Vísir - 30.07.1968, Side 2

Vísir - 30.07.1968, Side 2
2 VIS IR . Þriðjudagur 30. júlí 1968. onn Fram — on IBK 2:1 (1:1) y/S/SSS///////.yT nil 18 • :• — / ágætum leik i gærkvöldi — Bæbi liðin sýndu jákvæða knattspyrnu Sigur Fram yfir Keflavík á Laugardalsvellinum í gær verður að teljast sanngjam eftir gangi leiksins. Kefl- víkingar áttu að vísu frumkvæðið í fyrri hálfleik, og þá nokkur sæmileg marktækifæri, en tækifæri Fram í síðari hálfleik umfram þessi voru fleiri og opnari. Annars var leikurinn fremur skemmtilegur, og bauð oft upp á skemmtiiega leikkafla hjá báðum liðum. Undir lokin sóttu Keflvíkingar mjög stíft, og lá nærri, að þeim tækist að jafna, en þá sem oftar sýndi Þoif bergur Atiason, markvörður Fram snilli sína og bjarg- aði meistaralega á elleftu stundu. Strax í byrjun leiksins sýndi þaö sig, að bæöi liöin voru ákveöin í að bverfa af leikvelli meö bæöi stigin. Virtist svo sem Keflvíkingar væru nokkru ákveðnari og léku þeir á köflum ágætlega, miklu betur en staða þeirra í mótinu gefur til kynna. Jón Jóhannsson var mjög góður, fljótur og harður, og hleypti miklu fjöri i framlínu Keflavíkur- liðsins og gerði um leiö usla 1 Fram- vöminni. Þó sköpuðust ekki veruleg tæki- færi viö mörk liðanna, en eins og fyrr segir áttu Keflvíkingar frum- bvæðið, Á 31. mínútu skora Keflvíkingar mark og ná forystunni. Hornspyrna var tekin frá hægri, knötturlnn rann milli manna inn í markteig, en ekki tókst aö koma fæti á knött- inn, unz Jón Ölafur, h.-útherji náði Staðan í 1. deild í knattspyrnu eftir leikinn í gær: ÍBA 1 FRAM I KR VALUR ' ÍBV 1ÍBK Markahæstu menn: Kári Árnason Helgi Númason Hermann Gunnarsson Reynir Jónsson -iafur Lárusson Eyleifur Hafsteinsson Gunnar Felixson Sigmar Pálsson Ásgeir Elíasson Hallgrímur Júlíusson Þóróifur Beck Valsteinn Jónsson Eftirtaldir leikmenn hafa skorað eitt mark hver: Guðm. I Þórarinsson, IBV, Jóhann Reyn- isson, KR, Elmar Geirsson, Fram, Ellert Schram, KR, Er- lendur Magnússon, Fram, Einar I Ámason, Fram, Hörður Mark- | an, KR, Magnús Jónatansson, , ÍBA, Ágúst Guðmundsson, Fram, Etnar Gunnarsson, ÍBK, Hólm- I bert Friðjónsson, ÍBK, Jón Ól- I afur Jónsson, ÍBK, og Þormóð- , ur Einarsson, ÍBA. Næsti leikur í 1. deild mun 1 vera 6. ágúst, en þá leika í I Reykjavík KR og ÍBV. honum utarlega v.-megin, skaut þaðan rakleitt föstu skoti i slá og inn, úti við stöng. Aðeins þremur mínútum síðar jafna Fræ.iarar i.r vítaspyrnu, sem aö margra dómi átti ekki rétt á sér. Karl Hcrmannsson, útherji Keflavíkuriiðsins var á leiö með knöttinn út úr vítateig, er hann hrökk, algjörlega óviijandi í hendi hans, og Magnús Pétursson dæmdi umsvifalaust vítaspyrnu. Helgi Númason skoraði úr henni, en þó ekki fyrr en Skúli Sigurðsson, á- gætur markvörður ÍBK, hafði hálf- varið. Framan af síðari hálfleik sóttu liðin nokkuð jafnt en smám saman náðu Framarar undirtökunum og söknarlotur þeirra urðu þyngri og þyngri, markið lá f loftinu. Það kom þó ekki er allir bjuggust við því, svo sem er Framleikmenn stóöu a.m.k. tvisvar einir fyrir hálfopnu marki, heldur upp úr hornspyrnu