Vísir - 28.08.1967, Blaðsíða 12

Vísir - 28.08.1967, Blaðsíða 12
12 V í SIR. Mánudagur 28. ágúst 1967. IJti. \ | te 1' I 1 • i haföi þekkt alla frægustu garpa á þeirri tíö, hann haföi verið leið- sögumaður Fremonts, fylgt inn- flytjendahópum yfir fjöllin til Kali- forníu og Oregon, barizt viö Ind- íána í öllum fylkjum landsins, leit- að gulls á ótal stöðum. Með öðrum orðum — hann hafði fengizt við ýmislegt og vlða verið. Síðasta áratuginn töldu allir vist að hann væri orðinn sjötugur en þó voru allir þeir, sem gerst þekktu hann, reiðubúnir að sverja, að hann hefði skarpari sjón, meira likamsþrek og þol, skjótari hugsun og sterkari taugar en þritugir menn yfirieitt, auk þess sem hann gæti drukkið hraustustu roenn undir borð — án þess á honum sæist að hann hefði bragðað vín. En það, sem gerði hann þó ólík- astan öðrum, ungum mönnum og gömhnn, var þó þetta, að hann sá sýnir. Sú staöhæfing mundi hafa stimpl- að hann sem svindlara 1 hverju mennmgarþjóðfélagi. En þarna í fTOtobyggjahéröðunum við landa- mærin var ekkert mark tekið á stimplum. Þar er það árangurinn, sem gildir, staðreyndimar. Og traust manna á orðum Jónasar spá- manns byggðist einfaldlega á þeirri staðreynd, að um áratuga skeið hafði allt, sem hann spáði, komið fram. Væri hann að því spurður hvernig það mætti vera, að hann gæti fullyrt þetta eða hitt, án þess nokkrum skynsamlegum rökum væri þar til að dreifa, starði hann framundan sér, hristi kollinn eilítið og mælti svo eftir stundarþögn: „Mér gafst sýn ...“ Reynið, ef ykkur finnst þaö ó- maksins vert, að gera ykkur í hugarlund veitingastofu, þar sem hópur námumanna situr að drykkju og rökræðir berglög, málmæðar, vatnsaga og annað þess háttar. Gamall maður, dökkbrúnn og hrukkóttur í andliti, bersköllóttur með brimhvítt skegg, situr eins og í leiðslu og starir i glas sitt, og virðist ekki taka eftir neinu því, sem fram fer eða um er rætt í kringum hann. Það verður hljótt i veitingastofunni. Athygli allra viðstaddra beinist að gamla mann- inum. Rauðbirkinn námumaður, sem stendur við hliö honum, bendir veitingamanninum meö yfirskeggið að fylla glas hans, og spyr lotn- ingarfyllst, þegar því er lokið: „Spámaður - hvað segir þú um þetta meö málmæðina?“ Þaö verður löng þögn. Gamli maðurinn starir fram undan sér. Ber glasið að vörum sér, tæmir það, setur það á borðið. Loks tekur hann til máls, og röddin er annar- lega dimm. „Kannski beygir æðin til vinstri, en ekki hægri. Þú ættir að grafa samkvæmt því ... tólf fet niður“. Viku seinna, 'þegar holan er orð- in ellefu feta djúp, kemur niður á málminn! Þaö þénar ekki neinum tilgangi að tína til fleiri dæmi hér til að sanna hina merkilegu hæfileika Jónasar spámanns. Kalliö það á- gizkani; hugboð, vitranir eða sýnir — eða hvaö, sem þið viljið — en hvað.svo sem þiö kallið það, var þaö svo óbrigðult, að hver sá græningi, sem leyft hefði sér að gefa I skyn, aö Jónasi spámanni Smurstöð OPIÐ FRÁ KL. 8 — 18 Venjuleg smummg á VoUcswagen kostar kr. 75.00. Ven|uleg smuming á Landrover kostar kr. 105.00. PANTff) TÍMA í SlMUM 2-12 40 og 10 5 85. HEKLA LAUGAVEGI 170 — 172 gæti skjátlazt, sá heföi fengiö kúl- una kembda! Hvar sem hann fór, var hann boöinn og velkominn. Honum var séð ókeypis fyrir öllu, fæði, klæðum og húsnæði og öðru, sem hugur hans gimtist — og taldi það enginn eftir. Hann geröi hvorki að vinna né spirma, og skorti þó aldrei neitt. Og Jónas