Vísir - 29.05.1968, Blaðsíða 3
V í SIR . Mlðvikudagur 29. maí 1968.
3
Hvernig gengur þeim í H-umferð?
UMFERÐ um land allt gekk
með miklum ágætum á H-
dag og lítið var um slys eða
önnur óhöpp. Er ástæða til
að fagna því, enda sýnir það
að við íslendingar getum gert
vel, ef viljinn er fyrir hendi.
Við snerum okkur í gærdag
til fjögurra manna sem mikið
hafa unnið að H-breytingunni,
og voru þeir léttir i lundu og
með bros á vör.
SIGURJÓN SIGURÐSSON,
lögreglustjóri.
Hvernig hefur þér persónu-
ili
lega gengið í umferðinni?
Alveg ágætlega. Ég hef farið
mjög gætilega og ætla að gera
það áfram.
Eru íslendingar tillitssamir
ökumenn?
Já, það qr engum vafa undir-
orpiö að þeir eru í vaxandi mæli
tillitssamir og þá sérstaklega
síðustu mánuðina.
Hvernig finnst þér breytingin
hafa gengið?
Mjög vel og framar öllum
vonum. Allt verið slysalaust og
ánægjulegt i alla staði.
Sigurjón Sigurðsson, lögreglustjóri. „Ég hef farið mjög gætilega í
umferðinni.“
Steinn Lárusson, fulltrúi Framkvæmdanefndar H-umferöar. „Allir
verða að gæta sín á hraðatakmörkunum.“
SVERRIR GUÐMUNDSSON,
aðstoðaryfirlögregluþjónn.
Álítur þú þig vera orðinn
góðan H-ökumann?
Já, ég verð að segja það. Ég
hef hugsað að undanförnu að-
eins til hægri og hugleitt breyt-
inguna það mikið að annað væri
einkennilegt.
Hvað telur þú að fólk eigi að
varast sérstaklega, eftir að það
hefur kynnzt breytingunni að
einhverju leyti?
Mér finnst það höfuðatriðið,
að þeir sem hafa ekið lengi í
sama umhverfi eiga það á hættu
að gleyma sér frekar en þeir
sem ókunnugir eru. Einnig má
fólk, sem býr í fáförnum göt-
um gæta sín ef það er þungt
hugsi. Gott ráð get ég gefið
þeim. Festið vasaklút I stýrið
í hvert skipti sem þið yfirgefið
bilinn.
Ertu ánægður með breyting-
una?
Já, svo sannarlega. Sérstak-
lega með það hve fólk hefur
tekið þessu vel og verið sam-
taka um að gera sitt bezta.
Er eitthvað hæft í því að
lögreglan noti bónuskerfi við
þá lögreglumenn sem stöðva
flesta ökumenn?
Nei, nei, það er algjör fjar-
stæða. Lögreglan er aðeins að
reyna að fyrirbyggja slysin og
framfylgja settum reglum.
PÉTUR sveinbjarnarson;
forstöðumaöur upplýsinga-
deiidar lögreglunnar.
Ertu ekki orðinn fyrirmyndar
ökumaður i hægri umferð?
Nei, ekki getur það talizt. —
Annars ætti ég að vera orðinn
góður ökumaður, starfs míns
vegna og getað lært af óförum
annarra.
Hvað finnst þér skemmtileg-
ast við hægri breytinguna?
Skemmtilegast er, hve allt
hefur gengið vel, en því miður
veit maður ekki við hverju má
búast. Við höfum verið að hugsa
um það hjá upplýsingadeild-
inni í gamni að láta gera eina
tilkynningu fyrir allt landið í
sambandi við umferðina þar
sem allt gengur að óskum og
allar fréttir utan af landi eru
samhljóðandi. Einnig má benda
'á, að nú sjá alíir ökumenn um-
hverfið í nýju ljósi eða sjá
hluti sem þeir hafa aldrei séð
áður.
STEINN lárusson,
fulltrúi Framkvæmdanefndar
H-umferðar.
Telur þú þig vera betri öku-
mann en aðra, þar sem þú hefur
starfað svo mikið að breyting-
unni sem raun ber vitni?
Nei, alls ekki. Ég er aðeins
orðinn ruglaðri ,því að breyt-
ingin hefur velzt svo lengi f
huga mínum.
Hvað ertu hræddastur við í
sambandi við breytinguna?
Að hver og einn gæti sín ekki
á þeim hraðatakmörkunum sem
nú gilda. Einnig • hefur þetta
gengið það vel að við höfum
ekki leyfi til að álykta of
snemma, að við séum svo þjálf
aðir í H-umferð að frekari að-
gæzlu sé ekki þörf.
Nú telja ýmsir að fremur lítið
hafi verið auglýst að varúðin sé
nú til hægri?
Með flóknara umferöarkerfi og
fleiri umferðarmerkjum, þá
minnkar gildi reglunnar, varúð
til hægri, og því álít ég að ekki
eigi að auglýsa hana meira en
nauðsyn krefur.
?
1 ^3
Sverrir Guðmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn. Festið vasaklút í
stýrið.
Pétur Sveinbjarnarson, forstööumaður uppiýsingadeildar lögreglunn-
ar. „Ökumenn sjá nú umhverl’ið í nýju ljósi.“
QGREIDDIR l
REIKNINGAR *
LATIÐ OKXUR INNHEIMTA...
Þaó sparar ybur t'ima og óþægindi
INNHEIMTUSKRIFSTOFAN
Tjarnargötu 10 — 111 hæd — Vonarstrætismegin — S'imi 13175 (3linur)