Vísir - 19.10.1967, Blaðsíða 9

Vísir - 19.10.1967, Blaðsíða 9
V 1 S IR . Fimmtudagur 19. október 1967. í tilefni af 4000. sýningu á leiksviði Þjóðleikhússins J kvöld á merk stofnun merki- legan áfanga að baki — í kvöld fer fram 4000. leiksýning in í Þjóðleikhúsinu. Þá eru og liöin vel 17 ár síðan það tók til starfa. Þaö er því unglingur enn að reynslu og árum, miðað við mannsævina, bam í reifum mið- að við aldur hliðstæðra stofn- ana í nálægum menningarlönd- um. Það væri því lítil sanngimi að fitja þar upp á samanburði. Enda freista ég þess ekki. Það er eitt af þjóðarsérkenn- um okkar aö deila um flesta hluti. Þjóðleikhúsið hefur ekki farið varhluta af því. Jafnvel áður en það varð til — áður en húsið sjálft var orðið annað og meira en lauslegt riss á teikni- pappírsörk — hófust hatramm- ar deilur um væntanlega stað- setningu þess, m.a. í dagblöö- unum. Voru margir staðir til nefndir og öllum talið til kosta nokkuð, en loks varð þó sam- komulag — að kalla — um stað inn, þar sem það reis af grunni löngu síðar, og þótti þó mörg- um, sem hann hefði fæst til sins ágætis, þeirra er til greina komu. Ekki komst friður á, þótt grafið væri fyrir grunninum, þá hófust harðar deilur um fram- lög til framkvæmdanna, um teikninguna að byggingunni og margt annaö fundu deilnir menn sér til. Þjððleikhúsið var því lengi í byggingu, enda bætt- ist þá kreppan ofan á ósam- komulagið. Loks stóð bygging- in fokheld og var byrjaö að ganga frá henni að innan — og enn var hún stöðugt deiluefni, og gengu hinar furðulegustu tröllasögur um skipan hluta inn ah veggja, m.a. þótti hagsýnum mönnum sviðiö allt of stórt, samanborið við áhorfendasal- inn, en áhorfendasalurinn allt of stór, miðað við fólksfjölda, og þannig mætti lengi telja. Loks kom hernámiö og þaggaöi niður aliar deilur í bili, því að brezkir lögðu undir sig bygg- inguna og komu sér þar upp vörugeymslu. Að styrjöld lokinni, meðan striðsgróðastórhugurinn hvatti þjóðina til allskyns átaka, var hafizt handa um að gera al- vöru úr „þessu með Þjóðleik- húsið“, hvað var og gert fyrir atþeina framsýnna manna, og deilurnar blossuðu upp aftur og tröllasögumar komust í algleym ing á nýjan leik. Þeir, sem muna þetta ekki, telja áreiðanlega aö hér sé farið með ýkjur, hinum, sem muna það, finnst áreiöan- lega nú, að þetta hafi verið í fyllsta máta hjákátlegt. En þeir voru til, sem tóku sér þetta mjög nærri. Þeim var Þjóöleik- húsiö hugsjón, ekki einungis stofnun þess, heldur sjálf bvgg ingin — því að þá var enn sú tíð að menn áttu sér hugsjón- ir og mínnkuðust sín ekki fyrir að viðurkenna það. Atvik nokk urt varö til þess, að höfundur hinnar umdeildu byggingar, Guðjón heitinn Samúelsson prófessor, þáverandi húsameist ari ríkisins, átti langt tal við mig um bygginguna og sýndi mér hana hátt og lágt, en hún var þá nærri fullgerð. Þá komst ég að raun um að þessi bygg- ing var honum ekki einungis hjartfólgin — hún var eins kon- ar lífsdraumur hans, umfram all Guðlaugur Rósinkranz þjóðleikhússtj óri. ar aðrar hinar mörgu bygging- ar, sem hann haföi teiknað og haft umsjón með. Mér er atvik þetta ekki með öllu sársauka- laust, en tel mér það um leið ó- metanlegan ávinning, að hafa fyrir það fengið að kynnast jafn heilsteyptum hugsjónamanni og viðkvæmum listamanni og Guð- jóni heitnum Samúelssyni. Loks kom að þvi aö ráöa skyldi Þjóðleikhússtjóra. Ekki gekk það þegjandi og hljóða- laust fyrir sig, fremur en annaö sem viðkom þessari verðandi menningarstofnun. Ekki er þó beinlínis viðeigandi að nota þetta tækifæri til að rifja upp þær deilur, en víst er um það, að sá sem fyrir valinu varð, Guð laugur Rósinkrans, hefur staðið af sér alla þá sviptibylji, enda er nú orðið tiltölulega lygnt um hann og stofnunina, samanbor ið við sumt þaö, sem á undan er gengið. Það er eðli vestfirzkra, að kippa sér ekki upp við þótt gusti, og Guðlaugur Rósinkrans er enn maður brosmildur — trúað gæti ég aö hann kvíði því