Vísir - 23.06.1967, Blaðsíða 1

Vísir - 23.06.1967, Blaðsíða 1
VISIR 57. árg. - Föstudagur 23. jóní 1937. - 140. tbl. KRISTNIVAR EKKIVIKIÐ ÚRIÐNAÐARM.FÉLAGINU Meistarasamband bygginga- manna I Reykjavik krafðist þess að Kristni Guðmundssyni mál- arameistara í Keflavfk yrði vik ið ör Iðnaðarmannafélagi Suð- urnesja og fór þess á leit við Landssamband iðnaðarmanna, að það hlutaðist til um fram- kvæmd málsins. Blaðið hafði samband við Krist- Er úðunarherferðin nauðsynieg: y Hin umfangsmlkla og skipu- lagða úðun allra garða í Rcykja vfk hefur orðið tilefni til marg- víslegra yfirlýsinga og aðvar- ana auk þess sem komið hafa f ljós a.m.k. tvö tilfelli eitrunar hjá börnum af völdum úðunar- efnanna. Er augljóst að í a.m.k. öðru tilfellinu var um algert aðgæzluleysi að ræða þar sem barn lá i barnavagnl í garði sem verið var að úða. Þessi úðunarherferð svo skipulögð sem hún er, hefur valdið raski og ótta hjá fólki, ekki sizt nú eftir að fyrrgreind eitrunartilfelli komu í ljós. Linnir ekki upphringingum hjá yfirmönnum garðyrkjumála hjá Reykjavikurborg og borgarlækni út af þessum málum. Eftir því sem komizt verður næst af samtölum við þá sem um úðunarmáiin hafa fjallað ber mönnum ekki saman um það hvort nauðsynlegt sé að úða alla garða Reykjavíkur né held- ur hvort nauðsynlegt sé að úða fyrr en sá sjúkdómur, sem úðað er gegn fer að segja til sin. Sjúkdómurinn sem er af völd- um birkilirfu og blaðlúsar er yfirleitt öllum augljós þegar hann er kominn á visst stig. Menn segja sem svo að yfirleitt sé ekki byrjað á lækningum við sjúkdómum fyrr en þeir fara að segja til sín í þessu tilfelli Framh. ð bls. 10 in og átti við hann tal um mál þetta. Kristinn sagði að rétt væri að Meistarasamband bygginga- manna hefði farið þess á leit við Landssamband iðnaðarmanna að það hlutaðist til um, að hon um væri vikið úr félaginu, en eftir því sem hann vissi bezt hefði Landssambandið neitað að beita sér fyrir því. Aöspurður sagði Kristinn að lögbannið, sem sett hefði verið á vinnu hans í Keldnaholtshús- inu, kæmi sér mjög illa, þar sem hann væri með efni þar efra sem hefði kostað sig mikið fé. Kristinn sagðist vona að mál þetta tæki ekki miklu lengri tíma, en í raun og veru væri þetta prófmál um það, hvort fé- lagasamtök einstakra byggðar- laga geti meinað iönaðarmönn- um að stunda vinnu sína hvar sem er á landinu. Ákvæðisvinna og skólamál til umræðu á fundi Norræna veitinga• og gistihúsasambandsins Fundi Norræna veitinga- og gisti-, húsasambandsins er nú lokiö, en hann var sem kunnugt er haldinn að Hótel Sögu. Blaðið hafði samband við Konráð Guðmundsson, hótelstjóra, en hann er formaður Sambands veitinga- og gistihúsaeigenda hér á landi.. Konráð sagði að fundurinn hefði að sinu áliti veriö mjög árangurs ríkur, umræður hefðu verið mikl- ar og gagnlegar og margar álykt- anir gerðar. Til dæmis var rætt um að inn- leiða ákvæðisvinnufyrirkomulag í i hótelum á Norðurlöndum, en til- [ raun hefði verið gerð með slíkt | fyrirkomulag á hóteli einu í Sví- Skipstjórinn á Marz hlaut 400 búsund króna sekt Mál togarans Mars, sem tek- inn var að veiðum innan land- helgi austur af Hvalnesi í gær var tekiö fyrir hjá bæjarfóget- anum á Neskaupstað i nótt og hlaut skipstjórinn 400 þúsund króna sekt, afli og veiðarfæri voru gerð upptæk og skipstjóra auk þess gert aö greiða sakar- kostnað. Skipstjóri áfrýjaði dóminum til Hæstaréttar og sigldi hann út frá Neskaupstað í nótt áleiðis til Englands meö aflann, sem var um 140 tonn. Varðskipið Óðinn kom að tog- aranum að veiðum eitthvaö á aðra sjómílu innan fiskveiði- markanna og var þegar siglt með togarann til Neskaupstaðar, þar sem málið var tekið fyrir og afgreitt á óvenju skömmum tíma. — Skipstjórinn á Mars, Ás geir Gíslason, viðurkenndi ekki brotið og taldi að ratsjá togar- ans hefði verið