Vísir - 03.07.1967, Side 5
VÍSIR . Mánudagur 3. júlí 1967.
5
Xr
TJTann heitír Oddur Guðmunds
son, borinn og barnfædd-
ur Reykvikingur. Hún var ljösa
hans, hún Þorbjörg Sveinsdótt-
ir, sem allir Reykvíkingar kann
ast við. Þeir eldri af kynningu
þeir yngri af afspurn, enda fædd
ist hann í Tobbukoti, þar sem
foreldrar hans, Guömundur
Jónsson og Oddný Oddsdóttir,
höfðu húsaskjól. Þau voru bæði
ættuð að austan og með þeim
fluttist hann á þær slóöir, þeg-
ar hann var um það bil þriggja
ára gamall.
— Jæja Oddur, nú ætlar þú
að rabba ofurlítið viö mig um
gamla daga.
— Ég get sagt þér, að for-
eldrar móður minnar hétu Odd
ur og María og um börn þeirra
er til þessi vísa:
Sigríður, Konráð, Sigurður
síðan Pála, Eiríkur,
Ólafur, Bjarni, Eyjólfur,
Oddný, Margrét, Valgerður.
Fyrst eftir að við komum
austur, var heimili okkar á
Eskifirði. Faðir minn var mjög
hagur maður, og stundaði söðla
sm. og skósm. eftir að viö flutt
um til Reyðarfjarðar hafði hann
nóg að gera, því þá hafði hann
svo mikil viðskipti við Héraðið.
Hann byggði á Reyðarfirði þar
sem kallað var Grund.
— Hvernig var nú umhorfs
á Reyðarfirði þegar þú manst
fyrstu eftir?
— Og, það var nú ekki stór-
brotið fyrstu árin. Ég byrjaði
að gutla á sjó með karlinum,
þegar ég var 12 ára gamall.
Hann náði sér einhversstaðar í
bátkænu og á henni rerum við
þegar gott var. Og öll mín ár
fyrir austan stundaði ég sjó
eftir það.
—- Hvernig voru aflabrögð
þar eystra í þá daga?
— Þau voru nú náttúrlega
dálitið misjöfn. Ég gerði út í
þrjú sumur, byrjaði á því 18
ára og fékk að heyra það hjá
eldra fólkinu, að ég mundi lít-
ið vita út í hvað ég væri að
ráðast, en þetta blessaðist mér
vel.
Svo kom að þvi, að ég gifti
mig og stofnaði mitt eigið heim
ili. Konan mín var uppalin á
Fagureyri í Fáskrúðsfirði, hét
Elín Kráksdóttir og reyndist
mér góður lífsförunautur. Við
giftum okkur á Reyðarfirði og
byrjuðum okkar búskap þar.
— Hve mörg börn eignuð-
ust þið?
Eg ætti nú að véra farinn
að venjast veröldinni
— Við eignuðumst fjögur
böm, af þeim dó eitt í æsku
en þrjú eru á lífi. Konan mín
er nú dáin og hef ég búið svo
um, að við getum hvílt saman
hérna í Fossvoginum þegar ég
fer.
— Eftir að ég setti saman
mitt heimili, hafði ég eigin út-
gerð Ég fékk mér róðrarbát,
svona á gamla vísu. Viö vorum
bara tveir á, það var þá milli
færri að skipta. Þú hefir kann-
ski heyrt talað um Rolf Jo-
hansson á Reyðarfirði. Við vor-
um 5 eða 6 Reyðfirðingar, sem
hann útvegaði báta frá Noregi.
Fyrir útvegun bátanna setti
hann þau skilyrði, að við seld-
um honum þann afla, sem við
fengjum. Hann kvaðst mundu
gefa okkur fyrir eins hagstætt
verð og unnt væri strax við
móttöku og svo bæta okkur
upp, ef betur seldist.
— Og hvernig reyndust svo
viðskiptin?
— Ágætlega, þetta var ljóm-
andi maður, áreiðanlegur í öll-
um viðskiptum ög krafðist þess
sama af öðrum. Hann var af
norsku bergi brotinn.
— Hvernig var með samgöng
ur á landi milli byggða á þess-
um árum?
— Það var mjög örðugt, t.d.
milli Eskifjarðar og Norðfjarð-
ar. Þá var ekki góður vegurinn
um Oddsskarð, aftur á móti
var mun greiðfærara um Fagra
dal upp á Hérað. Þá var Jón
Bergsson á Egilsstöðum. Ég var
vel kunnugur þeim hjónum,
þau voru foreldrar hinna þjóð-
kunnu Egilsstaðabræðra, Sveins
og Péturs, sem lengi hafa búið
þar, Þorsteins, sem var kaup-
félagsstjóri á Reyðarfirði og
Bergs, sem ég held að búi á
Ketilsstöðum.
