Vísir - 10.10.1967, Blaðsíða 1
VISIR
57. árg. - Þri8judagur-'10. október 1967. - 212. tbl.
SAS-fuiltrúar koma í kvöld
til viðræðna um ísiandsflug
Fjórir fuiltrúar frá SAS eru
væntanlegir til Reykjavíkur í
kvöld, og á morgun munu þeir
ræða við fulltrúa Flugfélags ís-
lands um samstarf f flugi frá
Norðurlöndum til Nassarssuak
í Grænlandi, en þar hefur SAS
hug á að auka ferðamannakom-
ur að mun, enda er Grænland
smátt og smátt að opnast fyrir
ferðamanna straumnum.
Ekki er vitað um áform SAS,
en vitað hefur verið lengi að
SAS hefur haft í huga að fljúga
til íslands, enda hefur félagið
lengi haft rétt á að halda uppi
samgöngum hingað, en ekki not
fært sér það.
Mun SAS hafa í huga að
fljúga hingað á DC-8 þotum til
Reykjavfkur, en þar mun ætl-
unin að Flugfélag íslands haldi
áfram og fljúgi með farþegana
til Grænlands, þvf SAS á ekki
hentugar vélar til að lenda f
Narssarssuak, sfðan félagið
seldi DC-7 vélar sfnar.
Þessa mynd tók ljósmyndari Vísis, Bragi Guðmundsson, af slysstað i morgun. Vinstra megin við Reykjanesbrautina liggur jeppi lögreglu-
mannsins á hliðinni, eftir að hafa farið 2 veltur. Hægra megin billinn, s em síðast kom að. Lögreglumaðurinn mun hafa lærbrotnað á hægri fæti.
Mikil hálka á Kefíavíkurveginm
veMur siysum og árckstrm
— Lögregluþjónn alvarlega slasaöur eftir að
bifreið hans rann út af veginum og valt
Hálka átti mikla sök á því,
að fjórir bílar lentu ýmist út af
eða í árekstri í morgun á
Reykjanesbrautinni (Keflavíkur-
veginum). Þar höfðu Fíatbifreið
og Vauxhall — önnur að koma
frá Reykjavík, hin frá Keflavík
— rekizt hastarlega saman á
veginum og stuttu seinna ók
lögreglubifreið, sem átti eftir
30 metra að slysstaö, út af veg-
inum og valt tvr: ■ veltur. Fjórði
bíllinn, sem bar þarna að slys-
stað, rann einnig til i hálku á
veginum og féli á hliðina og
rann niður hallann út af vegin-
um.
Um nánari atvik var ekki
vitað, þegar blaðið fór í prent-
un í morgun, en lögreguþjónn-t
inn, sem ók lögreglubifreiðinni,
mun hafa slasazt alvarlega og
var hann fluttur á sjúkrahús,
en um meiðsli hinna ökumanna
var ekki vitað.
Fleiri árekstrar munu hafa orðið
á Vatnsleysuströndinni í morgun
og varar lögreglan vegfarendur við
hálku, sem myndazt hefur undan-
farna morgna á Reykjanesbraut-
inni. Snemma í rnorgun sást votta
.fyrir hálku á götum Reykjavíkur,
en um fótaferðartíma gerði skúrir
og voru götur því auðar um það
leyti er umferð hófst um þær í
morgun. Frost var í jörðu víða á
landinu í nótt, en víðast hægviðri
og úrkomulítið. Þó snjóaði talsvert
í fjöll, og var Esja hvit niður undir
miðjar hlíöar snemma í morgun.
Sunnangola og skúrir voru á Vest-
urlandi í nótt, en vestangola nyrðra.
í Reykjavík var 2ja stiga hiti í
morgun, og annars staðar á land-
inu var hitinn víðast 2—4 stig.
^rh 4 b) 10
Enn reyndust of
mnrgir gestir
a Röðli
Lögreglan lét framkvæma taln-
ingu út úr tveim veitingastööum
á laugardagskvöld. Fóru tveir lög-
regiuþjónar og töldu gestina út
úr Röðli, en þrír töldu út úr
Loftieiðahótelinu þetta sama kvöld.
Lögregluþjónamir, sem staddir
voru innan við dyr Röðuls. töldu
út 518 gesti, en Ieyfilegt hámark
gesta f húsinu er 265. Er þetta
önnur helgi, sem talið er út úr
Röðli, á þrem vikum. í fyrra skipt-
ið reyndust gestimir einnig vera
fleiri en leyfilegt var, og var þá
framlengingarleyfi staðarins aftur-
kallað eina helgi. Ekki hefur verið
ákveðiö, hvort svo veröi einnig
gert nú, en bæði reglugerðarbrot-
in verða send sakadómi til frek-
ari meðferðar.
