Vísir - 28.10.1967, Síða 1
57. árg. - Laugardagur 28. oktðber* 1967_ 248. tbl.
Nýju reglurnar um gjaldeyrisviðskipti:
Eiga að draga úr s'ivaxandi
halla á greiðsluviðskiptum
úr borginni
— Banni við fjárhaldi framfylgt i fyrsta sinn
fjóldi fjáreigenda i yfirheyrslum hjá lógreglunni
Eins og Vísir skýrði frá í gær,
stöðvuðu gjaldeyrisdeildir bank-
anna afgreiðslu á gjaldeyri til al-
mennra vörukaupa í gærmorgun.
Blaðinu barst f gær eftirfarandi frá
Scðlabankanum um málið:
„í framhaldi af breytingu á
vcglugerð um skipan gjaldeyris og
innflutningsmála o. fl„ sem gefin
var út af viöskiptamálaráðuneytinu
í dag, hefur Seðlabankinn birt aug-
lýsingu um nýjar reglur um inn-
borganir vegna innflutnings.
í hinum nýju reglum felst, að
greiða þarf 15% innborgun, um
leið og sala gjaldeyris fyrir inn-
flutningi fer fram, enda sé ekki
um greiðslufrest að ræða, og verður
innborgunin bundin í þrjá mánuði.
Sé varan fiutt inn með greiðslu-
fresti, en án ábyrgðar, hækkar inn-
borgun um 15%, þ.e.a.s. úr 10%,
sem nú er í giidi, í 25%. Innborg-
un þessi stendur, á meðan greiðslu-
frestur er, en þó ekki skemur en
í þrjá mánuði. Undanþegnar þessum
nýju innborgunum verða allar
heiztu rekstrar- og hrávörur, svo
sem kornvörur, fóðurvörur, kaffi,
sykur, olíur, veiðarfæri, áburður,
iðnaðarhráefni o. fl.
Ákvörðun þessi, sem tekin hefur
verið af viðskiptamálaráðuneytinu
í samráði við Seðlabankann, tekur
gildi mánudaginn 30. þ. m. Er til-
gangur hennar sá að draga úr hin-
um sívaxandi halla, sem verið
hefur á greiðsluviðskiptum við út-
lönd síðustu mánuði. Hefur orsök
hallans, verið fólgin í því, að verð-
mæti útflutnings hefur lækkað
stórkostlega, vegna verðfalls er-
lendis og minni sjávarafla, jafn-
framt því sem almennur innflutn-
ingur hefur haldizt nokkru hærri
en á s.l. ári. Þannig var útflutn-
ingur til ioka september einum
briðja eða rúmlega 1000 millj. kr.
lægri en fyrstu níu mánuði ársins
1966. Innflutningur, að frátöldum
skipum, flugvélum og innflutningi
vegna Búrfellsvirkjunar, var hins
vegar 3% hærri fyrstu tíu mánuði
Nýja brúin yfir Jökulsá á Sói-
heimasandi verður tekin í notk-
un í dag og mun Ingólfur Jóns-
son, samgöngumálaráðherra,
aka fyrstur yfir brúna.
Jökulsá hefur alla tíð verið
erfið yfirferðar. Veldur því eink-
um hvað áin er stríð og svo það,
að áður fyrr komu í hana stór
jökulhlaup. Jökulhlaupin stöf-
uðu af því, að Sóiheimajökull
stíflaði afrennsli úr hliðardal og
myndaði þar uppistöðu. Þegar
vatnsborðið í uppistöðunni varð
nægilega hátt, lyftist jökullinn
þessa árs en á sama tímabili í fyrra.
Þar sem ekki er útlit fyrir, að út-
flutningur muni aukast nægilega á
næstu mánuðum til að jafna hall-
ann á gjaldeyrisviðskiptunum, hef-
ur reynzt óhjákvæmilegt að grípa
til ráöstafana til þess að draga úr
innflutningi.
Ríkisstjórnin og Seðlabankinn
eru sammála um það, að mjög ó-
æskilegt væri að reyna að draga
úr innflutningi með beinum höftum,
og hefur i þess stað verið ákveðið,
að taka upp hinar nýju innborgun-
arreglur, en þær ættu að hafa sterk
áhrif í þá átt að minnka eftirspurn
eftir erlendum gjaldeyri."
og vatnið tæmdist skyndilega.
Þessi jökulhlaup urðu mjög stór
áður fyrr, en minnkuðu eftir
því sem jökullinn minnkaði og
hopaði, og hættu að mestu leyti
um 1930.
Gamla brúin var byggð á árun-
um 1920 og 1921, og var vígð 4.
sept. 1921. Brúin var byggð sem
stálgrindabiti með timburgólfi á
steyptum stöplum.
