Vísir - 14.08.1968, Page 9
VlSIR . MiSvikudagur 14. ágöst 1968.
SAGA ELLITRYGGINGA í STUTTU MÁLI
FYRSTI VÍSIR ELLITRYGGINGA
HÉR Á LANDI ER FRÁ ÁRINU1890
□ Undanfarið hefur hér í Vísi verið skrifað all-
mikið um vandamál eldra fólksins á vinnu-
markaðnum. Kemur það til vegna uppSagna eldri
verkamanna og iðnaðarmanna hjá ýmsum fyrir-
tækjum í landinu. Er hér vissulega um mikið og
margþætt vandamál að ræða, sem tæplega verður
leyst nema með víðtækri samvinnu allra viðkom-
andi aðila. Ljóst er, að hið opinbera hlýtur að leika
þar meginhlutverkið, og til að skýra nokkuð hlut-
verk hins opinbera verður hér í stuttu máli gerð
grein fyrir sögu ellilífeyris frá því að hann var fyrst
upp tekinn. Er í grein þessari að verufegu leyti
stuðzt við ágætan kafla próf. Ólafs Björnssonar sem
hann ritar um þessi mál í bók sína, Þjóðarbúskapur
íslendinga, svo og árbækur Tryggingastofnunar
ríkisins og viðtöl við starfsmenn fyrirtækisins. Sér-
stakar þakkir vill blaðið flytja prófessor Ólafi fyrir
að veita góðfúslega leyfi til að hafa fyrrnefnda grein
hans sem aðalheimild.
Fyrst þegar rætt er um þessi
mál, er ekki úr vegi, að geta
þeirra tveggja sjónarmiða, sem
hafa verið við lýði um hinn sið-
menntaða heim, þegar almennar
tryggingar eru annars vegar. Er
hér aðallega um tvær megin-
stefnur í tryggingarmálum að
ræða, svonefnda tryggingar-
reglu og hins vegar framfærslu-
reglu.
Á þessum 2 r.eglum er að veru
legu leyti stuözt við tvö sjónar
miö, og verður hér í stuttu máli
gerð grein fyrir þeim sjónarmið-
um.
*
Framfærslureglan er byggð á
því meginsjónarmiði, að allir
þjóðfélagsborgarar geti orðið
aöilar að tryggingunni, en fjár-
ins til hennar er aflað meö því
að leggja skatta eða aðrar álög-
ur á borgarana. Allir eru skyldir
til aö taka þátt í fyrirkomulagi
þessu, og er greiösla til styrk-
þega í samræmi við mat á þörf
þeirra en greiðslan er ákveöin
sem framfærslustyrkur.
G. Iðslan er óháö því, hve
mikiö sá, sem greiðslunnar er
aðnjótandi hefur lagt af mörk-
um, en móttaka greiöslunnar
hefur verulegan missi í för með
sér fyrir móttakanda, varðandi
réttarstöðu. Kemur til dæmis til
missir kosningaréttar og fleira.
Tryggingarreglan fór að ryöja
sér til rúms á 19. öld, og var
fyrir algeng um aldamótin síð-
ustu. Helztu sjónarmiðin, sem
liggj'a til grundvallar henni eru:
Aöeins þeir sem greiða iðgjöld,’
eru þátttakendur í fyrirkomulag
inu, og er þátttaka í því frjáls,
en fjár 111 tryggingastarfseminn
ar er aflað með iðgjöldum hinna
tryggðu. Móttaka tryggingarinn
ar er ákveöin sem réttur en er
ekki háður mati, g er greiðslan
því í formi bóta, og bótagreiðsl
urnar hafa engi: áhrif á þjóð-
félagsstöðu bótaþega.
■f stuttu máli má segja að fram
færslureglan hafi að veru-
legu leyti verið rlkjandi frá upp
hafi allt til þess tíma, að hin
frjálsari stefna fór að ryðja sér
til rúms ' 19. öld, liberalism-
inn, en með hnignun þeirrar
stefnu, hefur tryggingarreglunni
á ný hnignað, þannig aö fram-
færslureglan hefur átt meira
fylgi að fagna á ný, en í ann-
arri og mannúölegri mynd en
áður. T.d. þekkist nú varla, aö
móttaka styrks eða bóta hafi
áhrif á þjóðfélagsstöðu viðkom
andi styrk- eöa bótaþega. Þess-
ar tvær reglur eru ^fS miklu
leyti samtvinnaðar í núverandi
lögum um almennar tryggingar
hér á landi, en um þátt hverr
ar reglu um sig er rætt hér á
eftir.
