Vísir - 14.08.1968, Side 8

Vísir - 14.08.1968, Side 8
8 VÍSIR Útgefondi. Reykjaprent h.t Framkvæmdastjóri Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aðstoöarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingastjóri: Bergþór Olfarsson Auglýsingar: Aðalstræti 8. Símar 15610 11660 og 15099 Afgreiðsla: Aöalstræti 8. Simi 11660 Ritstjóm: Iiugavegi 178. Slmi 11660 (5 Unur) Áskriftargjald kr. 115.00 á mánuði innanlands f lausasöl j kr. 7.00 eintakiS Prentsmiðja Visis — Edda h.f. Afurðasölumálin J>að er ekki ný bóla að þeir, sem sjá um sölu á aðal- útflutningsafurðum okkar, séu gagnrýndir harðlega í blöðum Framsóknar og kommúnista. Sú gagnrýni má kallast meinlausar aðfinnslur nú, samanborið við það sem áður var, þegar veldi Framsóknar var mest. Þiá fengu þeir, sem forustu höfðu í fisksölumálunum, margt óþvegið orð í Tímanum. Á þá voru bornar flest- ar þær vammir og skammir, sem hægt er að hlaða á menn, sem ófyrirleitnir andstæðingar ofsækja. Má þar minna á skrifin um Spánarsámningana, svo að- eins eitt dæmi sé nefnt. Þetta voru vitaskuld pólitísk- ar ofsóknir, sem ekki voru fátíðar á þeim árum, þegar einskis var svifizt til þess að reyna að koma andstæð- ingnum á kné. Enginn vafi er þó á því, að á þeim árum, eins og v æ síðan fóru með þessi mál hæfustu mennirnir, sem þjóðin hafði á að skipa — menn með mikla reynslu í þessu efni og því þaulkunnugir markaðsmálum Það virðist eðlilegt að samtök útflytjenda velji sér sína forustumenn sjálf, og enginn skyldi láta sér detta í hug að þau velji aðra en þá, sem meirihlutinn treystir bezt. Einstakir kaupsýslumenn með sérþekkingu á þessu sviði hafa einnig komið hér mjög við sögu og í sumum greinum þingskipaðar nefndir, en þar hefur þess stundum kannski hvað sízt verið gætt af sumum flokkum, að velja hæfustu mennina. En yfirleitt mun megá segja að flestir, sem að útflutningsmálunum hafa starfað, hafi lagt sig fram um að leysa verkefni sín sem bezt af hendi. En þeir tímar hafa oft komið, að þau hafa sannarlega ekki auðleyst verið, og eflaust hefur stundum mátt með réttu gagnrýna störf þess- ara manna, eins og annarra, en slík gagnrýni verður alltaf að vera byggð á viti og sanngirni. Kommúnistar hafa vitaskuld alltaf viljað þjóðnýta þessa atvinnugrein eins og aðrar, en sú skoðun á ekki hljómgrunn með þjóðinni. Framsóknarflokkurinn hef- ur hingað til ekki þótzt vera kommúnistum þama sammála, en báðir hafa tröllatrú á pólitískum nefnd- um sem forsjá allra hluta, þó vitaskuld helzt að því tilskildu, að þeir hafi þar meirihluta. Þetta er kunn staðreynd frá valdatímum Framsóknar, einkum fram- an af, og þess vegna voru allar ofsóknirnar. Þeir vildu ná pólitískum yfirráðum í fiskverzluninni. Enginn vafi leikur á því, að þessi mál eru betur komin í höndum einstákra athafnamanna eða einka- fyrirtækja en ríkisins eða pólitískra nefnda. Hitt er svo annað mál, að stjórnvöld landsins á hverjum tíma geta og hafa veitt útflytjendum ýmsan stuðning með aðstoð sendiráða o. fl. Þetta hefur sú ríkisstjórn, sem nú fer með völd, gert eins og aðrar, og því er það mjög óheiðarlegur áróður hjá stjórnarandstæðingum, að kenna henni um þá erfiðleika, sem útflutningsverzl- unin á nú við áð etja. Ríkisstjórnin hefur veitt alla þá aðstoð, sem í hennar vérkáhring getur talizt. ’ ! í V1SIR . Miðvikudagur 14. ágúst 1968. Framrétt hönd - tekur bandaríska þjóðin í hana? Nýr NIXON - eða .gamli Dick'? „Nýr Nixon“ — eöa „gamli Dick“? — Þannig var fyrirsögn yfirlitsgreinar í erlendu blaöi, er kunnugt var orðiö um úrslitin á flokksþingi republikana f Mi- ami. í upphafi greinarinnar var sagt að „ekki væru liöin nema 6 ár, síðan er Nixon, náfölur og skjálf andi af taugaæsingu, eftir hinn beizka ósigur sinn í ríkisstjóra- kosningunum í Kaliforníu, hvæsti út úr sér til fréttamanna: „Þetta er í síðasta skipti, sem