Vísir - 12.12.1966, Blaðsíða 7
't
* , t \? ■'f ' V'
'
iiÍplÍÍ
''' ° ' > A
iihiiii
'
■
::ii i*-:
■
liiiii
\ Í .s \
',,;■■" .
■
11
'
■ “ ' *
■ ■
;■:■ •: ' :
■
■i.Í’Í':::'
VlSIR . Mðnudsgur
P
I gamni
og alvöru
Talað við Steingrím Sigurðsson, sem
opnar málverkasýningu i Bogasalnum
um miðaftan i dag
Jyó aö öll kynngi hafi tekiö á/
sig saltlausari ásýnd en
fyrr, þá er tilveran mögnuð 6-
trúlegum þöglum krafti og
ennþá gerast teikn. Eitthvað,
sem menn skiljá ekki. Og þó
að dulúðgi galdursins sé gamla
timans og ekki nefnandi á nafn
í alvöru lengur, Ieikur enginn
vafi á því, að í honum er að
finna brot af frummynd þess,
sem menn skilja ekki nú á tím-
um. Eitthvað sem ekki er hægt
að skýra — menn geta kallað
það list eða eitthvað annað.
Það eru teikn, sem gerast í nátt-
úrunni, í manninum sjálfum.
Cteingrímur Sigurðsson stend-
^ ur með „Galdralampann"
sinn í höndunum þegar Visis-
maður lætur til skarar skriöa að
ræða við hann um málverkasýn-
inguna, sem hann ætlar að opna
í Bogasalnum I dag. — Blaðinu
er snúið við: Steingrímur, sjúm
alisti, hefur átt fleiri viðtöl við
myndlistarmenn en nokkur ann-
ar kollegi hans, svo að honum
er þetta mátulegt. — Lampann
segist hann hafa á sýningunni
og nokkra aðra muni innan um
málverkin. Hann á raunar sína
sögu — Steingrímur bjó skerm-
inn til úr umbúðapappír, sem
hann keypti af Jakobi bóksala
Hólm, norður á Akureyri. —
Þetta Iítur út eins og hex og
það er Mariugler i vitum þess.
Annars byggði Steingrimur
sér hús á Laugarvatni, hvað
hann er nú að selja, og þar mál-
aði hann megnið af myndunum
á sýninguna og lét Ólaf Ketils-
son flvtja á háfjallabíl sínum í
bæinn í hretviðrunum á dögun-
um.
— Ólafur sýndi mikla þjón-
ustulund og meðhöndlaði þetta
eins og kornabörn, segir Stein-
grimur, — og Ólafur spurði mig
hvort þeir, sem ekki hefðu vit á
þessu, mættu koma. — Ég sagði
honum að þeir væru velkomn-
astir allra. Ég get trúað þér
fyrir þvi, heldur Steingrimur
áfram, að það er fjárfesting í
römmunum. Þeir eru gerðir af
Herbert Jónssyni borgarstjóra I
Hveragerði, sem ,er völundur og
lagði fram við þetta valið efni
og lit í rammana við hverja
mynd, eins og kjól við augnalit
ungmeyjar, enda er hann að
norði:n, frá Akureyri, og hefur
þaðan þetta aristokratiska svip-
mót, sem sunniendingar túlka
sem skiv'ngilegheit. Auk þess er
hann giftur listakonu, Ámýju
Fhilipusdóttur, sem ég átti einu
sinni viðtal við í VIsi, ævintýra-
legar minningar um Einar skáid
Benediktsson.
p'g hef málað á laun síðan 1947
blessaður vertu. Ég ætiaði
nefnilega að koma með bók fyrir
jólin. — Búinn ag fá útgefanda
að henni og stóð ekki á neinu.
Þá fékk ég skyndilega leið á sjálf
um mér og öðrum. Það er erfitt
að skrifa, þegar maður er í illu
skapi eins og þú veizt sjálfur...
svo að ég tók mig til og fór að
mála, meðan ég var að bfða eft-
ir svari um mikilsvert mál —
Beðið eftir Godod sérðu....
Ég komst strax I indælis skap
við að mála, hugsaði hvorki um
himin né jörð, ákvað að halda
sýningu — Hún varg til smátt
og smátt í huga mér og nú er
svo komið ...
