Vísir - 01.03.1968, Side 5
VlSIR . Föstudagur 1. marz 1968.
5
Bretland er ekki lengur heims veldi
Tjegar fjármálaráðherra Breta,
Mr Jenkins lagði skömmu
eftir áramótin fram fjárlaga-
frumvarp þessa árs, flutti hann
ræðu í Neðri málstofu brezka
þingsins sem siður er. Þar dró
hann í einni setningu saman
meginstefnu stjórnarinnar. Hann
sagði: „Bretland verður að
viðurkenna, að þaö er ekkert
heimsveldi lengur.“
Að vísu hefur lengi mátt sjá,
að hverju hefur dregið. Það er
orðinn mikill munur á frá því
menn sungu „Britannia rules the
waves“, þegar riststórir brezkir
bryndrekar ösluðu um öll heims-
ins höf, þegar það var haft að
orðtaki, að sólin skini allan
sólarhringinn yfir einhverjum
hlutum heimsveldis Viktoríu
drottningar, þegar hershöföinkj-
amir Gordon og Kitchener fóru
í sögufræga leiðangra sína til
að leggja undir sig fjarlæg lönd
og bæla niður óþæga frumstæða
þjóðflokka í öðmm álfum. Ekk-
ert veldi var þá til öflugra í ver-
öldinni en hið brezka heims-
veldi.
Nú er það ekki lengur til. Ný-
lendumar hafa fengið sjálfstæði,
Indland heyrir ekki einu sinni
lengur undir þjóðhöfðingjatákn
Elisabetar drottningar og strax
upp úr lokum síðustu heims-
styrjaldar gerðu Bretar sér það
ljóst, að þeir höfðu ekki einu
sinni efni á að viðhalda sínum
mikla omstuskipaflota. Þeir
urðu fyrst og fremst að gera sér
grein fyrir, að þeir höfðu ekki
lengur efni á að þykjast vera
stórveldi. Þeir voru þess á eng
an hátt umkomnir að standa
gegn kröfum nýlenduþjóðanna
um sjálfstæði. Nýlendustyrjaldir
gátu farið með fjárhag lands-
ins. Svo þeir létu sér nægja eitt
tiltölulega ódýrt þorskastríð viö
íslendinga og töpuðu því meira
að segja. Á fáeinum stööum
kom það þó fyrir, að þeir streitt
ust á móti, svo sem í Keníu, þar
sem þeir háðu nýlenduhernað
gegn skæruliðum Mau-mau-
manna, en þeir gáfust brátt upp
á því. Bráðlega veru þeir fljótir
að leggja á flótta, hvar sem
bryddaði á sprengitilræðum, svo
sem á Kýpur og nú síðast i
Aden.
jDáðir þessir nefndu staðir vom
mikilvægar brezkar bæki-
stöðvar og höfðu þeir þegar kost
að miklu fjármagni til að styrkja
þær sem bezt. En svo komust
þeir að því , að þeir höfðu ekki
lengur efni á því, enda voru
heimsveldishugmyndirnar byrj-
aðar að verða þokukenndar. Hví
áttu brezkir hermenn að láta
lífið fyrir óðum skæruliðum á
þesum slóðum. Hvað kom það
Bretum við, hvað yrði um íbúa
þessara fjarlægu héraða. Með
sama ■ hætti yfirgáfu Bretar
Súez-skurðinn, eftir að fáeinar
plat-sprengjur höfðu sprungið
viö bækistöðvar þeirra í sand-
inum. Þá sárnaði aö vísu mörg-
um heima í Bretlandi, menn
gátu' vart skilið þetta furöulega
ástand, að hið gamla volduga
Bretland réði ekki lengur yfir,
né gæti verndað hina gömlu líf
æð heimsveldisins. Sú tregða á
að skilja breyttan heim olli því
að þeir lögðu skömmu síðar út
í Súez-ævintýrið, en þar kom
á daginn, að þeir voru linir og
veikir á svellinu. Nú var ekki
lengur hægt að finna neinn Kitc-
hener-lávarð í liði þeirra á Níl-
ar-slóðum, en skyldi sá aldni
heiðursmaður ekki hafa snúið
sér við í votri gröf sinni norður
af Orkneyjum ef hann hefði
heyrt fréttirnar af því, er brezki
herinn varð að sneuta öfugur
á brott frá Alexandríu.
TTrun hins brezka heimsveldis
hefur einkennzt af áhuga-
leysi. Það hefur stöðugt sönglað
í mönnum á undanhaldinu:
„Hvað kemur okkur þetta viö?“
— Hvað skiptir það Breta máli
þó að Arabar suður f Aden
haldi áfram að drepa hvern ann
an, hvað varðar þá um innan-
landsstyrjöld í Nigeríu. Og nú
er svo komið, að þeir hafa
sleppt öllum nýlendum sínum,
nema einna helzt að telja má,
Rhódesíu, vegna þess eins að
þeir geta ekki losað sig við
hana á sæmilegan formlegan
hátt, en í reyndinni hafa þeir þó
ekkert að segja af Rhódesíu
lengur, þar sem hinir hvítu
svertingjakúgarar landsins hafa
gert uppreisn og ráða að sjálf-
sögðu töglum og högldum þar.
