Vísir - 30.10.1967, Blaðsíða 8
M/SS OVMS£ /,
I'í-L HSLP
MIGHT H/T YOO.
Eldhúsið, sem allar
húsmceður dreymir um
Hagkvœmrli, stílfegurð
og vönduð vinna á öllu
VISIR . Mánudagur 30. október 1967.
METZELER
Vetrarhjólbarðamir koma snjó-
negldir frá METZELER verk-
smiöjunum.
BARÐINN
Ármúla 7. Sími 30501.
HJÓLBARÐASTÖÐIN
Grensásvegi 18. Slmi 33804.
AÐALSTÖÐIN
Hafnargötu 86, Keflavík.
Sími 92-1517.
Almenna Verzlunarfélagiö
Skipholti 15. Sími 10199.
Hann lagöi síðan fyrir mig
nokkrar spurningar, fremur sákir
hæversku að því er virtist, en af
áhuga. Ósjálfrátt snerist talið að
skák, og það var sem hann Vakn
aði af dvala, þar var snortinn
viðkvæmur strengur, það leyndi
sér ekki. Hann sagði mér af von-
brigðum sínum og vonum, að hann
hefði hætt langskólanámi til þess
að geta helgaö sig skáklistinni ein-
göngu, og hvað það kostaði iangan
tíma og mikið erfiði að ná þar
árangri.
Ég bauð honum aðra brauðsneið
og glas af bjór, sem hann þáði
eins og ekkert væri sjálfsagðara.
Framkoma hans bar vitni þvf, aö
j honum væri siðfágun í blóð bor-
in, og hann var hreinskilinn eins
og sá einn getur verið, sem hefur
afneitað allri blygðun í eití skipti
fyrir öll, trúir ekki á neitt, og
tekur því, sem að höndum ber
eins og sjálfsögðum hlut.
Ég ók honum í bíl mínum heim
til hans. Þegar kom að útidyrum
sambyggingarinnar bauð hann mér
inn, ef ég vildi þyggja eitthvaö að
drekka. Þegar ég þáði þaö um-
yrðalaust, var sem ylur færðist £
augnatillit hans, ylur og virðuleiki,
sem snart mig annarlega,
Við gengum upp marga stiga,
og loks leiddi hann mig inn I
fátæklega, eri hreina, litla íbúö,
þar sem ég svipaðist um við kerta-
ljós. Stan sagði mér, að fyrri
leigjandi hefði látið taka rafmagn-
ið af íbúðinni, og sjálfur hefði
hann ekki komið því í verk, að
fá því brevtt. Hann vísaöi mér
inn í eldhúsklefa, þar sem hann
bar mér glas af vatni með sömu
háttvísi og um dýrar veigar væri
að ræða, og mælti um leið: „Jafn-
vel glæsilegasti maður í heimi,
gefur ekki annað en það sem hann
á“.
Ég lék með, bar glasið aö vör-
íim mér og drakk. Vatnið var
moðvolgt en ég lét ekki á neinu
bera. Ég hafði nærri drukkið það
í botn, þegar hann slökkti á kert-
inu. Hann lagði arminn um háls
iWér og dró mig að sér. Sem
snöggvast varð ég gripin sælu-
blandinni skelfingu, rétt eins og
þetta væri í fyrsta skiptið, ,og um
leið varð ég honum óumræðilsga
þakklát,
3. ágúst.
, Hvað gerði að ég varð honum
eins skilyrðislaust háð og raun bar
vitni? Öll atlot hans báru vitni
frábærri kunnáttu hans og tækni,
það var eins og atvinnumaðurinn
tefldi skák og einbeitti 'allri hugsun
sinni og leikni að mikilvæði úr-
slitanna. Þetta var mér þó í raun-
inni ekki nýtt. Ég hlýt að hafa
unnað honum með ærslum, saman-
borið við það, sem ég gat látiö
honum í té.
