Vísir - 05.09.1967, Blaðsíða 9
V1SIR . Þriðjudagur 5. september 1967.
9
I upphafi skólaárs
V'isir heimsækir tvo barnaskóla i Reykjavik
Þessa dagana er alvara lífsins að byrja hjá skólaæskunni,
minni leikur, meiri vinna. Bamaskólarnir byrjuðu 1. septem-
ber og nú er rykið dustað af námsbókunum - í hönd fer lang-
ur lexíúvetur. • •
Borgarlífið breytir um gang. Þúsundir ungmenna verða að
haga lífi sínu eftir skólabjöllunni og settum skólareglum. Það
kemst aftur á regla eftir sumarlangt flökkulíf, útilegur og
feröalög.
Skólarnir hafa undanfama daga verið að undirbúa vetur-
inn eftir sumarfríið. Þar hafa staöið yfir hreingerningar. Mál-
arar h*fa farið penslum um veggina. - Úti og inni hefur verið
dyttað að smáu og stóm.
Kennararnir koma misjafnlega vel hvíldir til starfa, margir
frá sumarlöngu uppbótarstriti. Sumir sitja námskeiö til þess
að undirbúa sig undir veturinn - aðrir láta sér nægja að
glugga í sfn gömlu kennslufræði, áður en þeir ganga upp að
púltinu.
Skólastjórar sitja önnum kafnir á skrifstofum sínum og
svara spurningum endalaust, skipa nemendum á stofur og
skipuleggja kennsluna í vetur.
Vísir hitti skólastjóra í tveimur barnaskólum í Reykja-
vík í þann mund að skólamir hófu göngu sína og tafði þá
stutta stund mitt í önnunum.
Fyrsti skóladagurinn. — Myndin var tekin við Álftamýrarskóla á laugardaginn.
l^yrst litum við inn í Álfta-
mýrarskóla, einn yngsta
skóia borgarinnar, með sólrík-
um stofum og rúmgóðum. Þar
ríkir ferskur andi, enda starfa
þar ungir kennarar og ötulir.
Við hittum Ragnar Júlíusson
skólastjóra á skrifstofunni?
— Já, hér starfar eingöngu
ungt fólk, segir hann. Kennar-
amir eru yfir 30, þegar allir eru
taldir, stundakennarar, íþrótta-
og handavinnukennarar líka.
Það hefur verið mjög mikil
eftirspum eftir kennarastöðum,
óvenjumikil mundi ég segja. Viö
höfum ekki getaö tekið nærri
alla, sem vildu koma og við
hefðum gjaman viljað taka.
Þessi skóli tók til starfa fyrir
fjórum ámm og þá vom hér að
eins 500 nemendur, síðan hefur
Ragnar Júliusson skólastjóri Álftamýrarskólans:
Skólinn begar orðinn of lítill
— 3. áfangi í undirbúningi
skólinn stækkaö og núna eru
nemendumir orðnir nálægt 1100
og er þá þröngt setið, eins og
rauaar víðar.
Umdæm skólans er milli a,-
albrautanna, tveggja að sunnan
og norðan, Suðuriandsbrautar og
Miklubrautar en Kringlumýrar-
brautar og Grensásvegar
að vestan og austan. Fólki fjölg
ar mjög í þessu hverfi, eins og
sjá má á íbúðarhúsabyggingun-
um, enda er skólinn þegar orö-
inn of lftill. Við verðum aö
senda af okkur bæði fyrsta og
annan bekk frá því í fyrra og
hér verður aðeins fyrsti bekkur
gagnfræðastigsins í vetur auk
barnadeildanna.
En þetta er aðeins tímabund-
ið húsnæðisvandamál, þvi að nú
stendur til að byggja nýja álmu
að norðanverðu viö skólann,
jafnlanga aðalálmunni, þar verða
fimm almennar kennslustofur,
samkomusalur og auk þess á
að byggja sjálfstætt íþróttahús
út í Safamýrina. Þetta verk
verður boðið út núna á næst-
unni.
TTm nýmæli i kennslunni i
vetur sagði Ragnar, að það
væri helzt, að nú ætti að inn-
leiða nýja reikningskennslu í
alla sjö ára bekki, svokölluö
mengi og fimm af kennuru=t
skólans væru á námskeiot til
þess aö læra þessa nýju að-
ferð en hana á sem kunnugt er
að innleiða eftir föngum í
yngstu bekki barngskólanna í
Reykjavík og víðar.
— Ég geri ráð fyrir að þessir
bekkir haldi áfram með mengja-
aðferð næsta vetur og væntan-
lega sækja kennararnir áfram-
haldandi námskeið til þess að
læra meira um þessa nýju
kennsluaðferð. — Það er ekki
ástæða til þess að ætla annað
en mengjaaðferðin gefist vel
enda hefur hún gefið góða raun
á hinum Norðuriöndunum.
— Annað er þaö, að gert er
ráð fyrir aö enska verði kennd
eitthvað í tólf ára bekk. Þannig
er mál með vexti að við reikn-
um meö aö enskunámskeið, sem
halda á fyrir kennara í haust,
fái inni hérna i skólanum og þá
verða þeir bekkir, sem fengnir
verða til æfingakennslu líklega
látnir halda áfram við enskuna
í vetur.
