Vísir - 28.09.1967, Page 4

Vísir - 28.09.1967, Page 4
Rændu misstu röngum skartgripum og af 25 milljón króna þýfi í>eir hafa líklega nagað sig í handarbökin efti-r a, ræningjarn- rr, sem ætluðu sér aö ræna erfða- gripum Bedford-ættarinnar nú fyr ir nokkru, Þeir rændu röngum skarlgripum og 1 stað þess að ræna erfðagripum hertogans af Bedford, tóku þeir ófrjálsri hendi gamla gripi ýmsa og silfurmuni. Andvirði þeirra er metið allt að 2,4 milljónum króna, en erfða- gripir hértogans hins vegar metn- ir á 25 milljónir Ránið átti sér sað nú á fimmtu daginn í síðustu viku, þegar sex menn með grimur fyrir andlitun- um stöðvuðu bil skartgripasala nokkurs á eyðilegum vegi nálægt Wobum Abbey. í honum áttu þeir von á að finna erfðagripi Bedford-ættarinnar foma skart- gripi og mörg dýrindis djásn, sem fara átti með á sýningu í Woburn Abbey. En þeir hafa fengið rangar upplýsingar frá njósnara sínum, hver svo sem hann hefur verið. Skartgripasalinn, Martin Wieland hafði aðeins með sér í bílnum, ýmsa gamla silfurmuni, sem fara áttu á sýninguna, og nokkra skartgripi, sem — þótt verðmæt- ir væru — jöfnuðust ekki á við erfðagripina. Það hafði verið mikið talað um sýninguna i Woburn Abbey og þjófamir höfðu augsýnilega gizk að svo á, að erfðagripir Bedford- ættarinnar mundu verða sendir þangað til sýnis. Eftir öllum sól- armerkjum að dæma, hafa þeir komið fyrir verði, sem léti þá vita, þegar skartgripaskrínin yrðu borin út úr fyrirtæki Wielands, en það hefir í mörg ár geymt skartgripi hertogans af Bedford í hinu trausta peningahólfi sínu. Vörðurinn hefur þó verið of bráður á sér, því hann hefur gefið félögum sínum merkið of snemma, þegar hann sá Wieland bera silfurmunina út í bílinn sinn. Hinir réttu erfðagripir fóru með öðrum bíl, sem lagði af stað stuttu eftir að Wieland var lagð ur af stað með silfurgripina. Þeir komust á sýninguna án nokkurra skakkafalla, Ránið var framið um hábjart an dag á evðilegum vegi, skammt frá Woburn Abbey. Wieland tók ekki eftir neinu óvenjulegu, þeg- ar hann ók Hillman-bifreið sinni eftir veginum, öðru en hann mætti Ford-Zodiac á leiðinni og ökumaður hans virtist hafa mik- inn áhuga á bíl Wielands. Hann einblíndi á hann um leið og þeir mættust. Rétt á eftir birtist á veginum sendiferðabíl af Bedford-gerð, sem stefndi beint á bíl Wie- lands, og varð áreksturinn óum- flýjanlegur. Menn með grímur fýrir andlit- unum ruddust út úr sendiferða- bilnum og að Hillman-bílnum. veifandi skammbyssum og hömr- um. Þeir brutu, gluggann í bíl Wielands meö hamri og einn hleypti af skoti upp i loftið til þess að sýna honum. að þarna væri alvara á ferð. Wieland og aðstoðarmaður hans, ungur maður David Bradf- Blaðburðarbörn óskasf í eftirtalin hverfi LEIFSGATA, LANGAHLÍÐ, MIKLABRAUT, HÁALEITISBRAUT O. FL. Hafið strax samband við afgreiðsluna að Hverfisgötu 55. Dagbl. VISIR bury að nafni, gátu sig ekki hrært ringlaðir eftir áreksturinn, sem var nokkuð harður, og utan við sig af ótta. Ræningjarnir hrifs- uðu kassana með silfurmunum i úr bifreiö þeirra og hlupu yfir að Zodiac-bifreiðinni, sem stóð þá þar rétt hjá með vélina i gangi. Að nokkrum andartökum liðnum voru þeir horfnir. Tilkynning var gefin út i gegn um talstöðvar og lögregla fimm sýslna fór á stúfana Allir bílat á ferli i Bedfordshire, Northham- tonshire, Buckinghamshire, Hert- fordshire og Middlesex voru stöðv aðir og rannsakaðir, farartálmum var komið fyrir víðs vegar á veg- um en ræningjarnir sluppu úr netinu Sendiferöabíllinn og bíll skartgripasalans, þar sem ránið var framið. „Én hræðilegt!