Vísir - 08.09.1967, Blaðsíða 8

Vísir - 08.09.1967, Blaðsíða 8
8 VÍSIR . Föstudagur 8. september 1967. VÍSIB Utgefandi: Blaöaútgðtan vism Framkvæmdastióri: Dagur Jónasson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aðstoóarritstjóri: Axel Thorsteinsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Auglýsingastjóri: Bergþór Úlfarsson Auglýsingar: Þingholtsstræti 1, símar 15610 og 15099 Afgreiðsla: Hverfisgötu 55. Ritstjóm: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur) Áskriftargjald kr. 100.00 á mánuði innanlands I lausasölu Kr. 7.00 eintakið Prents...iðj£ Visis — Edda h.f. • -n mmm —i— Brúaróður |>að hefur jafnan verið íslendingum fagnaðarefni og hátíðisstund þegar skip hafa verið byggð eða keypt til landsins, og eins þegar stórfljótin hafa verið brúuð. Hvort tveggja á rætur að rekja til þeirrar gleði, sem vaknar í brjósti þjóðarinna'r, þegar einangrun er rofin við umheiminn eða innanlands og framtak og atorka leysist úr læðingi. Brúarhátíð var haldin við Jökulsá á Breiðamerkur- sandi s.l. laugardag. Þessi mikli farartálmi hafði verið bugaðu'r af afli anda og handar — ný stórbrú var vígð! Ingólfur Jónsson, ráðherra, flutti vígsluræðu við þetta tækifæri, en hann hefur verið mjög atorkusamur „brúarsmiður" í ráðherratíð sinni. „í augum Austur- Skaftfellinga var það fjarlægur draumur fyri'r fáum árum, að allar ár í sýslunni yrðu brúaðar", sagði ráð- her'rann. Vissulega er þetta rétt, og vafalaust eiga landsmenn, sem ekki eru kunnugir í þessu mikla vatna héraði, erfitt með að gera sér grein fyrir, hversu gífur- legum umskiptum brýrnar valda. Með nýjum brúm tengist sveit við sveit, fólkið flyzt nær hvert öðru. Aldrei hefur náttúruverndarráð bannað brúarsmíði! Þegar brýrnar yfir stórfljótin fara að koma til sög- unnar, er eins og landið sé í dögun. Eitt fyrsta og mesta þrekvirkið er framkvæmt þegar Ölfusá var brú- uð litlu fyrir aldamótin. Um Ölfusárbrúna orti Hannes Hafstein og sagði m. a. Vaki von og kvikni varmur neisti í barmi, mest er mannverk treystum móður vorrar góðu. Tjáir ei við hrepptan hag að búa. Hér á foldu þarf svo margt að brúa: Jökulsá á landi og í lundu, — lognhyl margan, bæði í sál og grundu. Árið 1905 eru tvö stórfljót brúuð, Jökulsá í Axar- firði og Sogið. Hannes Hafstein var þá orðinn ráðherra og flutti vígsluræðu við Sogsbrúna. Hann benti á, að þegar tekizt hefði að brúa Ölfusá, hefði sá sigur rutt öðrum sigrum braut. Hann sagði: „Hrakspárnar og grýlurnar urðu að reyk. Sönnunin fyrir mætti vorum til slíkra framkvæmda var f engin úr stáli og steini. Við það urðu þess konar fyrirtæki viðráðanlegri í hugum manna, ofureflið ekki eins geigvænlegt, kostnaður og erfiðismunir ekki eins ókleifir, sigurvonir ríkari yfir því, sem áður var talið ósigrandi. í stuttu máli: Það vakti mönnum hug. En „hugur ræður hálfum sigri“, eins og menn vita. „Hálfur er auður und hvötum“.