Vísir - 19.10.1967, Page 3
VlSIR . Fimmtudagur 19. október 1,'S7.
3
'f
I!
Fyrsta frumsýnins Leikfélags
ins á bessu hausti veröur á laug
ardaginn. — Verkefnið er
franskur gamanleikur, Du Vent
dans les .-{’anehes de Gassaíras.
Það þýtur í sassafrastrjánum
eöa Indíánaleikur eins og hann
er kallaður í unpfærslu Leik-
félagsins. — Höfundurinn er
René de Obaldia, fæddur 1918.
Obaldia bessi fékkst lengi vel
við ljóöagerð o" sögur en 1959
birtist fyrsta leikrit hans og fyr
ir tveimúr árum var Indíána-
ieikur frumsýndur á litla sviði
Alþýöuíeikhússins París. Þessi
leikur hefur borið fræsð höf-
undar síns um alla Evrópu.
Hann hefur verið sýndur I
fjöldamörgum leikhúsum í álf-i
unni, bar á meðal víða á Norð-
urlöndum. Det Norska Teatret
í Osló tók leikinn fyrir í fyrra
03 á bessu leikári er hann sýnd
ur í þremur leikhúsum í Finn-
landi, til dæniis. — Og hvar-
vetna hefur hann bótt mikil
skemmtun.
Indiánaleikur gerist í „villta
vestrinu" í byriun 19. aldar.
Persónurnar eru gamlir kunn-
ingjar úr þjóðsögum „villta vest
ursins“. Þeim er þannig lýst í
handriti leiksins: John-Emry
Rockefeller, landnemi, sjötugur
og lætur ekki að sér hæða.
(Brynjólfur Jóhannesson), Caro-
Iine, kona. hans um fimmtugt
(Sigríöur Hagalín) Pamela, sam-
eiginleg framleiðsla þeirra, 17
ára óhemja, eggjandi falleg (Val
gerður Dan), Tom, sonur. bróð-
ir, liöleskja (Borgar Garðars-
son), William Butler, drykkju-
sjúkur læknir (Guðmundur Páls
son), Carlos, hetia „suberb“.
Fékk af hreinni tilviliun sér-
stakt leyfi um stundarsakir frá
því aö vera í kvikmynd eftir
John Ford (Pétur Einarsson),
Miriam, kölluð „Litla beinskytt-
ian“ gleðikona með stórt hjarta
(Guðrún Ásmundsdóttir), Snar-
auga Apachehöfðingi, svikari
gegn kynstofni sínum, á bandi
hvítra manna, góður — og Frán
Talið frá vinstri: Dóttirin, Valgerður Dan, drykkfelldi læknirinn, Guðmundur Pálsson, hetjan Pétur Einarsson, landneminn, Brynjólfur
Jóhannesson, gleðikonan með stóra hjartað, Guðrún Ásmundsdóttir, sonur, bróðir og liðleskja, Borgar Garðarsson, kona landnemans,
Sigríður Hagalín.
vondur (Guðm. Erlendsson).
Leikmyndina hefur Steinþór
Sigurðsson gert, en sviðið er
baðstofa í bjálkakofa Rockefell
ersfólksins, bláfátækar land-
nemafjölskyldu í Kentucky. —
Utan við gluggann þýtur í grein
um sassafrastrjánna og það get-
ur líka táknað allt annað en
þytinn í trjánum, því að þann-
ig flauta Indíánarnir milli tann-
anna, þegar þeir búast til ár-
ásar. Enda er byssan handleikn
ari þessu landnemafólki en borð
áhöldin og samræður þess eru
ekki alltaf hreint guðsbarnahjal,
enda er . betta hreinræktað
cowboy fólk, eins og við þekkj-
um það úr sögum „villta vest-
ursins.“
Sveinn Einarsson hefur þýtt
Indíánaleik úr frönsku, en Jón
Sigurbjörnsson hefur sett leik-
inn upp og er það áttunda leik
stjómarverkefni hans hjá Leik-
félaginu. Jón starfaöi hjá Leik-
félaginu á árunum 1956—59,
sem leikstjóri og Ieikari og nú
er hann aftur kominn þangað
til starfa og er fastráðinn við
leikhúsið í vetur.
Myndirnar eru teknar á æf-
ingu f Iðnó nú í vikunni, ljós-
myndari er, Bragi Guðmunds-
jr jr
ÆFING A INDIANALEIK
Kona landnemans á það til aö lesa óorðna atburði í spákúlu..
Landneminn og læknirinn með Indíánahöfðingjann Snarauga (Guðmund Erlendsson) á milli sín.
r