Vísir - 26.09.1967, Blaðsíða 4

Vísir - 26.09.1967, Blaðsíða 4
/ Hmasmtmm. rnat Þúsundir og aftur þúsundir af silfur- og gullpeningum liggja í haugum á hafsbotninum fyrir Suðvestur-Englandi, ef marka má bað, sem þrír fjársjóðsleitarmenn segja, og peninga þá, sem þeir segjast hafa fundið þar. Talið er að peningar þeir, sem mennirnir fundu, séu hluti af fjársjóð sir Cloudesley Shovells, flotaforingja Miðjarðarhafsflotans sem fórst í október 1707. Flotinn fórst á Gilstone-rifinu við Scilly-eyjar, rétt út af Corn- wall-skaga, þar sem nokkrir kaf- arar fundu leifarnar af hinum fræga flota 1 sumar. Sögusögn um hefur verið haldið á lofti i gegnum aldirnar um mikinn fjár sjóð, sem hefði átt að vera í skipum Shovells, flotaforingja og viröist nú sem sönnur séu fengn ar fyrir því, að þær hafi ekki verið ýktar. Átti fjársjóðurinn að hafa verið í skipi Shovells sjálfs, Association, eða svsturskipunum Eagle og Rommey, í allt sumar hafa nokkrir á- hugakafarar úr brezka flotanum leitað að skipsflökunum og um leið aö "'irsjóðnum. Fundu þeir staðinn í júlí og héldu köfuninni áfram, þar til nú að annar hóp- ur i kafara, sem leitað hafði i nokkur hundruð metra fjarlægð frá þeim stað, sem flökin fund- ust, rakst á þröng göng í gegn- um neðansjávarskerjagarð. í þess um göngum fundu þeir fjársjóð- inn. Einn leiðangursmannanna sagð- ist hafa komið auga á hellis- munnann, dimman og þröngan, og farið inn í hann. þrátt fyrir óhuginn, sem greip hann um leið. Varð hann að taka af sér öndunar tækin og ýta þeim á undan sér til þess að komast inn um opið. Göngin lágu niður í móti. en hann hafði ekki synt lengi, þegar hann sá heila silfurpeningabreiðu, eins og teppi á göngunum. Hann náði seinna í félaga sína og þeir tóku með sér 1500 silf- ur- og gullpeninga upp á yf;rtorð ið, en sögðu sjálHr, að svo mik- ið meira væri eftir niðri, að þetta væri eins og droDi í hafið hjá því. Peningunum skiluðu þeir til strandsýslumannsins á evnni St Mary, en þar, verða þeir geymd- ir i ár og síðan leitaö tiiboöa safnara. 'safna og yfirvaldanna sjálfra. Félagarnir úr leitarleið- angrinum fá 50% af söluverðinu og auk þess einhverja aðra þókn um fyrir alla fyrirhöfnina Geit heldur vörð um höllina Gústaf heitir tveggja vetra gamall geithafur sem ber liðþjálfatign Hann gegnir þýðingarmiklum störfum fyrir sænska herinn, og núna 'um þessar mundir hefur honum verið falið afar þýðingar- mikið hlutverk í stórhættulegum aðgerðum. Hann stendur vakt í höllinni í Stokkhólmi, ásamt nokkrum félögum sínum, fallhlífa hermönnum frá Karlsborg. Gústaf er verndardýr fallhlífa- hermannanna og hafður mjög í hávegum þeirra á meðal. Hann á sinn eigin einkennisbúning, — rautt teppi og rauðir dúskar — sem eru einkenni herdeildar hans. Hann hefur sína umsjónarmenn, sem herstjórnin hefur falið þá ábyrgð að annast um hann. Svo þýöingarmikill er hann álitinn vera. að það hefur ekki verið horft í það, að setja til þess starfa eina fjóra þrautþjálfaða hermenn. Myndin hér sýnir hann á varð göngu með „hirðum" sínum í höllinni. Norræn samvinna. Fólki er tíðrætt um úrslit ráð- herrafundarins vegna deilunnar um lendingarleyfi fyrir hinar stóru flugvélar Loftleiða á Norö urlöndum. Árangur fundarins og þeirra viðræðna, sem undanfar- ið hafa farlð fram, hafa valdið öllum þorra íslendinga sárum vonbrigðum. Finnst flestum að norræn samvinna og það bræöra þel, sem hamrað hefur veriö á hin síðustu ár við öll möguleg tækifæri hafi reynzt glamur eitt cg markleysa. Um leið og hin- ar svokölluðu frændþjóðir teija sig þurfa einhvers til að kosta f fjármunum, eins og það að þurfa að horfa upp á það að vera ekki samkeppnisfærir í fargjaida stríöinu við Loftleiðir, þá reyn- ist bræöraþelið ekki haldgott. Loftleiðadeiian, en svo hefur karp þetta við „frændþjóðirnar“ gjarnan verið nefnt. er viðskipta stríð, eins og þau gerast hörö- ust, og deilan er þannig vaxin, að við eigum fátt til varnar. eins og t. d. það, að beina viö- skiptum sínum ekki til „frænda“ vorra. T. d. hafa islendingar svipað verð frá öðrum þjóðum. Kaupmannahöfn hefur veriö eftirsóttur staður hjá þeim lönd- íslenzk stjórnarvöld geta helzt ekkert gert í málinu, nema skir- skota til vinsamlegra samskipta, frændsemi og til koktail-ræðna um nauðsyn á meiri tillitssemi og b&tri samskiptum þjóða i millum. Opinberir mótleikir, t. d. í viöskiptalegum efnum þykja jafnvel ekki sæma en hinir al- mennu borgarar geta samt ýmis legt gert í viðskiptalegu tilliti, keypt fiskiskip af Norðmönnum fyrir milljónir á síðustu árum. Slíkum viðskiptum ætti að beina annað, enda ýmsar aðrar þjóðir vel samkeppnisfærar á því sviði. Sænskir bílar hafa verið vin- sælir hérlendis, en ekki ætti það að vera okkur nauðsyn að kaupa þá um þessar mundir, þegar við getum fengiö ágætis bíla af hiið- stæðum gæðaflokki og þar fyrir um okkar, sem vilia gjarnan bregða sér út yfir pollinn til að hvílast og fá sér ölsopa i ró og næði. En eins og sakir standa, ætti ekki að þurfa að viðhalda slíkum siðum, en beina viðskiptum í aðrar áttir á meöan við ekki þykjum viðræðuhæfir á jafnréttisgrundvelli, um lend- ingarieyfi fyrir flugvélar. Auk þessa, sem nefnt hefir verið af handahófi hefir fatnað- ur verið innfluttur í stórum stíl frá Norðurlöndunum, eh íslenzk ar húsmæður geta hver um sig einnig sýnt hug sinn til mis- skilinnar norrænnar samvinnu undanfarið með því að snið- ganga fatnaðarvörur frá „frænd um“ vorum meðan vináttumál okkar standa svo höllum fæti, sem nú er. Að lokum ættu ■ íslenzkir stjórnmálamenn og erindrekar að spara ferðir sínar og ráp, þó að einhvers staðar sé hóað saman til sameiginlegs samnor- ræns fundar hér og þar undir einhverju yfirskyni ,enda geta allir þessir fundir vare haft svo geigvæniega þýðingu eins og aí er látið. Menn geta í mörgum tilfelium látið sér nægja að drekka kokteiia sína bara hér heima. Þrándur í Götu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.