Vísir - 06.02.1968, Blaðsíða 1
^^WSAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA^íVWSAAAAAAAAAA^AAAAAAAAAAAAAA/
Vilhjálmur Þór til Malajsíu:
KANNAR LÁNSFJÁRÞÖRF
! TIL LANDBÚNAÐAR ÞAR
1 Vilhjálmur Þór, sem undanfar trúa Noröurlandanna i Alþjóöa nú veriö beöinn aö fara á vegum
' in 3 ár hefur gegnt stööu full bankanum i Washington hefur Framhald á bls. 10.
Óttazt að
sex íslenzkir sjómenn hafi farizt
— Ekkert spurzt til Heiðrúnar II. síðan í ffyrrinótt
□ Víðtæk leit var gerð að vélbátnum Heiðrúnu II frá
Bolungavík í gær, en óttazt er að skipið hafi farizt í fyrrinótt,
þegar brezku togaramir tveir fórust. Á skipinu voru 6 menn,
þegar það fór úr höfn á Bolungavík á sunnudagsmorgun.
Aðeins einn þeirra mun hafa verið í venjulegri áhöfn bátsins.
Hinir fóru um borð til að forða bátnum frá skemmdum með
því að sigla til ísafjarðar. Nú er óttazt um afdrif þessara
manna og að þeir hafi farizt til viðbótar við þá 20 brezku
sjómenn, sem fórust í ísafjarðardjúpinu í fyrrinótt. Alls hafi
því farizt 26 íslenzkir og brezkir sjómenn í fyrrinótt í ísa-
fjarðardjúpi.
Mikil leit verður gerð að
Heiðrúnu II í dag, en um 15
bátar munu taka þátt í leitinni.
Veröa minni bátamir, sérstak-
lega rækjubátarnir látnir þræöa
alla firöi. Auk þess munu björg
unarsveitir Slysavamafélag-
anna og fleiri ganga allar þær
fjörur, sem hægt veröur aö
koma við.
í morgun sást gúmmibjörgun
arbátur á reki, gulur og svart
ur á lit, rétt við Vigur. Hann
haföi ekki verið athugaður i
morgun og þvi óvíst úr hvaða
skipi hann er. Ekki var taliö
útilokað að hann væri úr Heið-
rúnu II, því að flest brezku skip-
in hafa sína gúmmíbjörgunar-
báta rauðleita.
Þegar óveörið var að skella á
viö ísafjarðardjúp snemma á
sunnudagsmorgninum, var á-
kveðið aö sigla skipum, sem
voru höfn til ísafjarðar, til
þess að þau gætu legið af sér
óveðriö þar. Heiörún II fór sein
ust bátanna, þegar henni var
ekki lengur vært viö brimbrjót-
inn í Bolungavík. Áhöfn báts-
ins var ekki í Bolungavík og
varð því aö fá aðra til aö
manna bátinn.
Ekki var hægt að fá uppgefið
hverjir hefðu fariö um borð. en
þó var vitaö til þess að þrír
feðgar, faöir og tveir synir, fóru
um borð, en talið er sennilegt
að auk þeirra hafi veriö tveir
unglingspiltar og einn maöur af
venjulegri áhöfn bátsins.
Heiðrún II fór um kl. 10 á
sunnudagsmorgun frá Bolunga-
vík. Þegar báturinn var kom-
inn langleiðina til ísafjaröar var
orðið ljóst að ekki var hægt að
sigla inn vegna veðursins og var
þaö ákveö5" aö skipið legöist
við bauju og Iægi þar óveðrið af
sér. — Skipverjar áttu í nokkr
um erfiðleikum vegna ísingar,
og radar skipsins og dýptarmæl
ir voru í ólagi. ísing settist á
loftní'' talstöðvarinnar og gekk
því sl. overjum illa að hafa sam
band viö land og við aöra báta.