í ólagi. þjóð síðan 1962 og gefizt vel. Enn fremur var rætt um tilraunir sem gerðar hafa verið með að útvega hótelum hálftilbúinn mat til hag- ræðis og betri þjónustu. Einkum kemur slíkt fyrirkomulag sér vel í hótelum sem eru úti í sveitunum, eða langt frá matvælamiðstöðvum. Skólamál voru mjög til umræðu á fundinum, en í þeim málum stönd um viö íslendingar mjög höllum fæti Nú er t. d. verið að byggja skóla fyrir fólk sem starfar að, veitinga- og gistihúsum í Dan- mörku og ætti hann að kosta 90 milljónir ísl. króna. Mikið var einnig um þaö rætt hve viö íslendingar stöndum höll- um fæti hvaö viðkemur hráefnaöfl- un til matargerðar, en hér ríkja inn- flutningsbönn á ýmsum þeim mat- vælahráefnum sem nauðsynleg eru til að standast samkeppni í hótel- rekstri og má sem dæmi nefna kartöflur sem væru tilbúnar í pott- inn, en slíkt sparaði mikla vinnu. Konráð sagði að rætt hefði veriö um breytingar á þv£ fyrirkomulagi að fólk sem gisti á hótelum á Norðurlöndum yrði að gefa svör Framh. á bls 10 Myndin er tekin í morgun í Keldnaholtshúsinu og sýnir málning- artunnur Kristins Guðmundssonar málarameistara. (ljósm. R. Lár) BYRJAÐ A NYJUM VEGI YFIR KÓPAVOGSHÁLS í SUMAR Verður sex akgreinar — Útboðslýsingar oð fyrsta áfanga tilbúnar i þessum mánuði 1 þessum mánuði verður gengið frá útboðslýsingu af fyrsta hluta Hafnarfjarðar- vegarins nýja, í gegnum Kópavog, en framkvæmdir eiga að hefjast í sumar. — Samkvæmt tveggja ára gam- alli áætlun kostar fyrsti hluti verksins 70 milljónir, en kostnaðaráætlun fyrir verkið í heild liggur ekki fyrir. Hér er um að ræða einhverja mestu vegaframkvæmd, sem um getur hér á landi. Vegurinn ligg ur yfir Kópavogshálsinn, sömu leiö og Reykjanesbrautin nú og verður hann sex akreinar, þar sem hann liggur í gegnum þétt býliö á hálsinum, en fjórar sitt livorum megin við húlsinn. Veg- urinn tengist Kringlumýrarbr. aö noröanverðu, en syöri mörk hans eru við Hlíðarveg. Vegurinn verður sprengdur niður £ Kópavogshálsinn og þver götumar Digranesbraut og Borg arholtsbraut tengjast saman með brú yfir hann. Aftur á móti verða grafin göng undir veginn fyrir Kársnesbraut og Nýbýlaveg. — Eitt hús, Digra nesveg 2, verður að rifa fyrir götuna, en að öðru leyti rask- ast ekki byggð á hálsinum. Ólafur Jensson, bæjarverkfræð- ingur Kópavogs sagði Vfsi að vegurinn væri teiknaður með það fyrir augum að fullnægja umferg í lok skipulagstímabils- ins, 1983. Fyrsti áfangi verks- íns miðast við það að fuilnægt yrði aðkallandi þörfum umferð arinnar. Gert væri ráð fyrir í gömlu áætluninni að verkið yrði unnið á árunum ’67, ’68, ’69 og sagði Ólafur að sú áætlun kynni að standast hvað það snerti. Kópavogskaupstaður sér um framkvæmd verksins, en kostn- aðurinn verður borgaður með öllu þéttbýlasvæðafé Kópavogs til nokkurra ára, að þvl er Ólaf ur sagði, eða til 1970, en hluti þess fjár rennur árlega til verks ins eftir það. Ríkið leggur hins vegar % hluta þess fjár, sem ráðherra hefur til ráðstöfunar af benzínskatti til framkvæmd- anna árin fram til 1970 og allt bað fé rennur eftir það til greiðslu lána vegna framkvæmd anna. Framhald á bls. 10 INNBR0TS- ÞJÓFAR STAÐNIR AÐ VERKI Lögreglunni var tilkynnt i nótt, aö það sælst til manna vera að brjótast inn i verzlun KRON á homi Tunguvegar og Sogavegar. Fór lögreglan strax á staðinn og kom að tveimur mönnum, sem voru að brjóta upp hurð verzlunarinnar. Virtust þeir hafa haft fullan hug á þvi að komast inn í verzlun- ina, því þeir voru vel búnir verk- færum, meöal annars stórri exi. — Beittu þeir exinni óspart á hurð- ina, þegar lögreglan kom að þeim og handtók þá. Mennirnir voru færðir inn í Síöumúla, þar sem þeir voru látnir dúsa í nótt og í morgun vom þeir svo teknir til yfirheyrslu hjá rannsóknarlögreglunni.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.