Vísir - 27.04.1967, Qupperneq 10
70
VÍSIR. Fimmtudagur 27. aprfl I9b'7.
Frá setningu ferðamálaráðstefnunnar 1 morgun.
3. ferðamálaráðstefnan hófst í morgun
3. ferðamálaráðstefnan var sett
í morgun að Hótel Borg með ávarpi
Ludvigs Hjáimtýssonar, formanns
Ferðamálaráðs. Milli 70 og 90 þátt-
takendur sitja ráðstefnuna, sem
stendur yfir næstu tvo daga. Eftir
kosningu fundarstjóra og fundar-
ritara flutti samgöngumálaráð-
Framh. af 1. bls.
eftir löngu úreltu fyrirkomu-
lagi“.
Er byggingu vöggustofunnar
lauk, var hún eins og áður er
sagt afhent borginni.
Forstöðukona var ráðin frk.
Auður Jónsdóttir, er hafði hin
ágætustu meðmæli frá hjúkrun-
arkonum og læknum- og einn af
okkar færustu barnalæknum
var ráðinn að heimilinu. Félags-
konur sáu áralangt erfiði aö
baki, horfðu glaðar fram á veg-
inn til baráttu á ný. Allt gekk
aö óskum þar til stofnunin
dróst inn í hina pólitísku hring-
iðu.“
„Heilbrigð gagnrýni er í öllu
ákjósanleg, ef hún er byggð á
reynslu og þekkingu. Eitt vild-
um við taka fram, að hvorki
Sigurjón Bjömsson, sálfræðing-
ur eða Adda Bára Sigfúsdóttir,
er mest hafa gagnrýnt þetta
heimili hafa aldrei þar inn fyrir
dyr komið.
Við erum mjög undrandi yfir,
ag aðili að Barnav.nefnd borgar-
innar skuli ráðast að stofnun
þessari, þar sem henni ætti að
vera kunnugt um, að þetta er
eini staðurinn, sem einstæðar
mæður geta haft böm sín til
dvalar yfir sólarhringinn, vit-
andi það, að allt er gért til að
láta þeim líða sem bezt.“
Barst blaðinu einnig yfirlýs-
ing frá Ingibjörgu Bjömsdóttur,
móður tveggja barna, sem
dvöldust um tíma á vöggústof-
unni — annaö þeirra enn. Læt-
ur hún mjög vel af starfsliði og
segir m. a. að sér, sem hafi
vcí i j tiður gestur á vöggustof-
unni hafi virzt börnin dafna
Ir'm -s'g str.nda i mik-
.'"u-skuld við Vöggu-‘cfu
Thorvaldsensfélagsins, því að
þar hafi börnin fengið þá um-
önnun, sem þau þörfnuðust, og
hún gat ekki um skeið búið
þeim hjá sér.
Á síöasta fundi borgarráös sl.
þriðjudag var samþykkt tillaga
barnaheimila- og leikvallanefnd
ar frá 24. þ. m. um aö ráða
Ragnheiði Jónsdóttur forstöðu-
konu við Vöggustofu Thorvald-
sensfélagsins frá 1. mai nk. í
stað Auöar Jónsdóttur, sem
sagði starfi sínu lausu fyrir
nokkrum vikum.
iherra Ingólfur Jónsscm ávarp, þá
flutti einnig ávarp borgarstjórinn
í Reykjavfk. Næsti liður á dag-
skránni var erindi Þorleifs Þóröar-
sonar, formanns Ferðaskrifstofu
ríkisins, „Reykjavík sem ferða-
mannabær". Önnur erindi á ráð-
stefnunni eru „Vernd Islenzkrar
náttúru", sem dr. Siguröur Þórar-
insson flytur. „Möguleikar íslands
sem ferðamannalands", sem Har-
aldur J. Hamar, ritstjóri, flytur,
„Samgöngumál“, Brynjólfur Ing-
ólfsson ráðuneytisstjóri og „Hótel-
m'ál“, Ludvig Hjálmtýsson.
Lýkur fyrsta degi Ferðamálaráö-
stefnunnar með því, að fundarmenn
skipa sér í nefndir.
