Vísir - 11.04.1967, Blaðsíða 9

Vísir - 11.04.1967, Blaðsíða 9
iSK&a V í S IR . Þriðjudagur 11. aprfl 1967. 9 \ llir hafa eitthvert augnablik í lifi sínu orðið að taka á- kvörðun, sem þeir vissu fyrir- fram, að mundi leiða til annars af tvennu, vinnings eða taps. Því hafa flestir fundið til þeirrar spennu, sem fylgir slíkum augna blikum, taugaspennu sem sam- fara er áhættunni. Sumir veröa sólgnir í slíka spennu og leita hennar. Það er sagt, að slíkir menn séu haldnir spilafíkn. Margir leita fullnægingar spila- fíknar sinnar í tómstundum sín um í ýmiss konar leikjum. Einn slíkra leikja er bridge. Sá einn, sem reynt hefur það, þekkir ánægjuna, sem fylgir því að hafa unnið spil, sem mikið hefur legið við að ynnist, með góðri spilamennsku. Unnið spil- iö vegna þess aö lagður var rétt- ur skilningur £ þær upplýsing- ar, sem fyrir hendi voru um spil in, en ekki látið villast af vill- andi mótspili andstæðinganna. Þeim mun meira sem í húfi hef- ur veriö, þeim mun meiri hef- ur ánægjan orðið. Þessi sigri hrósandi ánægja, sem líður um spilamanninn um leið og hann, að loknu spilinu hallar sér aftur í sætinu og færir vinninginn inn á reikninginn. Hún er sambland af létti, vegna þess að betur fór en á horfðist, og sigurvímu. Á- nægjan afieinu slíku spili getur enzt mönnum ævilangt og ornaö þeim um hjartarætur æ síðan. 1 vetur hafa mörg keppnismót verið haldin hér f Reykjavík og eins úti á landi. Þátttaka hefur aldrei verið jafnmikil áður. Þeim hefur því fjölgaö, sem áhuga £ Spjallað vlð Einar Þorfinnsson um bridge — I hverju lá munurinn á akt ion-bridge og kontrakt-bridge, sem spilað er nú? — Jú. í aktion-bridge fékk maður jafnt fyrir £5imiö þó mað ur væri ekki í því, ef maður bara vann það. Þannig t.d. að segði maður aðeins 1 grand, en ynni 3, þá féklc maður jafnt fyr ir það og segöi maöur 3 grönd og ynni þau. Makker hækkaöi ekki ótilneyddur sögnina, nema þá til þess aö fara í slemmu. Nóló var einnig spiluð og var hún oft bezta varnarsögnin gegn sterkum spilum. — Hvenær var þá byrjað að spila kontrakt-bridge? — Það er líklega 1938, sem það kemur í ljós, að almennt er farið að spila kontrakt-bridge. Þá var tvímenningskeppni í bridge hjá Stúdentafélaginu og var spilað kontrakt. Lárus Fjeld sted og fleiri höfðu þá um skeið spilað kontrakt heima fyrir Ég var þá í Kaupmannahöfn, en mér hefur veriö sagt, að það hafi verið þýzkur verkfræðingur sem flutti með sér kontraktinn hingaö. 1939 var svo sveitakeppni, einnig á vegum Stúdentafélags- ins. Þá var spilað kontrakt- bridge. Þar urðum ég og Hörður Þórðarson, sem var minn makk- er, Gísli Páls og Ámi Daníels- — Hverjir vora í íslenzku sveitinni? — Það voru þeir Hörður Þórðarson, Gunnar Guðmunds- son, Kristinn Bergþórsson, Lár us Karlsson, Stefán Stefánsson og ég. — Manstu eftir einhverju skemmtilegu spili úr keppninni? — Nei. Það spilið sem mér er minnisstæöast úr keppninni er það ekki vegna þess að það væri svo mikil skemmtun að því fyrir mig. Miklu fremur hitt. Ég man eftir því, að ég gaf Bretunum slemmu, þegar viö spiluöum við þá. Þeir voru £ 6 hjörtum, sem aldrei gátu staðið. Bretinn var að spila í tígullit þegar ég missti á borðið spaöa hund, en átti tfgul Spilið sást og var því gert að refsispili. Það varð að koma f, þegar spaðinn yrði fyrst hreyfður. í borði var spaðaás og drottning og ein- hver hröit með. Ég