— Varst þú lengi búsettur
á Reyðarfirði?
— Ég var búsettur þar alla
tíð þangað til ég flutti hingað
til Reykjavíkur. Þegar hér kom
var Bjarni Benediktsson núver
andi forsætisráðherra, borgar-
stjóri. Þegar ég fór að gera
VEGNA
SUMARLjYFA
veröur verkstæði okkar aðeins opið fyrir
minniháttar viðgerðir og stillingar á tíma-
bilinu 17. júlí til 10. ágúst.
P. Stefánsson hf.
Laugavegi 170—172.
grein fyrir tilveru minni sagði
hann að sjálfsagt þyrfti ekki að
efast um uppruna minn sem
Reykvíkings, fyrst ég væri fædd
ur í Tobbukoti og hún Þor-
björg Sveinsdóttir hefði tekið
á móti mér í þennan heim. Hún
átti litla bæinn, sem liggur við
Vegamótastíginn móti tukthús-
inm Ég tók það fram, að ég
hefði nú ekki fæðzt i tukthúsinu
svona til áréttingar.
— Var nú langróið frá Reyö-
arfirði?
— Jæja, við fórum út að eyj-
unni og lágum stundum við í
Breiðuvikinni — hún er úti í
Helgustaðahreppnum.
— Þú rerir nokkrar vertíðir
frá Hornafirði. Er það ekki?
— Jú þaðan reri ég sex ver-
tíðir. Þetta er ágætis staður,
en þar þarf að hafa mikla að-
gæzlu við siglingu um ósinn,
það gerir straumurinn út og inn
Verður að fylgjast vel meö fall-
inu á hverjum tíma. Bezt er að
fara um liggjandann eða í enda
á falli, því annars fær maður
mótfallið á móti sér. Annars
fannst mér gott að vera á Horna-
firði, og Austfiarðabátum lán-
uðust vel ferðir þangað. Við
fórum venjulega á vertíðina í
febrúar og komum aftur seinni
hluta maimánaðar. Einu sinni
henti þó það slys, að við misst-
um formanninn í ósinn og hann
drukknaöi. Það var straumhnút-
ur, sem féll á bátinn.
— Hvernig var afkoma fólks
þar eystra í uppvexti þínum?
— Á fyrstu árunum fannst
mér nú sem hart væri í ári og
fólk skorti ýmsar nauðsynjar.
Atvinna var fremur lítil við
annað en það, sem menn gátu
skapað sér sjálfir og það var
þá helzt skjögt á smábátum er
brugðizt gat til beggja vona.
Það bætti aftur úr, þegar vél-
bátarnir komu og farið var að
fara á vertíðina suður til Horna
fjarðar. Við höfðum uppsátur á
Ægissíðunni, það er austar en
Höfn. Þar voru verbúðir aust-
firzku sjómannanna.
— Var einhver sérstakur at-
hafnamaður á Hornafirði í þá
daga, sem þér er minnisstæður?
— Já, Þórhallur Daníelsson.
Mér virtist sem hann léti þar
mest að sér kveða, annars má
vel vera, að þar hafi verið ein-
hverjir fleiri en ég hef þá gleymt
því, eftir Þórhalli man ég og
við hann hygg ég að Austfirö-
inearnir hr.fi haft sín viðskipti.
— Hvernig voru verzlunar-
hættir á Reyðarfirði?
— Fyrst var nú Friðrik Wat-
hne, bróðir Ottós Wathne, sem
var á Seyðisfirði. Hann var nú
mikið með síldarútveg þar. Svo
dró úr hans umsvifum, þegar
sildin brást, að ekki var hægt
að ná henni við land inni í
fírðinum. Þá voru nú ekki komn
ar snurpunætur, heldur bara
kastnætur.
— Var dálítil síldveiði á fyrri
árum þarna fyrir austan?
— Já, bað var töluverð síld-
veiði. Ég man að eitt haustið
var veiði rétt fram að jólum. Þá
voru þar 5 eða 6 Norðmenn.
Það voru ,,bassarnir“ báðir, yf-
irbassinn og undirbassinn og
ég reri undir undirbassanum,
hann hét Elías og var frá Ála-
sundi — Úlrik hét hinn.