ég kem fram á fundi með fréttamönnum. Hér eftir, herr- ar mínir, getiö þið sparkaö i einhvern annan“. En hið óvænta skeði. Nixon náði sér á strik aftur og hefir nú verið valinn forsetaefni flokksins. Það gæti enn farið svo að þessi „sérfræöingur í að bíöa ósígur", sigraði að lokum í þeirri miklu orrustu, sem framundan er, og næði kjöri sem forseti Bandaríkjanna. En þó hefir dreg ið úr llkum fyrir slíkpm sigri, vegna valsins á Agnew, ríkis- stjóra sambandsríkisins Mary-> land sem varaforseta, en þaö val kom öllum og Agnew sjálfum óvænt, og hefir veriö afar mis- jafnlega tekið, — einnig innan republikanaflokksins. Sannleikurinn er sá, að Nixon hefir aldrei getaö sætt sig við ósigur ólundarlaust, nú er eftir að vita hvcrt hann hefir það ‘il að bera, aö bandaríska þjóðin treysti honum til þess aö taka við forustu hennar. Vafalaust eru margar orsakir þess, að Nixon tókst aö ná sér upp stjórnmálalega. svo sem þrautseigja, ýmsir góðir stjórn- máiahæfileikar en ekki sízt varð það til að greiöa götu hans, að eftir að myndaðist eins cg tóm í flokknum eftir hinn beizka ó- sigur sem Barry Goldwater beið kom Nixon inn í það sem maður urinn í miðið, til þess að sam- eina og hvetja til baráttu, áð- ur en leiðtogar flokksins voru búnir aö jafna sig eftir ósigur Barry Goldwaters. Það hafi ver- ið farið aö líta á Nixon sem vofu, — og vegna óttans um nýjan klofning og í von um, að Nixon myndi sameina, gat hann vakið traust og var valinn for- setaefni. Vel má. vera, að honum tak- ist að sameina flokk republik- ana — en hann gerir áreiðan- lega annað, val hans verður mörgum demokrötum hvatning I að halda tryggð viö sinn flokk, því að þeir sjá ekki, eins og sumir, „nýjan Nixon“, — hann er sá gamli Dick í þeirra aug- um, uppáhald íhaldsaflanna í flokki republikana — og ekki sízt mun blökkufólkið þeirrar skoöunar. Nixon var lítt kunnur, þegai Eisenhower þurfti á stjórnmála manni frá vesturströndinni að halda, og gerði hann að vara- forsetaefni. „Nixon hagaði þá kosninga- baráttu sinni I „kunnum tón“ Hann kallaði flokk demokrata „flokk föðurlandssvikaranna", hann sá kommúnista hvert sem hann renr.di augum — og svo komst á kreik orðrómur um hneyksli, misnotkun á kosninga- sjóöi og misheppnuð efnahags- leg tiltæki, og eina nóttina var Eisenhower að hugsa um að hafna honum, og hefði það orð- ið eitthvert mesta stjórnmála- hneyksli í sögu Bandaríkjanna, en svo kom Dick fram í sjón- varpi, og hann var með konuna með sér og dæturnar og litla hundinn". Hann skaut máli sínu óhikað til fólksim: — bað um dóm þess: „Allt geta menn frá mér tek- iö, æru mfna, frama, konu mína. eignir, ef ég bara fæ að halda eftir hundinum mfnum ...“ Og þetta hreif. Eisenhower, sem lengi hafði hikað, studdi varaforsetaefni sitt, og báðir voru valdir. Þegai Nixon var varafbrseti vildi hann láta beita kjamorku- sprengjum til þess að bjarga Dien Bien Phu frá falli f Indó- kína, og þar með stöðu Frakka þar. 1 Moskvu þótti hann duglegur að munnhöggvast við Krúsév. Hann var „haukur allra hauka". En þótt mikiö kunni að vera eftir af gamla Dick I honum, veröur að ætla að það sé reynd- ari og hyggnari maöur, og um dugnaðinn þarf ekki að efast. En hann þarf líka á honum að halda með Agnew sér við hlið, lítt þekktan mann, en það er sagt að fátt hafi glatt marga demokrata eins og það val. Að því er demokrata varðar veltur á mestu, að átökin um Humph- rey og McCarthy. valdi ekki klofningi. Líklega verður Hum- phrey fyrir valinu — samkvæmt skoðanakönnunum hefir hann 65%. Sameinaðir myndu þeir sigurstranglegri Humphrey og McCarthy (s m varaforsetaefni) — og McGovern? Hann er svo sem ekki neitt í augum þjóðar innar stjórnmálalega skoöað (eða, eins og það var orðaö i fréttaauka í brezka útvarpinu „a political nobody") — a Spiro Agnew.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.