sat eftir með kónginn og eitthvað fleira. Bretinn flýtti sér auövitað inn á hendina, spilaði spaða, svfn- aði dfottningunni og ég varð að gefa hundinn í. Mátti ekki drepa með kóngnum. Þetta var eina leiðin til þess að spilið ynnist. — Fyrir frammistöðu ykkar þarna unnið þið ykkur þátttöku- rétt f heimsmeistarakeppninni í Bermuda 1950. Var ekki svo? i Byrjaði að spila 1930 hafa fengið fyrir þessu skemmti- lega spili. jL’inn þeirra manna, sem rík- ur er af reynzlu spilamanns ins er Einar Þorfinnsson. Mörg- um bridgespilurum hérlendis og erlendis að löngú kunnur sem glúrinn spilamaður. Hann hefur margoft spilað fyrir hönd ís- lands á bridgemótum erlendis, og hefur þvf spilað þegar mest hefur verið í húfi. Hann hefur aö geyma í minningum sínum frá spilaborðinu margar ánægju stundir. Okkur datt í hug að spjalla dálítið við Einar núna, þegar menn eru rétt búnir að jafna sig eftir íslandsmótið f sveita- keppni í bridge. Hættir aö nag'a sig í handarbakin fyrir léleg útspil og sigurvfman farin aö renna af öðrum. — Það hefði verið nær að slá í eina rúbertu, sagði ég við Ein ar um leið og ég hengdi upp frakka minn í fatahengiö. — Nei. 'Rúbertuna spila ég ekki. Ég hreinlega fæ mig ekki til þess, varð Einari að orði. Að bjóða manni, sem spilað hefur við Goren á heimsmeist- aramótl og aörá álfka bridge- kappa, að spila rúbertubridge og það við viövaninga, er svona svipað þvf að bjóða óþyrstum vínunnðnda blávatn að drekka. Mest verður taugaspennan í keppni og þá reynir mest á spila mennskuna. í keppni fær því bridgespilarinn mesta útrás. jginar býður mér inn í stofu og við tökum tal saman. — Hvenær byrjaðir þú að spila bridge Einar? — Ég var orðinn 23 ára gam- all. Það hefur verið í kringum 1930, en það var aktion-bridge, sem spilað var þá. son þriðju neðstu. — I.eið þá á löngu, áður en spilað var við erienda bridge- spilara? — Fyrir forgöngu Áma M. Jónssonar, formanns Bridgefé- lags Reykjavíkur, sem þá hafði verið stofnað fyrir nokkrum ár- um, komu M. Harrison Gray og fjórir aðrir hingað 1947. Við spiluðum við þá og unnum þá, Árni Matt, Lárus Karlsson, Hörður Þórðarson, Benedikt Jó- hannsson, Gunnar Pálsson og ég. Á fyrsta Evrópumótið eftir strfð fórum við svo, ein sveit og lent- um einhvers staðar neðarlega í því. Það var haldið f Kaupmanna höfn 1948. Næst, 1949, var þaö haldið f Parfs og þar urðum við nr. 6 af 11 sveitum. 1950 var þaö haldið í Brihgton og þar urð um við nr. 3 — Segðu mér nánar frá þvf. Þar áttuð þið góða möguleika á sigri. Var þaö ekki? — Bretar og Svíar lentu í 1. og 2. sæti meö 14 stig, en við vorum með 13 stig og Frakkar með 13 stig líka. Úrslitin í þeim leikjum, sem þessar sveitir kepptu innbyrðis voru látin ráða því hverjar yröu í númer 1, 2, 3 og 4. Bretar höfðu unnið Svía og urðu því númer 1, en Svfar númer 2. Við höfðum gert jafnt við Frakka, en höfðum haft ein- hver örfá stig yfir þá sem ekki dugðu þó til vinnings f það skiptiö, en varð þó til þess að við lentum í 3 sæti en Frakkar í 4. Um morguninn, þegar við byrjuðum aö spila síðustu um- ferðina, var okkar sveit meö þessi 13 stig, en Bretar og Svíar 12 hvorir. En svo töpuðum við okkar leik við Svíana þennan dag og þeir komust upp fyrir okkur. Eiginlega höfðum við alltaf gert ráð fyrir þvf. — íslendingar fengu að senda eitt par með Svfum og við Gunnar Guðmundsson voram sendir. — Ykkur