Vísir - 30.07.1968, Síða 7

Vísir - 30.07.1968, Síða 7
V í S IR . Þriðjudagur 30. júlí 1968. 7 útlönd í inorgun dtlönd í raorgun dtlönd Á öðrum stað á þessari síðu er sagt frá því hvernig fór á fundi Humphreys varaforseta hjá blökkufólkinu í Los Angeies. Andstæðingar hans hleyptu app fundinum. En það eru ýmsir meðal blökkumanna, sem berjast- dyggilega með Kumphrey, og hér er einn sem tal- inn er meðal duglegri iiðsmanna hans — engii.n annar en Joe Louis fyrrverandi heims- meistari í hnefaleik. Myndin er tekin í veizlu í frægasta gistihúsi New York, The Waldorf Astoria við Fimmta breiðstræti, en veizlan var haldin í fjáröflunarskyni. Og Joe fór með Humphrey í Harlem-hverfið og „hjálpaði Humphrey“, eins og það var orðað, til að „vi'sja leikgötu fyrir böm“. Áminning til bifreiðaeigenda Frá og með 1. ágúst n. k. eiga allar bifreiðir að hafa aðalljcs stillt fyrir Hægri-umferð. Ef aðalskoðun bifreiðar hefur þá eigi farið fram, skulu bifreiðaeigendur eigi að síður láta stilla ljós bifreiða sinna og festa ljósastilling- arvottorð við skrásetningarskírteinið unz skoðun fer fram. Bifreiðaeftirlit Ríkisins Slysavarnafélag íslands. -- Leiðtogafundinum þar haldið áfram Heræfingamar í Sovétríkjunum í vestustu héruðum þeirra allt frá Eystrasalti til Ukrainu, m. a. við landamæri Tékkóslóvakíu, verða nú látnar ná til enn stærra svæðis, eða héraða í Póllandi og Austur- Þýzkalandi, og taka póiskar og austur-þýzkar hersveitir þátt í þeim. Um þetta varð kunnugt í morg- un af nýrri sovézkri tilkynningu en í gær og gærkvöldi fréttist, að um 3000 manna sovézkt lið sem var ófarið frá Tékkóslóvakíu eftir æf- ingarnar fyrir nokkru, væri að flytja sig frá miðhéruðum lands- ins í áttina til Slóvakíu. í Austur- Þýzkalandi fréttist um hemaðar- í írak er allt sagt færast í eðlilegt horf í írak er allt sem óðast að fær- ast í eðlilegt horf, að því er fréttir þaðan í gær hermdu. Eftirlit meö blöðum hefir verið afnumið, en í fyrra var lagt bann við útkomu blaöa, nema fimm, sem vom „þjóðnýtt" og komu þau út undir eftirliti upplýsingaráðuneyt- is stjórnarinnar. Flest þeirra 16 blaða sem áður komu út munu nú fara að koma út aftur. Ekki er kunnugt hvort erlendum fréttastofum verður aftur leyft að starfa í Bagdad. flutninga suður á bóginn. Viðræðunum milli tékkneskra og sovézkra leiðtoga i smábæ í Austur- Slóvakíu skammt frá sovézku landa mærunum er ekki lokið. í fréttum Afstaða páfastóls til getnaðarvarna veldur deilum Ákvöröun páfa um að breyta ekki afstöðu rómverskkakólsku kirkjunnar að því er varðar fæð- ingatakmarkanir, veldur miklum deilum. Er meöal annars bent á þaö aö ákvörðunin sé ekki í samræmi við álit meiri hluta nefndar þeirrar sem fjallaöi um máliö. í Frakklandi og víðar veldur það deilum, að ekki var tekin upp frjálslegri afstaöa, þar sem og annað væri tilgangs- laust, en á Spáni og írlandi hefir ákvörðuninni verið tekið vel af kirkjunnar mönnum, og f Kanada. frá Prag segir, aö þeim veröi hald- ið áfram í dag, og tilkynning vænt- anleg síödegis, í kvöld eða jafnvel ekki fyrr en í fyrramálið. Birt var fáorð tilkynning í gær- kvöldi