Þegar ég kynntist honum, átti
hann ekki fyrir málungi matar og
hafði misst sjálfstraust sitt að
miklu leyti. Ég tók hann að mér,
veitti honum húsaskjól, fæddi hann
og klæddi. Og það leiö ekki á löngu
áður en ég varð altekin þeirri löng-
un, að hann mætti ná sem mestum
framg í list sinni, eftir því sem
metnaður hans og hæfileikar stóðu
til. Ég vissi, að það takmark var
honum lífið sjálft, og einnig, aö
vald mitt yfir honum varð meira,
„Hjátp!“
„Ungfrú O’Hare, ég hjálpa yður." „Fljót-
ur, Tom."
„Ég get ekki skotiö, ég gæti hitt yð«r,"
iy Edgap Pice Burroughs
JOHVÍ
(HAKPO
;!
ef ég hjálpaði honum með ráðum
og dág til að ná því. Fyrr en varði
var þetta einnig oröinn snar þáttur
í mínu eigin lífi. Ég varð að sjá
svo um, að hann kæmist þangað,
sem hann þurfti að fara til keppni;
greiða fargjald hans og annan
kóstnað, þegar skáksambandið vildi
ekki hlaupa undir bagga. Hann
keppti í San Remo, Hastings, Du-
brovnik, Baden-Baden og Lenin-
grad. Varð alþjóðlegur skákmeist-
ari I febrúar 1939, og loks stór-
meistari í júní sama ár.
Það var furðulegast, að hann
skyldi halda tryggð við mig. Voriö
j939 hafði hann fengið þau fjárráð,
hann vildi ekki meira af mér
þiggja, en það breytti ekki sam-
bandi okkar að neinu leyti, og hann
sýndi þess engin merki, að hann
héfði hug á ag rjúfa það. Þvert á
móti — það var ekki laust við aö
atlot hans yrðu blíðari og ekki eins
táeknileg.
Þessi fastheldni hans, sem kom
mér algerlega á óvart, veitti sam-
vistum okkar meiri fyllingu og full
nægingu en nokkur karlmaður
hafði megnað aö veita mér áður.
Það var í ágústmánuði 1939, að
hann kom óvænt heim úr keppni
við Feodorovitch og virtist f ann-
arlegu uppnámi. Ég var í þann veg-
inn að leggja af stað til sjúklings,
og bað hann vera fljótan að koma
sér að erindinu. Hann kvaðst vera
kominn til að votta mér þakklæti
sitt. Þetta var svo gersamlega ólikt
honum, aö mér vafðist tunga um
tönn. Og þegar hann dró lítið, kín-
verskt men upp úr vasa sínum og
gaf mér, varg mér svo mikið um,
að ég fór að gráta. Fangaverðirnir
tóku menið frá i mér og skrásettu
það, samkvæmt sínu nákvæma
kerfi í bækur sínar og mér var svo
afhent það, óskaddað, þegar ég var
látin Taus. Hefðu nú nazistarnir
gætt Stans jafnvel fyrir mig...
Styrjöldin varð til þess að tengja
okkur enn traustari böndum,’ þótt
undarlegt megi virðast. Vegna henn
ar varð hann að hætta við þátt-
töku I Evrópumeistarakeppninni og
hann skorti aftur fé, svo ég varð
að hlaupa undir bagga. Hann hafði
ekki gert ráö fyrir því að verða
mér aftur efnahagslega háður, og
ég man að ég gat ekki stillt mig
um að stríða honum vegna þess,
hve öröugt hann átti með að þiggja
aðstoð mína. Stórmennska hans
hafði aukizt með framanum og
frægðinni. Ég bauð að giftast hon-
um, væri honum það nokkur hugg-
un. Hann svaraði: „Ég er ekki eins
og rakkamir — ég get ekki dillað
skottinu, nema ég sé frjáls". Þvi
gat ég að sjálfsögðu ekki svarað.
Svo kom hernámið. Dóttir mfn
hafði verið mér hyggnari og yfir-
gefið París; Mér fannst ég ekki
geta yfirgefiö sjúklinga mfna. Þeg-
ar Gyöingaofsóknimar hófust fyrir
alvöru, bað ég Stan aö yfirgefa mig,
unz eitthvaö drægi úr þeim að
minnsta kosti. Hann móðgaðist.