spámaöur haföi sagt, , að veturinn yrði langur og harður. | Þá þurfti ekki að ræða það frékar. ; „Fréttablaðið" í Denver endur- [ prentaði fréttina úr dagblaðmu í Julesburg, varðandi Wallingham- lestina, sem vakti að sjálfsögðu mikinn fögnuö og almennan, bæöi hjá veitingamonnum, kaupsýslu- mönnum og þeim mörgu námu- mönnum, sem þegar höfðu leitað til borgarinnar ofan úr fjöllunum og höfðu ekkert við aö vera. Nú var ekki um annað rætt en hvaða dag, jafnvel klukkan hvað, lestin mundi koma til borgarinnar. Var brátt að þvi horfið, að efna til getraunar um það, skyldi sérhver þátttakandi í getrauninni greiða fimm dali i sameiginlegan sjóð um leiö og hann skilaði tilgátu sinni; vinnandinn hljóta helming sjóösins, en hinum helmingnum varið til að gara veizlu mikla, svo menn gætu etið og drukkið og verið glaðir I tilefni af því, að borgarbúar þurftu ekki vetri aö kvíöa. Og einmitt þegar hér var komiö sögu, datt einhverjum hyggnum náunga það í hug, að kannski væri ekki svo fráleitt aö ganga á fund Jónasar spámanns áður en tilgátu- seölinum væri skilað, og fimm dal- imir greiddir í sjóöinn. Þegar þeir félágar höfðu haft uppi á gamla manninum og fyllt glas hans nokkrum sinnum, tók talsmaður þeirra til máls: „Hvenær heldurðu, spámaður, að vagnalestin komi hingað í borgina?" Það varð löng þögn. Jónas spá- maður lyfti glasinu að vörum sér, Svo drúpti hann höfði. „Gæti fariö svo, að hún kæmi alls ekki ...“ Þeir félagar störðu hver á annan, skelfmgu lostnir. Sólbrennd andlit- m urðu náföl. Svo spurðu alíir i senn: Að hún komi ekki? Hvers vegna ekki? Hvaö getur 'hindraö hana?“ „Veit það ekki. Mér gafst sýn ...“ Það var óhagganJeg staöreynd, að þegar Jónas spámaður lýsti yfir því að sér gæfist sýn, var gersam- lega þýðingarlaust aö spyrja hann frekar. Þessi öriagarika spá hans barst um borgina eins og eldur 1 sinu, og oHi I seon undmn og skelfingu. „Jónas spámaður segir, að svo geti farið að lestin komi alte ekki?“ „Býst hann við aö það fari að snjóa?" „Hann sagöi ekkert um það“. „Indíána-árás?“ „Sagði efckert um það ...“ „Hvað gæti hiodrað lestina, ann- að en snjóalög eða Indíánar?“ „Kannski vegtollarar. Eða skatta- spæjarar? Já, eða jafnvel þessar bindindis-kerlingar, sem sett hafa alit á annan endann í Julesburg og Cheyenne. Þú hefur auðvitað lesið það í blööunum, aö þær réð- ust inn í veitingastofu í Baltimore, vopnaöar öxum?“ „Jæja, eigi ég að segja þér mitt áKt, þá skal enginn vegtollari, Indíáni, skatta-spæjari eða bind- indiskerling eyöileggja veturinn fyrir mér. Við skulum hafast eitt- hvað að! Við skulum kalla saman ráðstefnu!“ „Góö hugmynd! Þið Will smaliö veitingastofurnar þarna megin við götuna, við Clayton hinum megin“. Ems og áöur hefur verið fram tekið, höfðu hinir forsjálu Denver- búar fyrir löngu lært það af reynslunni, að vera jafnan við öllu búnir. Þeir bjuggu sig því undir allt. 1 \A'0\ f'ASTÖÐ'IN 1-U.ÐU!vLANDSBRAUT «- Viivn Oi’iÐ ■;.!jNN"r».-° - x\: „Þama er ástæðan, Ronu, dvergur með „Við Tarzan ætlum að bjarga ykk«r“. „Þið Mjóðlaust biástursrör". „Ég er Akumba“. byrjið vel, vinur“. Shrfóníubljómsveit ístónds Orðsendiitg fH áskrifenda Áskrifendur, sem ekki hafa enn tilkynnt endumýjun skiitelna sinna, eru góöfúslega beðnir um að gera þaö strax í síma 22260. Sala skirteinahefst 4. septeahber í Ríkisútvarpimi Skútógötu 4, sirm 22260.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.