Annan dag ferðamálaráðstefnunn
ar fara fram nefndarstörf fyrir há-1 arálit og önnur mál. Um kvöldið
degi, þá sitja þátttakendur hádeg- er þátttakendum boðið í kvöld-
isverðarboö borgarstjóra. Eftir há- verð í ráðherrabústaðnum í boði
degi fara fram umræður um nefnd | samgöngumálaráöherra.
Loftleidir —
Framhald at bls. 16.
fyrir jafnlanga dvöl gesta Loftleiða
hér á íslandi.
Daglegar ferðir áætlunarbifreiða
eru milli Luxemborgar, Parísar,
Kölnar og Frankfurt, og eru þær
í beinum tengslum við flugferöir
Loftleiða. Góðar samgöngur eru
einnig í lofti milli Luxemborgar og
annarra landa, en auk jámbrautar-
feröanna tryggir allt þetta farþeg-
um Loftleiða ódýra og fróðlega við
dvöl í Luxemborg og þægilegar ferð
ir milli Luxemborgar og annarra
landa.
Loftleiðir hafa nú eigin skrif-
stofur í San Francisco, Chicago,
New York, Kaupmannahöfn, Ham-
borg, Frankfurt, París, Vínarborg,
Glasgow, London og Luxemborg, en
auk þess sérstakar umboðsskrifstof
ur í 25 borgum víðsvegar um heim.
Nýjasta umboðsskrifstofan er í
Mexíkó og annast forstjóri hennar
sölumál Loftleiða í Mið- og Suður-
Ameríku. Hann var nýlega á ferð
hér í Reykjavík og taldi markaðs-
horfur Loftleiða góðar á sölusvæði
sínu.
I sl. marzmánuði lauk námskeiði
34 stúlkna, sem ráðgert er að hefji
störf hjá Loftleiðum, sem flugfreyj-
ur, á sumri komanda, en áætlað er
að alls muni um 170 flugfreyjur
vinna- hjá Loftleiðum í sumar.
Viðtal dagsins —
Framh. af bls. 9
þetta tveir og þrír í rúmi.
— Kom nú ekki fyrir að bát-
um hlekktist á í landtöku?
— Jú, þess voru dæmi, en
þó ekki mörg þau ár, sem ég
man eftir. Einu sinni fórust þó
níu menn, og það rétt við land-
ið, en það var svo mikil for-
áttan, að engin leið var til
björgunar.
Einu sinni missti ég trillu,
sem ég átti. Hún lá ásamt tveim
öðrum fyrir festum við land og
ég fór til að gæta hennar. Þeir
sem hina bátana áttu voru dálít-
ið á undan mér og tókst aö
bjarga sínum bátum, en mér
varð það um megn, munaði
minnstu að ég færi sjálfur líka,
þvi ég hékk í festinni eins lengi
og ég gat. Mér er þetta minnis-
stætt. Því þetta var í byrjun
vertíðar, á fyrsta þorradag. Þá
hafði ég frétt um að inn í Stykk
ishólmi væri bátur, sem hægt
mundi að fá keyptan. Og nú
lögðum við fjórir land undir fót
þangað inneftir.
Þá var svo mikið harðfenni í
skriðunum undir Búlandshöfða,
að viö urðum að höggva spor
til að komast leiðar okkar, og
var fullillt þó. — Nú er þarna
kominn fínasti vegur.
Við skoðuðum bátinn og leizt
sæmilega á hann, en það var
minna um peningana til að
kaupa fyrir. Þá var verzlunar-
stjóri fyrir Tangsverzlun í Stykk
ishóimi Ágúst Þórarinsson. Ég
fer til hans og segi honum allar
ástæður.
„Verzlar þú ekki við Tangs
verzlun þarna út frá? spyr
hann.
Jú, ég segi að það litla sem
ég dragi á land fari þangað.
„Taktu bátinn, ég skal sjá
um greiðsluna" segir Ágúst.
— Já, það var góður karl —
þetta hefðu ekki allir gert. En
hann var nú svona.