Hin nýsjálfstæðu svertingja-
lönd hafa verið að reyna að
þvinga Breta til að beita vopna
valdi til að skipa málum rétti-
lega niður þar, en hví skyldu
Bretar fara að berjast við hvíta
menn í Rhódesíu, þegar þeir
hafa ekki einu sinni haft áhuga
á að berjast við svertingjana,
þegar þeir voru að gera upp-
steit í löndum þeirra. Þannig
komast svertingjaþjóöimar líka
óþyrmilega að því, aö upplausn
brezka heimsveldisins þýðir að
viss stjórnar og skipulagskraft-
ur yfir álfunni er ekki lengur
til. Það er ekki lengur hlutverk
Breta, að fá Rhódesíu-menn til
að makka rétt, þeim kemur ekki
lengur við, hvað gerist í svörtu
álfunni. Nú hafa svertingjamir
fengið völdin og áhrifin og það
verður þá líka þeirra eigiö hlut
verk, að skipa málum sinnar
eigin álfu niður. Sama gildir
borgarastyrjöldin í Nigeríu, sem
kostar íbúa þessa fjölmennasta
ríkis í Afríku svo miklar þjáning
ar og vandræði, að nú geta þeir
ekki lengur leitaö til brezka
heimsveldisins til að stilla til
friðar. Þeir verða að gera út um
sín mál sjálfir. Og enn má hið
sama segja um viðhorfin til S-
Afríku. Svertingjaríkin hafa ver-
ið að reyna að fá Breta til aö
þvinga S-Afríku til að hegða
sér skikkanlega og orðið nokkuð
ágengt, þar sem Bretar hafa
beitt sér fyrir margs konar þving
unaraðgerðum. Slíkt mun þó
ekki vara lengi, því að smám-
saman hættir Bretum að koma
það mál við, það er deiluefni,
sem Suöur Afríkanar og svert-
ingjaríkin veröa að gera út um
sín í milli. Og þó að viö hljótum
að líta það hornauga, hvernig
Suður Afríkumenn verða til að
fyrir allt einhverju hlutverki að
gegna í fjarlægum álfum. Þeir
hafa reynt að spara, en þó í
lengstu lög leitazt við aö halda
í nokkurs konar beinagrind
heimsvarnarkerfis. Þeir hjálp-
uðu íbúum Malakka-skagans
nokkru eftir stríðslok til að verj
ast ágangi kommúnískra skæru-
liða og síðan hafa þeir viðhald-
ið flota og herbækistöð í Singa-
pore. Fram á síðasta ár varð-
Wilson íorsætisráðherra. Stjórn hans sker niður kostnað til
landvama.
spilla sambúð hvíta og svarta
kynstofnsins, þá hljóta Evrópu
menn, er tíminn líður aö taka
upp hlutleysi í þeim erjum, því
að þar er nú orðið um að ræða
innanálfumál, sem kemur Norð-
urálfunni lítt viö, nema gegn-
um minningar löngu liðinna ný
lenduára.
veittu þeir herbækistöð í Aden
og sama er aö segja um fáein-
ar aðrar bækistöövar svo sem
á Malabar eyjum í Indlandshafi
og viö Persaflóann og enn er
hið sama aö segja um eyjuna
Möltu og Gíbraltar-höföa. Er
það sameiginlegt flestum þess
um síðustu bækistöðvum Breta
að þeir hafa meðal annars haldið
þeim uppi vegna beiðni inn-
fæddra, sem höfðu atvinnu og
tekjur af þjónustu viö bæki-
stöövarnar.
Tjannig hefur allt stefnt aö
" því, að Bretar drægi sig í
hlé, flytji leifar herliðs síns á
brott frá hinum ólíkustu heims-
hlutum. Þeir hafa engan áhuga
lengur á aö drottna yfir heimin-
um, ekki einu sinni að gegna
hlutverki heimslögreglu. Áhugi
þeirra beinist nú fremur að bítla
tónlist, sem þeir hafa meiri
tekjur af en nýlendum. Og þó
lifir enn í glæðum gamalla minn
inga. Enn eru á lífi margir menn
sem muna gömlu stórveldis-
tímana og af þeirra brá
hefur margt tárið hruniö, þegar,
limir gamla heimsveldisins voru
að detta hver á fætur öðrum.
