Vísir


Vísir - 06.02.1968, Qupperneq 12

Vísir - 06.02.1968, Qupperneq 12
VIS IR . Þriðjudagur 6. febrúar 1968. ~ÉDGAR RlCE BURROUGHS I CAW'T MEAR ABOVE TME FALLS. 6ÉTTH — BUT THEÝ PDN'T SEEM TD BE LAVING OUT THg WELCONt . MAT.'... - —^ IF YOU'RE WILLING TD TKY, WE COULD CHAtiCE THE CAVE FROM WHICH THE < MDNSTER CAME.V WE CAN'T GOUP... LOOK./... OH, TAR2AN, HOW PO WE GET OUT - OF TWS PLACE?' J SPAOm TÍÍM ÞVOIÐ OG BÖNIÐ -BILINN YÐAR SJALPIR. 'BUIUSIGJUI HAUOARÁRSTlG 31 SlMl' j KVIKKWDASAGA EFTIR A-B- SOTHRIE 3r- „Ég get skilið ótta þinn við að ' verða þunguð. En þaö getur ekki verið óttinn við það eingöngu .. „Nei“, svaraði hún hikandi. „Þarna hlýtur líka eins konar þrákelkni að koma til. Að vilja ekki láta undan fýsn sinni...“ „Nei, það er ekki það“. „Hefurðu þá ekki neina hugmynd um hvað það er?“ „Nei. Einungis aö það er einhver þröskuldur í vegi. Að ég finn að mér er það ógerlegt". „Alltaf?" „Kannski ekki alltaf...“ „Finnurðu aldrei til ástríðu?" Hann fann að líkami hennar varð stjarfur í rekkjunni, að spurningin hafði hneykslað hana. Hann var að því kominn að taka sér í munn gömlu ásakanimar, en stilltj sig, minnstist þess hvað orðið hafði til þess að hann f elldi Indiánann forð- um, og stillti sig. Minntist þess að hann var ekki þess megnugur að breyta þessari annarlegu afstöðu konu sinnar til kynferöismála. Sú af staöa var engu að síður kvalræði fyrir hann. „Við skulum biða“, sagði hann. „Kannski getur þetta lagazt....“ og hann sneri sér frá henni í rekkjunni. „Ég vildi óska að ég gæti látið að vilja þínum Curt...“ „Ég hef fariö skakkt að“, sagði hann og visssi samstundis að þaö var satt. „Ég hef orðið þess valdur að það er orðin þér áráttuhugsun að ég krefjist þessa af þér. Ef ég byrja aftur á upphafinu, gæti þetta | breytzt". „Hvernig þá, Curt?“ „Ef til vill tækist mér að láta I þig finna að ég þarfnast þín. Ekki eingöngu líkamlega, ekki heldur ein göngu andlega, heldur'hvorttveggja. Og ég mundi ekki krefjast neins. Ég mundi einungis reyna að gera bér skiljanlega þörf .rnína, aö þú gætir hjálpað mér, og ég gæti ekki að því gert að ég þarfnast hjálpar þinnar. Þaö er þetta að minnsta kosti, sem ég á við. Góða nótt, Amandart.' Hún lá grafkyrr langa hríð, en þá vafði hún hann örmum, hikaridi og næstum feimnislega, og bað hann að snúa sér áð sér. Svo heimskur hafði hann þó ekki vérið að telja sér trú um, að þar með væri öllum erfiðl. í sámbúð þeirra Iokiö. Til þess var inngróin afstaða þeirra hvors-um sig allt of ólík. En þetta var skref í rétta átt og þó meira en skref. Þau voru far in að reyna að laga sig hvort eftir öðru, taka tillit hvort til annars. Og hann fann það nú, að hann unnit konu' sinrii heilshugar. Og svo þúrfti þetta áð koma fyrir. Þannig var það alltaf í þessum heimi. Þaö sariireemdist ekki því' skipulagi, sem réði lífi og örlögum, að hamingjan væri varanlég. Hann sneri aftur heim á leið. Of löng fjarvera gat krafizt skýr- inga, aldrei að vita nema Amanda vekti eftir honum. Hann vissi aö það var dulinn ótti, sem réði til- finningum hans, þó ekki óttinn við hneisuna, hann gaf fjandann í þess háttar. Ekki óttinn við Amöndu ekki beinlínis hana sjálfa, heldur við að missa hana. Og þó óttaðist hann ekki að hún yfirgæfi hann, heldur að hún hætti að unna honum og það var jafnvel sárara en að missa hana. Hann hafði ekki vitað það fyrr en nú að undanförnu hvað hún var honum mikils virði. Og svo varö hann sér þess allt i einu meövitandi, þar sem hann gekk þungum skrefum heim á leið í tunglskininu, að allar áhyggjur hans snerust eingöngu um sjálfan hann. Ekki Mercy. Hún var bam að aldri, þunguð og einmana og hann haföi einungis áhyggjur af 'því, hvaða afleiðingar það kynni aö hafa fyrir hann. Þannig var mannskepn- an gerð — stöðugt sjálfri sér næst — hann líka, en óhugnanleg stað- reynd var það> ,engu að síður. Og iðrunin, bænirriásr um fyrirgefningu — hvað var það tannað en umhyggja fyrir sjálfum sé;r? Mundi hann iðr- ast breytni sinmar, ef ekki væri fyrir afleiðingatinar? Hann reyndi iaS svara spprning- unni hreinskilnisilega, en gat ekki svaraö henni. Og hann hugsaði sem svo, að hann mundi einskis iörast, ef Mercy hefði ekki haft neitt mein af kynnum þeirra, annað en það, að hún glataði mssydómi sínum, ef unnt var að kalla- það