Vísir - 13.12.1966, Side 6
6
V í SIR . Þriðjudagur 13. desember 1966.
|—Listir -Bækur -Menningarmál-
Hjörleifur Sigurðsson skrifar myndlistargagnrýni
Eyborg og geómetrían
p'yborg Guðmundsdóttir held-
ur tryggð við geómetríuna.
Reyndar viröist hún dýrka þann
anga hennar, sem afneitar hvers
kyns skrauti og sætlegri til-
finningu. Aðeins stofninn stend-
ur uppi — nakinn og hreinn —
með smávægilegum leikbrigöum.
Þetta er vissulega sjónarmið,
sem vert er að taka mark á.
Mér býður í grun, að fjölmargir
listamenn hefðu gott af aö til-
eipka sér örlítið af reglufestu
geömetríunnar í stað þess að
treysta á skringilegar litfjaðrir,
sem detta ofan úr loftinu ein-
hvem daginn en eru foknar út
í veður og vind áður en margir
tímar eru liðnir. Sumir segja,
að geómetrían sé bæöi þröng og
einstrengingsleg listastefna. Ég
held, að það sé rangt. Hitt þori
ég að fullyröa, að frumkvöðlar
hennar réðust á sínum tímum
hart gegn þeirri yfirdrifnu per-
sónudýrkun, sem er afar áber-
andi £ myndlist nú um stundir.
Þeir litu svo á, að hughrif og
kækir einstakra listamanna ættu
að hverfa í skugga baráttunnar
fyrir sterkari vitund nútíma-
mannsins um mikilvægi plast-
ískra verðmæta í umhverfi hans.
Ég hef aldrei tekið þessi orð
bókstaflega. Hinu vildi ég koma
á framfæri aö geómetrían er
enn í mínum augum eitthvert
meikilegasta baráttumálið í list
þessarar aldar.
En það var Eyborg .... ég
hef aldrei efazt um hæfileika
hennar. Um myndimar er margt
fallegt hægt að segja. Þær orka
á hugann, sem ærlegur fengur,
blandinn virðingu, umhvggju og
natni. Kenning geómetríunnar
er vitaskuld rauði þráðurinn í
þeim öllum. Hver flötur með lit
hefur alveg sérstaka merkingu,
sem tæplega kemur skýrt i ljós
fyrr en búiö er að renna augun-
um eftir veggjunum hvað eftir
annað. Gallarnir liggja í augum
uppi: Eyborg hefur ekki enn
öðlazt reynsluna, sem ætíð er
forsenda merkilegrar listar. Hún
hefur ekki fundið nóg til með
myndunum sínum, ef ég mætti
gerast svo djarfur að staðhæfa
slfka firm? Hún er helzt til
strangur bókstafsunnandi.
Hjörleifur Sigurðsson.
ákvæðum £ lögum um verðlags-
ákvarðanir. Hins vegar væri
flokkurinn andvlgur breytingar-
tillögu rikisstjórnarinnar um að
verðhækkanir yrðu undantekn-
ingarlaust háðar samþykki henn
ar. Geta má þess, aö Bjöm Páls-
son (F) kvaöst mundu sitja hjá
I atkvæöagreiðslu um fmmvarp-
ið.
Lúövik Jósefsson talaði fyrir
Alþýðubandalagið og flutti all-
margar breytingartillögur, jafn-
framt því sem hann lýsti þvi
yfir, aö bandalagið væri hlynnt
verðstQðvun. Kvað hann breyt-
ingartillögur sínar miðast við
að skapa „raunverulegt“ verð-
stöðvunarfmmvarp. Taldi hann
að oröa ætti ákvæðin um verö-
stöðvun þannig, að ríkisstjórn
„skal“ ákveða verðstöðvun í
stað þess að henni væri gefin
„heimild" til þess. Þá taldi hann
nauðsynlegt að verðlagseftirlit
yröi hert og vextir yrðu lækk-
aðir.
