Vísir - 26.09.1967, Side 9

Vísir - 26.09.1967, Side 9
VlSIR . Þrifljudagur 26. september 1967. O Bjama af Bergmannsætt, en móðurætt hans hafði búið í Núpsdalstungu í heila öld, kom- in af Bjama Rafnssyni frá Fomastöðum í Suður-Þingeyjar- sýslu og Ásgerði Ólafsdóttur af hinni alkunnu Stórubrekkuætt í Fljóttun, en að Núpsdalstungu höfðu þau hjón flutzt árið 1819. Margrét er dóttir Sigfúss Berg- manns Guðmundssonar bónda að Uppsölum í Miðfirði. Sá Sig- fús, sem var föðurbróðir þess er þetta ritar, var heitinn dftir langafa sínum, Sigfúsi Berg- mann hreppstjóra á Þorkelshóli í Víðidal, en frá honum og Guð- rúnu Aradóttur konu hans, er komin Bergmannsætt, sem er mjög fjölmenn bæöi austan hafs og vestan. Fluttu þau hjón ásamt ýmsum venzlamönnum um aldamótin 1800 vestur í Húnavatnssýslu austan úr Fljót- um og voru bæði af merkum ættum nyrðra þar (Sigluness-, Stórubrekku-, og Síníða-Sturlu- ættum). Síðari kona Sigfúss að Upp- söium, en amma Sigfúss heitins Bjamasonar, var Ingibjörg Jóns- dóttir sonardóttir Eggerts hreppstjóra Jónssonar á Þernu- mýri, en af Hindisvíkurætt i móðurkyn. Þau Margrét og Bjami, for- eldrar Sigfúss heitins, voru þre- menningar að frændsemi, því að ömmur þeirra voru alsystur, dætur Guörúnar Sigfúsdóttur Bergmanns og Guðmundar smiðs á Síðu. Guðmundssonar á Húki, Björnssonar. Guð- mundur á Húki komst einn af fjölskyldu sinni lífs af úr Móðuharðindunum. sem surfu mjög að Miðfiröingum, en varð fyrir sakir atorku og fyrirhyggju einn af beztu bændum þar um sveitir áður en ævi hans lauk. Að Sigfúsi stóðu því á alla vegu sterkar rætur og diúpar. Sigfús Bjamason, sem hét fullu nafni Sigfús Bergmann, var heitinn í höfuðið á afa sínum aö Uppsölum sem var maður aðsópsmikill að svip og vallarsýn, fjáraflamaður mik- ill, harðfengur og kjarkmikill, eins og mynd hans og mannlýs- ing í Föðurtúnum ber með sér Hafði Sigfús miklar mæfur á þessum afa sínum, sem kunn- ugir töldu honum kippa mjög til i kyn, og hafði mynd hans stækkaða uppi á vegg í skrif- stofu sinni. Sigfús ólst upp á ýmsum stöð um í Miðfirði. því áð Bjarni fað- ir hans var framan af á nokkr- um hrakhólum með jarðnæði. þótt hann væri góður og far- sæll búmaður, en ómegð var allþung. Varð því Sigfús að sjá um sig s'álfur, þegar hann hafði aldur til. Hann stundaði nám í Revkiaskóla i Hrútafirði en ekki varð úr frekari skólagöngu, og leitaöi hann þá til Reykjavík- ur fjár og frama. Vann hann fyrsta sumarið á stakkstæði hjá Kveldúlfi, hafði aukavinnu við sölu líftrygginga og fleira, en aflaði sér jafnframt sjálfsmennt unar í ensku og bókfærslu, sem hann varð svo fær í fljótlega, að hann hafði einn vetur at- vinnu við að kenna þá grein, en viöskiptabréf á ensku las hann síðar á ævi ritara fyrir viðstöðulaust. Hann var þvf „self-made man“ f þess orðs eiginlega skilningi og hjálpað- ist að hjá honum kapp við sjálfsnám, næmur skilningur og skýr hugsun. Tvítugur stofnaði hann heildverzlunina Heklu á- samt vinnufélaga sínum frá Kveldúlfi, Magnúsi Víglundssyni sem dvaldist um tíma á Spáni og annaðist kaup á vörum, en Sigfús sá um sölu hér heima. Á þeim kreppuárum, þegar við- skiptahömlur lokuðu gömlum verzlunarleiðum sköpuðust möguleikar til nýrra aðfanga- leiða fyrir ötula menn, þ.