Ekki ba neitt sérstakt til
tiðinda um borð í Heiðrúnu á
sunnudaginn, nema hvað skip-
verjar áttu í erfiðleikum með
siglingatæki skipsins. Varðskip
iö Óðinn hugaði aö bátnum
milli þess sem það hugaði að
brezka togaranum Notts County
sem var strandaður á Snæfjalla
strönd.
Síðast var Óöinn við Heið-
rúnu II á 12. tímanum á sunnu
dagskvöldiö, en þá var bátur
inn rúma mílu frá Bjamamúp.
Óðinn hélt þá undir Grænu-
hlíð til að ná isingu af ratsjá
og fleiri siglingatækjum skips-
ins enda virtist Heiörún þá ekki
í neinni yfirvofandi hættu.
Þegar Óðinn kom aftur aö
Bjarnarnúp fann hann Heiðrúnu
ekki aftur, en síöast mun hafa
heyrzt í bátnum um kl. eitt að-
faranótt mánudagsins. Þá
sögðu skipverjar aö loftnetiö
væri að siitna niöur og væri
hæpið að þeir gætu látiö heyra
frá sér aftur.
í morgun var ætlunin að
Björn Pálsson flygi noröur ef
flugveður yröi eftir því sem liði
á daginn, en kóf var til fjalla í
morgun og ekki flugveöur.
Kortið sýnir hvar síðast var vitað um Heiðrúnu II við Bjarnamúp.
Einnig er sýnt hvar Notts County strandaði og Ross Cleveland fórst.
FÍmm skipbrotsma nnannailla halinir
— 20 brezkir sjómenn fórust á einni nóttu i Isafjarðardjúpi
— Sá látni i strandaða togaranum var 21 árs að aldri
Varðskipsmenn á Óöni björguðu
í gær 18 skipverjar af brezka tog-
aranum, Notts County, sem strand
aði við Snæfiallaströnd sl. sunnu-
dagskvöld. Einn skipverjanna, 21
árs piltur hafði veriö látinn í um |
það bil 6 klst. þegar tókst aö ]
bjarga áhöfninni og var lík hans ;
skilið eftir í togaranum. Hann ]
mun hafa rotazt og látizt úr vos-!
búð. — Þegar mönnunum var bjarg j
að voru fimm hætt komnir og voru !
þeir fluttir á sjúkrahús, þegar Óö-1
inn kom með skipsbrotsmennina
til Isafjarðar í gær um kl. 3. Þeir,
sem voru verst leiknir, höföu allir
haldið sig mikið uppi viö. Þetta
voru skipsstjóri, stýrimaöur, vél-
stjóri og tveir hásetar. — Skipstjór
inn var mjög illá á sig kominn and
lega og líkamlega, begar komið
var me'ð hann til ísafjarðar og var
óttazt um hann í fyrstu. Hann mun
hafa fengið alvarlegt taugaáfall,
sem gerði björgunina erfiöari.
Eftir hádegi í gær, þegar veðrið
fór að ganga niður, fóru 1. og 2.
stýrimaður af Óðni, þeir Sigurjón
Hannesson og Pálmi Hlöðversson
á vélknúnum gúmmíbát frá Óðni
að brezka togaranum. Þeir höfðu
annan óútblásinn gúmmí-
bát með sér, sem þeir blésu út við
strandaöa togarann og tókst að
bjarga mönnunum 18 í einni ferð.
Ekki var talið ráðlegt að reyna
að ná líki unga mannsins í þessari
ferð. enda mátti ekkert út af bera
Var ætlunin að reyna að ná því í
dag.
Að því er fréttamaður Vísis á
Isafirði, Bjarni Sigtryggsson sagði
í viðtali við Vísi í morgun, virtust
skipbrotsmennirnir óðum vera að
ná sér í morgun fyrir utan þá
fimm sem voru fluttir á sjúkrahús.
Ætlunin er að flytja einn tii við-
bótar á sjúkrahús, þar sem hann
var meira ka.inn en álitið var í
fyrstu.
