Vísir


Vísir - 12.09.1967, Qupperneq 2

Vísir - 12.09.1967, Qupperneq 2
2 VÍSIR . Þriðjudagur 12.sejptembei«ISIB3Í írí^' sér engar gyllivonir, enda greinilegt að styrkleikamunur- inn var of mikill. Hins vegar voru áhorfendur ánægðir með hve vel Aberdeen lék gegn KR og sótti vel allan tímann og barðist. Aberdeen vann skozka meist- aratitilinn árið 1955, en síðan Framh. á 10. síðu. ^ Allir hafa víst heyrt stytztu Skotasögu í heimi: „Þaö var einu sinni Skoti í Aberdeen“. Þessi saga átti víst að vera nóg þeim sem til þekktu, því sagt var, að íbúar þessarar nyrztu borgar Skot- lands væru þeir nízkustu, sem fyrir fyndust. Hvað um það, — KR-ingar gátu ekki kvartað eftir 90 mín- útur á Pittodrie Park á miðvikudagskvöldið. Þeir fengu tíu mörk, en fengu ekki að láta eitt einasta af hendi í staðinn. Nei, þessar Skotasögur eru hálf varasamar. í gær renndu þessir ágætu AberdeenbUar að flugstöðinni á Reykjavíkurflugvelli í Flugfé- lagsþotunni nýju. Að vísu er ekki ætlazt til að menn komizt á þann stað nema með því aö reyna fyrst hinn nýja Keflavik- urveg, en vegna slæmra veður- skilyrða var varaflugvöllurinn i Reykjavík notaður að þessu sinni. Og á miðvikudagskvöldiö verður „slagurinn“ háður aö nýju, síðari hluti viöureignar áhugamanna KR gegn þessu þrautþjálfaða knattspyrnuliði Aberdeen F.C. Að þessu sinni er leikvöllurinn í Laugardal og von ast KR-ingar til að geta betur á sínum „heima“-velli, enda hefur raunin verið sú í undan- íörnum leikjum í Evrópubikar- keppninni. Aberdeen tók í ár i fyrsta sinn þátt í Evrópubikarkeppni. Liðiö komst í úrslit eins og menn muna, gegn Celtic, tapaði 0:2, en komst samt í Evrópu- bikarkeppni bikarliða, þar eð Celtic vann 1. deildarkeppnina líka og tekur þátt í Evrópubik- arkeppni meistaraliða. Sigurinn yfir KR í fyrsta leik mæltist vel fyrir í Aberdeen, þó menn geri iur af skyttum 1. deildar. HERMANN MARKHÆST- UR í 1. DEILD Hermann Gunnarsson úr Val vará markhæsti leikmaður 1. deildar í ár. Hann skoraði 11 mörk, eða rúmlega eitt mark til jafnaðar í leik. Skúli Ágústsson frá Akureyri hafði fram á síð- asta leik verið markhæstur í deildinni, en gegn Keflavík skor aði Hermann tvö mörk, sem gerði hann að „markakóngi“ deildarinnar að þessu sinni. — Nokkrir markhæstu Ieikmennirn ir eru þessir: Hermann Gunnarsson, Val, 11 Skúli Ágústsson, Akureyri, 10 Kári Árnason, Akureyri, 7 Gunnar Felixson, KR, 6 Helgi Númason, Fram, 5 Björn Lárusson, Akranesi, 4 Grétar Sigurðsson, Fram, 4 Reynir Jónsson, Val, 4 Fékk 18 mörk í 6 ieikjum - settur á varamannabekkinn Ensku bl'óðin benda Ferguson, „dýrasta markverði heims" á Guðmund Pétursson sem bjáningarbróður! Liverpool hefur tekið forystuna í ensku knattspymunni. Vann fé- lagið Chelsea 3:1 á laugardaglnn, en 54 þús. manns horfðu á leikinn. Tony Hately, nýkeyptur til Liver- pool fyrir 95.000 pund, gaf þama sínu „gamla“ félagl, Chelsea. „dauðahögg“ með tveim fallegum mörkum. Tottenham vann Sheffield Wed- nesday 2:1 og skoruðu þeir Frank Saul og Alan Gllzean fyrir Totten- ham. Hafa Liverpool og Tottenham bæöi 11 stig, en Liverpool hefur betra markahlutfall. í Manchester Ieit ekki vel út fyrir United í hálfleik, — 2:0 fyrir Burniey. En á síðustu 15 mínútum leiksins skoraði United 2 mörk og endaði leikurinn 2:2. Þannig gat 1. deildarmelstarinn í fyrra varið liina gððu heima„statistik“ sína, en liðlð hefur ekki tapað leik heima síðan I apríl 1906. Erni Hunt hinn nýkeypti leik- maður Everton (1.5 milljónir kr.) gerði lítið gegn hinni sterku vöm Fulham. Á varamannabekk hjá West Ham sat á iaugardaginn „dýrasti markvörður heims“,Bobby Ferguson, sem kostaöi liðið um 8 millj. króna, en hefur þó látið bolt- ann fara 18 sinnum framhjá sér í netið á þessari „vertið". — Ensku blöHn kenna ákaflega í brjósti um Bobby Ferguson. Ken Montgomery hjá Sunday Mirror fann þó þjáningarbróður handa Ferguson, — og hann er enginn annar en Guömundur Pét- ursson úr KR. Segir blaðamaður- inn að raunir Fergusons í saman- burði við síöustu 3 klukkutímana hjá Guðmundi, sem hafi fært hon- um 24 mörk, því fyrir hið feikna- stóra tap KR gegn Aberdeen, 10:0 hafi ísien ka landsliðið, þar sem Guðmundur lék með í markinu, tapað 14:2. Loks blandar Montgomery þriðja „kollcga" þeirra inn í alit saman, Lev Jashin, sem lék á dögunum sinn 500. deildarleik og hélt „hreinu" markinu, — og hefur ekki haft eitt orð uppi um að hann sé að fara að hætta. HERMANN — hér í baráttu gegn Akureyringum nyrðra (lengst t. h.). Næstu leikir i knattspyrnunni: Urslit / I kvöld kl. 17.30 hefst á Meia- vellinum úrsiitaleikur Vikings og Vals í 5. flokki íslandsmótsins í knattspyrnu, en tyrri leik lioanna lauk með jafntefli og verða bau því að reyna með sér öðru sinni. Að þessum leik loknum fer fram úrslitaleikur Vals og Víkings í Reykjavíkurmóti 2. flokks og hefst leikurinn kl 18.30. Á fimmtudaginn verður úrslita- leikurinn i 2. flokki íslandsmótsins á Melavelli. bá lejka til úrslita tvö utanbæjarliö og er það timanna tákn, því utanbæjarliðin eru sífellt ! að sækja á, en fyrir nokkrum árum bótti það viðburður, er utanbæjar- liðin komust í úrslit, en nú eru | bæði liðin sem sé utanbæjarlið í ! úrslitum 2. fiokks. Af bikarkeppninni er það að frétta að næsti leikur verður á laugardafúnn á Akranesi og þá mun b-lið Akurnesinga, „steinald- arliðið" fræga og vinsæla, keppa viö Tý frá Vestmannaeyjum, sem er aö mestu skipað nýliðum úr 1. deildarliði IBV. Verður gaman að sjá hvort „gömlu mennirnir“ reyn- ast ekki enn erfiðir hinum yngri.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.