á.m. með vefnaðarvöru, sem þeir fé- lagar náðu fljótt mikilli verzl- un meö, ásamt ávöxtum og fleiri vörum frá Spáni. Auk þessa setti hann á fót fatagerö, hafði fleiri jám í eldinum og græddist brátt fé. Þaö sýnir ræktarsemi Sigfúss, aö hann keypti bráölega Upp- sali, sem foreldrar hans höfðu flutt á eftir lát afa hans, og bjó þar vel í haginn fyrir þau meö aukinni túnrækt og byggingum. Síðar fluttu þau til Reykjavik- ur og vann Bjarni þar við fyrir- tæki sonar síns meöan heilsa hans leyfði. Ekki átti það viö skaplyndi Sigfúss að binda hug sinn við kramvöru og munngæti, því að nú fór í hönd vélaöld. Eftir að þeir félagar skildu að skiptum aflaði hann sér .umboða fyrir rafmagnsvörur, bifreiöar og afl- vélar ýmiss konar. Um tíma flutti hann inn mjög mikið af vindknúnum rafstöðvum, en reynslan sýndi brátt, aö hvorki hentuðu þær til lengdar Is- Ienzkri veðráttu né íslenzkrj hirðusemi. Aflaði hann sér því m.a. umboða fyrir Volkswagen, Landrover og beltadráttavélar. Þegar sala þessara tækja og ann arra líkra óx, keypti hann fyrir 15 árum hlutafélagiö P Stefáns son & Co., m.a. til þess að ann- ast viðgerðaþjónustu, og fyrir fáum árum reisti hann hið mikla hús heildverzlunar sinnar við Laugaveg, enda var verzl- unarfyrirtæki þessa sjálfmennt aða bóndasonar bá orðið eitt af þeim stærstu hér á landi. Sigfús heitinn varð þátttak- andi í fleiri fyrirtækjum og fé- lagasamtökum en ég kann að telja, enda eftirsóttur ti! slíkra starfa sökum dugnaðar síns, glöggskyggni á mun aðalatriða og aukaatriða, framsýni og um- gengnishæfileika, því aö hann kunni vel að koma skapi við menn og stilla sitt geð, «f því var að skipta. Var honum og fjarri öll smámunasemi, ef grípa þurfti til fjárframlaga og varð þvi gott til samstarfsmanna, bæði við fyrirtæki sitt og utan þess. Árið 1941 keypti Sigfús hið sögufræga höfuðból átthaga sinna, Þingevrar. Rak hann þar sjálfur búskap í rúman áratug og var þar þá stundum á sumr- um eö fjölskyldu sinni. þar gerði hann allumfangsmiklar jarðabætur og húsabyggingar, en varla mun búskapurinn hafa svarað kostnað' ef laxveiðin i Vatnsdalsó op V:ð'd4lsá er frá- talin. og/ leigöi hann því jörð- ina hin síðari ár. Það er trú mín. að hann hefði átt eftir að leggja mun meiri rækt viö bú- skapinn á Þingeyrum en hægt er að hafa í hjáverkum frá um- fangsmiklum önnum af öðru tagi, ef honum hefði enzt aldur til að ganga frá stjórn fyrir- tækja sinna i Reykjavík í hendur sona sinna frekar en orðið var. Voru enda fáir staðir samboön- ari a,torku og stórhug slíks manns f "'K': Sigfús kvæntist ungur aö ár- um þ. 27. okt. 1934 eftirlífandi konu sinni, Rannveigu Ingimund ardóttur, trésmiðs á Djúpavogi, Sveinssonar. Er hún hið mesta valkvendi, hóglát og hlý í um- gengni og hugljúfi hverjum þeim er henni kynnist. Börn þeirra éru: 1. Ingimundur lögfræðingur sölustjóri Caterpillardeildar P. Stefánss. og Co„ kvæntur Val- gerði Vajgdóttur, leikara Gislas. 