Vísir - 10.10.1967, Page 3
VlSIR . Þriðjudagur 10. október 1967,
3
k einu ári hefur stórt og glæsi
legt íbúðahverfi sprottið
upp úr Fossvoginum. Þar sem
í fyrra voru mýrarfen eru nú
raðir tví- og þrílyftra steinhúsa,
timbursprek liggur eins og hrá-
viður hreint út um allt, hamars-
högg, steypuvinna, múrverk.
Þeir sem lengst eru komnir
eiga fáeinar vikur eftir við hús
sín þar til þeir flytja inn og
neðst i dalnum er þegar byrjað
að mála einbýlishúsin að utan.
— Svo eru aðrir, sem eru rétt
að koma grunninum upp úr
moldinni, en á stöku stað þurfti
að grafa þrjár fjórar mannhæð
ir ofan í mýrina, áður en kom-
ið var á fast.
Myndsjáin brá sér þangað
suður eftir í gær, hitti fáeina
húsbyggjendur að máli, önnum
kafna við að loka húsum sinum
fyrir snjóa. Flestir þykjast góð-
ir ef þeir ná því að gera fok-
helt fyrir veturinn. Svo er bara
að biða eftir langþráðu láni frá
Húsnæðismálastjóm. Þeim sem
bezt vegnar i lánamálum mega
eiga von á láni næsta vor. Aðr-
ir hafa ekki fengið svo mikið
sem ádrátt enn þá og sagöi einn
húsbyggjandi þar í Fossvogi, að
líklega ættu ekki færri en tvö
hundruð húsbyggjendur i Foss-
vogi, enga von á Húsnæðismáia
stjómarláni fyrr en seint um
sföir.
Margur bjartsýnismaður, sem
Iagði út í byggingu í vor i
trausti þess að fá þessa aðstoð,
sem þykir orðið sjálfsögö við
hvem þann, sem axlar ofur-
þunga meö því aö koma yfir sig
húsi með tvær hendur tómar ...
En viti menn: Nógir peningar
eru ekki til hjá Húsnæðismála-
stjóm. Hins vegar hefur stofn-
unin á þessu sumri ausiö
milljónum í hús byggingaráætl-
unar í Breiðholti, þar sem byggt
er yfir fólk, þvi svo til að kostn
aðarlausu.
Það eru fáeinir verkalýðsfé-
lagar, sem verða þeirrar gæfu
aðnjótandi aö fá þessi hús með
vildarkjörum. — Hinir, sem
baslast viö aö byggja sin hús
á eigin spýtur, þar á meðal fá-
tækir láglaunamenn og barna-
menn mega bíða i eitt ár eftlr
láni að minnsta kostl. Þannig
hefur fariö fyrir þessu baráttu-
máli verkalýðshreyfingarinnar.
Það er eðlilegt aö menn séu
ekki meira en svo ánægöir meö
byggingaráætlunina. Hins vegar
er vert að vona aö áætlunin leiði
í ljós þá reynslu sem verö er
milljónanna.
Menn eru bjartsýnir þrátt fyr
ir allt í Fossvoginum. Trúa á
guð og lukkuna og væntanleg
lán frá Húsnæðismálastjóm,
einhvem tima meö árunum.
J. H.
Þeir Ioka og bíða eftir láni.
Þeir bíða bara eftir láni
m, rwb. MM m Mutv « J.
'ni'lll í $ ** h * fi é *t *méc.,
w. t'í 4* ••• * ' s
■ ................................................................................................................................................................................................................................................................................
Brátt líður að þvi, að flutt verði I fyrsta einbýlishúsið í Foss-
voffsmvrinni, hús Henriks Bierings. Málarar eru að leggja síðustu
hönd n verkiö og það er Davíð Þórðarson múrarameistari, sem er
að hlaða kamínuna í stofuna.
1Í#| áé *' I
I u wm. í
Hús Aðalsteins Guöjónsen verkfræðings,
fyrsta húsið, sem málað er í Fossvoginum.
Ljósm. Vísis B. G.