Vísir - 13.11.1967, Blaðsíða 7

Vísir - 13.11.1967, Blaðsíða 7
V 1SIR . Mánudagur 13. nóvember 1967. ÞEGAR GAT ER NAGAÐ Á JARÐSKORPUNA Tvær krónur. TTndir yfirboröi jarðar, inni í Blesugróf, vinna þrjú stál- tennt hjól að því að naga gat á jarðskorpuna. Hjólin eru kón- isk og fest á endann á jám- stöngum, sem liggja upp úr yf- irboröi jarðar, þar sem gufuafl er notað til að snúa þeim. Jám- stengumar ná upp í þrjátfu og þriggja metra háan tum, sem samanstendur af jámbitum, sem víxlast eins og nútíma hygg- mynd af reisulegra taginu. Ann- ars er þetta venjulegur oliubor, segja þeir, og hefur verið í eigu íslendinga frá því um áramótin 1957 og ’58. Hlutverk hans á ís- lenzkri grund er þó ekki það sama og gert var ráð fyrir þeg- ar borinn var smíðaður, heldur skal hann notaður til borunar eftir heitu vatni. Gufuborinn hefur ekki verið notaður frá því á árinu 1964, þangað til fyrir skömmu, að hann var „pússaður" upp og reistur á fyrmefndum stað, enda mun ekki vanþörf á að taka til við boranir, ef mögu- legt á að vera að fullnægja eft- irspuminni eftir heitu vatni. Á tveggja tfma fresti em tek- in sýnishom af þeim jarövegi sem borinn skilar upp á yfir- borðið og fengið jaröfræöingum í hendur, sem síðan skrá þær upplýsingar sem sýnishornin gefa. Eins og sjá má af myndunum hér á síðunni, skrapp Myndsjáin í heimsókn inn í Blesugróf. Eins og oftast áður samanstóð sú ágæta maddama (þ. e. a. s. Myndsjáin) af ljósmyndara og blaðamanni. Verkstjórinn gaf ijósmyndaranum leyfi til að fara ,,upp á pall“ og fékk hon- um hjálm á höfuðið í varúðar- skyni. Á meðan fór blaðamaö- urinn inn í kaffiskúr með verk- stjóranum, sem góðfúslega veitti hönum upplýsingar um vinnubrögð gufuborsins og þeirra manna, sem við hann vinna. Þegar blaðamaðurinn hafði setið á tali við verkstjór- ann um stund, varð honum lit- ið út um gluggann og sá hann þá hvar ljósmyndarinn var kom- inn langleiðina upp f tuminn og brá í brún og hafði orð á þessari framtakssemi við verk- stjórann, um leið og hann dáð- ist að kjarki Ijósmyndarans. Það var auðséð að verkstjórinn hafði ekki búizt við slíkri framtaks- semi heldur og gat þess að hann hefði misskilið beiðni ljósmjmd- arans, enda væri engum óvið- komandi veitt leyfi til að fara upp á „efri pallinn" og sízt, þegar borinn væri í gangi, eins og hann reyndar var að þessu sinni. En niður komst Ijðsmynd- arinn óskaddaður og þóttist góð- ur, enda sýna „háloftamyndim- ar“ hér á síðunni, að hann hafði fulla ástæðu til þess. Verkstjórinn sagði okkur, að þessi bor væri sá stærsti hér á landi og hefði verið borað með honum niður á 2200 metra dýpi. Ekkert væri því til fyrirstöðu að hann gæti borað dýpra, en þá yrði að nota grennri steng- ur og léttari. Krónan, sem nú er borað með, er 1714 tomma f þVermál og með þeim sverleika verður borað niður á 34 metra dýpi. Þá veröur borað með krónu, sem er 1314 tomma f Tæmar á ljósmyndaranum á „efri pallinum". Milli „talíunnar“ og táarinnar má greina borholuna langt fyrir neðan. ^ þvermál og borað áfram með henni, en hve langt fer eftir jarð lögum. Þá verður boraö með krónu, sem er 12'á tomma f þvermál, einnig niður á óá- kveðria dýpt og loks er borað með krónu, sem er 8% tomm- ur f þvermál, eins djúpt og þörf krefur. Vig borinn er unnið á tveim vöktum og vinna fjórir á vakt- inni í einu. Unnið er frá 8 á morgnana til miðnættis. Á meðan verkstjórinn var að gefa blaðamanninum þær upp- lýsingar, sem myndsjártextinn byggist á að þessu sinni, m. a., bar Þorstein Þorsteinsson jarð- fræðing að og var hann að sækja jarðvegssýnishom. — Þorsteinn sagði, að Reykjavík stæði á grá- grýti, sem væri 20 til 50 metra þykkt. Síðan kæmi leirlag, sem einnig væri mismunandi þykkt. Þegar leirlaginu sleppti væri komið niður á eldra grágrýtis- lag, en neðan við það tekur við blágrýtismyndun frá svokölluðu Tertiertfmabili. Þessar upplýs- ingar sagði Þorsteinn, að hefðu m. a. fengizt við boranir f grennd við þá borholu, sem nú er verið að bora, í Blesugróf, en það er á eftirtöldum stöðum: Blesugróf (193 m), Breiðholt (384 m), Árbæjarstíflu (274 m) og Ártúni (Rafstöð, 326 m). — Allar þessar holur eru nú nýtt- ar og er vatnið í þeim 35 til 40 stiga heitt. Maður við stjómtæki. Borholan fremst t. b.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.