Vísir - 30.07.1968, Síða 8

Vísir - 30.07.1968, Síða 8
8 V í S I R . Þriðjudagur 30. júlí 1968. íasxá VISIR Otgefandi. Reykjaprent ö.í. Framkvæmdastjóri Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingastjóri: Bergþór Úlfarsson Auglýsingar: Aðalstræti 8. Símar 15610 11660 og 15099 Afgreiösla: Aðalstræti 8. Sími 11660 Ritstjóm: Iiugavegi 178. Sími 11660 (5 línur) Áskriftargjald kr. 115.00 á mánuöi innanlands 1 lausasöl j kr. 7.00 eintakið Prentsmiðja Vfsis — Edda h.f Að snúa bökum saman J Tímanum h. 25. þ. m. var birt viðtal við Erlend Ein- arsson, forstjóra SÍS, um efnahagsörðugleikana, sem nú steðja að flestum greinum atvinnulífsins. Telur forstjórinn að rekstrargrundvöllur sé almennt mjög veikur og hvað verstur í frystiiðnaðinum. Um það fórust honum orð á þessa leið: — Frystiiðnaður og sjávarútvegurinn í heild á við mjög mikla erfiðleika að etja. Ástæðurnar eru fyrst og fremst þær, að það hefur orðið mikið verðfall á okkar sjávarafurðum. Nú nýlega hefur orðið allmikið verðfall á frystum sjávarafurðum. Og auk þess er mjög mikið framboð á þessari vöru. Það mun vera ein aðalástæðan fyrir verðfallinu. Á hinn bóginn hefur þróunin hjá okkur verið mjög óhagstæð undanfarin ár. Dýrtíð hefur verið mikil í landinu og allur tilkostn- aður hækkað gífurlega. Þetta gekk um tíma, þegar útflutningsverðin voru mjög hagstæð, en þegar þau lækka, þá sitjum við uppi með framleiðslukostnað, sem er ekki í neinu hlutialli við söluverð afurð- anna. — Þessi orð forstjórans eru ekki að öllu leyti í sam- ræmi við það sem Tíminn og sumir helztu forustu- menn Framsóknarflokksins hafa haldið fram til skamms tíma. Er vafasamt að Tíminn hefði birt þetta viðtal fyrir svo sem ári, þegar forkólfar Framsóknar- flokksins máttu ekki heyra á það minnzt, að afla- brestur og verðfall hefði nokkur teljandi áhrif á af- komu atvinnuveganna, heldur væru allir erfiðleikarn- ir stjórnarstefnunni að kenna. En svo virðist að jafn- vel forustumenn Framsóknar sjái sér ekki lengur fært að berja höfðinu við steininn og neita staðreyndum. Það mundi líka trúlega láta undarlega í eyrum bænda. ef einhver ætlaði t. d. að fara að telja þeim trú um, að kalið hefði engin áhrif á afkomu þeirra, eða þyrfti aldrei að háfa, ef önnur ríkisstjóm færi með völd í landinu. Og líklega mundu fæstir þeirra trúa því að jarðskemmdirnar væru ríkisstjóminni að kenna. Allir réttsýnir menn hljóta að viðurkenna að ó- venjulega miklir og margþættir örðugleikar hafi steðj- að að íslenzku efnahagslífi síðustu 1—2 árin. Er mjög vafasamt að margar aðrar þjóðir hafi orðið fyrir meiri áföllum á svo skömmum tíma og einnig hvort nokkur önnur þjóð hefði staðizt slík áföll betur. Það er vitaskuld mikið að þakka óvenjulegu góðæri og uppgripum árin á undan, en ekki hefði það þó dugað til, hefði stjórnarstefnan verið eins slæm og andstæð- ingar ríkisstjómarinnar vilja vera láta. En það er rétt hjá forstjóra SÍS, að nú þurfa allir „að snúa bökum saman og skapa trú og samstöðu til að komast út úr efnahagsörðugleikunum“. Með því móti einu er von 'til þess, að á þeim verði sigrazt. ( f í 'i \ /i Nelson Rockefeller kann að sigra Nixon n.k. mánudag Nú fer að styttast til mikil- vægra tímamóta I kosningabar- áttunni í Bandaríkjunum. Á mánudag í næstu viku kemur saman flokksþing republikana i Miami á Floridaskaga til þess að velja forsetaefni flokksins. Það er ýmsu spáð um hversu fara muni, en slagurinn kemur til með aö standa um þá Nixon, Rockefeller og Reagan. Hvers svo sem úrslitin verða er nú mikiö rætt um það, aö Rockefeller sé stööugt að vinna á, og áhuginn dvínandi fyrir Nixon, og er hald margra, að Nixon muni fljótt verða úr leik, þrátt fyrir, að hann eigi mikið kjörmannafylgi víst i fyrstu atkvæöagreiðslu. En