2. Sverrir, framkvæmdastjýri sömu deildar, kvæntur Stefaníu Davíðsdóttur. járnsmíðameist- ara, Guðmundssonar. 3 Sigfús viðskiptafræöingur, nýkominn frá námi f háskólanum í Wiscon sin. og 4. Margrét, sem vinnur á skrifstofu stáliðnaðarfyrirtæk- is í Austurríki. Sigfús heitinn var mikill mað- ur vexti, dökkur á hár eins og margir í Bergmannsætt, með mikinn yfirsvip og há kollvik, þykknaði allsnemma að holdar- fari. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu snemma morguns þriðjudaginn 19. þessa mánaðar. Minningin um þennan mikil- hæfa mann mun Iifa út í frá sem eins þess, er markaði cLætti i svip samtfðarinnar, en meðal okkar frænda hans sem eins af laukum ættar okkar. Dýrmæt- ust verður þó minning hans konunni sem batt við hann tryggð meðan bæði voru ung og fram- tíðin hulu hjúpuö, börnunum þeirra, sem hann beindi veg til þroska; og aldurhnignum for- eldrum hans, sem nú hafa séð á bak frumburði sínum. Um það sæmir ekki að fara mörgum orðum á slíkum vett- vangi sem hessum, heldur aðeins að rifía u"-> •'au ummæli mikils skálds við lok viðburðaríkrar ævi, að „vort líf, sem svo stutt og stop- ult er. það stefnir á æðri leiðir" Megi það heim öllum huggun og h mabót. P. V. G. Kolka. t F. 4. maí 1913. P. 19. sept. 1967. Tyð vdf' 'íýrir' ^2* krb'tó' Eg var nýráðinn st'arfsmaður hjá Félagi íslenzkra iðnrekenda. Vefnaðarvörudeild hélt fund að Hótel Borg. Óvenju vörpulegur maöur tók brosandi í hönd mér við dyrnar og sagði: „Ég er Sig- fús í Heklu. Ég er Húnvetningur eins og þú. Vertu velkominn" Þannig hófust kynni mín af Sigfúsi Bjarnasyni og þá hófst vinátta okkar, sem varði alla tíð. Samstarfsmenn vorum við lengi I félagsmálum, og deild- um geði á alvarlegum fundum og gleðifundum, ferðuðumst sam an á erlendri grund og ég var þráfaldlega gestur hans að heim- ilinu á Víðimel 66, búgarðinum á Þingeyrum og f veiðihúsinu viö Víðidalsá. Síðasta áratuginn, eft ir að ég hvarf eingöngu að lög- fræðistörfum, urðu fundir okk- ar fátíöari, en þó veitti hann mér jafnan þá ánægju að kalla mig til skrafs og ráðagerðar um ýmis vandamál. sem aö höndum báru. Það hefur tíðkazt á Islandi frá þvf ritöld hófst hér, að reisa merkum mönnum bautasteina með skráðum heimildum. Ég ætla mér ekki bá dul að ég sé fær um afó gera efninu viöhlítan skil en ég vil minnast látins vin; ar með þvf að skrá nokkrar hug- leiðingar um manninn Sigfús Bjarnason og ævistarf hans. Sigfús var kominn af kjarna- ættum h- etnskum, sonur hjón anna Bjarna Bjarnasonar. síðar bóíida að Uppsölum i Miðfirði. og konu hans Margrétar Sigfús- dóttur. Sigfús stundaði nám I Reykjaskóla í Hrútafirði og kynntist bar eftirlifandi eigin- konu sinni Rannveigu Ingimund ardóttur, sem bjó manni sínum glæsilegt heimili og var hans styrkasta stoð allt frá bvi aö þau gengu að eigast á árinu 1934 Þeim varð fiögurra bama auðið. sem öll eru upp komin og hafa hlotið ágæta menntun: Ingimundur. cand. iuris, kvænt- ur Valgerði Valsdóttur, Sverrir-, framkvæmdastjóri Caterpillar- deildar P. Stefánsson h.f„ kvænt ur Stefanfu Davíðsdóttur, Sig- fús, sem nýlega hefur lokið prófi sem viðskiptafræðingur