Þaö var árið 1890 að stofnaö
voru skv. lögum „styrktar-
sjóðir handa heilsubiluöu og elli
hrumu alþýöufólki” eins og seg
ir í lögum um stofnunina. Reynd
ust þeir vera fyrsti vfsir til elli-
trygginga á Islandi og til al-
þýðutrygginga yfirleitt. í stofn
lögum segir, að öll lausamenni
og hjú á aldrinum 20—60 ára
skuli greiða árlega í sjóðina á-
kveðna upphæð. Sjóðirnir
skyldu síðan standa óhreyfðir i
10 ár á vöxtum, en aö þeim
tíma liðnum skyldi úthluta ár
hvert helmingi af árstekjum.
Eins og nærri má geta, var
framlagi hvers einstaklings stillt
f hóf, enda reyndist tekjustofn
sjóöanna svo lítill, að upphæðir
voru lágar, og löggjöf sjóöanna
því.breytt allmikið meö lögum
frá 1909 um almennan ellistyrk.
Voru meö þeim lögum stofnað
ir ellistyrktarsjóðir í hverjum
Fyrsti vísir ellilauna eða ellibóta á Islandi er frá árinu 1890. Frá þeim tíma hafa almanna-
tryggingalögin sífellt verið endurbætt. 1 dag fær einstaklingur með ellilaun allt frá 3065,60
til'kr. 5122,67 á mánuði, eftlr því á hvaða aldri hann er, er hann byrjar að þiggja ellistyrkinn.
Myndin sýnir aldrað fólk njóta góða veðursins utan við Hrafnistu, Dvalarheimili aldraðra
sjómanna. (Ljósm. J. B. B.)
hreppi og hverjum bæ landsins,
og konum og körlum á aldrin-
um 18—60 ára gert að greiöa
vissa upphnð f þá. Þá kom
ríkið og til skjalanna og greiddi
f sjóðina vissa upphæð á hvern
þann, sem til sjóöanna greiddu.
Árlega var úthlutaö vissum
hluta af framlagi rfkisins og ein
staklinga, svo og af öðrum tekju
stofnum, svo sem leyfisbréfa-
gjaldi til lausamennsku, en þau
gjöld runnu til sjóðanna. Elli-
styrkurinn var veittur til 1 árs
í senn, og var lægsta úthlutun
kr. 20 en sú hæsta 200 krónur.
þesar elztu tryggingar voru
skyldari framfærslu en
tryggingu, utan þess, að mót-
taka þeirra hafði ekki nein á-
hrif á réttarstööu styrkþega,
svo og var fjár til sjóöanna að
verulegu leyti áflað með fram-
lögum hinna tryggðu. Styrkim-
ir voru enn sem áöur svo lágir
að ekki nægöu þeir til fram-
færslu styrþega.
Árið 1936 var lögum um þessi
efni aö verulegu leyti breytt og
\
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins,
Sósialistaflokksins og Alþýöu-
flokksins fram tillögu á Alþingi
um ; jssí efni.
Mikilvægustu breytlngamar.
sem geröar voru, voru þær, aó
meö þessum lögum, var trygg-
ingarmálunum komið í mun fast
mótaðra form, en áður tíökaðist
hér á landi.
Allar bótagreiöslur trygging-
anna voru sameinaöar í einum
allsherjar tryggingarsjóði. Þá
voru og í lögunum tekin upp
ný ákvæði, sem ekki þekktust
hér fyrr. Voru þaö svo sem
barnalffeyrir bætur til ekkna
og mæðra, fjölskyldubætur.
Með þessum lögum var trygg
ingarreglan tekin upp f enn rík-
ari mæli, en gert hafði verið með
lögunum 10 árum áður, og var
það gagnstætt því sem þróunin
var í öðrum löndum almennt,
eins og vikið var hér að áðan.
Lögunum um almannatrygg-
ingar var síðan á ný breytt árin
1956 og 1963.
