Vísir - 27.12.1967, Qupperneq 12
Andrés Bjömsson
Tveír sóttu um
Glerhálka
starf
útvarpsstjóra
Frestur til að sækja um em-
bætti útvarpsstjóra rann út um
jólin. Tveir sóttu um, Andrés
ðjörnsson cand. mag., Iektor,
sem áður gegndi starfi tíagskrár
stjóra í mörg ár, og Rúrik Har-
aldsson, leikari.
í nótt
Glerhálka myndaðist á götum
Reykjavíkur og nágrennis upp úr
miðnætti í nótt. Lögregian aðvar-
aði ökumenn með tilkynningum í
útvarpsdagskránni, en engu að síð-
ur var kunnugt um tvö óhöpp af
völdum hálkunnar x nótt.
Á mótum Grensásvegar og Suð-
urlandsbrautar valt bíll kl. 2.47 í
nótt af völdum hálkunnar. Aðeins
þrem mínútum síðar varð annað
óhapp á mótum Bólstaðahlíðar og
Lönguhlíðar, þegar bíll rann út af
veginum i hálkunni. Engin slys
urðu á mönnum, svo að kunnugt sé.
Rúrik Haraldsson
Handbolti
í kvöld
I kvöld heldur Handknadieiks-
mót íslands í 1. deild áfram í Laug-
ardalshöllinni. Þá leika Fram og
Valur og KR—Víkingur. Fyrri leik-
urlnn hefst kl. 20.15.
>•■•••••••••••••••••••••
• •
: Hannyrða- j
dagatal
• •
• Dagatal olíufélagsins Skelj-«
?ungs fyrir árið 1968 er komiðj
Jút. Er þaö prýtt tólf litmyndum*
• af íslenzkum hannyrðum, semj
Jgeymdar eru á Þjóðminjasafn-J
• inu. •
• Sérhvert dagatal SkeljungsJ
Jundanfarin ár hefur verið byggt*
• á ákveöinni hugmynd. ÁriðJ
J1959 var dagatalið um íslenzkaj
•fugla, 1960 um þjóðlegar minj-.
• ar, 1961 um þjóðlíf á íslandi, J
J1962 um íslenzkan gróður, •
• 1963 um skógrækt, 1964 umj
Jíslenzka leiklist, 1965 um ís-»
Jlenzkar þjóðsögur, 1966 um í-J
• þróttir á íslandi og í ár voruj
Jtólf Kjarvalsmyndir á dagatal-*
• inu. *
•Á>
Gullfaxi kemst nú í flug-
skýli í heimahöfn sinni
Rétt fyrir jólin, eða nánar til
tekið á Þorláksmessu, var hægt
í fyrsta skipti að hýsa nýju þot-
una, Gullfaxa, á Reykjavíkur-
flugvelli, en þetta gerir mögu-
legt að gera skoðanir á Gull-
faxa í Reykjavík, þar sem Flug-
félagið hefur aðsetur fyrir verk-
stæði sín.
Til að þetta yrði hægt, varð að
gera miklar breytingar á flugskýli
5 á flugvellinum, eins og greint
hefúr verið frá í fréttum hér I
blaðinu og er þeim breytingum nú
Sparifötum stolið
meðan bílstjórinn
skrapp í kaffi
Ungur maður kom í gær-
kvöldi, annan í jólum, utan af
landi á bíl sfnum, lagði honum
utan fyrir hús vinar síns við
Grettisgötu og skrapp þar inn
í kaffisopa. Þegar hann kom að
bíl sínum aftur eftir svo sem
klukkutíma dvöl í húsinu hafði
rúða verið brotin og þannig kom
izt inn í bílinn. Þjófar höfðu
látið greipar sópa um eigur
bílstjóra og allan farangur hans
að heiman. Missti hann þar meö
al annars spariföt með meiru og
er tjónið talið margra þúsunda,
því að hann hafði meðferðis
ýmsa muni, sem hann var beð-
inn fyrir í bæinn fyrir hina og
aðra.
lokið, en þær voru fólgnar í að
hækka skýlið um miðjuna fremst,
því stél vélarinnar er mjö.g hátt.