bar- daginn mun brátt standa milli Rockefellers og Reagans, segja spámennirnir, og líkumar meiri, að Rockefeller sigri. Þessir spámenn bæta því þó við, sumir, aö Rockefeller veröi fyrir valinu, — — „ef Nixon fær ekki nóg kjörmannaatkvæði í fyrstu lotu“. Og fari svo mun þaö verða Rockefeller til mikillar hjálpar, að hann er vinsæll meðal kjósenda — og líklegast allra frambjóðenda meðal blakkra kjósenda, enda hinn eini áður- nefndra þriggja keppinauta, sem lítur af frjálslyndi á mál þeirra. Og verði Rockefeller fyrir valinu sem forsetaefni hefir hann einn forsetaefna lagt fram ákveðnar tillögur um hvemig reynt skuli aö leysa Vietnam- deiluna og leiða styrjöldina þar til lykta. Um Víetnam hefir Nixon ekki haft mikiö að segja. Kunnur öldungadeildarþingmaður, repu- blikani, Charles Percy frá 111- inois, sem var mikill stuðnings- maður Nixons, hefir lofað Rocke feller fyrir tillögur hans. I þeim lofaöi hann aö draga mikið úr hernaöarátaki Bandaríkjanna í Víetnam, og hverjum augum sem litið er á tillögur hans í aöalsamningamaður Noröur- Víetnams á Parísarráðstefnunni, veifar til blaðamanna og ljós- myndara, er hann kom af 14. fundi ráðstefnunnar, en á þeim hvorki gekk eða rak sem öllum hinum — og er ætlun margra, að svo munl að minnsta kosti fram yfir forsetakjörið i Banda- ríkjunum eða jafnvel fram yfir áramót, er nýr Bandaríkjafor- seti tekur við. Þrefað ófram um flufning á nauðsynjum til Biafra meðan fólkið sveltur heilu hungri. — Miklar birgðir biða flutnings Undirbúningsviðræðunum i Niamey í Niger lauk, án þess að samkomulag næðist um leiðir til þess að koma matvælum og öðru til sveltandi fólks í Biafra. Haldið verður áfram að ræða um málið í Addls Abeba, er friðarráðstefnan þar hefst 5. ágúst á vegum Einingarsamtaka Afríku. Þannig er þrefaö áfram meö- an fólkið sveltur og þúsundir deyja daglega, að því er fregnir herma, en allt sem sagt er um þetta erfiöa og viðkvæma mál, af hálfu aðila borgarastyrjaldar- innar virðist áróöri og grunsemd um blandið. Talsmaður sam- bandsstj. í Lagos sagði, eftir að samkomulagsumleitunum lauk i Niamey, aö sambandsstjórnin vildi fúslega greiöa fyrir málum með því að heita flugvélavernd til þess að flytja nokkurt magn birgða til Biafra, og ættu slíkir flutningar að geta hafizt „eftir 2—3 daga“, — — ef Biafra- leiðtogar samþykktu, en búizt var við aö þeir neituðu, aö nein- ir kæmu nærri flutningunum nema starfsmenn alþjóða hjálp- arstofnana. Dýralæknir frá Biafra, C. C. Enewani búsettur í Danmörku hefir gagnrýnt hvernig til hefir tekizt með hjálparaðstoð Dana og Norðmanna. Hann kveðst vera þakklátur fyrir hjálpina Hanoi, munu þær honum enginn fjötur um fót f kosningunum, en þær hafa fengið góöar undir- tektir hinna mörgu sem vilja, að Bandaríkin dragi sig út úr styrjöldinni í Víetnam fyrr en siðar og sá hópur er stækkandi. a. C. C. Enewani. sem þjóð hans er veitt, en gagn- rýnir einkum skipulagið, eöa skipulagsleysiö. Hann bendir á, að engir erfiðleikar séu á að koma hjálp til sambandsríkis- landsvæöanna, en ótal erfiðleik- ar í vegi að koma henni til Biafra. Hann segir, að það sem sent hafi veriö til Portúgal hafi komizt áfram án tafar, en skreið „Folkekirkens Nöd- hjælp“ hafi verið send um Spán, og það valdiö 72ja klukkustunda töf. Skreiðin var um sama leyti og gagnrýnin var birt aö koma til Fernando Po, en þaðan er klukkustundarflug til Biafra, en það virðist ganga hægt að koma birgöunum það- an. — Sænski Rauði krossinn ætlar að leggja til 15 flutninga- bila til þess að flytja matvæli um „hlutlausu göngin“, en þaö er um þau sem ekkert sam- komulag hefir náðst og miklar birgðir bíða fiutnings meðan fólkið sveltur. srr-.'CT sssuæma ■e ■■“awn

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.