Samkvæmt skipun sjúkrahúss-
læknisins fengu fréttamenn ekki
leyifi til að tala við skipbrotsmenn
i ina í morgun, en ætlunin var að
I senda þá til Reykjavíkur í dag, ef
] flugveður veröur.
■ Eins og skýrt var frá í Vísi í gær
| fórst togarinn, Ross Cleveland meö
! allri áhöfn um kl. 10.40 á sunnu-
j dagskvöld. Eitt lík hefur fundizt
rekið, en ekki hefur fengizt uppgef
I ið af hverjum það er. Vonlítið er
talið að nokkur hafi komizt lffs af,
en með þessum togara, hafa þrír
togarar frá Hull farizt með stuttu
millibili. Meö þeim hafa farizt alls
60 sjómenn frá Hull síðan 13. jan-
úar sl. Geysileg reiði og sorg ríkir
í Hull vegna þessara skipsskaða og
er í undirbúningi mótmælaganga
til London. Þessi slys komu til
umræðu í neðri deild brezka þings
ins í gær ,en miklar umræður hafa
orðið um öryggisútbúnað togar-
anna í Bretlandi að undanförnu.
Tugir brezkra fréttamanna kom
til íslands í gær til að fylgjast
nánar með þessum fréttum, enda
er sjálfsagt ekki um annað meira
talað í Bretlandi þessa dagana.
Baunsgaard boðar
lækkun til land-
varna um allt að
150 millj. d. kr.
Fólksþingið í Danmörku kom
saman til fundar í dag.
Þegar blaðið fór í pressuna voru
að berast fyrstu fregnir af stefnu
ræöu Baunsgaards. Hann boðaði
meðal annars samkomulagsumleit
anir, sem miða að því að lækka út
gjöldin til landvarna um 125—150
milljónir.
Samræming á kaupgjaldi, kaup-
hækkanir og stytting vinnutíma
gæti Ieitt til þess að kaupgjald yrði
13% hærra I lok ársins en nú.
Húsfreyjan tók á móti barnimi
— þegar sjúkrabillinn frá Húsavik tafðist
vegna ófærðar og óveðurs
□
Sjúkrabifreið Rauða kross-
deildarinnar á Húsavík var
kölluð út i fyrrinótt á bæ einn í
Kinnarsveit, en þar var barns-
hafandi kona sem komast þurfti
þá þegar undir læknishendur.
Mikil ófærð var á vegum og
veðurhamurinn ógurlegur, eins
og fram hefur komið í fréttum.
Var þetta um kl. 5.30 um morg-
uninn og lagði bíll'nn þegar af i
stnð út í sortann.
Gekk ferðin afar hægt eins og
vænta mátti, en umtalað var að
stór trukkur mundi koma til móts |
viö sjúk.abílir.n með konuna. Tók,
ferðin aö Ófeigsstööum, sem er
fyrsti bærinn í Kinn um 3 tíma, en
það er aðeins 25 km leið frá Húsa-1
vík. Viö bæinn Rangá, sem er ný-1
býli frá Ófeigsstöðum mættust bíl-!
arnir.
Var konan þá byrjuö að fá fæð-
ingarhríðarnar. Var þá augljóst að
ekki varð lengra haldið. Sóttu
sjúkraliðarnir hurö inn í bæinn og
svefnpoka og komu konunni þar
fyrir, þar eö sjúkrabörur voru
ekki fyrir hendi. og báru hana þann
ig inn í bæinn. Þar tók húsmóðir-
in á Rangá. Sigrún Jónsdóttir á
mót.i barninu en læknar á Húsa-
vík voru í stööugu sambandi við
bæinn. Strax um morguninn kom
Liknirinn til að lita eftir kon-
unni.
Til marks um veðurofsann á
Húsavík má og geta þess, aö annar
sjúkrahússlæknir var á leið til
vinnu um morguninn í veðurofsan
um. en villtist og fór framhjá
sjúkrahúsinu, sem er þó engin smá
bygg.. Sá hann ekki handaskil
fyrir kófinu og þakkaði sínum sæla
þegar hann loks rakst á mannabú-
stað.