Vísir - 06.02.1968, Page 4
☆
☆
Hin 24 ára gamla dóttir Charlie
Chaplin, ungfrú Geraldine Ohapl-
in, hefur unniö sér töluverðar
vinsældir sem leikkona í Bret-
landi. Nú hefur hún í hvggju að
spreyta sig í Frakklandi og sjá
til, hvort hennar velgengni veröi
jafnmikil þar.
Einhvern tíma síðar á þessu
ári er ráðgert, að hafnar verði
sýningar á gamanleiknum „Það
er stúlka í súpunni minni“, í Par-
ís, en gamanleikur þessi náði
feikiaðsókn og vinsældum, þegar
hann var sýndur í London fyrir
tveimur árum. Frakkar hafa fært
leikinn í franskan búning. Sagan
fjallar um enskan sælkera og
rómantísk vandamál hans.
Mikið um dýrðir hjá dönsku konungs-
„Ég hætti aldrei til sjós, því ég
get ekki fjarri honum lifað“,
sagði skipstjóri rússneska skips-
ins Okhotsk, þegar það kom að
brvggju í Vladivostok að lokinni
hnattsiglingu. Þetta kom fáum
á óvart, sem eitthvað þekktu til
„kallsins", sem hafði farið til
sjós 45 árum áður sem „messa-
gutti“, og unnið sig alla leið upp í
brúna. Öðrum lét þétta einkenni
lega í eyrum, því skipstjórinn var
hin sextuga kona, Anna Schehet
Sér grefur gröf, þótt öðrum
grafi — segir gamla máltækið,
enda sannaðist það áþreifanlega
á Julio Vidal, sem var á fugla-
skyttiríi nærri Tarassa á Spáni
um daginn. Hann klifraði upp í
tré og faldi sig f laufþykkninu
Upphóf hann síðan af mikilli list
fuglakvak til þess að hæna í skot
færi einhverja veiðibráð,
Hann má búast við 3 mánaða
legu á sjúkrahúsi vegna sára
sinna, sem hann hlaut, þegar ann
ar veiðimaður, sem hafði verið
á sömu slóðum, villtist á Vidal
og hinum fuglunum.
Það var gestkvæmt hjá dönsku
konungsfjölskyldunni nú um
helgina, en á laugardag voru þau
gefin sama í hjónaband Bene-
dikta prinsessa og þýzki prins
inn hennar, Richard og því mikið
um dýröir og dýrar veizlur.
Meðal annarra gesta voru 4
kóngar, 3 drottningar og 40 prins
ar og prinsessur. Anna-María
Grikklandsdrottning, systir Bene-
diktu var þarna löngu komin og
maður hennar Konstantin kom
einnig til þess að verða viðstadd
ur brúökaup mágkonu sinnar.
Veizlur voru haldnar í Krón-
borgarkastalanum og í hölíinni
við Löngulínu, en um kvöldið var
efnt til dansleiks í Amelíukast-
ala. Reyndar hafði seinni hluti
vikunnar allur fariö í veizlur og
veizluundirbúning hjá bræðrum,
systrum og foreldrum brúðhjón-
anna. Sunnudagurinn var svo
notaður til frekari veizluhalda og
til þess að sýna gestum gjafirn-
ar.
Þriðja prinsessan gefin þýzkum prins;
Anna-María drottning gat ekki leynt gleði sinni, þegar hún tók t
% móti manni sínum á flugvellinum, en hann kom beint frá Róm. Þau áttu virkilega annríkt á laugardaginn. Á faraldsfæti úr einni
Hún hafði farið á undan honum með börnin. Þeir, sem nærstaddir veizlunni til annarrar, en þessi mynd er tekin áður en þau
voru, sáu, að hún felldi tár um leið og hún flaug um háls honum. íklæddust brúðarskartinu, eða réttara sagt hún.
Aðsent bréf
„Hrein torg — fögur borg“,
stendur á ruslakössum, sem
hanga á staurum allvíða við að-
algötur Reykjavíkur-borgar.