“ sagði liin franskættaðr hertogaynja, þegar David Bradbury, aðstoðarmaður Wielands, tjáði hertogahjónunum, hve litlu hefði munað að hinum dýrmætu erföagripum hefði verið rænt. Hertog- inn llengst tii hægri) sagöi, að tapið hefði verið óbætanlegt, ef gripunum hefði verið stolið. j S Gæsaveiðarnar IGæsaveiðimenn eiga annríkt um þessar mundir. því að nú flykkist gæsin niöur í sveitimar, mörgum bóndanum til bölvunar, því að gæsin er hinn versti vargur, sérstaklega í nýræktum, þar sem hún rífur ailt upp með rótum, en bítur ekki. Gæsaskytt ur eru því aufúsugestir hjá mörg um þeim bændum, sem hafa miklar nýræktir. En hjá öðrum bændum eru skytturnar ekki eins velkomnar, og stendur ekki á kærum og stímabraki, ef byssumaður sést á ferð, og oft, því miöur ekki að ófyrirsynju, því að oft eru sumir veiöimanna misjafn sauður, sem ekki tekur tillit til girðlnga, né húsdýra. En flestir hlnna raunverulegu veiðimanna viðhafa fulla gát á geröum sínum, fara ekki inn á Iafglrt svæöi án leyfis og hafa gát á búfé og bæjum. 1 rauninni er of lítið um það að mörmum sé leiðbeint um með ferð skotvopna til veiða, en t. d. þeir sem fá byssuleyfi, ættu að sanna, að þeir kunni með slfk veiðitæki að fara, os einnig að þeim séu kenndar helztu örygg- isreglur og auðvitað friðunar- reglur. En það að hagnýta ekki gæs- ina til matar, er hrein fásinna, því gæsin verpir hér til fjalla þúsundum saman, flýgur siðan tii meginlandsins og Bretlands- eyja á haustin og er þá drepin í hrönnum. Það er því aöeins fá- sinna af okkur aö vera að „ala upp“ þessa matvöru fyrir út- lendinga án þess aö reyna að hagnýta okkur gæðin sem mest viö megum sjálfir. Svo er bað þannig að sumir bændur vilja ekki, að veiðar séu stundaðar í löndum beirra, þó að ógirt séu, en aðrir vilja fá sem fiesta veiðimenn til að stugga gæsunum frá ræktar- löndum sínum, og svo eru það enn aðrir sem vilja hafa nokkr- ar tekjur af veiðimönnum. En oft er erfitt fyrir veiðimenn að dæma um þaö fjarrri bæjum, hvert halda skal til að óska veiðileyfis og verða þvi oft lög brjótar óvart eða vegna ókunn- ugleika, því þeir telja sig vera f öðrum landareignum, en þeir raunverulega eru. Ég legg því til, að bændum. sem friöa vilja lönd sín, sé gert að skyldu aö setja upp skilti við þjóðveg- ina, sem tiltekur þau svæði þar sem veiöar eru bannaðar. Enn fremur væri hægt að koma því þannig fyrir, að þeir bændur sem hanna vilja veiðar tilkynni lögreglunni á Selfossi um, að þeir vilji ekki láta veiða í beit- arlöndum þeirra. Þeir sem óska eftir því að fá veiðimenn til að stugga við gæsinni gætu þá jafn J framt tilkynnt um að veiði væri j frjáls. Lögreglan gæti þá hæg- k lega sýnt veiðimönnum, sem leið í eiga austur um sveitir, hvar þeir ) cru friðhelgir og hvar ekki, með J því að færa veiöiheimildir og tj bönn inn á landabréf. Veiði- l menn gætu þá bara komið við / í leiðinni á lögreglustöðinni á j Selfossi og kynnt sér veiðilönd- \ in. \ Á þennan hátt væri oft hægt l að komast hjá skærum milli j bænda og veiðimanna, sem oft (j eru aðeins byggðar á ókunnug- leika og misskilningi En það að veiða ekki gæsina er aðeins að l gefa nágrannaþjóöum vorum t mörg tonn af góðu kjöti, sem ^ við eigum skilyrðislaust að Kýta . sjálfir. ) Þrándur í Göt’’ t

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.