Vísir - 03.07.1967, Blaðsíða 16
VTSTR
Mánudagur 3. júli 1967.
—7
Bifreið veltur á
Þingvallaveginttm
Mesta mildi var, að enginn skyldi
slasast, þegar bifreið fór út af
Þingvallaveglnum á móts við Stífl-
isdal í gærdag kl. hálf fjögur. 1
blfreiðinni voru fjórar ungar stúlk-
ur og eitt bam, þegar óhappið vildi
til. Missti ökumaðurinn bifreiðina
út af veginum og þar fór hún eina
eða flelri veltur, en stöðvaðist loks
á hvolfi. Fólkið var allt flutt á
slysavarðstofuna, en meiðsli þess
voru ekki talin alvarlegri en svo,
að það fór allt þaðan heim til sín.
BSwr ?*• rZFT'r t -'j ■ \
HELMINGUR FLOTANSÁ LAND-
LEID MEÐ FULLFERMI
Slldin veiðist norður v/ð isróndina um 400
milur frá Raufarhöfn. Langmesti sólarhringsaflinn
Um helmingur sildarflotans
nyrðra fékk afla í nótt, fjörutíu
og þrjú skip með 10.825 lestir
og er það langmesti sólarhrings-
aflinn, sem komið hefur til
þessa. — Síldin veiddist mjög
norðarlega, eða 71,35° n. br. og
um 22° v. 1. En það er um 400
mílur frá Raufarhöfn og er síld-
in þar í mjög köldum sjó alveg
norður undir ísröndinni, sem
liggur j>ar norður í hafinu.
Skipin sigia öll meö aflann í
land þar eð síldartökuskipin
Síldin og Haförn eru bæði í
landi að losa. Var búizt við að
þau skip sem fengu afia í gær
kæmu til Raufarhafnar einhvern
tíma á morgun.
Mikið síldarmagn er þar
noröur í hafinu og velta menn
því fyrir sér hvers vegna síldin
gengur inn í svo kaldan snjó,
en undanfarin ár hefur hún
einmitt foröazt svæöið út af
Norðuriandi, vegna þess hve
sjórinn hefur verið kaldur þar.
— Samkvæmt upplýsingum
Hjálmars Viihjálmssonar leitar-
stjóra á Ægi er sjórinn þarna
um 1 gr. heitur.
Síldin er nú oröin nær þvi
söltunarhæí, hvað fitumagn *
snertir og síldarplön eru víðast jj
hvar tilbúin að taka á móti, en i
söltun er óhugsandi meðan síld- )
in veiðist svo iangt frá landi. — |
hún vill veikjast á svo langri |
‘ leið og er oft ekki annaö en I
grautur, þegar aö landi er |
komiö.
Veður er nú sæmilegt á mið- P
unum, og þar er eitthvert slang- t*
ur af bátum, en annars er g
megnið af flotanum á siglingu, 1
ýmist á iandleið eða útleið.
140 í fuglaskoðunarferð
með Esju um helgina
„Við vorum afar heppin með
veður og ferðin var mjög ánægju-
leg“, sagði Ámi Waag, einn þriggja
fararstjóra 140 manna hóps, sem
var að koma úr fuglaskoðunarferð
með „Esju“ í morgun kl. 7. Ferðin
var farin á vegum Hins íslenzka
Náttúrufræðifélags og Fuglavemd-
unarfélags íslands.
„Héðan frá Reykjavík héldum
ið um kl. 2 á laugardag og fórum
beint á þær slóðir, sem hvalveiði-
' itarnir halda sig helzt. Þangað
vorum við komin rétt eftir mið-
nætti og sáum við einar þrjár lang-
reyðar á þeim þrem tímum, sem
við leituðum.
Þaðan héldum við til Flateyjar,
sigldum fram hjá Grundarfirði á
leiöinni þangað, og lögðumst svo að
bryggju í Flatey og stigum þar í
land. Þar var skoðað fuglalíf eyj-
arinnar, en síðan siglt að Látra-
bjargi, eins nærri iandi og þorandi
var, til þess að sýna fólkinu hve
óhemjumikil mergöin af fuglinum
er í bjarginu.“
Þannig hljóðaði ferðasagan af
vörum Árna Waag þegar fréttamað
ur Vísis hitti hann við komu
,,Esju“ f morgun.
„Sáuð þið eitthvað í fuglalífinu,
Árni, sem ykkur kom a óvart?"