— Andi, inspírasjón, sköpun-
argleði, hvað á að kaila þetta ?
— Ég held þessa sýningu í
heiðursskyni við fjárveitinga-
nefnd Alþingis. Þetta er eigin-
Iega henni að þakka (eða kenna).
Á meðan þeir voru að gera upp
við sig hvort kaupa skyldi hús
mitt á Laugarvatni hafði eg ekk-
ert annað að gera ... Már gafst
þama loks tækifæri til að vera
einn meö sjálfum mér. Þetta má
ekki tæpara standa, því að svo
buðu þeir mætu ritstjórar Vísis
mér starfa aftur, en ég hef ekk-
ert verið þar í sumar, eins og þú
veizt.
— Ég ætla auðvitað að bjóöa
fjárveitinganefnd að véra við
opnunina aö viðbættum Bimi á
Löngumýri, sem hefur svo ein-
staklega heilbrigðar skoðanir í
þjóðfélagsmálum. Og fjármála-
ráðherra að sjálfsögðu... honr
um er boöið sem vera ber.
— Geturðu gefið forskrift að
þessu ? Þetta kemur yfir lýðinn
eins og kvöldröðull í svartasta
skammdeginu. Þú mátt ekki láta
menn standa á gati...
— Þetta eru stökur um allt
og ekki neitt, hugmyndir bæði í
gamni og alvöru, sem urðu tii og
þurftu að verða til — að minni
hyggju: — Ég held ég verði að
sýna þér myndimar.
J^g velti því fyrir mér á meðan
Steingrímur nær í myndim-
ar, að það sé í rauninni ómögu-.
legt að gera sér grein fyrir öllu
sem hann segir með þvf beinlín-
is aö lesa það eingöngu. Maður
verður líka að sjá hann fyrir
sér og hlusta á hann. Hann kem-
ur hugsun sinni fram á varimar
með svo sérstæðu „tempói“ ...
orðin koma eins og leiftur; þeim
fyigir gjama hlátur, sem hljóm-
ar eins og þrumuveður á eftir
... $amt held ég að hann þegi
alltaf, þegar hann hefur ekki
„ídeu“ í kollinum, en það er
sjaldan. — Kannski hefur hann
farið að mála til þess að koma
„Ég sagði Ólafi Ketilssyni, að þeir, sem ekkl hefðuvit á þessu, væru velkomnastlr allra á sýninguna
mína“. (Ljósm. Vísis B. G.)
hugmyndunum hljóðlega á fram-
færi og gera þær langlífari.
Menn era orðnir svo slæmir á
heym á þessum tímum hávað-
ans.
— Þessi heitir „Ung stúlka í
skóginum". Ég fékk hugmyndina
þegar unglingamir komu úr borg
inni austur á Laugavatn og blót-
uðu hvitasunnu út í skógi, en
Hljómar mögnuðu seiðinn í
stemninguna með bítmúsikk:
„Odi sgó“.
— Meö hvaða litum múlarðu
þetta — olíulitum ?
— Ég mála þetta méð japþnsk
um litum, sem hægt er að vinna
eins og olíuliti. Þaö eru þrenns
konar litir: vaxlitir. dekklitir og
svo nota ég líka vatnsliti. Ann-
ars era sumar myndimar í oliu-
litum.
— Nú eru margar myndimar
frá einni períóðu, meira að segja
allar í sama hendingskastinu, er
það ekki heldurðu að það sé ein-
hver ákveðinn stíll i myndun-
um?
— Blessaður vertu, maður hef
ur arkað i gegnum svo margar
períóður, lifað svo mörg tfma-
bil (þó maður hafi kannski ekki
9 líf eins og kötturinn). Það era
áhrif frá öllum stílum í þessu —
eitthvað.
jC’g skrifaði heilmikið um mynd
list' á tímabili. — Við vor-
um oft nefndir f sömu andrá,
ég og Bjöm Th., af því að við
fengumst báðir við sama hlut-
inn. Við vorum nefnilega einir
um það á sínum tfma að þora
að skrifa um listir (án þess að
hafa próf, en Bjöm kallar sig
að ðllum jafnaði listfræðiirg —
vesgú!). Ég hitti Bjöm í veizlu
um daginn og þá vildi hanr. ekki
leggja trúnað á það að ég væri
að opna sýningu, og sagðist
sannfærður um að ég gæti ekki
málað, svo að ég bauð honum
á sýninguna og sagði að gamni
mínu, að hann skyldi líftryggja
sig, aö minnsta kosti á staönum,
fyrst hann teldi sjálfan sig svona
mikilvægan.