“ Ingólfur Jónsson talaði í líkum anda í vígsluræðu sinni á brúarhátíðinni við Jökulsá á Breiðamerkur- sandi. Ráðherrann sagði, að þegar Austur-Skaftfelling ar sæju nú hversu mikið hefði áunnizt í brúargerðum síðustu árin, mundu þeir og margir aðrir fyllast nýjum möð og von um það, að ekki væri of langt undan, að öll vötn yrðu brúuð og með því skapaður hringvegur um landið. Listir -Bækur -Menningarmál Hjörleifur Sigurðsson skrifar myndiistargagnrýni. Höggmyndir á Holtinu 'p'orráöamenn Myndlistarskól- ans hafa lengi horft öfund- araugum á óbyggðu lóðimar á holtinu fyrir ofan Ásmundarsal. Eiganda salarins kom það snjall ræði í hug eftir þvf sem blööin sögðu að nota mætti þennan ó- spillta náttúrapart í hjarta Reykjavíkur undir höggmynda- sýningar. Nú hefur hugmyndinni verið fylgt eftir með snöggu á- taki. Flest listaverkanna eru komin á sinn stað, önnur eru á leiðinni. Ragnar Kjartansson gerði sér lítið fyrir og mótaöi klyfjahesta þrjá skammt fyrir neðan akbrautina f regni og vindi íslenzka haustsins. Hann skapaði líka mann á bak klárs- ins, sem fyrstur fer. Fólk, sem átti leið um Eiríksgötu, gat vel fylgzt með því hvemig einangr- unarplötumar uröu að gráum vegg, sem virtist spretta upp úr jörðinni en breyttist smám sam- an í lestarferðina og að lokum í rytmíska heild, sterkbyggða og hreina. Það er sjaldgæft hér á landi að hitta fyrir lágmynd af þessu tagi, lágmynd, sem er flöt í grundvallaratriðum en býr þó yfir kostum dýptar og þykkt ar í nokkram mæli. Búr Magn- úsar Pálssonar er bæöi fallegt og vandaö eins og vænta mátti. Yfirbragð þess er klassískt á vísu nútímans og stingur að því leytinu í stúf við flestar ef ekki allar myndirnar á sýning- unni. Leikhúsreynsla lista- mannsins hefur orðið honum drjúgur skóli í nákvæmum vinnubrögðum. Jónína Guöna- dóttir sýnir brúöu úr plasti. — Rauöu og gulu flekkirnir eru býsna hráir en kannski eiga þeir að vera það. Sitthvað í mótun belgjanna vitnar hins vegar um íhygli og taugar listamanns. Ég horfði góða stund á jámfisk Jóns B. Jónassonar, lágmynd Hallsteins Sigurössonar og flaug Finnboga Magnússonar. Þær eru allar verðar fyllstu athygli. En mestum tíðindum sætir Radar Jóns Gunnars. Hann er lang- voldugasta myndin í garðinum við Eiríksgötu, fastmótaður og opinn í senn, spriklandi eins og nýveiddur fiskur á þurru landi. Fleiri verk nefni ég ekki. Sum endast varla nema nótt- ina og morgundaginn. Kannski er það ætlun blóma- grúppunnar t.d. að skemmta aö- eins sjálfri sér, bæta skapið, auka fjörið áður en vetur kon- ungur gengur í hlað. Cá, sem er að verða áttræður, ^ hlýtur að muna margt frá liðnum dögum, en bezt þó ýmis- legt frá æskudögunum. Árið 1904 var ég 16 ára og þar með voru enduö æskuárin. Ég fór þá í vist til föðursystur minnar, Kristínar Jóhannsdótt- ur frá Efri-Höfn f Siglufirði. Hún var þá læknisfrúin í Neðri- Höfn, kona Helga læknis Guð- mundssonar. Um sama leyti vistaðist þang- að önnur stúlka, skyldi hún sjá um eldhússtörf og fjós, en ég átti að vera stofustúlka, eins og það var þá kallað. Hvaö mundi ung stúlka á íslandi halda nú, að stofustúlka ætti að gera? Ég bað frænku mína aö lofa mér heldur að sinna eld- húss- og fjósastörfum, en þaö fékkst ekki. Mér blöpkraði allt í stofun- um, þær voru þrjár, ein þeirra full af dóti læknisins, stóram meðalaskáp, metaskálum og ýmsu, sem þurfti að fægja. Og svo vora allir lamparnir, víst 12 í húsinu. Þar að auki þrír stórir ofnar með ógnar topp- kransa, sem þurfti að fægja og mátti spegla sig f gljáanum. Að þurfa að þurrka af þessu á hverj um morgni, bursta alla ofnana, gera hreina lampana og fægja glösin svo að hvergi sæist á þeim minnsta móða, var ekkert tilhlökkunarefni. Frænka mín sagði við mig: Sigríður (eldhússtúlkan) fer á fætur klukkan sex á morgnana og þú ferð strax á fætur á eftir henni, þværð þér og