Vísir


Vísir - 27.04.1967, Qupperneq 8

Vísir - 27.04.1967, Qupperneq 8
8 VI S IR. Fimmtudagur 27. aprll 1967. VÍSIR „ 'IS'm Utgefandi: Blaðaútgáfan VÍSIR Framkvæmdastjóri: Ðagur Jónasson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aðstoðarritstjóri; Axel Thorsteinsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Auglýsingastjóri: Bergþór Úlfarsson Auglýsingar: Þingholtsstræti 1, símar 15610 og 15099 Afgreiðsla: Túngötu 7 Ritstjóm: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur) Áskriftargjald kr. 100.00 á mánuði innanlands í lausasölu kr. 7.00 eintakið Prentsmiðja Vísis — Edda h.f. Loftárásirnar Nú eru Bandaríkjamenn farnir að gera árásir á skot- mörk í þriggja km fjarlægð frá miðjum stærstu borga Norður-Vietnam, og eru slíkar aðgerðir ekki til þess fallnar að greiða fyrir friði á þessum slóðum. Þessar loftárásir eru nokkuð annars eðlis en styrjald- arreksturinn í Suður-Vietnam. Þar syðra berjast hersveitir ríkisstjórnarinnar og hersveitir uppreisnarmanna, aðallega kommúnista. Herir Norður-Vietnam hjálpa uppreisnarmönnum og herir Bandaríkjamanna hjálpa stjórninni. Slík íhlut- un á báða bóga er raunar engin ný bóla í mannkyns- sögunni. Er tilgangslítið að tala um, hverjir eigi rétt á að berjast þarna og hverjir ekki, ekki sízt þar sem um er að ræða anga af alþjóðlegri deilu utn valda- hlutföll. Styrjaldarrekstur Bandaríkjanna í Suður-Vietnam hefur verið miklu mannlegri en hjá andstæðingunum, svo framarlega sem hægt er að tala um „mannlegt“ í sambandi við styrjaldir. Þeir hafa reynt eftir megni að halda almennum borgurum utan við stríðið, en það hefur ekki tekizt, því stríðið er of umfangsmikið. Hins vegar hafa kommúnistar viljandi stundað hryðju verk gagnvart almennum borgurum til þess að sýna almenningi tennurnar. Allt öðru máli gegnir um loftárásirnar á Norður- Vietnam. Þær hafa fært styrjöldina á nýtt og miklu alvarlegra stig. Sízt bætir það málstað Bandaríkja- stjórnar, að hún skuli láta varpa sprengjum í aðeins 3 kílómetra fjarlægð frá borgarmiðjum Hanoi og Hai- phong. Nýtur hún þess, að andstæðingurinn er of vanmáttugur til að varpa sprengjum í 3 kílómetra fjarlægð frá borgarmiðjum New York og Washing- ton, sem væri hliðstætt svar Norður-Vietnamstjórn- ar, ef hún gæti. Loftárásirnar á Norður-Vietnam eru algerlega óréttlætanlegar, eins og Vísir hefur oft áður haldið fram. Þar með er ekki allri sök beint að Bandaríkja- stjórn. Þyngsta ábyrgðin hvílir á stjóm Norður-Viet- nam, sem hefur þrásinnis hafnað samningatilraunum hlutlausra ríkja og annarra aðila. En Bandaríkjastjóm sýnir ekki í alvöru friðarvilja, nema hún hætti þess- um loftárásum. Á hitt ber svo að líta, hve mikið áfall þessar loft- árásir eru fyrir Bandaríkin á alþjóðavettvangi. Sýn- ir það ljóslega hina algildu hættu, sem fylgir því, er herforingjar með takmörkuð markmið í huga fá að ráða stefnunni en ekki borgaralegir embættismenn. Bandaríkjastjórn á nú á hættu, að Sovétstjórninni takist að villa á sér heimildir og koma fram fyrir alheim, sem friðelskandi sáttaríki, er sé að reyna að skilja að hina „stríðsþyrstu“ deiluaðila í Vietnam. Þá hættu verður Bandaríkjastjóm að sjá, og haga sér eftir þvL Það er aftur fólk á ferli á götum Aþenu... Grísku valdatökumennirnir hafa fengið nýtt umhugsunarefni — afleiðingar jbess, ef Bandarikin kippa að sér hendinni með hernaðar- og efnahagsaðstoð við Grikkland Þegar þetta er ritað (26.4) verður enn engu spáö um það, hvemig öllu reiðir af I Grikk- landi, en