Gestafjöldi Loftleiðahótelsins
var hins vegar undlr leyfilegu há-
marki, þegar talningin var fram-
kvæmd. Töldu lögregluþjónamir
531 gest út úr húsinu en leyfilegt
hámark gesta þess er 581.
Bílamlr, sem höfðu lent í árekstrinum, sem lögreglumaðurinn ætlaði að rannsaka.
ALÞINGISETTIDAG
— Ýmsar endurbætur gerðar á Albingishúsinu
og Þórshamri
Alþingi verður sett í dag að und-
angénginni guðsþjónustu, sem hefst
i Dómkirkjunni kl. 13.30. Aö lok-
inni henni munu alþingismenn
ganga til þinghússins og hlýða á
forseta íslands, herra Ásgeir Ás-
gcirsson, Iesa upp forsetabréf um
samkomudag og setningu Alþingis.
Þar til forsetar hafa verið kjörn-
ir í deildum og sameinuðu þingi,
mun aldursforseti þingmanna sem
er Sigurvin Einarsson, gegna fund-
arstjóm, eftir að lýst hefur verið
yfir setningu þingsins. Verður
minnst tveggja látinna þingmanna,
Isleifs Högnasonar og Sigurðar
Þórðarsonar.
Ýmsar endurbætur hafa farið
fram á Alþingishúsinu frá lokum
síðasta þings, og einnig hafa fariö
fram endurbætur á Þórshamri, en
þar hefur Alþingi einnig haft hús-
næði, þar eö gamla þinghúsiö
rúmar ekki alla þá starfsemi sem
fram fer á vegum Alþingis.
Fyrst ber að geta hinnar nýju
huröar á Alþingishúsinu, en smíöi
hennar, uppsetning og verð hefur
‘vakið þó nokkra athygli, enda mun
hún vera ein sú dýrasta sem sett
hefur verið upp hérlendis. Nýja
hurðin er að öllu leyti smíðuö eftir
þeirri gömlu, en sú hurö mun hafa
verið á Alþingishúsinu frá upphafi.
Nýjar ljóskrónur hafa verið settar
upp í sölum Alþingis og á görigum
og eru þær hinar veglegustu. Enn-
fremur má geta þess að nýtt síma-
skiptiborö hefur veriö tekið í notk-
un og er það hið fullkomnasta þó
ekki fari mikið fyrir því. Ljósatöfl-
ur hafa verið settar upp á göngum
og víðar sem sýna hvaða þingmenn
eru staddir í húsinu hverju sinni
og eru að því mikil þægindi fyrir
Framh. á bls 10.
Milljóna tjón á nót-
um síldveiðibáta
20 skip urðu að fara með rifnar nætur i land / nótt
Seinasta sólarhring urðu gífur-®-
legir nótaskaðar á sfldarmiðunum
úti af Austfjöröum. Mörg skipanna
rifu nætur sínar í köstunum, en
óvenjumikill straumur var, logn og
mikil síld, en margur missti af
veiði vegna rifriidis.
Sagði síldarleitin á Raufarhöfn
að gizka mætti á að um 20 skip
hefðu orðið að halda til lands með
rifnar nætur til viðgerðar.
Straumurinn hefur trúlega valdið
milljónaskaða á veiðarfærum síld-
veiðiskipanna þessa einu nótt. —
Skipin eru nú að veiðum um 150
sjómílur austur aö norðri frá Dala-
tanga, en þegar komið er svo nærri
landi fer einmitt að gæta mikilla
strauma, sem orsakast meðfram af
árekstri Pólsstraumsins og Golf-
straumsins þar úti fyrir.
Sjónvarpið styrkir
innlenda kvik-
myndaframleiðslu
Útvarpsráð hefur nýlega gert
samþykkt þess efnis, að á árinu
1968 skuli Sjónvarpið veita sérstakt
framlag til kaupa á nýjum íslenzk-
um kvikmyndum fyrir samtals tvö
hundruð og fimmtiu þúsund krónut
Ákveðið var, að auglýsa skyldi eft-
ir hugmyndum ásamt kostnaðar-
áætlunum, sem ber að senda Ríkis-
útvarpinu—Sjónvarpi. Með þessu
vill útvarpsráð leitast við að auka
samstarf Sjónvarpsins og inn
lendra kvikmyndageröarmanna.
Fyrir utan þessa upphæð verða aðr-
ar íslenzkar kvikmyndir keyptar
fyrir dagskrárfé, svo sem verið
hefur.