á 32. mínútu. Var þar Helgi Númason aö verki, úr þvögu. Áður hafði Siguröur Friðriksson skotið yfir af góðu færi, og dóm- arinn allt að því jleppt auðsjáan- legu víti á Keflavík, er Sigurður Albertsson hrinti Einari Árnasyni gróflega innan vítateigs. Það brot var fært út fyrir vítateig. Eftir markið sóttu Keflvíkingar öiiu meira, en Fram ' ti þó sínar sóknarlotur, en án árangurs hjá báðum liðum. Bæöi liðin sýndu ailgóðan leik í Skúli Sigurðsson, ÍBK, ver vítaspyrnu Helga Númasonar. Skúli hélt ekki knettinum, svo að Helga tókst að skora, er hann fékk knöttinn aftur. þetta sinn. Hjá Fram var Sigurður Friðriksson, miðvöröur mjög góð- ur, og átti nú sinn bezta leik. Þá var Ólafur Ólafsson, bakvörður og mjög góður, svo og Þorbergur í markinu. 1 framlínunni voru einna beztir þeir Helgi Númason og Elmar. í Keflavíkurliðinu var Skúli í markinu ágætur, og verður varla sakaður um mörkin. Jón Jóhanns- son var og góður, sem og Guðni Kjartansson. af. ATHUGASEMD Baldur Þórðarson, dómari, hefur beðið íþróttasíðuna aö birta eftirfarandi frá sér vegna fréttar á síðunni í gær frá frétta- ritara Vísis á Akureyri, um leikinn þar á móti Val: Enginn fótur er fvrir efni þessarar klausu, ég átti ekkert samtal við fréttamenn eða neinn annan eftir leikinn. Svo að þessi tilfærðu ummæli eru tilhæfulaus með öllu. íþróttahreyfingarinnar vegna væri ákjósanlegt, að höfundur umræddrar greinar gæfi upp nafn sitt, ef slíkt mætti verða til þess, að svona óvandaöir io. síöu. Helgi Númason skorar sigurmark Fram í síðari hálfleik upp úr hornspyrnu. Erlentlur írúttir Nú er aðeins tæpur hálfur mán- uður þar til enska knattspyrnan hefst aftur að fullum krafti. Liðin eru byrjuð að æfa og mikið er um sölu og kaup á enska markaðnum. Birmingham City hefur boðið Tott- enham álitlega fjárhæö og að auki Barry Bridges fyrir Jimmy Greaves, en Billy Nicholson, frkvstj. Totten- ham hefur neitað. Aftur á móti er taiiö, að Tottenham hafi áhuga á Kevin Hector, miðherja Derby, en þá neitar Derby. Nicholson hefur nú skipað Alan Mullary fyrirliða Tottenham-liösins, en liðið seldi fyrir nokkru fyrirliða sinn, Dave Mackay til Derby. Jimmy Greaves. >f Matti Yrjöla setti á sunnudag nýtt finnskt met í kúluvarpi, 18.84 m. Var kastseria Finnans mjög jöfn. Á sama móti jafnaði Jaakko Huominen i þriðja sinn finnska metið í 400 m grindahlaupi, hljóp á 50,4 sek. Ed Hanks, USA, vann á sama móti hástökk, stökk 2,08 m, en Finninn Tapola stökk sömu hæð og varð annar. * Norðmenn unnu Dani f iands- keppni kvenna í frjálsum íþróttum um síðustu helgi. Lokatölur urðu 61 — 56. Berit Berthelsen stökk 6,41 m í langstökki, Nina Hansen, D. vann 80 m grindahlaup á 11,1 sek. og Alice Wiese, Danmörku, vann hástökk með 1,64 metra stökki. >f Á alþjóðlegu frjálsíþróttamóti í St. Michel vann finnski stangar- stökkvarinn Alarotu Bandaríkja- manninn Bob Seagren í stangar- stökki nokkuð óvænt. Finninn stökk 5,26 m sem er nýtt finnskt met. Seagren stökk aftur á móti 5,1 m, sem er nokkuð frá hans bezta árangri.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.