Vísir - 21.11.1966, Qupperneq 7
VÍSIR . Mánudagur 21. nóvemi>er -^öö.
i V>
Þrítugasta þing Alþýðusam-
bands Islands var sett í Há-
skólabíói á laugardag. Forseti
sambandsins Hannibal Valdi-
marsson flutti setningarræðu,
en á undan ræðu hans flutti
hljómsveit undir stjóm Þor-
valds Steingrfmssonar nokkur
alþýðulög. Kveðjur bárust frá
forseta íslands, herra Ásgeiri
Ásgeirssyni, Búnaðarfélagi ís-
iands og Sambandi ungra jafn-
aðarmanna. Á fundinum vom
Hannibal Valdimarsson forseti ÁSÍ setur 30. þlng sambandsins í Háskólabíói.
ÞING ASI SETT
fulltrúar bræðrasamtaka á
Norðurlöndum og fluttu þeir
gjafir og kveðjur. Hannibal
Valdimarsson minntist noklc-
urra látinna forystumanna
verkalýðshreyfingarinnar,
þeirra Ólafs Friðrikssonar og
Ottós N. Þorlákssonar en
ei'nnig minntlst hánn Jóns
Baldvinssonar, sem brautryðj-
anda í samtökum launþega á
IslandL
Hér var um afmælisfund f
vissum skilningi að ræða þar
sem ASÍ hafði átt hálfrar aldar
afmæli á þessu ári. Var og
vígður nýr fáni samtakanna
sem Gfsli B, Bjömsson teikn-
aði. Eðvarð Sigurðsson formað
ur Verkamannafélagsins Dags-
brúnar afhenti fánann fyrir
hönd gefenda sem voru nokkur
verkalýðsfélög karla og lcvenna.
Jóna Guðjónsdóttir, formaður
Verkakvennafélagsins Fram-
sóknar afhjúpaði fánann. —
Eggert G. Þorsteinsson félags-
málaráðherra ávarpaði þingið.
Myndimar hér á sfðunni eru
af setningu þings ASÍ og nokkr
um fulltrúum þingsips er þeir
biðu þess að þinglð hæfist. —
Pétur Sigurðsson alþingismaður nýkominn á þingið og ræðir við félaga sfna úr ASL
Guðmundur J. Guðmundsson, varaformaður Dagsbrúnar, ræðir við
þlngfulltrúa.
Bjöm Jónsson aiþingismaður ræðir við þingfulltrúa.
Björgvin Sigurðsson, framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambands íslands, og Eðvarð Sigurðsson, for-
maöur Verkamannafélagsins Dagsbriinar, ræðast v!‘" skömmu fyrir þingbyrjun.