mein, ef hún hefði ekki orðið Iþunguð, ætti ekki í vændum neina* fyrirlitningu eöa smán, ekki nesnar sorgir. Hann hefði þá ekki einu.sinni iðrazt þess að hafa verið kontu sinni ótrúr, því að þar hafði hannt gilda afsökun. Einungis þetta — var guð til eöa ekki? Hafði maðurinn skyldur að rækja gagnvart meðbræðrum sínum og systrum? Hann sá stúlkuna enn fyrir hugskobssjónum sínum granna og veikbyggða en þö hug- rakka og vondjarfa, þar sem hún stóð á rústum tíffishamingju sinnar Og vissi hverju hann mundi svara. „Guð minn góðor", tautaði hann og herti gönguna, eims og hann gerði sér vonir um að ■ geta flúið sfnar eigin hugsanir. „Ég var nærri sofnuð", sagði Am- anda, þegar hann <kom inn í tjald- ið. „Veðrið er svo dááiamlegt", sagöi hann og tók af sér Iskóna. Það var ekki heldnr nema eftir öðru, hugsaði hann,, að hún skyldi bíða hans einm.itt íí-.nótt, Sá sem réði örlögum manna. 'hlaut aö brösa í kampinn þegar honum var litið niður á tjaldbúðirnar. Hann lá andvaka lengi eftir að Amanda var sofnuð, -hlustaði á nið árinnar og spangól villihundanna. Hann spurði sjálfan sigjhvort Mercy McBee, fimmtán eða sextán ára stúlkan, mundi lika liggja andvaka. Hvort índiáninn mundi vera glaður og ánægður á reiki urn hinar himn esku veiöilendur andains mikla. Éitt var hann ekki i ivafa um. Alla ævi rnundi hann lítaíá sjálfan sig sem sekan mann. Tuttúgasti og þriðji kafli. „Þig fáið aö vita Iwað það er“, sagði hinn aldni f jallagarpur að Hall virki. Greenwood hét hann, Caleb Greenwood, og Evans fannst hann ekki ólíkur mosavöxnum stein- drangi, þar sem hann sat flötum beinum á jörðinni, stórskorinn og sviphrjúfur. „Þið fáið að vita hvað það ér.-Hef ég ekki Iög að mæla, höfuðsmaður?" Þeir voru staddir þarna i virkis- garðinum átta eða tíu leiðangurs- menn, úti fyrir skrifstofu Grants höfuðsmanns. Sátu þar allir flötum beinum í forsælunni, nema Grant höfuðsmaður, hann var sá eini sem stóð og frá sjónarmiði hinna, sem sátu, virtist hann jafnvel enn stærri og föngulegri en hann í rauninni var. Hann var brezkur frá hvirfli tíl ilja. „Hudsonflóa-félagið hefur aldrei reynt að senda vagnalest þá leið,“ sagði hann og strauk grátt yfirvaraskeggið. „Hvers vegna ekki?“ spurði Gro- ham. Grant höfuösmaöur yppti öxlum, á þann hátt að það skildist betur en orð. Evans gat ekki fyllilega gert sér ljóst hvort honum féll ekki maður- inn fyrst og fremst fyrir þaö, að hann var brezkur. Hann hafði tekið leiðangursmönnum vel, mun bet- ur en búast mátti við af brezkum embættismanni. Þeir höfðu fengið keypt það, sem þá vanhagaði um, og þðtt öruggt mætti telja, að höf- uðsmaðurinn heföi ekki beinlínis skaðazt á þeim viöskiptum, varð hann ekki sakaður um að selja við hærra verði en sanngjamt gat kall- azt. En hvað sem því leið, þá var hann fyrst og fremst brezkur em- bættismaður og hafði því ekki neina ástæðu til að vera því hlynntur að bandarískir þegnar fæm til land- náms í Orégon og settust þar að. Því bar aö taka því með nokkurri varúð, sem hann sagði um Ieiðina framundan, til Oregon. Einhverjir ykkar komast eflaust alla leið“ sagði Greenwood gamli „Kannski með vágnana, kannski ekki. En þéjm verður hhð áreiðan- lega minnisstætt ferðalag, þið meg- ið bera mig fyrir því.“ RYBVðSN á BIFREIÐINA Þér veljið efníii, vönduð vinna. Gufuþvottur á nwtor kostar kr. 250.00 Gufuþvottut, alboicnþvottur.undirvagn kr. 600.00 Ryðvörn undirvagn og botn. Dinetrol kr. 900.00 Ryðvöm undirvagn og botn, Tectyl kr. 900.00 Ryðvöm undirvagn og botn Encis fluid kr. 600.00 Ryðvöm undirvagn og botn Olíukvoðun kr. 450.00 Alryðvöm, TectyÍKUtan og innan kr 3500.00 Ryðvamarstöð'nr Spitalastig 6 FUÖT OG GÖÐ MÖNUSTA. ÓDÝR OC GÓÐ ÞJÓNUSTA ÞVOTTAÞJÖNIJSTA BIFREIÐAEIGENDA I REYKJAVÍK SÍMI; 56529 „Hvernig getum við komizt héðan, Tarzan?“ - „Við getum það ekki, líttu upp á brúnina.“ „Ég heyri að vísu ekki til þeirra í gegn um fossniðinn, en ég hef grun um að þeir séu nú ekki að fagna okkur, Beth.“ „Ef þú ert tilbúin að reyna, þá getum við ieitað inn í hellinn, þaðan sem ófreskj ar»;kom.“ - „Ég fylgi þér hvert sem er, Tffirzan.“ txB4 Eldhúsið, sem allar húsmœður dreymir um Hagkvœmni, stítfegurð og viinduð vinna á öllu -ipiiirrrx AÍJó ■*» ItAUQAVEQI 133 «In]I117B5 0

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.