Vísir - 21.12.1967, Blaðsíða 2

Vísir - 21.12.1967, Blaðsíða 2
2 VÍSIR . Fimmtudagur 21. desember 1937. Lyngbrekka — nýtt félagsheimili Litlu jólunum er nú lokið í fiestum barnaskólum og bornin komin í jólafríið. Þessa mynd tók ljós- myndari Vísis, B. G., af Litlu jólunum í Melaskólanum, en drengurinn, sem er að lesa, heitir Gunn- laugur Johnson og er í 4 D. Vígsla hins nýja félagsheimilis vestustu hreppa Mýrarsýslu, Álfta neshrepps og Hraunhrepps, fór fram hinn 5. nóvember sl. Hófst samkoman með helgistund, er þjón- andi prestar svæðisins önnuðust Fyrst var sunginn sálmurinn Vor Guð er borg á bjargi traust, en þar næst flutti sr. Árni Pálsson í Söðuls holti ritningarorð. Sr. Leó Júlíus- son, prófastur á Borg prédikaði, en á eftir var sungið ísland ögrum skorið. Að lokinni þessari helgiathöfn setti formaður undirbúningsnefnd ar Friðgeir Friðjónsson, samkom- una með stuttri ræðu, en þar næst var byggingarsaga hússins rakin og gerði það Bjarni Valtýr Guðjóns- son, Svarfhóli, sem gerði grein fyr ir áratuga löngum aðdraganda þess að hafizt var handa um byggingu samkomuhúss í byggðinni, en það mál hafi löngum verið mjög á dag- skrá meðal félagssamtaka sveitar- innar. Þá hófst nafngiftarathöfn með því, að Ingibjörg Friðgeirsdóttir húsfreyja á Hofsstöðum las frum- samið kvæði, en í lokaerindi þess kom fram nafn það er valið hafði verið á húsið — Lyngbrekka.. — Um leið og nafnið hafði verið nefnt í niöurlagslínum ljóðsins voru upp hleyptir stafir þess afhjúpaðir á baktjaldi leiksviðsins, en neðar skartaðj Hvítbláinn, fáni ung- mennahreyfingarinnar. Næst voru flutt ávörp fulltrúa þeirra samtaka, er að byggingunni hafa staðið, sem eru hreppsfélög Hraunhrepps og Álftnesinga og ungmennafélögin Bjöm Hítdæla- kappi og Egill Skallagrfmsson. Var þá lokið fyrsta þætti vfgsluhátíð- arinnar, og hófst nú kaffidrykkja. Fór nú dagskráin fram með léttum blæ, ræðuhöldum söng, lestri kvæða, afhendingu gjafa, upplestri skeyta og gamanefni o.s.frv. Að loknum veitingum hófst dans og stóð hann til kl. 1 e.m. Hafði þá þessi hátíðarsamkoma staðiö í nfu klukkutíma. Veizlustjóri var Friðgeirs Friðjónsson. Sveins- 'stööum. Um þrjú hundruð manns sóttu þessa samkomu, þar af mjög marg ir burtfluttir Mýramenn. Meðal gesta var Þorsteinn Einarsson í- þróttafulltrúi. Teikningu að húsinu gerði Gísli Halldórsson arkitekt. Yfirsmiður fyrsta árið var Eiríkur Davíðsson frá Miklaholti, en síðan Sigurgéir Ingimarsson, Borgarnesi. Bygging hússins hófst árið 1959, og hefur verið unniö við það meira og minna á hverjv ári síðan. Grunnflötur þess er 320 fermetrar. í aðalálmu er samkomu- og veitingasalur og leiksvið og kjallarar undir báðum endum álmunnar. 1 útbyggingu aðal hæðar eru, auk anddyris, miðasölu, forstofu og fatageymslu, eldhús, bókastofa og hreinlætisherbergi. Heildarkostnaður við bygginguna er nú kominn nokkuö yfir þrjár milljónir króna. Formaður fram- kvæmdanefndar er Brynjólfur Ei- ríksson, Brúarlandi. Auglýsið í Visi Jólafagnaður VERNDAR Félagasamtökin Vernd munu eins og að undanförnu hafa jóla- fagnað á aðfangadagskvöld í Góð- templarahúsinu, fyrir þá, sem hafa ekki tækifæri til að vera þetta heigasta kvöld ársins hjá vinum og .vandamönnum. Félagssamtökin njóta aö vísu nokkurs styrks frá ríki og bæjar félögum til starfssemi sinnar, sem fyrst og fremst er fangahjálp, en þessum jólafagnaði algjörlega hald ið utan við þaö. Það sem stendur undir kostnaði við þennan þátt starfsseminnar, er eingöngu hin alkunna rausn og hjálpsemi Reyk- víkinga, sem æfinlega eru viljugir að veita þörfu málefni lið. Mörgum stofnunum og einstakl- ingum eigum viö að þakka aö jhægt hefur veriö að halda uppi (þessari starfssemi, og jafnframt isenda jólagjafir til þeirra sem af 'ýmsum ástæöum eiga ekki von á þeim frá öðrum. Seinasta jólafagnað Verndar (sóttu yfir 50 manns, sem allir |fengu jólapakka. Alls hafa verið isendir út um 200 jólapakkar árlega 'síðan þessi starfsemi hófst. I Mörgum hefur gefizt vel að i „heita“ á Vemd, en allar slíkar gjafir og áheit eru notuð til mat- arkaupa, því þótt sorglegt sé frá að segja koma daglega margir á skrifstofu samtakanna á Grjóta- | götu 14, sem eru matarþurfi. Einn ; ig hefur Vernd haft forgöngu með að næturgestum í Fangageymsl- unni í Sfðumúla sé gefin heit súpa áður en þeir fara út á götuna aft- ur. j Allt þetta kostar mikið fé, og treystum við þvl eins og áður ( á hjálp og velvilja Reykvíkinga til að hægt sé að halda þessari starf- semi, svo aö enginn þurfi að sitja i einn kaldur og svangur á aðfanga ' dagskvöld. Sigr. J. Magnússon Jólanefnd Verndar skipa þessar konur: Sigr. J. Magnússon, sími 12398, Lóa Kristjánsdóttir, sími 12423, Rannveig Ingimundardóttir sími 12385, Hanna Jóhannesdóttir, sími 13677, Emilía Húnfjörð, sfmi 81833 og Unnur Sigurðardóttir, sími 17880. Skrifstofa Verndar er opin alla virka daga frá 9—12 f.h. og 4—10 eftir hádegi. NYJAR 1I0RUR FRA MARKS & SPENCER GEFJUN-IÐUNN AUSTURSTRÆTI I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.