— Undanfarin ár hefur ver-
ið reynt að færa lesgreinarnar form og meira sjálfstæð vinnu-
yfir í nýtt form, vinnubókar- brögö. Þetta hefur verið reynt
Pálmi Jósefsson skólastjóri Miöbæjarskólans:
Voru 2091, begar flest var
— nú eru beir rétt yfir 700
JW'iðri í Miðbæjarskólanum rík-
ir annar andi. Veggir þessa
húss eru skeknir af ærslum
heilla kynslóða. Þarna slitu elztu
núlifandi Reykvíkingar barn-
skónum.
Skólinn verður sjötiu ára að
hausti, en hann var lengi eini
barnaskólinn í Reykjavík.
'Vísir hitti Pálma Jósefsson,
skólastjóra, á skrifstofu sinni
og spurði hann hvað framundan
væri þennan sjötugasta starfs-
vetur skólans.
— Nemendum hefur farið
fækkandi undanfarin ár, enda
dregur stöðugt úr búsetu í mið-
borginni og fólk flyzt í út-
hverfin.
— Ég reikna með að nemend-
ur veröi ekki miklu færri í vet-
ur en í fyrra en þá voru hér
570 í barnadeildunum og 250
í unglingadeildum, sagði Pálmi.
Þegar ég byrjaði hér 1923 var
þetta eini barnaskólinn í Reykja
vík og var það til 1930, þegar
Austurbæjarskólinn tók til
starfa. Skólaárið 1929—30 var
skráður 2091 nemandi f Miö-
bæjarskólanum, en sá fjöldi var
þó aldrei allur í þessu skóla-
húsi, því að þá var byrjað að
kenna í nokkrum kennslustof-
um í Austurbæjarskólanum. Á
þessum árum var jafnframt
kennt í leiguhúsnæöi úti í bæ,
en þó hygg ég að í þessu húsi
hafi verið allt upp undir 1800
nemendur, þegar flest var, svo
að það hefur oft verið þrengra
hér en nú. Þá var tví og þrísett
í flestar skólastofurnar.
Það er búið aö gera afar
mikið við þetta hús. Það var
allt klætt innan fyrir nokkrum
árum og gólfin klædd upp á
nýtt. Þegar ég kom hingað var
mestur hlutl skólans kolakynt-
ur. Hér hafa að sjálfsögðu orðiö
margháttaðar breytingar á.
Fyrir fáum árum fengum við
samkomusal. Þaö var opnaö á
milli söngstofunnar og einnar
almennrar kennslustofu í suður-
álmunni og er hægt að opna inn
í þá þriðju, þegar eitthvað liggur
við.
— Kennslustofurnar hér eru
um það bil helmingi minni en í
nýjustu skólunum, svo að hér
hefur oft verið þröngt setið.
Seinustu árin hefur heldur verið
fækkað í hverri stofu. Nú eru
ekki nema um 100 nemendur
af hverjum árgangi í skólan-
Pálmi Jósefsson.
um og hverjum þeirra er skipt
niður í fjóra bekki, annars höf-
um við haft hérna um og yfir
þrjátíu nemendur í bekk, eins
og annars staðar.
— T/’erða einhverjar breytingar
’ á kennslutilhögun í vetur?
— Það er eðlilegt að
kennari fylgi þeim kennsluhátt-
um sem hann tileinkaði sér á
yngri árum, eftir því sem kostur
er. Helztu breytingamar á þessu
meira og minna i öllum skólum .
að undanförnu.
starfsári yröu á reiknings-
kennslunni. Þaö hafa verið kenn-
arar frá okkur á námskeiöi til
þess að læra mengjaaöferðina
svokölluðu. Hins vegar er ekki
hægt að skylda neinn kennara
til þess að taka upp þessa að-
ferö, ef hann fellir sig ekki við
hana, eða treystist ekki til þess
aö ná va'.li á henni. — Við er-
um mjög íhaldssamir með allar
breytingar á kennsluháttum, ís-
lendingar, enda verða ekki
gerðar neinar byltingar i skóla-
málum á einu ári, þetta verð-
ur að þróast smám saman. —
Hins vegar virðist mér vera
mikill áhugi hjá kennurum á
þessari nýju reikningskennslu.
— Tungumál hafa ekki verið
kennd í barnadeildunum hérna.
Ég geri þó ráð fyrir að þau hljóti
að koma þegar fram líða stund-
ir. En þá verður líka að breyta
kennsluaðferöum og kennslu-
bókum.
— Er nokkur kennaraskortur
í Reykjavíkurskólunum?
— Ég held að aldrei hafi verið
jafnlítið framboð af kennurum
fyrir gagnfræðastigið og núna
í haust. Það má segja að barna-
skólarnir í Reykjavík hafi nóg
ken: raval. Hins vegar hef ég
aldrei vitað til þess að eins mik-,
iö hafi verið auglýst eftir
kennurum út á land í dagblöð-
unum og núna.
— Þetta er allt að færast í þaó
horf að kennaraliðið verði ein-
göngu kvenfólk. Það er mjög
algengt að til dæmis kvenstúd-
entar með kennararéttindi kenni
nokkra vetur meöan eiginmenn-
irnir eru að ljúka námi. — Þaö
er að sjálfsögðu slæmt fyrir
skólana ef kennaraskipti eru
mjög tíð.
Gagnfræöaskólarnir hafa leyst
sinn kennaraskort með því aö
ráða háskólastúdenta, sem ekki
eru búnir að ljúka námi og ætla
sér margir hverjir ekki að verða
kennarar til frambúðar. En mik-
ill hluti kennara á gagnfræða-
stiginu hefur ekki nein kennara-
réttindi, þó að nokkrir hafi að
vísu öðlazt réttindi á námskeið-
inu, sem haldið var í sumar fyr-
ir gagnfræðastigskennara.