greiðir og setur á þig hreina svuntu, lætur svo tvenn bollapör á bakka, en á kvöldin tek ég til sykur, brauð og mjólk og læt te í ketilinn, en á hann hellir þú svo á morgn- ana, þegar vatnið sýður og fær- ir okkur svo þetta upp. Næst tekur þú svo föt húsbóndans og skó, burstar þetta vel og hengir fötin aftur á sama stað. Þegar þetta er búið byrjar þú á stof- unum, að þurrka af og bursta ofnana og þvo gólfin, hefur til þess tvenn vötn, sitt í hvoru íláti, muna að þvo og þurrka öll óhreinindi upp af gólfunum. Ég kem svo niður að sjá, hvern- ig þú gerir þetta. Þegar þessu var lokiö, þá voru það lampamir. Þar voru blúss- glös allt niður í 8 lfnu, á vegg- lömpunum tveimur í eldhúsi og búri, hengilampar voru þar og á báðum stöðum. Eitt sinn varö ég fyrir því óhappi að brjóta eitt 10 línu lampaglasið, en svo heppin um leið, að hjónin voru niðri á eyri. Ég hljóp út í smiðju til Stefáns járnsmiös og bað hann að lána mér 25 aura þar til ég gæti fengiö þá hjá föður mfnum, en hann var niðri á eyrarodda við skipasmíðar. Ég hljóp svo sem fætur toguðu niö- ur í Gránufélagsverzlun og fékk þar glasið, var búin að þessu áður en hjónin komu heim, glas- brotunum fleygöi ég niður í fjöra. í Siglufiröi var venjulega logn og yndislegt veður f júlímánuöi, og það góða veður notaði Helgi læknir sér til aö fara á bátn- um sínum fram á Pollinn til að stinga kola, af honum var þar töluvert og mátti sjá hann iða til og frá niöri við botninn. Ég horfði út um þakglugga á austurhliö hússins til að sjá, hvort Heigi fengi eitthvaö, og bað Cuð þess heitt og innilega ag hann fengi engan kola, en bænheyrslu fékk ég ekki í það skiptið. Ég sá Helga hrista hvern kolann af öörum af stöng sinni. Það beið mín svo að slægja og skafa kolann við læk rétt hjá húsinu. Við þetta kraup ég þar og hendur mínar voru dofnar af kulda. Inni þurfti svo að skafa kolann enn betur og klippa af ugga og sporð, en mat- reiðsluna annaðist svo frænka mín, en svo mikið ofnæmi fékk ég af þessu öllu, að aldrei fékkst ég til að bragöa þennan mat. Sumarið leið, haustið kom og vetur með myrkur o| kulda. Svo kom jólafastan og þá var farið að hugsa um rjúpumar f jóla- matinn, og ekki brást vonin um þær. Innan úr Fljótum og út i Siglufjörð er löng og seinfarin leið, ekki sízt í skammdeginu. Kvöld eitt var bariö að dyrum hjá læknishjónunum og þar var kominn maður með rjúpnakinpu á baki. Maðurinn fékk mat og gistingu, og greiðslu auðvitaö fyrir rjúpurnar, en ég var e..k- ert hamingjusöm. Þá var að fara út á skemmuloft tii að slægja og plokka rjúpurnar, og aflima þessa litlu, hvitu og fall- egu fugla. Þama tók ekki betra við, því að kalt var á skemmu- loftinu um hávetur, en ekki var til neins aö kvarta. Það þótti ekki viðeigandi á þeim árum, en jafnvel þessi lítið þægilega tilbreyting gat fylgt þvf að vera stofustúlka. Áhrifin af .þessu á mig serp unglingsstúlku urðu þau, að ég hef aldrei bragöað hvorki kola né rjúpnakjöt. Ég var á þriðja ár í þessari vist og lærði þar ýmislegt nyt- samlegt, meðal annars kenndi Helgi læknir mér að hekla og „bródera", en hann var snilling- ur í þeirri iðn. Stofustúlkan á Islandi tilheyr- ir nú liöna tímanum, og þótt ekki sé frásagnarefnið veiga- mikið, er það alltaf sögulegt, sem einu sinni var. Halldóra Pálsdóttir frá Efri-Höfn i Siglufirði.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.