»,Mér kemur ekki til hugar að
yfirgefa þig,“ sagði hann. „Ég sef
hjá þér á meðan nokkur Gyðinga-
hatari fyrirfinnst f þessari vesælu,
gömlu borg. Og mér gengur þar
einungis eigingirni til, eins konar
-óviðráðanlegt óeðli. Það er þýðing-
arlaust að rökræða það.“
Þegar ég maldaði 1 móinn, brást
hann reiður við. „Þú ert ekki einu
sinni Gyðingur," hreytti hann 1
mig.
Eg andmælti honum kröftuglega,
en hann færði fram rök, sem virt-
ust sannfæra sjálfan hann.
„Ég trúi ekki þessari Gyðinga-
Kenmngu. Þaö er fólk, sem játar
ísraelska trú, en þú gerir það ekki.
Hvernig gætir þú verið Gyöingur?
Að kyni til? Getur þú sem læknir,
haldið því fram að til sé nokkurt
Gyöingakyn? Að því leyti til ert þú
ekki kynborin, fremur en útilegu-
köttur.“
Ég ætlaöi að skjóta oröi inn 1, en
það þýddi ekki neitt. „Ég get sagt
þér, að hve miklu leytj þú ert
Gyöingur ... þú heldur að þú sért
það. Og það fyrirfinnast fjölmargir
hættulegir fávitar, sem trúa því
um þig. Gyðingur er viðhorf. Að
vera ísrelíti er hliðstætt því að
vera kristinn — að vera Gyðingur
hliðstætt því aö vera Fransmaður.
Það er einungis hugrænt atriði."
Mér var ljóst, aö hann hafði mik-
ið tii síns máls, enda þótt þessi
fullyrðing hans fengi ekki að öllu
leyti staöizt. „Að vera Gyðingur,"
sagði ég, „er að vera meðlimur
samfélags, sem orðið hefur að þola
ofsóknir og þjáningar árum og öld-
um saman."
Hann leit á mig, og ég sá bregöa
fyrir glettnisglampanum í augum
hans, sem ævinlega var fyrirboði
iangsóttrar fyndni. „Þégar við nut-
umst á stjórnarárum Blums-ráðu-
neytisins, varstu sem sagt ekki orð-
in Gyðingur?" varð honum að oröi.
FIIAGSHF
VlKINGUR,
handknattleiksdeild.
Æfingatafla fyrir veturinn 1967
-1968.
Sunnudaga
kl. 9,30 4 fl. karla
- 10,20 - - -
- 11,10 3. fl. karla
- 13,00 M., 1. og 2. fl.
karla
- 13,50 -------------
Mánudaga
kl. 19.00 4. fl. karla
- 19.50 3. fl. karla
- 20.40 M., 1. og 2. fl.
kvenna
- 21.30 - - -
Þriöjudaga
kl. 21.20 M., 1. og 2. fl.
karla
- 22.10 - - —
Fimmtudaga
kl. 19.50 M., 1. og 2. fl.
karla
— 20.40 — - -
Föstudaga
kl. 19.50 3. fl. kvenna
Laugardaga
kl. 14.30 3. fl
kvenna
Æfingar fara fram j fþróttahúsi
Réttarholtsskóians, nema þriöju-
daga; en þá eru þær í Iþrótta-
höllinni f Laugardal. — Æfing-
amar byrja þann 15. sept. Ný-
ir félagar eru velkomnir.
Mætið vel frá byrjun
Þjálfarar.
Sölubérn éshost
Hafið samband við
afgreiðsluna
Hverfisgötu 55.
VÍSIR
F
Aiið
LAUGAVEQI 133 «IrT)l «11785
SMIUI
imnin
BWUOARARSTfG 31 SfMI oarm
Knútur Bruun hdl.
Lögmannsskrifstofa
Grettisgötu 8 II. h- .
Sími 24940.