Vísir - 03.07.1967, Side 9

Vísir - 03.07.1967, Side 9
VÍSIR . Mánudagur 3. júlí 1967. 9 Vísir ræðir við nokkra visindamenn af Surtseyjarráðstefnu Það voru uppteknir menn, sem sátu fundi í Átt- hagasalnum í Bændahöllinni við Hagatorg — með hugann allan við Surtsey, hvar vísindin eru nú að ráða lífsgátuna. Þessi eyja gerir meira en færa út landhelg- ina okkar, vera landkynning og auka túrisma. Hún hefur beint til sín sjónum heimsfrægra vísinda- manna hvaðanæva og á ráðstefnunni í Bændahöll- inni sátu margir slíkir, jarðfræðingar og líffræðing- ar af ýmsum tegundum, en þessar fræðigreinar eru margslungnar — og margar undirgreinar þeirra bera nöfn, torráðin á íslenzka tungu. Blaðamaður Vísis sat fyrir nokkrum vísinda- mönnurn í anddyri Hótel Sögu seinasta dag ráð- stefnunnar og átti við þá skyndiviðtöl meðan þeir löbbuðu út úr dyrunum í átt til bandaríska sendi- ráðsins, þar sem Surtseyjarvinurinn Poul Bauer ætlaði að afhenda enn eina stórgjöfina til vísinda- rannsókna í eynni og sendiherrann bauð upp á kokkteil. Wilhelm Swartz frá Þýzkalandi, Steingrímur Hermannsson formaður Surtseyjarfélagsins, John Olive og Porter, forráðamenn Líffræðistofnunar Bandaríkjanna. Dr. John Olive: Stofnun með 65 þúsund vísindamenn Það var Líffræðistofnun Banda- ríkjanna „American Institute of Biologikal Sciences" sem á- samt Surtseyjarfélaginu stóð að þessari ráðstefnu og yfirmann þeirrar stofnunar, dr. John Olive hitti Vísir að máli rétt sem snöggvast. — Dr Olive sagði að byrjaö hefði verið að hugsa til þessarar ráðstefnu árið 1965, en slík ráð- stefna krefst að sjálfsögðu mik- illar skipulagningar. — Og bandaríska stofnunin sá meöal annars um að velja erlenda full- trúa til mótsins hér. — Surtseyjarráðstefnan er eitt dæmi um það hvemig stofn unin vinnur, sagði dr. Olive, þeg ar hann var spurður um starf- semi Líffræðistofnunarinnar. — Á okkar vegum starfa 65 þúsund líffræðingar, víðs vegar í veröldinni, flestir að sjálfsögðu í Bandaríkjunum. Stofnunin sendir menn þangað, sem verk- efni liggja fyrir hendi og við tökum þátt í að skipuleggja ráð stefnur, slíkar sem þessa. Stofn unin vill stuðla að því að safna saman í eitt sem víðtækastri líf fræði þekkingu, sem orðið gæti allu mannkyninu til gagns. — Jafnframt vill stofnunin stuðla að meiri samvinnu við aðrar vísindagreinar, sagöi dr. Olive — Og í því sambandi mætti nefna Surtseyjarráðstefn- una, þar sem jarðfræðingar og líffræðingar skiptast gagnkvæmt á þekkingu og kynnast hvors annars vinnubrögðum. Líffræðistofnun Bandaríkjanna hefur að sjálfsögðu starfandi vís indamenn á hinum ýmsu svið- um líffræðinnar. Sjálfur kvaðst dr. Olive ekki starfa sem vísindamaður, en á ráöstefnunni var einnig forseti stofnunarinnar og yfirmaöur vís indarannsóknanna dr. Roger Porter. Dr. Wilhelm Swartz: Hefur með sér ösku úr Surtsey Eini Þjóðverjinn á ráðstefn- unni, Wilhelm Swartz, er maður ákveðinn £ fasi að sjá svona við fyrstu sýn. Útitekinn eins og flestir þátttakendur ráðstefnunn ar — Hann kvaðst raunar starfa í Bandaríkjunum um þessar mundir, við „Tallahassee" rí'kis háskólann í Florída og sérgrein Frá Surtseyjarráðstefnunni. hans er „geomikrobíología", en eitt svið Surtseyjarrannsókn- anna er einmitt „mikrobíología", smáverulíffræði, eða bakteríu- rannsóknir. Þetta svið er ekki viðamikill hluti Surtseyjarrann- sókna og er eingöngu bundió við bakteríurnar — nær ekki til sýkla né gerla. — Swartz kvaðst ekki hafa komið út í Surtsey fyrr en nú, en vísindamennimir af ráðstefn- unni heimsóttu sem kunnugt er eyjuna einn daginn og fengu heldur kaldar viðtökur — Surt- ur svaraði þeim með hálfgerð- um skætingi og manaði veður- guðunum á þá með vindbelgingi. — Hins vegar var