Allmiklar umræður urðu um
frumvarp ríkisstjómarinnar, en
ekki er ástæða til að rekja þær
nánar. Yfirlýsinga försætisráð-
herra, sem hann gaf í umræðun-
um, er getið annars staðar í
blaðinu.
Steingrímur
Sigurðsson
sýnir í
Bogasal
STEINGRÍMUR SIGURÐS-
SON, blaðamaður og listmálari,
opnaöi í' gær sýníngu sína í
Bogasal Þjóðminjasafnsins. Mik-
il aðsókn var þegar á fyrsta
degi og sóttu sýninguna á fjórða
hundrað manns, en 14 myndir
seldust. Sýningin er opin dag-
lega frá kl. 14—22.
Tvö slys
Maður varð fyrir bifreið á
homi Hringbrautar og Laufás-
vegar um 5-leytið í gær. — Tví-
brotnaði hann á vinstra læri og
var fluttur á Landspítalann.
Klukkan rúmlega 14 varð
vinnuslys við Hafnarbúðir. —
Maöur, sem var aö hreinsa rúð-
ur uppi í háum stiga, slasaðist
þegar stiginn rann til og hann
hrapaði til jarðar. — Hlaut hann
töluverð meiðsl og var fluttur
á Landakotsspítalann.
Góður síldar-
afli í nótt
Ennþá virðlst næg síld vera á
miðunum fyrir austan og sæmilcgt;
veður hefur haldizt þar að undan-
fömu. — Nokkur skipanna eru
raunar farin að hugsa sér til hreyf-
ings heim í jólafrf og sum þegar
lögð af stað heim, en allmörg
skipanna þrauka ennþá á miðunum
og verða flest fram undir helgi, en
þá hættir Ægir sildarleitinni og
Dalatangi loftskeytasamband bát-
anna i landi lokar einnig nú um
helgina, en þar hefur verið aðal-
bækistöð síldarleitarinnar * landi,
sem tekið hefur við aflatiikynning-
um bátanna og haft daglegt sam-
band við síldarleitarskipin.
Veiðin var ágæt í nótt. Klukkan
9,30 í morgun höfðu 35 skip til-
kynnt samtals 5240 lesta afla, en
eftir það var búizt við nokkrum
í viðbót.
Nokkur skip komu til Vestmanna
eyja:iog Suðumesjahafna i jgær,
iwUHJr. eru væntanlegi í dag og á
morgun. Gísli Ámi og Jón Garðar
komu til Sandgerðis í gær með
300 tunnur hvor og Jörundur III
til Hafnarfjarðar með fullfermi. —
í dag var von á Reykjaborg með
talsverðan afla.
VerkfræðingataB—
Framh. af 16. síöu.
menn VFÍ og 26 aðrir félagsmenn
VFÍ. Fjölgun starfandi íslenzkra
verkfræðinga á undanförnum 10
árum var 67 af hundraöi."
Verkfræðingatal 1966 er rúm-
lega 500 bls. og fylgja myndir
æviágripunum. Aftan við æviágrip
eru skrá yfir mannvirki og stofn
anir og nafnaskrá. Steindórsprent
prentaði.
Mjólk —
Framh. af 16. síöu.
miklar vonir væru tengdar nýju
gerilsneyðingaraöferðinni og væri
þar fyrst og fremst verið aö|
hugsa um þá staöi, þar sem'
fólk hefur ekki aðstöðu til að fá
nýja mjólk daglega — t. d. hugs I
uðu Svíar sér þessa mjólk eink-1
um handa fólki sem býr i Skerja!
garöinum svo og til að nota á
skipum. Þessi hágerilsneydda
mjólk mun þó engan veginn út-
rýma venjulegri gerilsneyddri
mjólk, enda er hún mun dýrari
í framleiðslu.
Sagði Stefán að ennþá væri
2 skrifstofuherbergi
í eða við miðbæinn óskast til leigu, nú þegar
eða sem fyrst. Uppl. í síma 12147 pg 17131.
ómögulegt að segja hvort þessi
hágerilsnéydda mjólk ætti eftir
að hafa þýðingu hér á íslandi
sem neyzluvara og/eða sem út-
flutningsvara, en til mjólkurút-
flutnings eru íslendingar illa
settir miðað viö mörg önnur
lönd vegna legu landsins.