Erlendis tiðkast það aö byggja
svo kallaða Texas-tuma á flugskýli
í þessu skyni, en veðurfars vegna
þótti slíkt ekki hagkvæmt. Eyvind-
ur Valdimarsson, verkfræðingur, sá
um útreikninga og teikningar að
breytingum, sem þóttu henta bet-
ur, en Brandur Tómasson, yfirflug-
virki F.f. stjórnaöi verkinu, sem
unnið var af starfsmönnum F.í.
Reisa þurfti nýjar uppistöður fyr
ir rennibraut, sem hurðir er loka i
miðskýlinu, og þar með hinni hækk j
uðu byggingu, renna á. Nýjar hurð-!
ir voru smíðaðar og vega hvor um
sig tvær og hálfa lest. Þessar breyt-
ingar á flugskýlinu, sem eru bæði I
umfangsmiklar og vandasamar,
hafa að allra dómi gengið mjög vel.
Ljóstrað upp um
mesta marihuana
stnygl sögunnar
Bandaríska tollþjónustan fann
á Þorláksmessu um 900 kg af
eiturlyfinu marihuana við
landamæri Mexíkó og Kaliforniu
þegar veriö var aö reyna að
smygla því inn í Bandaríkin frá
Mexíkó. Þetta er mesta magn
af marihuana, sem nokkru
sinni hefur fundizt í einu lagi
og er lauslega metið á 100 millj.
fsl. kr.
Kemur Konstantín
heim bráðlega?
• Hirðmarskálkur Konstantíns til Grikklands á næstunni. j
J konungs kom óvænt tll Aþenu í I gær var skýrt frá því, að •
• gærkvöldi, en hann hefur verið Anna María drottning hafi nærri J
J landflótta með konungi. Koma misst fóstur í gær, vegna þeirra •
J marskálksins, Leonidpapagos, erfiðleika, sem hún hefur átt •
• hefur valdið mönnum heilabrot- við að stríða síöan þau hjónin J
J um og spurningar eru uppi um, urðu landflótta fyrir tæpum •
• hvort Konstantín muni koma hálfum mánuði.
• :
• MMHllMIIHIVbMtfMMMMMMMMMMtietMO.
' ’*■-* * "* • * * « V * tt * 'V
r > v v v » x x V > \ \ '< V V
d»S«mbi>r
VI S T R
Miðvikudagur 27. des. 1967.
Bjartsýni íbúa S-Vietnam er bezti vitnis-
burður um árangur styrjaldarinnar'
segir Westmoreland, sem spáir />ví að styrjöldin
verði með liku sniði næsta ár
£ Bardagar hófust af
fullum krafti í Viet-
nam í gær, eftir vopna-
hléð, sem var gert um
jólin. Stjómarher S-Viet
nam felldi 145 manns úr
her N-Vietnam í harð-
asta bardaganum eftir^
að vopnahléð rann út.J"
Bardaginn varð 680 km.
norðaustur af Saigon.
Vopnahléð var vel haldið af
báðum aðilum og var ekki rof-
ið nema í nokkrum tilvikum.
Þá var skipzt á nokkrum skot-
um, en aldrei kom til alvarlegra
átaka. Grunur leikur á, að her-
ir Norður-Víetnam hafi notað
vopnahléð til birgðaflutninga
suður á bóginn, en í gær urðu
flugsveitir Bandaríkjahers var-
ar við mikla birgðaflutningalest
og tókst að eyðileggja um 100
bifreiðir.
Westmoreland, yfirmaður her
afla í S.-Víetnam, sagöi á blaða-
mannafundi, sem haldinn var i
nótt, að stjórn S.-Víetnam muni
styrkja hersveitir sínar í S.-
Víetnam. Hann spáöi því, að
styrjöldin myndi veröa með líku
sniði og á yfirstandandi ári.
Óvinurinn muni halda áfram
skæruhernaði og ógnaraðgerð-
um gegn ibúum S.-Víetnam, en
herir Bandaríkjanna og S.-Ví-
etnam munu halda áfram að
valda þeim eins miklu tjóni og
kostur er á.
Westmoreland hélt því fram
á blaöamannafundinum, aö mik-
ið hefði áunnizt á yfirstandandi
ári. Öruggasta merkiö um þetta
er sú bjartsýni, sem hvarvetna
ríkir nú í S.-Víetnam, sagði hers
höfðinginn. — Hvar, sem ég
kem nú finn ég þetta, sagöi
Westmoreland, og að þessu leyti
er útlitið betra en fyrir ári.