Þessar upphrópanir er sizt ekki
að lasta,
Gangi maður um aðalgötur
borgarinnar með vel opin augu
sér maður víða bréfadrasl,
flöskur, dósir og annan
óþverra á víð og dreif
um götur og gangstéttlr. Þá
er heldur sóðalegt, þó ekki sé
meira sagt, að slá konur rétt
um lokunartíma sölubúða og
skrifstofa, koma hlaupandi úr
verzlununum með skolpfötu og
gusa úr henni á gangstéttina
rétt við fætur manns. Fyrir fáum
kvöldum var ég á leið niður
Bankastræti. Kom þá eldri kona
frá einni verzluninni þar og gus
aði skolpinu rétt fyrir framan
míg og fram á götuna. Mér varð
að orði: „Ekki er þetta nú þrifa-
legt.“ Auðvitað anzaði konan
engu, enda hefur henni kannski
fundizt, að mér kæmi þetta
ekki við.
Eitt sinn er ég var á gangi
um lokunartíma í Lækiargötu,
þá kom bráðmyndarleg stúlka
hlaupandi með skolpfötu rétt
fyrir framan mig, og henni lá
svo mikið á að losa sig við fjár
ans svínaríið, að hún byrjaði að
hella úr fötunni á leiö vfir
gangstéttina. Allir, sem gengið
hafa um Hverfisgötuna um það
leyti sem mjólkurbúðir Ioka, sjá
hvað konumar gera við óþverr-
ann að afloknum gólfbvotti á
mjólkurbúðinni. Ég bjó einu
sinni þama í grenndinni, og sá
oft fossandi froðuskolps-kúfinn
renna niður gangstéttina fyrir
framan við húsin. Em ekki skolp
leiösiur í þessum húsum? Er
ekkert heilbrigðis- og þrifnaðar-
eftirlit til í þessari annars fögru
borg? Ég hefi einu sinni áður
skrifað um þetta skólp-óþverra-
mál, en ekki hefur bólað á því,
að reynt sé að stemma stigu
vig þessum ósóma... það
var fyrir all löngu mikið skrif-
að um óþrifnað i snyrtiherbergj
um í veitingahúsum úti á lands
byggðinni, og hefur sjálfsagt
ekki verið vanþörf á að vanda
um við þá báu herra, sem þar
ráöa ríkjum. Mér fyndist reynd-
ar ekki vanbörf á, að einhver
heiibrigðis eða þrifnaðarfulltrúi
líti á kvöldin inn á snyrtiher-
bergi sumra matsölustaðanna i
mið-borginni. Ekki yrði ég undr
andi, þó honum litist illa á á-
standið í þrifnaðarmálunum,
að minnsta kosti sums staðar.“
Ég þakka bréfið.
Atvinnuleysi?
Það eru hörmulegar fréttirn-
ar, sem berast um að svo og
svo margir hafi skráð sig at-
vinnulausa, og hefur sú tala
óðum verið að hækka undan-
fama daga. Það er því undra-
vert að heyra yfirlýsingu full-
trúa Landssambands íslenzkra
útgerðarmanna, að atvinnuleysi
hjá sjómönnum eigi ekki við
rök að styðjasf, því að haft hafi
verið samband við alla þá 51
sjómann, sem hafi skráð sig at
vinnulausa, og þéim boðin at-
vinna til sjós, en svo hafi brugð
ið við, að aðeins einn af þess-
um mönnum hafi verið tilbúinn
að þiggja starfið til sjós. Þarna
virðast blekkingar hafðar i
frammi gagnvart almenningi,
sem ekki standast. Ef fulltrúi
L.Í.Ú. segir satt í viðtali því
sem dagblaðið hefur viö hann,
þá er atvinnuleysisskráningin ó-
raunveruleg og hrein endaleysa,
sem ekkert mark er takandi á.
Þá er spurningin sú, hvort ekki
sé eitthvað ábótavant við starf
semi slíkra atvinnuleysis-skrán
ingarskrifstofa, og hvort ekki
þurfi að breyta um vinnubrögð
við siíka skráningu, ef atvinnu
leysisstyrkir eru greiddir þess-
um mönum, sem svo ekki þiggja
skiprúm, begar þeim er boðin
vinna, eins og fulltrúi L. í. Ú.
upplýsir að hafi verið gert
en fréttir herma nefnilega, að
þegar hafi verið greiddar
kr. 280.000 í atvinnuleysisstyrki
til ýmissa stétta. Þarf ekki að
endurskoða þessa starfsemi?
Þrándur í Götu.
Gðút
i