Já, það dreif svo sem ýmis-
legt á dagana þessi 40 ár, sem
ég stundaði sjómennsku frá
Hellissandi, sérstaklega held ég
að ýmsum yngri mönnum mundi
þykja meö ólíkindum, ef þeir
sæju fyrir sér fyrstu árin, árin
áður en vélbátarnir komu og
engar voru bryggjur eða aðstaða
í landi. Nú er þetta allt breytt,
auðveldara og erfiðisminna.
Það er gott, þegar lífið þróast
í þá áttina.
— Hefur þú aldrei komið í
Bjarneyjar, síðan þú fórst það-
an 6 ára gamall?
— Nei, aldrei. Mig langaði nú
oft til að skreppa þangaö, en
baö var aldrei tími, svo þorði
maður ekki að eiga það á hættu,
ef manni kynni þá að legast.
En óljósar minningar á ég þó
þaðan um vörina fyrir neðan
bæinn og fleira.
— Hvað ertu gamall, Jóhann?
— Ég er nú senn 80 ára.
— Og þó svona hress, þrátt
fyrir allt volkið um ævina?
— Þetta herti mann, það varð
annaðhvort, að duga eða drep-
ast. .
Svæðafundur
Þriðjudaginn 2. maí verður hald-
inn fundur um iðnaöarmál í Sjálf-
stæðishúsinu í Kópavogi. Hér er
um athyglisverð mál að ræöa og
ættu hinar fjölmennu stéttir laun-
þega, er starfa að iðnaði og iðnrek-
endur.á þvl. svæði er fundurinn nær
yfir, sem er Hafnarfjörður og byggö
ir Reykjaneskjördæmis þiar fyrir
norðan, að fjölmenna á fundinn.
Sendiferðareiðhjól
óskast til kaups. Uppl. í símum 38844 og 38855.
Iðnaðarhúsnæöi
I
Félagasamtök óska eftir að taka á leigu 300-
600 ferm. hæð til nokkurra ára. Tilboð send-
ist augl.d. Vísis fyrir 1. maí n.k. merkt „7801“
BELLA
Finnst þér það ekki Iágkúru-
legt af Lottu að færa dagbókina
á dulmáli, aðeins af þvi, að hún
grunar okkur um að laumast til
að Iesa hana?
VISIR
50
áruni
Búmannsklukkan.
I Danmörku hefir verði ákveð-
ið að nota ekki búmannsklukk-
una í sumar. Það mun heldur
ekki verða gert í Noregi eða
Svíþjóð.
27. april 1917.
H-umferð —
Framh. af bls. 1
til þess bragðs að biðja þá, sem
væru andvígir hægri stefnunni
að rísa á fætur og segir heim-
ildamaður blaðsins (sem sjálfur
er fylgjandi hinum nýju lögum)
að flestallir í salnum, eöa a.m.k
80% hefðu risið á fætur, hljóð-
ir og virðulegir, og heföi þetta
verið mikill sigur fyrir málstað
prestsins, og „stolt stund í lífi
hans“
Að ræðum frummælenda lokn
um hófust frjálsar umræður á
ný og færðist hiti í Ieikinn, og
sérstaklega var gagnrýnd sú á-
kvörðun fundarboðenda að fund
urinn mætti engar álvktanir
gera og kom fram sú till. að gera
ályktanir aö fundi loknum. en
ekkert varð þó af því
Síðastir töluðu frummæiendur
í þriðja sinn en fundinum lauk
kl. 2 eftir miðnætti Eins og fyrr
er getið var þetta mjög, fjöl-
mennur fundur og voru m. a.
mættir bílstjórar úr Reykjavík
og nágrenni.
Nýtt Kvennablao, Hruna, kom
út .' dag Útgefandi blaðsins er
HandbæKur ht. og ritstjóri er
Margrét H. Bjarnason. Blaðið er
44 síður að stærð með litakápu
og á aö koma út mánaðarlega.
I efnisyfirliti fyrsta blaðsins eru
taldir upp 17 efnisþættir. Blaðið
er prentað með nýstárlegum
hætti, filmusett og offsetprent
að. Eintakiö kostar 65 krónur.