Vísir - 12.06.1968, Blaðsíða 3
3
VISIR . Miðvikudagur 12. júní 1968.
Þessar ungu dömur heita Pála, Erla, starfsstúlka Loftleiða í Kaupmannahöfn, Guðrún,
blaðakona Tímans og dönsk stúlka, sem var ferðafólkinu til leiðbeiningar.
Með Loftleiðum á „veizlufarrými
Nú finnst mörgum flugtíminn
Staldrað yfir „en öl“. Flugfreyjan Dóra og Pála, eiginkona
Kristjáns Ijósmyndara í félagsskap Sigurðar Magnússonar,
blaðafulltrúa, Agnars Bogasonar, ritstjóra Mánudagsblaðsins,
Freysteins Jóhannessonar, blaðamanns á Morgunblaðinu og
Kristjáns Magnússonar Ijósmyndara.
orðinn of stuttur
Flugleiðin Kaupmannahöfn —
Keflavík er oröin næsta vinsæl.
Farþegi sem ætlar á milli þess-
ara tveggja staða á kost á a.
m. k. 12 flugferðum hjá 4 flug-
félögum. Hann getur valið milli
þess að fl.iúga með Rolls-Royce-
flugvél Loftleiöa, eða DC-8 þotu
PanAm eða SAS, — eða þá að
fara með Gullfaxa Flugfélags
íslands, sem er eins og allir vita
Boeing 727 þota. Sætin í þessum
flugvélum eru alls 1419 talsins,
en að vísu eru þau ekki öll ætl-
uð þessari flugleið, því Loft-
leiðir og PanAm fljúga hér í
gegn til Ameríku.
Loftleiðir hafa nýlega byrjað
að auglýsa nýja þjónustu, fyrsta
farrýmisþjónustu á ferðanianna-
farrými, nokkurs konar „kampa
vínsklassa“ eöa veizlufarrými.
Blaðamenn fóru utan um helg-
ina í boði félagsins til að kynn-
ast af eigin raun hvernig þjón-
ustunni um borð er háttaö.
Greinilegt er að Loftleiðir
hafa hér lagt mikið í að stór-
auka alla þjónustu við farþeg-
ana, og er þetta ekki sízt mik-
ils virði fyrir þá sem koma frá
Ameríku, — og auðvitað sak-
ar ekki að fá glas af kampavíni
á leið frá Keflavík til Norður-
landanna, ásamt ljúffengum rétt
um matseðilsins, eins og t. d.
reyktum Iaxi, tournedos o. s.
frv. en drykkir ai ir eru á kostn-
aö Loftleiða.
Mörgum finnst raunar að ferð
með flugvél sé farin að taka
fullstuttan tíma. Frá Keflavík til
Kaupmannahafnar tekur vart
lengri tíma en 2—3 stundir að
fljúga, — en tíminn líður fljótar
um borö í flugvélunum núna en
áður, og vitaskuld er það þjón-
ustan um borð sem gerir líka
sitt að verkum, en ekki einungis
hinir kraftmiklu hreyflar vélar-
innar.
MYNDSJÁIN í dag er frá
Kaupmannahöfn þar sem blaða-
menn eru á ferð í boði Loft-
leiða, — og stóra myndin er
tekin í 30.000 feta hæð um
borð x einum Loftleiða-víkingn-
um.
Sigurlaug Guðbjörnsdóttir, flugfreyja, — hún ber fram kræsingarnar handa farþegunum.
Sjónvarpstökumaðurinn kom auga á eitthvað forvitnilegt.
Hann heitir Þórarinn Guðnason. Blaðamennirnir tveir eru
Freysteinn Jóhannesson og Guðgeir Magnússon.
Farþegar koma frá borði í Oslo.
'QGREIDDIR
REIKNINGAR
........ I—É—M' I
LÁTIÐ OKKUR INNHEIMTA...
Það sparar yður tima og óþægindi
INNHEIMTUSKRÍFSTOFAN j
Tjarnargötu 10 — lllhæð—Vonarstrætismegin — Simi 13175 (3linur)