frá Uni- versity of Wisconsin, U.S.A., og Margrét, er starfar í skrifstofu • stáliðnaðarfyrirtækis f Krems f Austurríki. Tvítugur að aldri varð Sigfús Bjarnason meðstofnandi (ásamt Magnúsi Víglundssyni) að Heild- verzluninni Heklu, en einkaeig- andi frá 1938 til ársins 1942, er hann breytti fyrirtækinu f hluta félag, sem hann var síöar for- maður fyrir og gerði að stórveld' á okkar mælikvarða Starfsemi Heklu hófst meö innflutningi ávaxta frá Spáni, en breyttist síðan óðfluga, svo að á 15 ára afmæli fyrirtækis- ins lýsir Sigfús því svo f við- tali viö „Frjálsa verzlun" aö fyr- irtækiö hafi gert bifreiðir, alls konar vélar og rafmagnsvörur að sérgrein sinni. Síðar varð Sig fús Bjamason aðaleigandi bif- reiðafyrirtækisins P. Stefánsson- ar h.f. og rak það fyrirtæki við hlið Heklu, sem smátt og smátt hefur fært skrifstofur sfnar frá Hafnarstræti — Skólavörðustíg — Hverfisgötu — og er nú ti) húsa svo sem allir þekkja, sem heyrt hafa nefndar Caterpillar- vélar, Volkswagen bifreiðir eða Landrover — að Laugavegi 170 —172, í rúmgóðum. nýtfzku húsakynnum. Sigfús Bjamason varð með tíð og -tíma sannkallaður jöfur fs- Ienzkrar kaupsýslu. Eigi mun ég hér tilgreina nöfn allra þeirra fyrirtækja, er hann átti þátt í að stofnsetja og reka, en þau em mörg og af ólíkri gerð og eru sum í tengslum við Heklu h.f. beint og óbeint. Sigfús hafði einnig um nokkurt árabil all- mikil umsvif á sviði iðnaðar- framleiðslu, aðallega 1 fataiðn- aði. Hann var einn af stofnend- um Almennra trygginga h.f. og átti sæti f stjóm þess fyrirtækis. Stofnandi og í stjóm Reykja- prents h.f., sem hefur með hönd- um útgáfu dagblaðsins Vísis. Stofnandi og f stjóm Tollvöru- geymslunnar h.f. og svo mætti lengi telja. Af félagsmálum má nefna, að Sigfús Bjarnason átti sæti f fjár- málaráði Sjálfstæðisflokksins allt f ' árinu 1949 og um skeið sat hann f stjórn Verzlunarráðs fslands. Landbúnaðarmál lét Sigfús ekki afskiptalaus Hann réðist á að kaupa hina fornfrægu bú- jörð og menningarsetur Þing- eyrar á árinu 1941 og rak þar myndarlegt bú um la..gt skeið, enda átti Húnavatnssýsla og allt húnvetnskt sér djúpar rætur í vitund hans. Sigfús Bjamason var mikill að vallarsýn, svo að athygli vakti á mannþingum. — Hárið dökkt. ennið hátt, i augum blakti kímni og oft lék honum bros á vör. Málrómurinn var mildur og þýður og orðræðan -bar þess blæ, að djúp yfirvegun fylgdi. Fasið bar vott um festu og öryggi. Hann átti öfundarmenn eins og gengur, einkum framan af ævi, þegar vitnaðist um vaxandi velgengni hans í fjármálum, en engan veit ég þann harðjaxl, að ekki yrði honum hlýtt til Sigfús ar við nánari kynni. Kom þar til þelhlýja í skapgerð, léttleiki og kímni, svo að af bar. hófsemi í látbragði og virðing fyrir per- sónu annarra. — Kynni okkar íöfðu varað nokkra hríð. er ég veitti því sérstaklega athygli. að Sigfús tamdi sér að tala vel um aðra menn. jafnvel þó að þeir hefðu gert á hlut hans. Einnig varð ég þess var, að hann skreytti ekki mál sitt með yfirgripsmiklum lýsingarorðum, Frh. á bls. 13.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.