helzt að nú fari að síga logn- molla að stofnuninni, ef hún verður ekki umdeild lengur. Þar heföi hann og mikið til síns máls. Það er nauðsynlegt að gusti um slíkar stofnanir sem Þjóðleikhúsið. Það voru fluttar margar ræö- ur við vígslu Þjóöleikhússins, enda oft mikið sagt af minna til- efni, eins og oft vill verða, þeg- ar þannig stendur á; allir hrós- uöu sigri, en létu þá staðreynd lönd og leið, að nú fyrst var bar- áttan að hefjast. Stööug bar- átta, sem aldrei lýkur og aldrei má ljúka. Reyndar var ræðu- mönnum vorkunn, þótt þeir teldu það mikinn sigur, að þjóð- in skyldi hafa eignazt sitt leik- hús, bæöi bygginguna og stofn- unina. Sennilega hefur allur sá styrr, sem það kostaöi, orðið til þess að þeim fannst allt fengið, nú þegar ekki varð lengur um þetta deilt á sama hátt og fyrr. Fyrsta starfsár Þjóðleikhúss- ins hófst með sýningum á þrem leikritum eftir íslenzka höfunda — „Nýjársnóttinni" eftir Indriða Einarsson sem oft hefur verið nefndur „faðir Þjóðleikhússins", „Fjalla-Eyvindi“ Jóhanns Sigur- jónssonar og loks „íslands- klukkunni", saminni upp úr samnefndri skáldsögu Halldórs Kiljans Laxness. Nú, þegar mér verður litið um öxl, finnst mér sem það hafi verið merkilegasta sýningin — að vissu leyti merkilegasta sýningin, sem um getur á sviöi Þjóöleikhússins þessi seytján ár. Fyrir samstarf höfundar og leikstjórans, Lár- usar Pálssonar, táknaði sú sýn- ing tímamót í íslenzkri leiklist- arsögu. Engin sýning hefur vak- ið jafn glæsilegar vonir um þaö, hvers íslenzkir leikritahöfundar og leikstjórar myndu megnugir í framtíðinni. Því miður hafa þær vonír brugðizt að miklu leyti hvað leikritahöfundana snertir. Það er raunasaga Þjóð- leikhússins, að enn skuli ekki neinn íslenzkur leikritahöfundur hafa komið þar fram, sem að kveður, annar en Kiljan — höf- undur, sem sópar að og dregur amsúg á flugi. Þjóðleikhúsinu hefur oft verið legið á hálsi fyr- ir að sýna ekki nógu mörg ffú- tímaverk íslenzkra hofunda. Ég er ekki viss um að sú gagnrýni fái staðizt að öllu leyti. Slíkt verk þurfa þá að vera fyrir hendi — og helzt ekki öll miðl- ungsverk. Nú loks er þó ýmis- legt, sem bendir til þess að höf- undar af yngri kynslóðinni verði þess megnugir að lyfta merki Jóhanns og Kiljans. Eng- um mundi það meira fagnaðar- efni eða meiri ávinningur en Þjóöleikhúsinu. I kvöld verður 4000. leiksýn- ingin á sviði Þjóöleikhússins. Þannig á það að vera, annars er alltaf hætta á að slakað verði á, og þótt Þjóðleikhússtjóri geti aö sjálfsögðu ekki alltaf verið gagnrýnendum sammála, veit hann að hann og stofnunin eiga allt undir því, sem máli skiptir, að þeir dotti ekki á veröinum. Hann hefur verið ótrauður að fá erlenda listamenn til starfa viö stofnunina, lengri eöa skemmri tíma, og oftast reynzt þar heppinn I vali. Auk þess hafa margir úrvals leiklistar- flokkar og einstaklingar komið þar fram sem stundargestir. Allt Brynjólfur Jóhannesson sem Jón Hreggviðsson og Lárus Pálsson sem Jón Grindvíkingur í íslandsklukkunni. Leikritið, sem sýnt verður, i,,Homakórallinn“ eftir Odd Bjömsson, er 206 viöfangsefnið. Alls hafa verið sýnd þar 24 ný leikrit eftir íslenzka höfunda, auk eldri íslenzkra leikritá. Meðal hinna 206 viðfangsefna má telja erlenda söngleiki, óper- ur, óperettur og balletta, auk sjónleikjanna. Mörg þessara við- fangsefna hafa verið gagnmerk, önnur upp og ofan og eflaust má flokka sum þeirra undir létt- meti. Það hefur löngum staðið nokkur styrr um leikritavalið. er þetta gagnmerkt og gott, og mikiö starf innan stofnunar, sem ekki er nema seytján ára. í ekki lengra lífi slíkrar stofn- unar má 4000. sýningin kallast merkileg tómamót. Það er venj- an að bera fram einhverjar hamingjuóskir af slíku tilefni. Ég held sú hamingjuósk, sem mér pr nærtækust, sé borin fram af einlægni: „Megi alltaf standa hressileg- ur gustur um starfsemi Þjóð- leikhússins ...“ Loftur Guðmundsson.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.