í gær bárust fréttir, er lelddu 1 Ijós, að afleiöing hem- aðarlegs stjómarfars í Grikk- landi kann að hafa þær afleið- ingar, að Grikkland verði ekki áfram aðnjótandi þeirrar hem- aðarlegu og efnahagslegu að- stoðar, sem það hefur notlð hjá Bandarikjunum, en það var opinberlega staðfest í nær í Washington, áð ríkisstjómín hefði tekið þessa aöstoð við Grikkland til endurskoðunar. Má líklegt telja, að þetta verði valdatökumönnunum umhugsun- arefni. Fréttir í gær og fyrradag báru með sér, að Konstantin konung- ur hafi ekki hvikað frá þeirri afstöðu, sem hann hefur tekið, — þ.e. að koma ekki fram opin- berlega og lýsa yfir stuðningi við valdatökumenn, en sam- kvaemt Aþenufrétt í Kaupmanna hafnarblaðinu Politiken í fyrra- dag, var það Friðrika fyrrv. drottning, móðir konungs, sem gaf honum það ráð á byltingar- daginn, að veita ekki valdatöku mönnunum blessun sína. Frið- rika drottning fór úr húsi sínu í Psycho-úthverfinu byltingar- daginn og í sumarhöJI konungs — Tatoi-höllina — fyrir utan Aþenu, þar sem kontmgur og drottning dveljast nú, og sam- kvæmt sumum fréttum er kon ungur þar raunvemlega í stofu fangeisi, en eins og fyrr hefur verið getiö telur New York Tim es, að svo sé ekki, sbr. frétt hér f blaöinu í gær og fyrradag um viðræður bandaríska ambassa- dorsins í Aþenu og konungs. Sum dönsku blaðanna telja grísku konungsfjölskylduna vera í nokkurri hættu, en vel má vera að meira sé gert úr þessari hættu en ástæöa er til. í Aþenufrétt Politiken segir að tilgangurinn með ráði Friö- riku fyrrverandi drottningar hafi verið, að Konstantin fengi þannig tækifæri til þess að end- urheimta völd sín og áhrif, með því að koma inn í ríkisstjórn- ina mönnum, er hann gæti treyst. Haukar i homi meðal valdaránsmanna? Sagt er, að meðal hershöfð- ingjanna, sem hrifsuðu til sin völdin, séu tveir menn, sem gætu reynzt konungsfjölskyld- unni haukar £ homi. Annar er Konstantin Kolias, forsætisráð- herra, sem lengi hefur veriö einn af nánustu ráðunautum Friðriku fyrrv. drottningar, en hinn er Spandithakis, fyrrv. yfirmaður herforingjaráðsins. Margir svöruðu neitandi. Konungur leitaöi til margra borgaralegra leiðtoga og þreifaði fyrir sér um þátttöku þeirra I stjórn, en nær allir neituðu — af ótta vig aö missa traust fólks- ins í landinu. ef allt færi í handa skolum hjá stjóminni. „Myrkranna milll...“ Samkvæmt heimildum í er- lendum sendiráöum vinnur hers höföingjastjómin af næstum or væntingarlegu kappi að því að koma lagi á framkvæmdastjórn ina, en hana skortir alla reynslu og treystir ekki þeim ráðherrum sem konungur hefur þvingað inn á hana. Verða hers- höfðingjarnir að vinna myrkr- anna á milli og þeir viðurkenna að þeim sé um megn til lcngdar að hafa traust tök bæði á hem um og stjóm landslns. Sex hershöfðingjar, sem voru látn- ir víkja úr landvamarráöinu voru allir vinir konungsfjöl- skyldunnar. Berjast því valda- tökumenn á tveimur vigstöðv um, gegn róttækum og gegn vel- unnurum konungs i hernum. Frekari „hreinsun" f hernum gæti komið til, þ.e. að uppræta úr honum velvild til konungs með brottrekstri fleiri liðsfor- ingja. Hershöfðingjaklfkan er fjöilmenn og dugandi hermenn, sem í henni em, en 22 af hinni upprunalegu byltingarstjórn eða ráði (junta) þekkir þjóöin vart. — Jafnvel blaðamenn kannast ekki við suma. Margir hershöföingjar eru sagðir þeirrar skoðunar. að fram tíð stjómar þeirra sé undir þvi komin, að hún fái stuöning kon- ungs. — a.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.