir.
Næsta tölvan kom til Sam-
bands ísl. samvinnufélaga árið
1963. Er hún af sömu gerð og
Framhald á bls. 15