Vísir - 02.09.1967, Side 1
Nýtt eldvarnakerfi fyrir Slökkvi-
liðið eyðilagðist í brunanum
Náttúruverndarráh eða skipul*agsyfirvöld:
Hæstaréttardómarar skera
57. árg. - Lattgardagur 2. september 19(17. - 200. tbl.
úr um Kísiliðjuveginn
Nú fer loks að sjást fyrir endann vegjnn svonefnda við Mývatn. En Hæstiréttur hefur að beiðni
á deilum Náttúruverndarráðs og j deilumál þessi hafa hálfpartinn menntamálaráðuneytisins tilnefnt
Skipulagsyfirvalda um Kísiliðju-1 þróazt út í Iögfræöilega refskák. ! þrjá menn, þá hæstaréttardómar-
' ana Gizur Bergsteinsson, Elnar
H-UMFERD
í SVlÞJÓD f NÓTT
Blaðamaður Visis i Málmey segir frá siðasta
# „Það er talsvert mikið átak fyrir okkur Svía,
eftir 233 ára vinstri umferð, að skipta nú yfir
á hœgri á einni nóttu“, sagði A. Melin, yfirmaður
Högre Trafik Komite við Valdimar Jóhannesson,
fréttamann Vísis í Málmey í gærdag, en Melin hef-
ur haft yfirstjórn í Málmey um samræmingu og
stjóm á öllum aðgerðum, sem gera hefur þurft
vegna breytingarinnar í Málmey, eins konar tví-
stefnuupplýsingamiðstöð, eins og Melin sjálfur
sagði.
„Ég hef þó ástæðu til aö vera
bjartsýnn, þvi undirbúningurinn
að breytingunni hefur verið gíf-
urlega umfangsmikill. í heilt ár
hefur verið unnið stíft að þessu
verki, — sjálfur hef ég unnið
16—18 tima á hverjum sólar-
hring frá í febrúar. Sjálfur und
irbúningurinn hófst i ársbyrjun
1964. Ég tel að nú sé allt 100%
V-deginum
tilbúið og sömu sögu er aö segja
annars staðar frá í Svíþjóð“,
sagðl Melin. „Þetta hefur verið
mesta upplýsingaherferð í sög-
unni og allt sfðasta ár hefur ver
ið hert mjög á upplýsingunum í
blöðum, útvarpi og sjónvarpi og
alls staðar þar sem hægt hefur
verið að koma því við. Núna
undir lokin, siöasta mánuðinn
var enn hert á þessu“, sagði
hann að lokum.
Núna rétt fyrir breytinguna
sagði fréttamaður Vísis hvar-
vetna blasa viö skilti og spjöld
með leiöbeiningum og hvatning-
um til fóiks um að muna hægri
umferðina. H-merkið hangir um
ailt og fjölmiölunartæki öll eru
full af umferðarábendingum og
fræðslu. Hér er allt hugsanlegt
gert til að fræða almenning um
breytinguna, öll tæki til þess
gjömýtt.
Fólk, sem blaöamaður Vísis
rabbaði við á götum Málmeyj-
Framh. á 10. síöu.
| Arnalds og Jónatan Hallvarösson
j til þess aö segja áiit sitt á málinu.
Það er hvort leggja eigi veginn
I yfir hraunið, samkvæmt skipulags-
uppdrætti sem félagsmálaráðuneyt-
ið hefur samþykkt, eöa hvort
hlýða beri friölýsingu Náttúru-
verndarráðs, sem gefin var út 30.
ágúst, en ráðið hefur samþykkt að
leggja bar. við mannvirkjagerö og
jarðraski á hrauninu milli Reykja-
hlíðar og Grímsstaöa innan eins
kílómetra svæðis frá bakka Mý-
vatns.
Menntamálaráðherra, Gylfi Þ.
Gíslason sagði á fundi meö frétta-
mönnum f gær að hann teldi vfst
að deiluaðilar myndu hlíta niður-
stöðum hæstaréttardómaranna,
hver svo sem hann yrði, en þeir
myndu hraöa mjög álitsgerð sinni
Framhald á bis. 10.
V'órur jbær er borgin átti, og eyðilógðust i brunanum allar vátryggðar
Torben Frederiksen, forstjóri Innkaupastofnunar Reykjavík-
urborgar gaf Vísi í gær þær upplýsingar, að meðal þess sem
brann inni í eldsvoðanum í Borgarskála var nýtt eldvarnakerfi
fyrir Slökkviliðið í Reykjavík. Viðvörunarkerfi þetta var af full-
kominni tegund og var frá hinu þekkta tæknifirma í Svíþjóð, L.
M. Ericson. Þá brunnu einnig inni í bruna þessum mörg tæki,
sem Innkaupastofnunin hafði keypt fyrir nýja Borgarsjúkrahúsið.
Allt það, sem Reykjavíkurborg átti í Borgarskálanum og varð
brunanum að bráð var að sjájfsögðu vel vátryggt og því hlýzt
ekki fjárhagslegt tjón af brunanum fyrir Reykjavíkurborg, en ó-
hjákvæmilega kemur hann sér mjög illa, svo að ekki sé meira sagt.
