Vísir - 23.06.1967, Síða 16
VISIR
! Willy Brandt
i kemur síddegis
1 í dug
' Wllly Brandt utanríkisráö-
Mrra og varakanslari Vestur-
Þýzkalands kemur í dag til Is-
j lands í oninbera heimsókn. Ráð-
'j gert er að flugvél hans lendi á
Reykjavíkurflugvelli um kl. 19
Ráðherrann mun snæða kvöld-
1 verð í Ráðherrabústaönum við
Tjarnargötu.
Willy Brandt kemur hingað
frá Stokkhólmi, hafði áður ver-
ið í Finnlandi og mun hann síö-
an halda til hinna Norðurland-
anna á sunnudagsmorgun.
VA TNS VEITUFRAMK VÆMDIR
EYJABÚA GANFA VEL
— 60 manns vinnn við frnmkvæmdirnar
Framkvæmdir við hina nýju
vatnsveitu Vestmannaeyinga
ganga mjög vel, að því er Magn
ús Magnússon, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum tjáði Vísi í
morgun. Nú er verið að leggja
nýtt dreifikerfi í kaupstaðinn,
og verður lokið við í sumar að
ieggja í 1/3 hluta hans. I landi
er verið að ganga frá hinni rúm
lega 20 km. löngu leiðsiu, sem
liggur frá uppsprettunni niður
að sjó.
í sumar verður alveg gengið
frá leíðslunni frá framtíðarvatns
bóli þeirra Eyjabúa niður að
sjávarmáli, en leiöslan verður á
næsta sumri lögð eftir sjávar-
botni út f Eyjar., Veröur hún
lögö í sjó í iandi jarðarinnar
Stóru-Markar í Landeyjum.
Plastleiðslur verða notaðar til
flutnings vatnsins á sjávarbotni
yfir í Eyjar og eru leiðslurnar
danskar að gerö.
. Eins og fyrr segir er verið að
vinna að gerð nýs dreifikerfis
í kaupstaönum. Þar hefur til
þessa ekki verið um að ræða
dreifikerfi, nema í frystihúsin
niðri við höfnina. Byggðar
verða tvær dælustöðvar í sam- jj
bandi við þessar framkvæmdir, |
ein landmegin niðri við sjávar |
ir.&i og ömvuf við inntakið í *.yIj '
unum sjálfum. Ekki er endan- J
lega ákveðið enn, hvort þessar |
dælustöðvar verði byggðar í H
sumar, eða næsta sumar jafn- 5
hliða lagningu leiðslunnar eftir |
sjávarbotninum.
Eins og gefur að skilja veita I
þessar framkvæmdir fjö.lda I
fólks atvinnu og vinna nú að t
þessu um 60 manns, 20 við |
framkvæmdirnar í landi, en 40 I
við lagningu dreifikerfisins í Eyj |
um. E
Málstaður Þjóðfrelsis-
hreyfingarinnar kynnt-
ur í Reykjavík
Þrir litlir drengir á aidrínum
8 og 9 ára hnupluðu f gær tals-
verðri peningaupphæð úr smur-
stöð ESSO í Hafnarstræti. Lög-
reglunni barst vitneskia um
þetta, þegar móðlr elns þeirra
sem hafði heyrt á tali drengj-
anna Htlu hvað þeir höfftu gert,
hringdi til lögreglunnar og gerði
hennl viðvart.
Þegar móðirin gekk á dreng-
inn sinn frekar, hefði hún upp
úr honum, hvar þeir höfðu tekið
peningana, en ekki gátu þeir
gert sér grein fyrir, hve mikið
það var, sem þeir tóku. Höfðu
þeir tekið peningana í smurstöö
ESSO í Hafnarstræti og voru
búnir að kaupa sér vatnsbyssur
og sælgæti fyrir nokkuð af
fengnum. Tókst henni að láta
drenginn vísa sér á staðinn, sem
þeir höfðu falið afganginn af
peningunum, en um 1800 kr.
höfðu falið þá úti á víðavangi
Þegar öll kurl voru komin
til grafar virtist sem upphæð
peningana, sem drengirnir stáiu
hafi numið um 2500 kr. Dreng
irnir viðurkenndu að hafa hnupl
að áður og þá í félagi við ein-
hverja aöra.
Frú Lára Haraldsdóttir tekur við lyklunum af 5000. Volkswagninum frá Sæberg Þórðarsynl.
Málstaður Þjóðfrelsishreyfingar-
innar í Vietnam verður kynntur af
tveimur körlum og einni konu á al-
mennum fundi sem haldinn verð
ur • Reykjavík í næstu viku. Þetta
1 fólk kemur hingað fyrir milligöngu
í Æskulýðsfylkingarinnar en „Hin
; íslcnzka Vietnamnefnd“ mun skipu
leggja dvöi þeirra hér, en nefndin
hefur í hyggju að kynna Vígtnam-
málið frá hinum ýmsu hliðum með
fundum og útgáfustarfsemi og öðru
sem henta þykir.
