Vísir - 23.06.1967, Síða 7
7
VtSIR . Föstudagur 23. júní 1967.
morgun
útlönd % morgun útlönd í raorgun útlönd í morgun
útlönd
KOSYGIN ogJOHNSON ræðast við
Glassboro, New Jersey
Eftir að getgátur hafa verið uppi um það dögum sam-
an hvort þeir muni hittast Kosygin forsætisráðherra
Sovétríkjanna og Johnson Bandaríkjaforseti, hefir ver-
ið staðfest í Washington, að þeir komi saman til fundar
í dag, í New Jersey, í einkahúsi á háskólalóð, og sé
staðurinn um 160 km. vegalengd suður af New York
og um 23 kílómetra vegalengd frá Filadelfíu.
Ekki er enn vitað hvort þetta lisvenjum og því stuttur, eða þeir
verður stuttur fundur haldinn til taka fyrir vandamáiin, styrjöldina
þess að fylgja virðingar og kurteis- | miili ísraels og Arabaríkjanna, Viet
namstyrjöldina og samningana um
bann við dreifingu kjamorkuvopna
en vitað er að Johnson forseti er
reiðubúinn aö ræða öll þessi mál
eftir því sem tími vinnst tfl.
Brown utanrikisráðherra Bret-
lands ræddi þessi mál gær við
Johnson forseta.
Á vettvangi Sameinuöu þjóöanna
hefur það vakið allalmenna ánægju
að þeir koma saman til fundar í
dag Johnson forseti og Kosygin for
sætisráðherra Sovétríkjanna. Fund-
urinn verður I Glassboro litlum há-
Kosygin (t.h.) og Gromiko á aukafundi Allsherjarþingsins.
De Gaulle harðlega gagnrýndur
•— ekki unnt oð ,',taka alvarlega" ásökun hans i garð Israels
Franska blaðið Paris-Jour, sem
er vinveitt Gaullistum segir í gær
um yftrlýsingu de Gaulle forseta,
að ekki sé unnt að „taka alvarlega“
ásökun hans í garð ísraels um að
hafa byrjað styrjöldina. Yfirleitt
sætir sú ásökun gagnrýni í frönsk
um og brezkum blöðum.
Paris-Jour telur ótta de Gaulle
við þriðju heimsstyrjöldina einu
skýringuna á því að hann bar fram
þessa ásökun. Þetta álit kemur
fram hjá Bernard Lefort, stjóm-
málafréttaritara blaðsins, en hann
írcak bannar fEug-
vélalendingar
Frétt frá Bagdad hermir, að írak
hafi bannað lendingar brezkra,
bandarískra og vestur-þýzkra flug
véla á flugvöllum landsins. Sam-
tímis hefur verið bannað, að íraksk
ar flugvélar fljúgi yfir Iönd, sem
styðja ísrael í styrjöldinni. Einnig
liafa verið birtar fréttir um að írak
hafi tekið fé sitt úr bandarískum
og brezkum bönkum og iagt það í
banka í öðrum löndum, en hvorki
sagt hvar né um hve mikið fé er
að ræða.
segir: „Þaö er ekki sá, sem hleypti
af fyrsta skotinu, sem á sök á
styrjöldinni“ Hann telur yfirlýs-
ingu forsetans munu leiða af sér
ýmsan vanda, og aö sjálfsögöu
geri hann sér það ljóst, en hann
hafi með þessu lagt sín spil á borð
ið. Hann hafi að marki aö vera
sá, sem brautina vísar, í löndum
þess heims, sem þriðja heims-
styrjöldin gæti vofaö vfir, og ásamt
forustumönnum þeirra að vinna að
hag og velferð allra þjóöa heims,
að hann sjálfur telur og gefur í
slcyn.
Kannski hefðu líkurnar verið
meiri fyrir, að á hann væri hlýtt,
ef hann talaði fyrir „þá Evrópu
þar sem Bretar væru ein þjóðanna“
segir Lefort.
Hiö óháða blað Avis Combat, sem
hallast til vinstri, segir yfirlýsing-
una hafa komið óvænt og vakið
furðu og hún sé „umdeilanleg".
Hægriblaöið L’Aurore tekur fyr-
ir ásakanir de Gaulle á hendur
Bandaríkjunum vegna íhlutunar í
Vietnam — íhlutunin hafi komið
af stað þeim gangi mála, aö
samhengi sé í því, sem sé að gerast
á tveimur styrjaldarsvæðum, Suð-
austur-Asíu og Austuriöndum nær.
ÞAÐ, SEM DE GAULLE
GLEYMDI
. En það sem de Gaulle gleymdi,
segir blaðið er það, að það sem
leiddi til styrjaldar í Vietnam á
sér 20 ára og enda lengri sögu.
Þá heföu Arabarnir ávallt neiarð
ísrael um tilverurétt og þeir hót-
uðu tortímingu I'sraels jafnvel áður
en þetta ríki komst á iaggirnar.
íhaldsblaðið Le Figaro telur de
Gaulle ekki taka tillit til þeirrar
staöreyndar, að um stööugar arab-
ískar hótanir var að ræða í garð
ísraels og mikig lið var saman dreg
ið á Sinaiskaga og þetta knúöi ísra
el til þess að taka sér frumkvæðiö
í hendur með lögmætri vamaraö-
gerð.