Eins og fyrr getur er eldvarna-
kerfi þetta, sem þarna brann, af
fullkomnustu gerð og miklar vonir
bundnar við slíkt kerfi hér. M.a.
átti þetta sjálfvirka kerfi að kveikja
aðvörunarljós við Reykjanesbraut
þegar slökkviliðið er kallað út.
Tæki þau, sem brunnu inni, en
átti að koma fyrir í Borgarsjúkra-
húsinu, voru heyrnarprófunartæki,
sjónvarpsmyndavél, súrefnistæki
og einnig nokkuð magn af röntgen- j
filmum. Torben Frederiksen sagði, I
Stjórnarþingmenn
d fundum
Þingmenn stjórnarflokkanna,
Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks,
komu til funda hér í Reykjavík
i fyrradag. Voru þetta fyrstu fund-
ir þlngmannanna eftir kosningar.
Einkum var rætt á þessum fundum
um þau vandamái, sem þjóðin á
nú við að etja í efnahagsmáiunum,
gerð fjárlaga og fleira. Munu
langflestir þingmenn stjórnarfiokk-
anna hafa sótt fundi þessa.
að alls hefði verðmæti þeirra tækja
sem brunnu verið um 2 milljónir
króna, en Reykjavikurborg hefði
átt tæki aö verðmæti um 5 millj.
kr í Borgarskála Eins og áður hefur
verið getið var allt þetta vátryggt
og fjárhagslegt tjón þvl ekki telj-
andi.
Torben kvað líklegt, að þessi
tæki yrðu pöntuð, strax og gengió
hefði verið frá tryggingarmálunum
en borgaryfirvöldin myndu á næst
unni eiga viðræður við Sjóvátrygg
ingarfélag Islands, en tæki borgar-
innar voru tryggð hjá því trygging
arfélagi.
Ungur fiðluleikari á
ónleikum í Kópavogi
Tónlistarfélag Köpavogs efnir til
tónleika 4. september og kemur þar
Áhöfn Vatnajökuls öl! yfir-
heyrð vegna seðlastuldsins
Tuttugu og einn maður, öll
áhöfn Vatnajökuls hefur nú ver
ið yfirheyrður í sambandi við
þjófnaðinn á peningaseölunum
úr sendingunni, sem Seðlabanki
Islands fékk með Vatnajökll frá
London á miövlkudag. Fram-
burður vitnanna hefur þó ekki
leitt neitt nýtt í ljós í málinu.
Verknaðurinn upplýstist ekki
fyrr en á miðvikudag, þegar
byrjað var aö skipa upþ köss-
unum með peningunum úr
Vatnajökli hér í Reykjavíkur-
höfn. Var þetta sending nýrra
bankaseðla, sem Seðlabankinn
>’ að fá frá London, en þar
nafði þeim verið skipað um
borð í Vatnajökul.
Kassarnir með seðlunum i
voru geymdir í sérstakri lest
framan við yfirbyggingu skips-
ins, en lest þessa kalla skip-
verjar „Brunninn". Ekki verður
með nokkru móti séð, hvort pen
ingunum var stolið hér við upp
skipun, eða úti í London við út
skipun, en litlar líkur eru tald
ar vera á því, aö þaö hafi ver-
ið gert hér heima.
Það ■ voru verkamennirnir,
s em unnu við uppskipun á seðla
kössunum hérna, sem fyrstir
urðu þess varir, að gat hafði
verið gert á einn kassan. Gerðu
þeir lögregluþjónunum tveim
sem stóðu vörð yfir vinnunni
þegar viövart. Kom í ljós, að
stolið hafði verið sextíu og níu
1000 króna seðlum, sem þjóf-
arnir hafa líklega plokkað út
um gatið.
fram ungur og efnilegur fiðluleik-
ari, Guðný Guðmundsdóttir, en hún
hefur fengið 4 ára styrk til tónlist-
arnáms við Eastmann-tónlistarskól
ann í Rochester i Bandaríkjunum.
Undirleikari á tónleikunum verður
Ásgeir Beinteinsson.
Guðný er 19 ára gömul og hefur
lokið námi í fiðluleik i Tónlistarskól
anum f Reykjavik, og frá 15 ára
aldri hefur hún leikið af og til með
Sinfónfuhljómsveit Islands. Hún hef
ur oftsinnis komið fram sem ein-
leikari á tónleikum Tónlistarfélags-
ins. Tvívegis hefur Guðný farið til
námsdvalar til Bandaríkjanna og í
síðara skiptið hlaut hún styrk til
nárrts við Eastmann-tónlistarskól-
ann, en hann er deild af háskólan-
um þar og er talinn einn af fremstu
tónlistarskólum Bandaríkjanna.
Guðný hefur einnig dvalizt I Sví-
þjóð og leikiö þar í sinfóníuhljóm-
sveit og s.l. sumar var hún vara-
konsertmeistari hljómsveitarinnar í
Lundi.
Þetta eru fyrstu tónleikar Tón-
listarfélags Kópavogs, en það var
stofnað árið 1963 og hefur rekið
tónlistarskóla í Kópavogi síðan.