í millibilsástandi hafa Bretar
ímyndað sér, aö þeir hefðu þrátt
17n nú í ársbyrjun gerðist þaö
sem sagt, að Bretar köst-
uðu fyrir róða sínum siöustu
hugmyndum eða ímyndun um aö
þeir væru heimsveldi. Þeir hafa
nú ákveðið að hætta öllum af-
skiptum af landvarnamálum
austan Súez-skurðar. Héðan í
frá munu þeir ekkert skipta
sér af málefnum Suður Asíu-
landa. Þeir hafa ákveöið að
flytja allt herlið sitt frá Singa-
pore og Malakka-skaga fyrir ár-
ið 1971. Virðist sem þeir kysu
helzt að hverfa í brott þegar í
stað, en að það sé fyrir beiðni
innfæddra austur þar, sem þeir
ætla þó aö draga brottflutning-
inn á langinn í þrjú ár. Á þeim
slóðum hafa Bretar nú um 50
þúsund manna lið. Eina bæki-
stöðin austur þar, sem þeir
munu halda áfram er Hong
Kong, þar sem þeir hafa 6 þús.
manna lið, mestmegnis ind-
verska mák.liöa. Virðast Bretar
enn hafa áhuga á að halda Hong
Kong vegna hinnar hagstæöu
verzlunar við kommúníska Kína.
En Kínverjar munu hafa enn
meiri hagnaö af þeim viðskipt-
um og því kæra þeir sig ekkert
um að Bretar flytjist á brott,
þótt Rauðir varöliöar hafi nokk
uð látið á sér kræla í götuóeirð
um þar.
Enn meiri athygli hefur það
vakið, að Bretar hafa einnig á-
kveðið að flytja brott allt lið
sitt frá olíulindasvæðinu viö
Persaflóa. Þar hafa þ<;ir 10. þús.
manna lið á eyjunni Bahrain og
hefur verið litiö svo á, að það
verndaöi olíuhagsmuni þeirra,
. en sannleikurinn er sá, að það
hefur aðallega gegnt því hlut-
verki aö vemda afturhaldssama
og eyðslusama arabíska sheika,
sem halda klónum um olíuauð-
inn og líta þeir á þau auðæfi
sem einkaeign sína í staö þess
að nota hann til að bæta kjör
fólksins, auka menntun og koma
fólkinu á hærra menningar- og
framfarastig. Þaö má því búast
við aö brottflutningi Breta það
an fylgi óróa og hernaðarástand,
þegar þessir miðaldafurstar falla
frá völdum. En ekki er álitið aö
olíuhagsmunum Evrópu sé stofn
að í neinn beinan voða, þar
sem Arabaþjóðirnar hafa eins
mikla þörf fyrir að selja olíuna
eins og Evrópumenn að kaupa
hana og er þess að vænta að
hvað sem á gengur, þá muni
verða reynt að láta olíuna
streyma áfram sína réttu leið
til neytendanna.
Tjessar skyndilegu ákvarðanir
Breta komu Bandaríkjam.
nokkuð á óvart og hafa heyrzt
raddir um það að Bretar væru
að svíkja þá og hlaupast undan
merkjum, þegar þeir eiga
einmitt í erfiðleikum í Vietnam
styrjöldinni. Er talað um það
að við brottflutning Breta muni
myndast tómarúm á Indlands-
hafi, sem hætt sé við að Rússar
muni notfæra sér og er þá m.a.
bent á aukin afskipti þeirra á
Miðjarðarhafi og í Arabalönd-
um.
Bandaríkjamenn líta það al-
varlegum augum að Bretar hætti
stuöningi við þá í að standa
gegn útþenslu og ásælni komm
únismans í Asíu. Þó er það
ekki eins alvarlegt og ætla
mætti, því að þetta mun jafnast
upp með tilfærslu liöanna. í stað
þess að Bretar séu aö skipta sér
af málefnum Asfu eru þeir að
beina sjónum sínum að megin-
landi Evrópu. Þróunin er sú, að
þeir séu aö hætta að vera heims-
veldi en stefna nú sem ákafast
aö því að verða evrópskt veldi.
Þeir sækja það nú fast og ákveð
ið að komast inn í Efnahags-
bandalag Evrópu og um leið og
þeir flytja lið sitt brott af fjar
lægum slóðum munu þeir í stað
inn snúa sér í auknum mæli að
þátttöku í vörnum Evrópu. Það
mun aftur leiða til þess, að'
Bandaríkjamenn þurfa ekki að
leggja eins mikið fram til evr-
ópskra landvarna. Þetta liggur
mikið á bak við breytingarnar,
aö Evrópa er að verða sjálfstæð
ari og safna kröftum sínum sam
an í samkeppni við hin tvö risa
stóru heimsveldi. Það er þróun
in áfram, hvort sem hún telst
hagkvæm eöa ekki.
Þorsteinn Thorarensen.