ég hér á Iandi á síðasta ári, sagði dr. Swartz, við athuganir og kom hér auga á margar spurningar sem varða mikrologíu. Swartz hafði með sér héðan mörg sýn- ishom af ösku úr Surtsey. í öskunni er að finna brennistein og jámsambönd, sem eru viður væri ýmissa bakteríutegunda. — Swartz vildi ekki mikið gefa út á áhuga Þjóðverja á Surtsey. — Að sjálfsögðu vita allir um Surtsey, sagöi hann. Carl Lindroth: Doktorsritgerðin fjallaði um íslenzk skordýr Einn þeirra mörgu erlendu vísindamanna, sem Surtsey hef- ur tekið traustataki er sænski prófessorinn Carl H. Lindroth frá Lundi. — Hann er mörgum íslenzkum vísindamönnum kunn ur, enda hefur hann dvalið oft- sinnis hér á landi við rannsókn- ir, og þegar Vísir hitti hann í anddyrinu á Sögu, þennan síð asta dag Surtseyjarráöstefnunn- ar, sagðist hann vera búinn að bollaleggja hálfsmánaöar dvöl hér í sumar, viku f Vestmanna eyjum og viku í Vfk f Mýrdal, en rannsóknirnar, sem hann ger ir á þessum stöðum snerta Surts ey. Lindroth var í hópi þeirra á ráðstefnunni, sem fjölluðu um landlfffræði, sem tekur yfir þær fmmbjarga lífverur, sem lifa á landi. Þessar lífverur eru öllu stærri en þær sem Þjóöverjinn Swartz fæst við. Próf. Lindroth sagöi að nú væru fundnar um 30 teg- undir slíkra smádýra í Surts- ey. Lindroth kvað mikinn áhuga í Svíþjóö á Surtsey og sem dæmi um það nefndi hann að bók Almenna bókafélagsins um Surtsey, sem dr. Sigurður Þór- arinsson sá um, væri mjög vin- sæl í Svíþjóð ög sænska út- gáfa bókarinnar væri nú nær ófáanleg þar. — Við höfum ekkert svona merkilegt fyrirbrigði i Svíþjóð, sagði hann, þegar hann var spuröur að því hvort slik ráð- stefna, sem þessi mundi vekja almennan áhuga þar í landi, svo að þar á er ekki hægt að gera samanburð við það sem hér er. Prófessor Lindroth er sem 'fyrr segir ekki í fyrsta sinni hér á landi. Hann dvaldist tvö sumur í Öræfum og skrifaöi síö- an doktorsritgerð sína um skor- dýr hér á landi: „Die islendske insektenfauna og Inre Problem- er“. — Þar veltir hann því fyrir sér hvort skordýr kunni að hafa lifað af ísöldina hér á landi. En álitið er að á jökultímanum hafi verið auö svæði hér á landi, sem ef til vill hafi fóstraö einhvern gróður og líf. — En nú hefur Lindroth sem sagt snúið sér að Surtsey, svona meðfram að minnsta kosti. Willy Nicolaisen: Sá eini, sem fæst við Surtseyjarrannsóknir í Danmörku Loks náöi Vísir fimmmfnútna spjalli við Danann Willy Nicolai sen, rétt áður en þátttakend- urnir héldu upp f bandaríska sendiráð til síðdegisdrykkju. Nicolaisen er ungur maður meö ásjálegan skeggkraga, rauðleit- an. Hann starfar við „Marina Biologikal Institute" á Helsingja eyri og rannsóknasvið hans munu þvf vera tengd lífinu f sjónum. • VIÐTAL DAGSINS Nicolaisen sagðist raunar vera eini Daninn, sem lagt hefði fyr- ir sig Surtseyjarrannsóknir og hér kvaðst hann vera í fjórða sinn. — Og þaö er sem sagt lífið í sjónum umhverfis Surtsey, sem athUganir hans beinast að. Sagðist hann hafa kannaö sjó- inn umhverfis og smáeýjamar í grennd við Surtsey á ferðum sín um hér. Hann sagðist hafa átt samstarf við íslenzka vísinda- menn, viö athuganir sínar, nefndi þar til dæmis Sigfús Schopka, ungan fiski- og haf- fræðistúdent, sem hefði aðstoð- ag hann. Seinast var Nicolaisen hér við rannsóknir nú í vor og hafði þá með sér danskan blaðamann út í Surtsey og situr sá nú væntan- lega við aö semja Surtseyjar- grein. Um ráðstefnuna sagði Nicolai- sen, að hún hefði veitt ómetan- lega yfirsýn yfir Surtseyjarrann sóknimar í heild. — Maður fær nasasjón af því, sem verið er að vinna að og dregur lærdóm af vjsindamönnum, sem eru ao | fást við ólík verkefni, sagði § hann. 1

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.