Nýja brúin er stálbltabrú með
steyptu gólfi og hvila bitar á steypt-
um stöpium. Heildarlengd bnlar er
159 m, og skiptist sú lengd í 5
höf, 3 miðhöf 35 m aö 1. og tvö
Lögreglunni í Reykja-
vík hefur verið falið að
sjá um að framfylgja
settu banni við f járhaldi
í Reykjavík. Hafa marg-
ir fjáreigendur er
stunda þennan búskap í
trássi við bannið verið
kallaðir fyrir lögreglu-
stjóra og gert að fjar-
lægja kindur sínar af
lóðum í borginni innan
ákveðins tíma.
Allt fjárhald í landi Reykja-
víkur var bannað í fyrrahaust
nema með sérstöku leyfi borgar
yfirvalda. En fjáreigendum var
eins og kunnugt er úthlutað
endahöf 27 m að lengd, Breidd brú-
ar er 4,8 m að utanmáli og 4 m
milli bríka. Til að tryggja undir-
stöðu, var reynt að reka „taura
undir stöpla. Það tókst ekki, og
voru þá stöplar grafnir niður eins
og unnt var eða allt að 5 m niður
fyrir vatn.
Framkvæmdir viö brúarsmíðina
hófust um miðjan maí s.l. og verð-
ur lokið nú um mánaðamótin okt.
—nóv. Starfsmenn hafa að jafnaði
verið um 25.
Verkfræðilegan undirbúning og
yfirstjórn hafa annazt verkfræð-
ingar Vegamálaskrifstofunnar undir
stjórn Arna Pálssonar yfirverk-
fræðings. Verkstjóri er Haukur
Karlsson brúarsmiður. Verkstjóri
við gerð vegar og varnargarða
Brandur Stefánsson, vegarverk-
stjóri.
Heildarkostnaður við brúna er
áætlaður 12 millj. kr.
landi fyrir innan Elliðavatn fyr-
ir kindur sínar. Fjárborgin sem
þar er mun nú fullskipuð á jöt-
ur og eiga fjáreigendur, sem
ekki hafa þegar fengið aðstöðu
þar ekki í annað hús að venda.
Má því búast við niðurskurði
á miklum hluta af bústofni
Reykjavíkurbænda.
Borgarráð ítrekaði á fundi
sínum 3, þessa mánaðar ákvæð-
ið um bann viö fjárhaldi i borg
inni og var skrifstofustjóra borg
arinnar falin frekari fram-
kvæmd málsins.
Lögreglunni var síðan falið
að kanna fjárhald í borginni og
framfylgjá banninu. Sagði fuil-
trúi iögreglustjóra við Vísi í
gær að allmikið væri um fjár-
hald hér í borginni og þyrfti að
kalla marga menn fyrir, en yfir-
heyrslur standa yfir þessa dag-
ana. Sagði fulltrúinn að fjár-
eigendur fengju stuttan frest
stig, að lán fengjust út á hús á
meöan þau væru í byggingu.
Forsaga þessa máls er sú, að
í vor ákváðum við að byggja
hús í stórum stíl ef við fengjum
þau starfsskilyrði, sem til þess
þarf, sagði Gissur, — þ. e. næg-
ar lóðir og fyrirgreiðslu í lána-
málum. — Við leituðum til ríkis
og borgar varðandi þessi mál og
fengum mjög góðar undirtektir.
— Þau skilyröi verða að skap-
ast að hægt sé að halda bygg-
ingaframkvæmdum stöðugt
gangandi til að koma í veg fyrir
verkefnaleysi, en einnig veröur
að vera hægt að koma við stöðl
un vegna sameiginlegra inn-
kaupa á byggingarefnum.
Frumskilyrði þess aö þetta sé
hægt er þó, að lán fáist á eign-
irnar áður en þær eru seldar,
en eðlilegt er að t. d. 50% lán
fáist út á eignirnar. Hingað til
hefur það tíðkazt aö lán fást
varla fyrr en búið er að selja í-
búðimar og þá út á nafn kaup-
anda, sem hefur valdið bygginga
meisturum miklum erfiðleikum,
því skiljanlega geta þeir ekki
legið með ótakmarkaö fjármagn
í byggingunum. — Veigamikið í
byggingaiðnaðinum er að geta
velt fjármunum sem örást, því
að fjármagn, sem liggur bundiö
í byggingum er dýrt.
íbúðakostnaðurinn er óheyri-
lega stór liður £ útgjöldum
manna og höfum við bygginga-
meistarar, ekki síður en aðrir,
áhuga að bæta þar úr.
Samstarfsfélagið verður vænt
anlega stofnað f næsta mánuði.
Sagði Gissur að það væri opið
öllum byggingameisturum, a. m.
k. múrarameisturum og tré-
til þess aö flytja burtu kindur
sínar af heimalóðum í mörgum
tilfellum eina viku eða svo.