„Ekkert, sem kom okkur beinlín-
is á óvart, en það var meir um
,,þórshana“ í Flatey, heldur en við
höfðum reiknað með“.
„Þið eruö ánægð með ferðina
eftir því, sem mér sýnist á fólkinu
sem er að ganga hér landganginn“.
„Já, við erum mjög ánægð meö
hana. Þökkum við það ekki sízt
þeirri lipurö og þægilegri þjónustu,
sem við mættum á skipinu. Kunn-
um við Skipaútgerðinni miklar
þakkir fyrir og áhöfninni“.
Fugiaskoðunarmenn, þegar þeir stigu á land úr Esju í morgun.
MAIOG SIGURÐUR MED 2 vinnuslys um helgina
Tvö vinnuslys urðu um helgina. Laugateig, um kl. hálf fimm í gær.
Annað varð þegar maður nokkur Stóð hann við það í stiga uppi á
var að gera við bifreið, sem stóð þakinu og var stiginn bundinn með
á „búkkum" utan við húsiö nr. 7 j kaðli. Kaðallinn var þó ekki traust-
við Langholtsveg, síðdegis á iaug- ari en svo, að hann slitnaði, og
um nokkuð á bessum sióðum, ardag. Rann bifreiðin út af „búkk-1 rann stiginn með manninn niður •
en togararnir hafa aflað vel ^ unUm“ og lenti maðurinn undir garð, talsvert fall. Maðurinn vai
þar frá þvi í vor. Afli þessara j jjgj^j Hann var fjuttur a sjysa., fluttur á slysavarðstofuna, en sja
tvegg.ia togara fer til vmnslu i 1 . , ;
frystihúsunum í Reykjavík og I varðstofuna’ en meiösl' hans voru ' anleS meiðsli voru ekki mikil. þo
Hafnarfirði. | ekki talin alvarleg. | kvartaði hann undan þrautum
í I Hitt slysið vildi til, þegar maður j baki.
ætlunarfíug þotunnar um
helgina gekk mjög vel
— Var 1 tima og 20 minútur til Glasgow i morgun
Boeing þotan í fyrsta sinn á Kaslrup-flugvelli við Kaupmannahöfn.
Fyrstu farþegamir eru í landganginum, (Ljósni, Vi'sir, V, V.)
Hin nýja Boeing-727 þota
Flugfélags fslands ior í sína
fimmtu utanlandsferð i morgun
til Glasgow og Kaupmannahafn-
ar, en á laugardag og sunnudag
fór þotan tvær ferðir hvom dag-
inn til London og Kaupmanna-
hafnar. Aliar ferðirnar hafa
gengiö mjög vel og farþegar og
áhöfn keppust um að lofa flug-
ið og farkostinn.
F.inn af Vísismönnum fór með
þotunni í fyrsta flug hennar til
Kaupmannahafnar á laugardag-
inn. Tók ferðin þangað um 2
tíma og 45 mínútur og var flogið
í 33 þúsund feta hæð.
A leiðinni voru bornar fram
góðar kræsingar, m. a. þrírétt-
aður matur.
Áhöfn þotunnar í þessari
fyrstu ferð hennar til Kaup-
mannahafnar skipuðu: Flug-
stjóri: Anton Axelsson, flugmað
ur; Ámundi Ólafsson og flug-
vélstjóri: Oddur Pálsson Yfir-
flugfreyja á leiðinni var Unnur
Gunnarsdóttir.
Kristinn Magnússon, vélamað
ur Flugfélagsins í Kaupmanna-
höfn tók á móti þotunni við
komuna til Kastrup. Lét hann í
ljósi mikla ánægju með farkost-
inn, og sagði hann m. a. að
afgreiðsla á þotunni i Kaup-
mannahöfn væri mun auðveld-
ari og þægilegri en t.d. á DC 6 B
vélunum, auk þess sem af-
greiðsla farþeganna gengur mun
betur meg hinni nýju vél, vegna
þess að tvær útgöngudyr eru á
henni fyrir farþega.
Þotan fór í morgun sína
fimmtu ferö og flaug til Glas-
gow og Kaupmannahafnar. Flug-
tíminn til Glasgow var aðeins I
tími og 20 mínútur, eða aðeins
lengri en tekur að fljúga frá
Reykjavik norður á Akureyri.
Togararnir Maí og Sigurður
komu inn i morgun með tæpar
400 lestir hvor af Græniands-
miðum. Is hefur nú hamlaö veið