— Hvaö gerðu þessir menn
sem þú kallar „bassa“?
— Þeir leituðu uppi síldina.
Þaö var róið með þá um síld-
arsvæðin eða þar sem talin var
síldar von og þeir lóðuöu eftir
henni, þannig var það á þeim
tíma. Það var lóð neðan í grönn
um þræði, sem rennt var niður
og ef það kom á rétta torfu,
þá kom titringur á þráðinn.
Þetta gerðu þeir einnig til að
vita hve mikið var í nótinni
eftir að búið var að kasta. Svo
var síldin geymd í stóru nót-
inni og aörar minni nætur sett-
ar innan í og svo tekið úr þeim
og flutt í land til verkunar. Meö
þessari aðferö var helzt ekki
hægt að veiöa síld væri hún ekki
rétt við marbakkann.
— Áttir þú aldrei mótorbát?
— Nei, en ég skal segja þér,
að fyrsta árið sem ég átti bát-
inn sem Rolf Johansson útveg-
aöi mér, þá voru svo góð afla-
brögð, að ég átti eftir eitthvað
6 eða 7 þúsund krónur, þegar ég
haföi gert upp við Rolf. Þetta
var mjög gott á þeim tíma, enda
sagði hann það. Þetta var nú
fyrsta árið, en það hversu vel
gekk get ég engu síður þakkað
þeim manni, sem meö mér var
en siálfum mér. Þessi maður hét
Ólafur og var sunnan af landi,
bráðduglegur og ötull maður.
Hann var frá Þórkötlustöðum í
Grindavík.
— Var þessi maður lengi með
þér?
— Nei, aðeins eitt ár, því aö
hann varð úti milli Grindavík-
ur og Keflavikur. Þar missti ég
góðan mann frá starfi, því hann
ætlaði að koma til min aftur
hefði honum enzt lif. Ég fékk
aldrei síðar jafngóðan mann,
enda sást það á aflabrögðunum,
því þau voru lakari eftir þetta.
Þaö er ekki sama hver maður-
inn er.
— Þín afkoma hefur ætíð
veriö sæmileg. Er það ekki?
— Ég hef aldrei haft af mjög
mikilli fátækt að segja, hvorki
í uppvextinum né eigin starfi,
ekki svo að yfir því sé ástæða
aö kvarta, enda hefur maður
ekki verið mjög kröfuharður um
lifshætti.
Eftir að þú komst aftur hing-
að til Reykjavíkur hvert hefur
þá starf þitt veriö? Hefur þú
stundað sjó?
— Nei, ekki síðan ég kom
suður, heldur stundað ýmsa
vinnu, sem til hefur fallið. Þeg-
ar herinn kom hér og allir fóru
i vinnu á hans vegum sem þess
áttu kost, réði ég mig í bæjar-
vinnu sem fastan mann og vann
þar alltaf síðan meöan ég var
vinnufær.
En nú hef ég fengið snert af
kransæðastíflu og það hélt ég
ætlaði að fara með mig. Nei karl
rétti við og nú geng ég sjáðu
fyrir einhvers konar sprengi-
efni eða hvað þaö nú er.
Já, lífið gengur svona á ýmsu
e* ég tek það bara svona eins
og það er. Ég er líka orðinn 86
ára svo ég ætti nú að vera
farinn að venjast veröldinni.
Þ. M.
TIL SOLU
2ja herb. íbúð við Skipasund
2ja herbergja íbúð við Þórsgötu
3ja herbergja íbúð við Mánagötu
3ja herbergja íbúð við Sólheima, glæsilegt út-
. sýni
3ja herbergja íbúð við Stóragerði.
4—5 herb. íbúð á efstu hæð í þríbýlishúsi við
Glaðheima. íbúðin er 2 stofur, 3 svefnherb.
eldhús og bafi; stórar svalir, fallegt útsýni,
hagstætt verð,- ,
3ja herb. íbúð við Mávahlíð
5 herb. íbúð við Rauðalæk
5 herb. íbúð í Háaleitishverfi
Sérhæð og ris á einum bezta stað í vestur-
bænum.
2ja og 3ja herb. íbúðir tilbúnar undir tréverk
og málningu í vesturbænum
Fokhelt raðhús í Fossvogi
350 ferm iðnaðarhús til sölu eða leigu. Góðar
innkeyrslur og stór lóð.
FASTEIGNAMIÐST OÐIN
AUSTURSTRÆTI12 SiMI 2ÖH24& 14120
HEIMASiMI 10974