Vísir - 03.08.1968, Page 5
VISIR . Laugardagur 3. ágúst 1968.
5
Hanzkinn við heimilisstörfin
jftj'argar ykkar hafa sennilega
1 vanizt gúmmí- eða plast-
hönzkunum við heimilisverkin.
Alla vega eru gúmmíhanzkar
til heimilisverka meira áberandi
í nýlenduvöruverzlunum nú en
aðeins fyrir einu ári. Eftir því
sem sænsk neytendarannsókn
hefur sannað, vinnur maður al-
veg eins hratt og vel hanzka-
klædd og án hanzka. — Það er
að segja, ef hanzkarnir eru vald-
ir vel meö tilliti til þess, að
stærðin hæfi hendinni og þeir
séu nógu liprir.
Kostirnir viö að nota gúmmí-
hanzka við heimilisstörfin eru
ýmsir. Það er hægt að þvo upp
í 10 gráðá heitára vatni. Hend-
urnar litast ekki, ef um er að
ræða hreinsun eða þvott á efn-
um, - ’m gefa frá sér lit, Hend-
urnar rifna ekki af þurrki og
eru verndaðar, ef maður hefur
viðkvæma húö eða er með exem.
Þegar maöur velur sér hanzka
ætti maður að hafa það i huga,
að hanzkarnir séu nægilega lang
ir (31 cm. er álitin hæfileg
lengd á hönzkum, sem notaðir
eru við flestöll heimilisverk) og
víðir, þannig að þeir klemmi
ekki aö fingrunum og hindri
mann í að vinna verkið, hanzk-
inn má samt ekki vera of víð-
ur t.d. að ofan þar sem hann
getur þá fyllzt af vatni, og síð
ast en ekki sfzt verður lófinn
að vera hrjúfur eða rifflaður svo
hægt sé að ná góðu taki á hlutn-
um.
Plasthanzkar þola þvottaefni
vel en sumar tegundir þeirra lit-
ast af t. d. silfurfágunarefnum.
Hanzkar úr gervigúmmí þola
hins vegar öll efni. Til þess aö
hanzkarnir séu endingargóðir
verður að fara vel með þá. Það
eykur endinguna, ef maður skol-
ar hanzkana vel eftir notkun
eða þvær þá í sápu og heitu
vatni. Það verður að þurrka þá
vel — og svo verður maður,
aö kunna aö klæða sig úr þeim
á réttan hátt, ekki rífa í fingur-
endana. Áður en þið festiö kaup
á hönzkum fáið þá að máta þá
á báðar hendur þar sem stærðin
getur verið mismunandi fyrir
hvora hönd.
Kjöt steikt á útiglóð hættulaust
T/" jöt steikt á útiglóð hefur ár-
um saman legið undir þeim
grun í Bandaríkjunum að vera
hættulegt heilsunni. Þessi skoð-
un kom fram eftir aö sannað var
í vísindalegri skýrslu að kjöt
steikt á útiglóö innihéldi krabba
meinsvalda. Síðustu rannsóknir
benda þó á það, að ekki sé nokk
ur ástæða til ótta eftir því sem
stendur í tímaritinu Good House
keeping. Að vísu er ein efnis-
tegundin, sem finnst í sígarettu-
reyk meðal þeirra efna, sem
myndast við það aö kjötfitan
drýpur niður á viðarkolin. Það
er þó í minnihluta. eftir því sem'
bandaríska krabbameinsfélagið
heldur fram og engar vísinda-
legar athuganir sanna að í kjöti
steiktu á viðarkolum séu krabba
meinsvaldar.
Meðal annars voru gerðar at-
huganir á rottum, sem fóðraðar
voru á fyrrgreindu efni. Ekkert
tilraunadýranna sýndi sjúkdóms
einkenni. Þegar allt kemur til
alls sýnir bandaríska skýrslan
enga ástæöu fyrir því að hætta
að nota útiglóðina — fremur
væri þaö vegna kvefhættu f
þessu landi snöggra veðra-
brigða, sem viö lifum 1.
ÚTILEGAN eins og teiknarinn sér hana. - Bóndinn hefur snúið sér að sínum hugðarefnum,
matreiðslunni yfir glóð. Frúin nýtur þessa og flatmagar inni í tjaldinu og hlustar á óska-
lögin, meðan börnin ærslast. Eflaust verður helgin, sem í hönd fer eitthvað þessu lík. Ann-
ars sýnir myndin, þegar vel er að gáð, að ferðafólkið hefur brotið talsvert af sér.
SUMARHÁTÍÐIN
í Húsafeilsskógi
UM VERZLUNARMANNAHELGINA
Hljómar—Orion
og Sigrún Harðardóttir
SKAFTE og JÓHANNES — DANS A 3
STÖÐUM — 6 HLJÓMSVEITIR
TÁNIN G AHL J ÓMS VEITIN 1968 —
HUÓMSVEITASAMKEPPNI
Skemmtiatriði: Leikþættir úr „Pilti og stúlku"
og úr „Hraðar hendur“ — Alli Rúts — Gunn-
ar og Bessi — Ríó tríó — Ómar Ragnarsson
1— Bítlahljómleikar — Þjóðdansa- og þjóð-
búningasýning — Glímusýning — Fimleika-
sýning — Kvikmyndasýningar.
Keppt verður í: Knattspyrnu —Frjálsíþrótt-
um — Glímu — Körfuknattleik — Hand-
knattleik.
UN GLIN G AT J ALDBÚÐIR
FJÖLSKYLDUTJALDBÚÐIR
Bílastæði við hvert tjald.
KYNNIR: JÓN MÚLI ÁRNASON
Verð aðgöngumiða 300,00 fyrir fullorðna,
200,00 kr. 14—16 ára og 13 ára og yngri
ókeypis í fylgd með foreldrum sínum.
— Gildir að öllum skemmtiatriðunum. —
SUMARHÁTÍÐIN ER SKEMMTUN FYRJÖR
ALLA
U.M.S.B. Æ.M.B.
TEKUR ALUSKONAR KLÆÐNINGAR
FL4ÓT OG VÖNDUÐ VINNA
ClRVAL AF AKLÆÐUM
LAUGAVEO 62 - SlMI 10S2S HEIMASIMI8J634
BOLSTRUN
Svefnbekkir í úr ali á verkstæðisverði.
rökum aö okkur dvers konar múrbrot
og sprengivinnu 1 húsgninnum og raes
iitti Leigjum úí toftpressur og vfbrt
sleöa Vélaleiga Steindórs Sighvats
sonai Áifabrekki. við Suðurlands
brauL siml 10435.
Vöruflutningar
um allt land