var hrósað mjög fyr ir spilamennskuna sem þið sýnd uð, og ýmis spil, sem þið Gunn ar spiluðu vöktu mikla athygli eftir því sem séð verður í blöö- um frá þessum tíma. — Ég veit nú ekki hvort það var nolckuð eftir verðugleikum. Sum spilin, sem rætt var um, voru nú unnin bara af hreinni slembilukku. En Svíarnir urðu númer 2. — Það er nú að sjá af lýs- ingum blaðanna, að sveitinni Viðtal dagsins hafi gengið betur þegar þið Gunnar voruð inn á. — Á það vil ég ekki leggja neinn döm. Allir áttum við okk- ar slæmu og góðu spil. — Þeir hafa haft orð á því, þeir sem með þér hafa verið á mótum úti Einar, að þú virtist þekkja þar flesta þessa frægu spilamenn. — Sjálfsagt þekki ég þá ekk- ert betur en félagar mfnir, sem með mér hafa verið. Við kynnt- umst þeim mörgum hverjum nokkuð, þegar við spiluðum við þá á mótum ár eftir ár. — í norsku bridgetímariti var þér hrósaö mjög fyrir spil, sem þú spilaðir á móti Charles Gor en. Þú varst í 5 spöðum, sem Amerikanarnir pressuðu ykkur Gunnar upp f. Manstu eftir þvf spili. Hvernig var það? — Jú, ég man eftir því spili, því mér fannst svo mikið í húfi þegar ég spilaði það. Þau litu svona út: ♦ 10 6 5 V G642 ♦ ÁK 10 + 732 ♦ DG98 7 VKD53 ♦ 3 + G84 ♦ K V Á 10 9 8 ♦ DG97652 + D Allir vora á hættu og við fs- bimirnir, eins og Svfarnir köll- uðu okkur alltaf, Gunnar og ég, sátum vestur og austur. Sagnir gengu svona: Gunnar sat f aust- ur og opnaöi á 1 laufi, suður sagði 1 tígul, ég 1 spaða. Gor en sat f norður og sagði 2 tfgla, Gunnar 3 spaða og suður 5 tígla Ég vildi ekki láta þá vita að ég sæti með sæmileg vamarspil og lét Gunnar um að dobla, ef hann vildi. En hann sagði 5 spaða sem passað var á hringinn. Goren kom út með tígulkóng og ás, sem ég trompaði. Ég var þegar búinn að tapa einum slag og einn slagur var örugglega tap aður f hjartaásinn. Svo ég mátti engu tapa í trompi, en þar vant aði kónginn og tíuna fjórðu. Mér þótti ólíklegt að Goren hefði ekki doblað með ás og kóng í tfgli og sagnir frá makk- er sínum, ef hann hefði spaða- kónginn líka. Því taldi ég nokk- um veginn öraggt, að spaða- kóngurinn lægi hjá suður. Þá N ♦ Á432 ¥7 ♦ 84 + ÁK10 965 varð hann, að vera einspil, ef ég ætti að geta unnið spilið og upp á Það spilaöi ég. Sló út átt- unni, tók á ásinn og kóngur- inn kom rúllandi f. Þegar ég svo hafði tekið trompin, spilaöi ég öðram hámanninum f laufi og þá féll drottningin f. Þar með var spiliö einfalt orðið. Ég taldi vfst að á hinu borðinu fengju Kanarnir áö spila í næði 4 spaða Go^den hló að á eftir og sagði: — Þetta vora mfn mistök. Ég hefði átt að dobla. í norska bridgetimaritinu var sagt um þetta tækifæri: — Þama voru 750 punktar í húfi fyrir Thorfinsson — men han har gode nerver. Meðan viö Einar höfum set- ið þarna og spjallað, hef ég tek- ið eftir því, að fátt er um bridge bækur í bókaskápnum hans. Þeg ar ég hef orð á þvf við hann, svarar hann: — Ég hef ekki lesið svo mik- ið um bridge. Fyrstu bókina las ég 1950, en hún var eftir Gor- en, þennan kunna skrfbent. Það er athyglisvert, að annar hver maður, sem maður hittir á innanfélagsmótum hér, er vel les inn í bridge, getur jafnvel þulið upp romsur úr bókum eftir hina og þessa höfunda, en sá sem hef ur lent f öðru sæti í heimsmeist arakeppni í bridge, hann „hefur ekki lesið svo mikið um bridge"

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.