Kindur eru sem óðast aö kom
• ast til skila úr sumarhögum og
á að koma í veg fyrir að þær
verði hýstar í bílskúrum og kof
um á lóðum borgarinnar, eins
og viögengizt hefur um árarað
ir og eins núna seinasta ár þrátt
fyrir bannið,
Vísir átti ennfremur í gær tal
við garðyrkjustjóra borgarinnar
og sagði hann að sér væri eins
og öðrum garðræktarmönnum,
lítil þökk í kindastússinu hér í
borginni, en fjáreigendur hefðu
þráazt við. Það væri sagt um
menn að þeir væru sauðþráir
og það ætti við fjáreigendur
mörgum fremur.
Fjárborgin austan við Elliða-
vátn er talin vera hættuleg
vatnsbólum Reykjavíkursvæðis-
ins. Talið er að óhreinindi það-
an geti komizt í jarövatnið og
borizt með þvf í vatnsbólin, en
lítið þarf til þess að gera vatnið
óhæft til drykkjar.
Er fjáreigendum þvf ekki
leyft að vera þama nema fram
á vorið, en ekki er enn vitað
hvað við tekur, þegar kindur
koma af fjalli næsta haust.
smiðameisturum, en það em að-
allega þeir, sem hafa stundað
ibúðabyggingar til sölu. — Ekki
er útilokað að öðrum meistur-
um verði gefinn kostur á að
ganga f félagið.
Bifreið stolið
í Kópavogi
Stolið var bifreið í Kópavogi,
sem staðið hafði við hús nr. 62
við Þinghólsbraut, í fyrrakvöld.
Barst lögreglunni vitneskja af ferð
um þjófsins á bifreiðinni, en sézt
hafði til hans hlaupa frá henni,
þar sem hann skildi við hana eftir
að hafa ekiö henni aðeins stutta
vegalengd, að húsi nr. 5 við sömu
götu. Af lýsingu sjónarvotta á bíl-
þjófnum gat lögreglan glöggvað
sig á hver hann mundi vera og
var hann handtekinn strax í gær-
kvöldi. Mun þjófurinn strax hafa
játað á sig . stuld bifreiðarinnar.
Hins vegar hefur lögreglunni í
Kópavogi ekki enn tekizt aö hafa
uppi á þeim, sem ók á tvílita
Moskvitch-bifreið, þar sem hún
stóð mannlaus við hús nr. 54 á
Borgarholtsbraut. Hafði eigandi bif
reiðarinnar skilið við hana kl. 21 í
fyrrakvöld en þegar hann fór til
vinnu sinnar í gærmorgun sá hann
hvernig afturstuðari, afturbretti og
hurð bifreiðarinnar höfðu verið
stórskemmd, eins og ekið hefði
verið á bifreiðina. Fólk f húsinu
hafði' heyrt einhvern skarkala kl.
1.30 um nóttina, en ekki gert sér
grein fyrir, af hverju hann stafaði
og leikur grunur á, að þá hafi á-
reksturinn átt sér stað. Skorar lög
reglan á hvem þann, sem til þess
er fær, að veita sér upplýsingar
eða liö í máiimi.
Með nægum lóðum og fjármugnimá
lækka byggingakostncð verulegu
— segir Gissur Sigurðsson, einn af 36 byggingameisturum, sem
undirbúa samstarfsfélag byggingameistara til að lækka bygginga-
kostnaðinn — Myndum sætta okkur við verðlagseftirlit
Samtök byggingameistara
hafa nú sótt um lóðir f Breið-
holtshverfi III, sem er næsti
hluti Breiðholtshverfis, þar
sem Ióðum verður úthlutað í
stórum stíl. — Bygginga-
meistararnir, 36 talsins, und-
irbúa nú stofnun samstarfs-
félags, en stofnfundurinn
verður haldinn í næsta mán-
uði.
Einn byggingameistarinn í
undirbúningsstjórninni, Gissur
Sigurösson, sagði í viðtali viö
Vísi í gær, að byggingameist-
ararnir væru sannfærðir um. að
með nægjanlegum lóðum og
lánafyrirgreiðslu mætti lækka
byggingakostnaðinn verulega,
en opinberir aðilar hafa sýnt
þessu máli mikinn velvilja og
tekið vel undir málaleitun bygg
ingameistaranna.. Gissur sagði,
að byggingameistararnir myndu
sætta sig við strangt verðlags
eftirlit, ef opinber fyrirgreiðsla
kæmi til og lánamálum
til bygginga yrði komið á það
-<S>*
Ný brú á Jökulsá á Sól-
heimasandi tilbúin
Samgóngumálaráðherra, Ingólfur Jónsson,
mun taka brúna formlega i notkun i dag