Sfálwik —
Framh at bls. 1.
ur. hefur aðeins verið hluti
þess.
350 tonna skipin eru smíðuð
fyrir Eldey h.f. í Keflavík og
Þórð Óskarsson h.f. á Akra-
nesi en 200 tonna skipið er
smíðað fyrir Draga h.f.
Stálvík hefur síöan skipa-
smíðastöðin hóf starfsemi 1963
smíðað 5 stór síldveiðiskip.
Hún er nú með 3 skip í smíöum
en hefur gert samninga um
smíði eins til viðbótar.
Verisféiviiin —
Framhald at bls. 1.
ýmsar breytingar á verð
stöðvunarfrumvarpi rík-
isstj., að því er formæl-
endur bandalagsins
segj'a, til að tryggja raun
verulega verðstöðvun.
Davíö Óla sson (S), formaöur
fjárhagsnefndar neðri deildar,
gerði grein fyrir áliti meirihluta
fjári.agsnefndarinnar í sam-
bandi við frumvarpið. Hann
rakti í ræðu sinni ástæöur fyrir
nauðsyn verðstöðvunar svo sem
veröfalliö á mörkuðum ytra. Gat
hann þess, að veröfalliö næði til
tveggja þriðju hluta af allri út-
flutningsframleiðslunni. Hann
benti á þá miklu þýðingu, sem
utanríkisviðskiptin hafa í efna-
hagskerfi okkar. Sagði hann. að
95% allrai útflutningsfram-
leiðslunnar kæmu frá sjávarút-
vegi, að 95% alls þess, sem sjáv
arútvegurinn framleiöir er sett
á erlendan markað, og að gjald-
eyristekjur okkar eru 65—70%
fengnar fyrir sölu á afurðum
sjávarútvegsins.
Skúli Guðmundsson talaöi af
hálfu Framsóknarflokksins. —
Kvað hann flokk sinn greiöa at-
kvæði með frumvarpinu þar sem
heimildir væru þegar fyrir hendi
til verðstöðvunar með ýmsum
Pésfntain —
Framh. af bls. 1.
ekki geta tekið máliö fyrir fyrr
en eftir jól.
Mikill fjöldi aukastarfsfólks
hefur verið ráöinn á póststof-
umar, og eru það einkum verzl
unarskólaneittar er komnir eru
£ jólafrí. Kvað póstmeistari á-
vallt þurfa að ráða mikið af
aukastarfsfólki fyrir jólin en nú
héfði þúrft að ráða miklu fleiri
en fyrir undanfarin jól vegna
yfirvinnubannsins. Þetta fólk
er ekki sérhæft og óvíst hvort
það getur annað því sem póst-
menn ná ekki aö anna í dag-
vinnu.
Póstmenn eru að vonum mjög
óánægðir með ráðnirtgu alls
þessa aukastarfsliös og í gær-
kvöld var haldinn mjög fjöl-
mennur fundur í Póstmartnafé-
laginu og 'var þar samþykkt eft-
jl irfarandi ályktun:
„Fundur i Póstmannafélagi
Islands þann 12. des. 1966 vítir
harðlega póst- og símamála-
stjóra og póstmeistara í Reykja-
vík fyrir ábyrgðarleysi það sem
fram kemur í siöustu ráðstöf-
unum þeirra, með því aö ráða
til starfa fólk sem enga þekk-
ingu hefur á póststörfum sem
þvi er ætlað að levsa af hönd-
um, í þeim eina tilgangi að
brjóta niður baráttuþrek póst-
manna fyrir sanngjömum kröf-
um þeirra um leiðréttingu
kjara til jafns við fjölda ann-
arra sambærilegra starfshópa
sem vinna hjá ríkinu."
FrfáEsir —
Framh. af 1. síöu.
stafanir verði gerðar til þess að
þeir sem ætia sér að knýja fram
gengislækkun tii bess að græða á
henni sjálfir fái ’að borga fyllilega
fyrir það.
