Vísir


Vísir - 14.08.1968, Qupperneq 3

Vísir - 14.08.1968, Qupperneq 3
V1SIR . Miðvikudagur 14. ágúst 1968. 3 ... ■•:■■■•.■• , Og það er víðar sólskin en í Laugardalnum, eins og sjá má af þessari mynd frá barnaheimilinu Tjarnarborg. Þær eru verkstjórar yfir stúlknaflokknum, sem hirðir garð- inn og heita Guðrún Kristinsdóttir og Þórunn Einarsdóttir. J Laugardal, þar sem laufið angar sumarlangt, feta þús- und naktir fætur um vel hirta garða þessa sðlheitu ágústdaga. Konurnar úr Álfheimunum og Laugarásnum fara þangað með krakkana eftir hádegisuppvaskið og sleikja sólskinið á grasflöt- unum milli birkitrjánna. Stelp- urnar koma alla leið ofan úr Undangengin sumur hefur mik il vinna verið lögð i Laugardals- garðinn og þar er nú orðið hið ákjósanlegasta sólbaðssvæði, sem borgin á. Fólk er smátt og Háaleitishverfi með dúkkur sín- ar til þess að fara í mömmuleik hjá „Móður jörð“. Strákaguttar sniglast þar um letilega á milli trjánna. Þar bregður jafnvel fyr- ir kontóristum í eftirmiðdaginn, að ganga af sér áhyggjur dags- ins. smátt að uppgötva þetta frið- land og nú er svo komið, að þangað sækja bílalestir af fólki í eftirmiðdaginn og aðsóknin að garðinum til sólbaða er engu minni en að Hljómskálagarðin- um f hjarta borgarinnar. Þessi skrúðgræna vin í miðju malbikinu verður mörgum griða- staður, þegar loftið verður of- þrungið innan grárra veggja. Það leiðist öllum á skrifstofunum yf- ir rykföllnum papplrum, í bönk- um og verzlunum, þar sem allt er svo kvundags, þar sem kúnn- arnir koma og fara meö fýlusvip og fá dauflegt skylduræknisbros hjá afgreiðslumeyjunum. Og all- ir þrá þetta eina, að komast eitt- hvað út úr skarkalanum til þess að slappa af og njóta sín. Þegar Vfsismenn fóru þar um á hádegi í gær voru árrisular frúr að taka saman pjönkur sfn- ar eftir sólríkan morgun og tygja sig til heimferðar. Ungar blóma- rósir, sem raunar eru verkstjór- ar yfír stúlknaflokki, þar við garðhirzluna, sögðu að aðsóknin væri mest upp úr hádeginu. Þá fylltist garöurinn af fólki, mest úr hverfunum í kring. Og þær áttu von á metaðsókn í gær, enda hvað heitastur dagur, sem komið hefur í sumar, heiðskfrt loft og hægur aadvari. „Við erum í hjúkrunarleik“ sögðu þessar önnum köfnu konur úr Háaleitishverfinu, sem voru að búa um dúkkurnar sínar við „Móður jörð“, styttu Ásmundar Sveinssonar. SÓLSKIN í LAUGARDAL I

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.