— Hvar er þaö sem þú mál-
aðir áður, ertu með eitthvað af
því á sýningunni.
— Það er til dæmis þessi,
„Bakkus eins og hann var“, oliu
mynd, sem ég málaði ’47, en
Bakkus er oröinn allt öðmvisi
fyrir mér núna.
— Eiga einhverjir eftir þig
myndir ?
— Það hefur komið fyrir, að
ég hef gefið fólki myndir í þeirri
góðu trú, að ég væri að gleöja
þaö. (Hvort það hefur nú orðið
er ekki gott að vita). Steingrím-
ur tínir myndimar inn í stof-
unni, eina og eina, en „Ung
stúlka i skóginum" hangir upp
á vegg, minningin um unglingana
í skóginum. „Eia, eia ...“ Mér
dettur 1 hug kvæði Kiljans.
— Einmitt, segir Steingrímur.
— Þessi heitir „Borgin grætur“,
„anonymt" við skáldverk Matt-
híasar Morgunblaðsritstjóra,
„Borgin hló“. Þessi mynd varð
til og fleiri, þegar ég var beibí-
sitter (yfir elzta syni mínum) I
háhýsi við Austurbrún samfara
blaðamennskustarfinu. Ég bjó
þar um hríð, áður en ég fluttist
til Laugarvatns og eignaðist þar
lögheimili. Á Austurbrún gafst
mér gott næöi til að virða fyrir
mér borgina fyrir neðan ský-
skafann, sérstaklega i ljósaskipt
unum, þegar sá litli var sofnað-
ur. Ég er með myndir af öllum
bömunum mínum á sýningunni.
Ég tók nefnilegs. upp á því á
gamals aldri að búa til böm mér
til ofsalegrar gleðí — það var
stórkostlegasta hugljómun lffs-
ins. Það hefur verið sagt við mig
að engum Islendingum, lifandi
eða dánum, hafi þótt og þyki
eins vænt um sfn böm eins og
Júlíusi heitnum sýslumanni Haf-
stein á Húsavík, dr. Haraldi
Matthiassyni og mér. Ég vildi
bæta Böðvari sáluga á Laugar-
vatni við. Ég hef alltaf verið
svolítið hrifinn af klanisma, þótt
hann geti orkað tvímælis út á
við og inn á við Þetta er nefni-
lega kærleiksþörfin, sem of lít-
ið er ástunduð f lifinu ...
Þessi mynd — „Spádómur":
Þetta er konan min. Hún er á
fleiri myndum héma, eins og
þessari: . „Langlínusamband"
(Poppstill).
Tjessa sjálfsmynd málaði ég á
kaþólskt fjölskyldudagblað,
veturinn þegar mér leið ekki
eins og mér lfkaði á Akureyri.
Það er ýmislegt svart i henni.
Sumt af þessu er málað fyrir
áhrif af landslagi, eins og fjöll-
unum fyrir norðan. — Það fer
um mig hlýr straumur í hvert
skipti, sem ég ér á norðurleið
og sé fjöllin af Holtavörðuheiöi.
__ Ég veiti mér þann munað
einu sinni á ári, hvort sem ég
hef nú efni á þvf eða ekki...
Eins fjöllin á leiðinni austur...
Lyngdalsheiðin-... Maður hefur
farið þetta stundum oft I viku I
fyrra og hitt-eð-fyrra.
— „Á ég að gæta bróður
míns“ — Er þetta einhver par-
odía um örlyg bróður (og koll-
ega) ?
— Nei, hreint ekki parodía.
Þetta er vögguvisa um stóra
bróður, sem stundum getur orð-
ið lítill. Þú sérð, að þetta eru hug
myndir viða að.
— Ég rek augun I prentvillu
í sýningarskránni þinni —~hvað
kemur til ?
— Hún er af ásettu ráði — Þú
veizt, hvað prentvillupúkinn get
ur verið vinsæll hjá okkur blaða-
snápum, sérstaklega þegar við
leggjum ofekur fram við starfið.
J. H.