þess efnis, að á fundinum í gær, sem stóð langt fram á kvöld, hafi veriö skipzt á skoðunum og rædd mismunandi sjónarmið, og vakti það athygli, að ekki var sagt, að ræðzt hafi verið við- í anda sátt- fýsi og vináttu, eins og venja er í tilkynningum um ráöstefnur, en þes er þó að geta, aö í fréttum frá Prag í gær kom fram hjá frétta- ritara brezka útvarpsins, að svo virtist sem samkomulagsvilji væri fyrir hendi hjá fulltrúum Sovétríkj Flutningar nauð- synja til Biafra stöðvaðir Engin skilyröi jbar til lendingar Alþjóða rauði krossinn tilkynnti í gær í Genf, að ekki væri hægt að koma birgðum loftleiðis frá eynni Ferando Po til Biafra vegna lendingarörðugleika þar — eina leið in virðist að samkomulag næðist um flutningaleið á landi frá Nig- eríu. Af hálfu sambandsstjórnar Niger íu hefir U Thant framkvæmda- stjóra Sameinuðu þjóðanna verið tjáö, að fulltrúi hans sé velkom- inn til Lagos til þess, að ræða flutningavandamálið. • Sovézk blöð héldu í gær á- fram taugastríðinu gegn Tékkósló- vakíu og minntu á hve landið og þjóðin ætti Sovétríkjunum mikiö að þakka. • Pravda hélt því fram í gær, að þaö væri ekki mál Tékkósló- vakíu einnar þegar socialismanum væri ógnað, — þá krefjist nauð- syn þess, að eining ríki milli allra >róðurlandanna“. • Arabalöndin hafa beðið Sam- einuöu þjóðirnar að láta rannsaka hvort rétt sé, að ísraelsstjórn hafi áform á prjónunum um að flytja 50.000 palestínskra flóttamenn frá Gaza-spildunni til austurbakka Jórdan. • Sovézkur visindamaöur hefir i ,eð tilraunum framleitt tvær nýjar tegundir vetrarhveitis, og er upp- skerumagn á „mál“ (maal), segir í NTB-frétt, 760 kg., en mesta upp- skerumagn við tilraunir í Noregi meö vetrarhveiti er 500 og 600 kg. á mál. Vísindamaöurinn, sem er víðkunnur fyrir fyrri tilraunir. heitir Pavel Lukjanemko. O Um helgina lenti saman stjórnarflokkum og stjórnarand- stæðingum á tveimur stöðum í Suður-Yemen-Iýðveldinu, og til- kynnti stjórn landsins, sem verið hefur viö völd í 8 mánuöi, að til- raun hefði veriö gerö til uppreistar meö tilstuðningi saudi-arabiskra og bandarískra olíufélaga. Kvaö hún og tvenn samtök stjómarand- stæðinga vera flækta í þetta og kallaði meölimi þeirra gagnbylting- armenn og kjötkatlamenn. — Yfirhershöföingi landsins hefir heitið Mohammed al-Shaabi ríkis- forseta fullum stuðningi. • Hubert Humphrey varaforseti Bandaríkjanna kom til Los Angeles á laugardag til þess að sitja fund með blökkum kjósendum, en þótt leiðtogar þeirra tækju honum vel, hrópuðu aðrir hann niður, og köll- uðu meöal annars: Honky, farðu heim (honky = hvítur). • í fyrrinótt skiptust jórdansk- ir hermenn og ísraelskir á skotum í hátt upp í klukkustund í hæðun- um fyrir noröan Jeríkó. — Einnig urðu átök í Jórdandalnum. I • 1 kynþáttaóeirða kom um | helgina í Gary Indiana, Bandaríkj- unum, og Grand Rapids Michigan. Ruözt var inn I búðir, rænt og ruplað, en lögreglan kom á reglu. Alls munu nærri 100 manns hafa verið handteknir í báðum borgun- um. Rússar stækka heræfingasvæðið s HERFLUTNINGAR í ÁTTINA AÐ LANDAMÆRUM SLÓVAKÍU

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.