ENGIN MÓTMÆLI GEGN
EGYPZKU OFBELDI.
I brezkum blöðum m.a. í Daily
Mail, er vikið að því, að stimpla
eigi ísrael árásaraðila. en það hafi
lítið heyrzt frá þeim aðilum, sem
vilji skella allri skuld á Israel, þeg-
ar Egyptar sendu 50,000 manna
her til hlutunar og ofbeldis í
Yemen.
skólabæ í New Jersey. Þetta er
fyrsti fundur sovézkra og banda-
rískra höfuðleiðtoga í 6 ár, en það
var í júnt 1961 sem þeir hittust í
Vínarborg John F. Kennedy og
Nikita Krutschev. Eini fundur
bandarísks forseta og sovézks for-
sætisráðherra á bandarískri grund
var í Camp David fyrir utan Wash-
ington, er þeir ræddust þar við '59
Éisenhower og Krutsehev.
Unnið var í alla nótt að ýmsum
viðbúnaði og undirbúningi að fund-
inum. Það mun hafa valdiö nokkru
um val Glassboro, að Kosygin ósk-
aði eftir að aka í bifreið á fundar-
stað. Johnson flýgur í einkaflugvél
sinni til Filadelfiú og þaðan í þyrlu
á fundarstaðinn.
Samkomulagið um fundinn náð-
ist í gærkvöldi, er þeir Dean Rusk
utanríkisráðherra Bandaríkjanna
og Andrei Gromiko utanríkisráö-
herra Sovétríkjanna sátu fund.
Brefor faka upp
sumarfíma f§E
frambúðar
Bretar ætia að hafa sumar-
tfma til frambúðar frá 18. febr.
1968 og þar með hverfa til Mið-
Evrópu-tíma frá þeim degi.
Af þessu leiðir, að brezkur
normal-tími veröur einni klukku
stund á undan Greenichc-meðal-
tíma.
NEW YORK: Norskt olíuskip Titus
bjargaði um s.l. helgi 39 manna
áhöfn sænsks olíuskips, sem
heitir EMMA FERNSTRÖM, en
eldur kom upp í vélarrúmi þess,
er skipið var statt 1300 km. suð
austur af Bermudaeyjum.
4 Forseti Zambíu er kominn til
Peking í opinbera heimsókn.
Chou En Lai forsætisráðherra,
Chen Yi utanríkisráðherra og
fleiri tóku á móti honum á flug
vellinum. Ekki er kunnugt
hversu lengi Kenneth Kaunda
verður í Kína. Hann hefir ný-
lokig heimsókn til Indlands og
Pakistan.
4. NTB-frétt frá Pula í Júgóslavíu
hermdi, aö Porgornij for-
seti Sovétríkjanna hefði haft
viðdvöl þar og rætt við Tito for
seta í sumarbústað hans á eynni
Brioni. Jacob Malik aðstoöar-
utanríkisráðherra er með for-
setanum.
4 Tass-fréttastofan birti frétt um
það í gær frá fréttastofunni í
Hanoi, að tvær bandarískar
könnunarflugvélar hefðu verið
skotnar niður með eldflaugum,
er þær voru á flugi yfir Hanoi
1' mikilli hæð.
4 Arabískir þjóðernissinnar I Ad-
en kveiktu í fyrradag í þinghús-
inu og brann það til ösku.
4 Lucy Baines Johnson Nugent,
dóttir Johnsons Bandaríkjafor-
seta eignaðist dreng í fyrradag.
Hann er fyrsta barnabarn forset
ans.
4 Yfirvöldin í Jerúsalem tilkynna
að tekið sé hart á ránum og
gripdeildum í gamla borgarhlut-
anum í Jerúsalem og hafi verið
settir upp sérlegir dómstólar
sem dæmi jafnharðan í slíkum
málum. Til þessa hafa 40 menn
verið dæmdir í sektir og gert
aö greiða bætur. Borgarstjórinn
— Teddy Kollek — segir að
90 af hundraði arabiskra emb-
ættismanna þar hafi komið aft-
ur til starfa og sé samsarf
þeirra við ísraelska liðsforingja
mjög gott.
Flóttamannavanda-
málið yfirgnæfandi
í Jórdaníu nú
Flóttamannavandamálið er yfir-
gnæfandi og veldur Jórdaníu mest
um erfiðleikum og Jórdanar þess
vanmegnugir að sjá fyrir tugþús-
undum manna á flótta.
Hafa Jórdanir sem búa á her-
tekna svæðinu verið hvattir til
þess af Jórdaníustjórn að halda
kyrru fyrir á heimilum sinum. Þar
er um að ræða 46% þjóðarinnar
— 2 milljónir manna.
Jórdanía hefir orðið fyrir tekju
missi sem þegar nemur sem svar-
ar til hundraða milljóna króna,
vegna þess aö ferðamenn koma nú
ekki til landsins. Þá hefir tekið
fyrir peningasendingar til manna
frá ættingjum erlendis og litið kem
ur nú í umferö af fé því, sem trú-
boðsstöðvar verja, en það er vana-
lega allmikið. Landsbanki Jórdan-
íu hefir lánað bönkum landsins um
640 millj. króna til þess að örva
atvinnulífið.