Um samninga við verkalýðsfé-
lögin sagði hanrt: Við viljum ekki
lögfestingu á kaupi, þar sem við
viljum semja frjáls við verkalýðs
hreyfinguna og jafnvel viljum við
segja við verkalýðshreyfinguna:
þó að við viljum samninga við
verkaiýðshreyfinguna til sem lengst
tíma: Setjið. þá fyrirvara sem þiö
teljið nauðsynlega til þess að gæta
hagsmuna ykkar umbjððenda. Taicið
oldcur ekki trúanlega fyrr en held-
ur jafnóðum eftlr þvi sem verkin
sýna að við meinum það sem við
erum að segja.
BILAKAUP
15812
Seljum í dag og næstu daga:
1966 Landrover ekinn 3000 km.
1986 Landrover diesel.
1966 Rússajeppi 2 dyra með
blæjum, ekinn 2 þús. km.
1966 Bronco ekinn 10 þús. km.
1986 Moskvitch ekinn 11 þús.
km.
1966 Moskvitch ekinn 6 þús.
km.
1966 Opel Cadett de luxe ekinn
4 þús km.
1966 Vauxhall Viva.
1966 Volkswagen rúgbrauð.
1966 Singer Vogue ekinn 18
þús. km.
1966 Volkswagen 1300.
I966 Toyota Corona ekinn 18
þús. km.
1985 Volkswagen 1200, ekinn
40 þús. km.
1965 Volkswagen 1200, ekinn
23 þús. km.
1965 B.M.W. skipti koma til
greina.
1965 Renault Major, skipti á
jeppa.
1965 Volvo Amason, ekinn 40
þús. km.
1985 /Volvo Amason, station ek
inn 32 þús. km.
1965 Hillman Imp ekinn 19
þús. km.
1965 Daf, ekinn 11 þús. km.
1965 Volkswagen selst fyrir 15
ára ríkistryggð skuldabréf.
1965 Ford Mustang.
1965 Opel Rekord, ekinn 40
þús km.
1965 Moskvitch, ekinn 20 þús.
km.
1965 Saab, ekinn 20 þús. km.
1965 Taunus 17M de luxe 2
dyra.
1965 '1‘aunus 20M
1965 Consul Cortina, ekin 14
þús. km.
1985 Zepyr t’
1965 Rússajeppi ekinn 23 þús.
km. Sérlega vandaö hús.
1965 Willy’s.
1965 Ford Fairlaine 4 dyra. —
fæst fyrir fasteignatryggt
skuldabréf.
1965 Commer 2500 Hi Topp
sendibíll.
1963 Mercedes Benz 220 S fæst
fyrir fasteignatryggt skulda-
bréf.
1962 Mercedes Benz 37 manna
fólksflutningabifreið.
1957—1964 Mercedes Benz 319
17 manna fólksflutningabif-
reiðir.
1955 Mercedes Benz 28 manna
fólksflutningabifreið.
Skipti koma til greina á ca.
33—40 manna bíl.
1959 Zetra Bus 33 manna.
1954 Ford 30 manna með Benz
diesel.
1966 Mercedes Benz 608 3]/2
tonn.
1966 Mercedes Benz 13—14, ek
inn 6 þús. km.
1964 Mercedes Benz 11—13
1966 Man, ekinn 28 þús. km.
Ýtuskófla Intemational.
Nú er hagkvæmasti tíminn
til að gera góð kaup.
Höfum kaupendur aö nýlegum
Volkswagen, ennfremur nýleg-
um jeppum.
Bílar við allra hæfi.
Kjör við allra hæfi.
Hringið, komið, skoðið.
Fólksbifreiöir.
Fólksflutningabifreiðir.
Vörubifreiðir . (
Vöruflutningabifreiðir.
Jeppabifreiðir.
Dráttarvélar.
Jarövinnslutæki
svo sem ýtuskóflur o. m. fl.
BÍLAKAUP
15812
Skúlagötu 55 v/Rauðará.
Bl
DSi