Vísir


Vísir - 02.09.1967, Qupperneq 8

Vísir - 02.09.1967, Qupperneq 8
8 V í S I R . Laugardagur 2. september 1967, VÍSIB ,Hreinsun" / Pólska kommúnistaflokknum z/1 Otgefandi: BlaOaútgðtao viain Framkvæmdastjóri: Dagur Jónasson y Ritstjóri: Jónas Kristjánsson AOstoóarritstjóri: Axel Thorsteinsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Augiýsingastjóri: Bergþór Olfarsson Auglýsingan Þingholtsstrætl 1, simar 15610 og 15099 Afgreiðsla: Hverfisgötu 55. Ritstjóm: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 Unur) Askriftargjald kr. 100.00 á m&nuði innanlands I lausasölu kr. 7.00 eintakið Prents-~aiðj£ Visis — Edda h.f. .MaÓur heyrði þetta vol og væl" það hefur ekki leynt sér undanfarin ár, að móðu- ha'rðindavæl Tímans og sumra helztu leiðtoga Fram- sóknarflokksins hefur haft lítinn hljómgrunn hjá þjóð- inni. Það hlýtur líka að vera afar erfitt að fá fólk til að trúa áróðri, sem að öllu leyti stangast á við stað- reyndirnar um líf þess og afkomu. Fyri’r nokkru var birt í Morgunblaðinu samtal við Ágúst Ólason bónda í Mávahlíð á Snæfellsnesi, í tilefni af 70 ára afmæli hans. Meðal annars, sem blaða maðurinn spurði Ágúst um var þetta: „Þú varst var við í kosningunum í sumar að Fram- sóknarmenn töldu allt á niðurleið?“ „Já, maður heyrði þetta vol og væl þei’rra, en þjóð- in sýndi þann þroska, að láta slíkt sem vind um eyrun þjóta. Hún hefur annað að gera í önn uppbyggingar- innar en að íilústa á harmagrát þeirra, sem hafa orð- ið af strætisvagnÍRum og reyna allt til að hindra eðli- lega uppbyggingu — menn sem telja betur varið pen- ingum í byggingu og rekstur veitingahallar í Reykja- vík en í sameiginlegan bjargráðasjóð bændanna, en það tel ég stofnlánadeildina vera og hvem eyri, sem í hana kemur. S.l. átta ár, eða tímabil viðreisnarstjórn arinnar, tel ég hafa verið bændastéttinni þau hagstæð- ustu, og mikið happ var það íslenzkri bændastétt, að fá Ingólf Jónsson fyrir landbúnaðarráðherra. Hann hefur frá fyrstu tíð sýnt það, að hann er dugmesti og hagsýnasti maður í þeirri stöðu, sem landið hefur eign azt. Það er ekki ofmælt, enda fékk hann verðugt traust í seinustu kosningum. Ég á þá ósk bezta ís- lenzkri bændastétt til handa, að hún megi njóta hans sem lengst“. Tíminn mundi sennilega svara þessu eitthvað á þá leið, að Ágúst sé yfirlýstur Sjálfstæðismaður og tali því eins og stjórnin vilji heyra. — En várla hefði hann nú samt tekið svona djúpt í árinni, ef þetta væri ekki fullkomin sannfæring hans og vissa. Og það er líka öldungis Víst, að hann talar þarna fyrir munn margra bænda ú'r Framsóknarflokknum, sem fyrir löngu em orðnir uppgefnir á volæðisskrifum Tímans. Og leið- togar Framsóknarflokksins urðu þess líka áþreifan- lega varir í síðustu kosningum, að þessi áróðu’r þeirra hafði ekki borið þann árangur, sem þeir vonuðu. Afkoma íslenzkra bænda hefur sem betur fer verið góð yfi’rleitt þessi árin, þrátt fyrir nokkur áföll af völd- um veðráttunnar í sumum landshlutum. Svo er t.d. nú í sumar, að illa horfir hjá mörgum um heyfeng. En ís- lenzkir bændur eru ýmsu vanir í þessu efni, og það er þeim fjarri skapi, að mæta erfiðleikunum með „voli og væli“. Þeir ganga á hólm við þá með karlmennsku og bjartsýni á framtíðina, eins og Ágúst í Mávahlíð. Og þei'r mega treysta því, að landbúnaðarráðherrann og öll ríkisstjórnin mun veita þeim þá aðstoð, sem unnt er. Pólski flugherinn fékk nýlega nýjan yfirmann, Roman Pasch- kozghas hershöfðingja. Hann tók við af Czeslav Mankiewics, og er þess ekki getið, að honum hafi veriö fengið neitt nýtt em- bætti I hendur. Öðru nær. Mankiewics yfir- hershöfðingja flughersins var vikið frá og tveimur nánustu samstarfsmönnum hans, vegna þess að þeir spymtu gegn stjóm málastefnu stjómarinnar og reyndu að hafa áhrif á stjóm- málalegar ákvarðanir. En með hvaða hætti? Með því að snúast til and- Þar með var of opinberri hálfu gefið til kynna hver stefnan væri — og var hér um að ræða eins konar einkunnarorð fyrir pólska liðsforingja og aðra