1 fréttatilkynningu, sem borizt
hefur frá Hinni íslenzku Vietnam-
nefnd segir:
Laugardaginn 24. þ. m. munu
í koma hingaö til lands frá Kaup-
’ mannahöfn þrír Suður-Vietnamar,
tveir karlmenn og ein kona. Fólk
þetta er frá Þjóðfrelsishreyfingunni
(F.L.N.) í Vietnam og er á ferö
um Norðurlönd til fyrirlestrahalds.
Alþjóðasamband lýöræðissinn-
aðrar æsku (World Federation of
Democratic Youth) hefur skipulagt
þessa Norðurlandaferð í samráði
við aðildarfélög sín og Vietnam-
nefndirnar á Norðurlöndum. Aöild-
arfélag alþjóðasambandsins hér á
iandi, Æskulýðsfylkingin, fékk boð
um að þessir þrir fulltrúar frá
Þjóðfrelsishreyfingunni gætu haft
viðdvöl á Islandi ef óskað væri
Æskulýðsfylkingin framvísaði boði
þessu til stjórnar „Hinnar íslenzku
Vietnamnefndar" er samþykkti aft
veita sendinefndinni viðtöku og
skipuleggja dvöl hennar hér á
landi.
Nefndin hefur m. a. áformað að
bjóða fréttamönnum blaða og út-
varps að ræöa við Suður-Vietnam-
Framhald á bls. 10
Kviknaði í út fró
rafmagnstöflu
Eldur kom upp i rafmagnstöflu
í trésmíðaverkstæði í Kópavogi í
gærkvöldi. Var slökkviliðið kvatt
úr kl. 22.15 að Nýbýlavegi 6, sem
er stórt steinhús, en trésmiöaverk-
stæðig er þar á fyrstu hæð. Mikill
reykur var og talsverður eldur þeg-
ar slökkviliðið kom á vettvang. Fljót
lega tókst að ráða niöurlögum elds
ins, þar sem hann hafði ekkert bor
izt út úr þessu lltla herbergi, sem
rafmagnstaflan var i. Tók slökkvi
starfið ekki nema tæpan klukku-
tíma, en þó urðu þama talsverðar
skemmdir á varningi ýmsum af
völdum reyks og vatns.
Syngja í Montreal
i
I Karlakór Reykiavíkur hélt í gær
! álciðis til Montreal, þar sem kórinn
i mun halda tvo söngtónleika á
Heimssýningunni. Fyrri tónleikarn
ir verða lialdnir í dag, cn þeir seinni
á morgun, báðlr í Maison Theatre.
McSri hlutinn af söngskránni er
íslenzkt efni og hefur söngskrá-
in verið æfð af kappi í allt vor, sem
—:<>m.a. hefur orðið þess valdandi, að
kórinn heíur frestaö hinum árlegu
vortónleSkum sínum fram til hausts
ins.
Kórfélagar eru um 40 talsins.
Einsöngvarar eru Sigurður Bjöms-
son, Svala Nielsen og Friðbjöm
Jónsson. Undirleikari er Guðrún
Kristinsdóttir, stjórnandi, Páll P.
Pálsson og fararstjóri er formaður
kórsins Jón Hallsson.
Fimm þúsundasta Volkswag-
en blfreiðin, sem framleidd hef-
ur verið fyrir Island var afhent
eiganda sínum í gær i heild-
verzluninnl Heklu að Laugavegi
170-72. Sæberg Þórðarson, sölu
stjóri Heklu afhentl kaupanda
bifreiðarinnar, frú Láru Har-
alsdóttur, Þórsmörk Mosfells-
sveit, bifreiðlna við smá viðhöfn
en innan tíðar hélt hún á bif-
reiðinni út í umferðlna, þar sem
Volkswagen-bifreiðir mynda
næststærsta hóp einstakra bif-
reiðategunda, næst á eftir Ford
bifreiðunum.
Innflutningur Volkswagen-bií
reiða hingaö hófst um áramótin
1953-54. Síðan hefur Volkswag
en-bifreiðin notið sífellt aukinna
vinsæida og fyrir utan vel-
þekktu fólksbifreiðina, seni lief-
ur verið með nær sama lagi
síðan fyrir stríð, hefur verift
flutt inn mikiö inn ?.f stærrí
gerðinni af fólksbifreiðum,
statlon-bifreiðum, sendifcrða-
og pallbifreiðum og fólksflutn-
ingabifreiðum.
8 ára gamlir þjóf-
ar afhjúpaðir
Enn einn örekstur-
inn við gungbrauf
Haröur árekstur varð á Miklu-
brautinni, við gangbrautina á
móts ’óð hús númer 7, í eftir-
miðdeginu í gær. Stórri áætlun
arbifreið var ekið þar aftan á
lítinn fólksbil, sem hafði stanz-
að til þess að hleypa gangandi
vegfarendum yfir götuna. Tals-
verðar skemmdir urðu á fólks-
oíinum, en svo til engar á
áætlunarblfreiðinni. Þrátt fyrir
Framhald á bls. 10.
FIMM ÞÚSUNDASTI VW
AFHENTUR HÉR Á LANDI