Vísir - 28.08.1967, Side 9

Vísir - 28.08.1967, Side 9
V1SIR. Mánudagur 28. ágúst 1967. 9 Arni Johnsen kallar eftir kræsingamar. land um taistöðina hvílir leið Ámi ber á borð, en Þorbjöm Brodcíason stendur hjá og kvíðir fyrir uppvaskinu, (sem reyndar var ó- þarft að þessu sinni, þar eð kvenmaður var með i förinni sem tók það að sór). Surtseyjarbændurnir Ámi Johnsen og Þorbjöm Broddason utan við Pálsbæ. „Fjallið eina“ £ baksýi til hægri. ur verið ýmislegt þó leikmanni sýnist það koma spánskt fyrir sjónir. Þeir félagar ganga um eyna og huga aö dýralífi, ganga á reka o. s. frv. Einnig fylgjast þeir félagamir með gróöri og sjá um jarðskjálftamælinn og síðast en ekki sízt taka þeir margs konar sýnishorn fyrir vís- indamennina. Þegar vísindamennirnir koma til eyjarinnar, í eigin persónu, aðstoöa þeir félagarnir þá eftir beztu getu, svo og aðra gesti sem fá leyfi til aö fara til eyj- arinnar. Ámi segir okkur, að vitað sé um þrjá meiriháttar hella i eynni og hafi þeir félagar kann- að þann sem þeir álíti stærstan og fóru þá um það bil 70 metra niöur i eyna og hundruð metra ferðuöust þeir undir yfirboröi jarðarinnar. Einn hellirinn hef- ur verið kallaður Þórólfshellir, eftir finnandanum Þórólfi Magnússyni, þeim sem hefur nýlokið við að fljúga með okk- ur í eyna. Þriðji hellirinn er aftur á móti við nýja gíginn sem myndaðist í fyrrasumar og hefur hann ekki hlotið nafn ennþá. Framhald á bls. 10. Myndir og mái: RagnarLár Þorbjörn Broddason varð einn eftir í eynni að þessu sinnl. Hann hefur bundið við sig gler- augun, sagðist hafa tapað þrenn um við landtöku, en hún get- ur oft verið strembin viö eyna. SURTSEYJARBÆNDUR SÓTTIR HEIM Á flugvellinum í Vestmanna- eyjum bíður okkar lítil flugvél af Cessna-gerö, en hún ætlar að flytja okkur til Surtseyjar á vit bændanna þar, sem að þessu sinni eru þeir Ámi Johnsen og Þorbjörn Broddason. Flugvélin er lítil eins og fyrr er sagt og hefur stélhjól, en ekki nefhjól, það ku nefnilega vera erfitt aö hefja nefhjólsvél á loft frá eynni vegna þess hve sandurinn er gljúpur þar. Flugmaður og eigandi vélar- ihnar er Þórólfur Magnússon úr Reykjavík, margreyndur og góður flugmaður að því er okk- ur er sagt. Við erum þrjú í vél- inni auk Þórólfs og er hún þá fullsetin. Bergþór Jóhannsson grasafræöingur hafði komið með Þórólfi til Heimaeyjar og beið þess að hann tæki sig í baka- leiðinni frá Surtsey, en þannig er mál meö vexti, að flugvélin getur ekki hafið sig á loft úr eynni nema með þrjá menn og það bíða sem sagt tveir úti á eyju. Þaö er ekki lengi gert aö fljúga til Surtseyjar frá Heima- ey, og innan stundar erum við lent á ströndinni neðan við Pálsbæ. Pálsbær er íbúðarhús eyjar- innar, það eina sem enn hefur verið byggt og verður ekki séð fram á að annað rísi þar f bráð- ina, enda fullnægir þetta hús oftast húsnæöiseftirspum í eynni. Þeir Þorbjöm og Ámi koma til móts við okkur á „flugvöll- inn“ og bjóða velkomin til eyj- arinnar um leið og þeir kveöja þá dr. Þorbjöm Sigurgeirsson og Eggert Briem, sem eru far- þegar meö Þórólfi til Reykja- víkur. :....................................................................................................' ■■ Okkur er boðið til Pálsbæjar, en þar er mjög vjstlegt um að litast, að ekki sé meira sagt, forstofa, dagstofa, eldhús, geymsla, svefnloft, og salerni. Aö sjálfsögöu er dagstofah einnig stefnstaður þeirra sem að staðaldri dvelja í eynni, en svefnloftið aöeins notað þegar fleiri dvelja í húsinu. Árni Johnsen dvaldi sumar- langt í eynni í fyrra og hefur verið þar frá 20. júní s.l. og seg- ist munu dvelja þar til 25. sept- ember. Þorbjöm vinnur aftur á móti sem starfsmaöur Surtseyj- arfélagsins og hefur einnig starfað fyrir þáð í Reykjavík, en dvelur nú í eynni með Áma í stað Sigurðar Richters sem er í-fríi þessa stundina. Starf þeirra félaganna er í þ^í fólgið aö fylgjast meö því sem gerist í eynni, en það get- Þetta er nýjasta myndin sem Landmælingar ríkisins hafa tekið af Surtsey. Örin visar á munnann á hinum stóra helli, sem Árni og Þorbjöm könnuðu á dögunum. Efst (nyrzt) á eynni má greina nýja lónið sem myndazt hefur síðan í fyrrasumar og sandströndina utan við það. Gamla lónið (hálffullt af hrauni frá í vetur), sést skammt neðan við það nýja. „Flugbrautin“ liggur milli lónanna.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.