að festa sér í minni. Á undangeiignum tveimur árum, en einkum seinustu 2 —3 mánuðina hefur fjölmörg um embættismönnum af Gyð ingaættum verið vikið úr ut- anrfkisþjónustunni og ýms- um embættum, eða sviptir störfum við blöð, útgáfufyrir tæki og þar fram eftir göt- unum. Þetta er höfuðorsök þess, að fyrrverandi forstjóri Gomulka Gyðingum vikið úr mikil- vægum embættum í Póllandi stöðu v'ið stefnu stjórnarinnar, sem er vinveitt Arabaríkjunum og andvig ísrael — og í stöðugt vaxandi mæli andvíg Gyöingum. En ýmsum öðrum liðsforingj um hefir verið vikið frá, eða þeir hafa verið settir á eftirlaun. Sýnir þetta, að sterkur stuðn- ingur við stefnu sovétstjómar- innar út af styrjöldinni milli ísraels og Arabaríkjanna, hefir Ieitt til megnrar óánægju meðal pólskra liðsforingja — og meö- al alls almennings í landinu. Haft er eftir landvamaráöherra Póllands, að með stuðningi viö stefnu ísraels væri látinn í ljós stuðningur viö heimsveldissinna, og sá stuðningur væri og hvort tveggja í senn and-socialistisk- ur og andpólskur. Pólsku innkaupastofnunarinn ar (MINEX), Roman Bogusz að nafni, ákvað á sumarleyf- isferð með konu sinni, er þau vom í París, ag hverfa ekki aftur til Póllands. Þögn hefur ríkt um ræöu þá, sem menningarmálaráðherra Póllands flutti, er úthlutað var verðlaunum og styrkjum af opin berri hálfu, en á löngum nafna- lista sáust nú engin nöfn, sem bentu til gyöingslegs upprana. Pólská skáldið góðkimna, Juli an Stryjkowski, orti ljóð um ísrael, en hefur hvergi getaö fengið þaö birt i Póllandi, og er reynsla hans um þetta svipuö og hins gamla, heiðurskrýnda skálds, Antoni Slinimski. Lubianski, þingmaður kaþólskr- ar trúar, einn af fjórum fulltrú- um ZNAK (stuðningssamtök Wyszybski/jardi) flutti nýlega ræðu, sem blööin hafa vandlega þagað yfir. í henni hvatti hann stjómina til gagnrýni á báða aöila í styrjöldinni. Lubianski sætti ákaflega harðri gagnrýni af sauðtrygginn flokks mönnum, en á sjálfa ræðu hans var ekki rrtemzt einu orði. Það sannar hve vlðtæk and- spyman er, ag boðað hefur verið að flokkshreinsunin hafi verið skipulögð þannig, að hún fari fram 1. 11.—31. 12. Á þessum tíma eiga allir aö endumýja flokksskírteini sin — en þá fyrst, er rætt hefir vertó ýtarlega við skírteinishafa. kvlk.. myimir Ikvikl BHHTk^T JmyndirJ BIBHnijrndirli unm»Miinifi/:*rmvi2glla]tma«iMnncg» í kvikmyndahúsunuiti um helginu Stjömubíó, sem aö undan- fömu hefir sýnt við góöa aðsókn kvikmyndina Blindu konuna, er nú farið að sýna víðkunna mynd sem hér er kölluð Beizkur á- vöxtur (The Pumkin Eater) og verður hennar væntanlega getiö síðar hér í blaðinu. Gamla bíó sýnir Meðal njósnara (Where the spies are) með David Niven í hlutverki njósnarans, Tónabíó er byrjað að sýna Taras Bulba, með Yul Brynner, Tony Curtis og Christine Kaufman (endur- sýnd), Austurbæjarbíó „Hvikult mark“ — leikin af úrvalsleikur um, Paul Newman, Laureen Bacall og Janet Leigh o. fl. Allt era þetta frambærilegar myndir og sumar áEytar. Franska mynd in „Deo Gratias" í Nýja Bíó er nokkuð óvanalegs efnis, fyndin og vel leikin, en Laugarásbfó sýnir kvikmyndina „Frekur og töfrandi". Aðalhlutverk leikur Belmondo, en myndir hans njóta vinsælda margra. 1 Háskólablói er sýnd brezk gamanmynd: Er þaö minn — eöa þinn? Líkleg til vinsælda eins og brezkar gaman myndir af betra taginu. Hér er því úr nógu að velja — allar þessar myndir hafa eitthvað til síns ágætis og sumar mikið. —I. David Niven Myndin er úr kvikmyndinni „Beizkúr ávöxtur“, en hún er gerð eftir metsölubók P. Mortimers. Höfundur handrits er Harold Pint- er. Aðalhlutverk leika Anne Bancroft, Peter Finch og James Mason. — Anne hlaut verðlaun í Cannes, Frakklandi, fyrir leik sinn í myndinni. í kvikmyndinni „Meðal njósn- ara“ leikur David Niven sveita- lækni, sem freistast til þess að gerast njósnari brezku leyniþjón ustunnar, en móti honum leikur Francise Dorleac — einnig njósn ara — en hún njósnar bæði fyrir Breta og Rússa.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.