Vísir - 03.07.1967, Síða 3

Vísir - 03.07.1967, Síða 3
VÍSTR . Mánudagur 3. júlí 1967. GAMLI OG NÝI TÍMINN Tún bænda eru víðast hvar af- ar illa sprottin og mun sláttur hefjast seint í ár. Vorið hefur verið kalt, hagar sprottið illa eins og túnin, og bændur ekki getað sleppt lambám af túnum fyrr en seint, sem eykur eðli- lega ekki grassprettuna. Verst eru þó þeir leiknir, sem orðið hafa fyrir kalskemmdum í tún um sínum. Eru það einkum bændur norðan lands, sem orðið hafa fyrlr barðinu á því. Nokk- uð er það þó misjafnt, eftir sveitum, og tún stundum áður verið verr leikin af kali, en nú. Samt eru meiri brögð af kali i túnum bænda eftir síðastlið- inn vetur, en marga undanfama. f síðast liðinni viku fréttist af þvi, að bændur norður í Eyja firði heföu hafið slátt og vakti sú frétt að vonum athygli, mitt innan um þann boðskap, að sláttur hæfist seint í ár. Bænd- ur I innanverðum Eyjafirðinum hafa alla tíð hafið fvrstir manna slátt á hverju ári. Sú sveit er mcð blýiustu sveitum á landinu og ein sú búsældarlegasta, en engu að s?ður höfum við búizt við aö sláttur hæfist þar síöar, eins og annars staðar. Það var svo, að aðeins fáir bændur höfðu slegið smá skika af túnum sínum, þá bezt sprottnu, sem ekki höföu ver- ið beittir í vor og snemma hafði verið borið á. Almennt var þar ekki sláttur byrjaður frekar en annars staðar, enda spretta ekkert betri þar. Það er meðal annars á Svalbarðsströndinni, sem nokkuð hefur boriö á kali í túnum. >f Myndsjáin bregður hér upp tveimur myndum af mönnum við slátt þar nyrðra í sumar. Sú efri er tekin hiá bænum Fellshlíö í Öngulsstaðahreppi í austanverðum Eyjafirðinum, en hin er af Þórði Jóhannssyni á Espihóli i Hrafnagilshreppi í vestanverðum Eyjafirðinum. Sá yngri beitir tækni nútímans, en sá eldri „gömlu góðu aðferð- inni“, enda bara að slá í kring- um bæinn.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.