Samkvæmt lögunum frá 1963
eiga menn eftir vissum reglum
rétt til lífeyristrygginga, en til
þeirra trygginga teljast m.a. elli-
tryggingar. Auk þeirra innifala
lífeyristryggingar einnig örorku-
lífeyrl, fjölskyldubætur, barna-
Iffeyri, mæðralaun, fæöinga-
styrk ekkjubætur og ekkjulff-
eyri.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem við fengum hjá Ólafi Björg
vinssyni lögfræðingi Trygginga
stofnunarinnar nema ellilífeyris
greiðslur til einstaklinga eftir-
töldum up-hæðum:
1. Ef lífeyrir er fyrst tekinn frá 72 ára aldri: kr. 5122,67/mán.
2. — — 71 — - - — 4598,33 —
3. —
4 —
5. — . — — - — — 68 — - - — 3327,75 —
6. — • — — - — — 67 — - - — 3Q65.50 —
þá stofnaður sérstakur elli- og
örorkusjóður er nefndist Lffeyr-
issjóður fslands. Með þeim lög-
um var tryggingarreglan tekin
upp í aðalatriðum, en þar sem
ákvæði sjóðslaganna tóku raun- .
verulega aldrei gildi, vegna
nýrra laga frá 1946, verða þau
ekki rakin hér.
\7’issulega var löggjöfin frá
' 1936 stórt spor í framfara*
átt í þjóðfélagsmálum okkar ís-
lend ga, en meö þeirri velmeg
un, sem leiddi af síðari heims-
styrjöldinni. tók fljótlega að
bera á umræðum manna á með-
al, að nú ætti að nota þá fjár-
hagsaöstöðu, sem þannig hefði
skapazt, til að bæta trygginga-
löggjöfina.
Var nú skipuð nefnd, sem lagði
tillögur sfnar fyrir yfirvöld, en
sfðan lagði ríkisstjóm, sem þá
var við völd, og f áttu sæti
Þess ber aö geta, að lífeyrir
hjóna, sem bæði fá lffeyri, skal
nema 90% af lifeyri tveggja
einstaklinga. Þó er heimilt, aö
úrskurða hvoru hjónanna um
sig einstakl'ngslífeyri, ef þau
eru eigi samvistum af heilsu-
farslegum eða öðrum ástæðum,
sem tryggingarráð metur jafn-
gildar.
Frá og með lögunum frá 1963
var f lögum, að vísitöluuppbæt-
ur skyldu greiðast á lífeyris-
gjöld. Um sfðustu áramót sagöi
Ólafur, að það hefði ekki kom-
ið til, heldur hefðu þá allar bæt
ur samkvæmt fyrrgreindum lög
um hækkað um 10%, og hefði sú
upphæð veríð hærri on sem nam
hlutfallslegri hækkun vísitölu
framfærslukostnaðar. Það væri
sfðan á valdi stjórnvalc’.. lands-
ins, hvemig á þesum málum
yrði tekið um næstu áramót.
af.
Héraðsmót Sjálfstæðisflokks-
ins verða um næstu helgi í
Vík / Mýrdal og að Flúðum
Um næstu helgi verða haldin
tvö héraðsmót Sjálfstæðisflokks-
ins á eftirtöldum stöðum:
Vík í Mýrdal, laugardaginn
17. ágúst kl. 21. Ræðumenn
veröa Bjarni Benediktsson, for-
sætisráöherra, Steinþór Gests-
son, alþingismaður og Siguröur
Nikulásson, fulltrúi.
Flúðum, Ámessýslu, sunnu-
daginn 18. ágúst kl. 21. Ræöu-
menn verða Jóhann Hafstein,
dómsmálaráðherra, Ingólfur
Jónsson landbúnaðarráðherra og
Sigurður Nikulásson, fulltrúl
Skemmtiatriöi annast leikar-
arnir Róbert Amfinnsson og
Rúrik Haraldsson ,og hljómsveit
Ragnars Bjamasonar. Hljöm-
sveitina skipa Ragnar Bja'ma-
son, Grettir Björflsson, Ámi
Scheving, Jón Páll Bjamason og
Ámi Elfar. Söngvarar meö
hljómsveitinni em Erla Trausta-
dóttir og Ragnar Bjarnason.
Aö loknu hverju héraðsmóti
verður haldinn dansleikur
þar sem hliómsveit Rasnarr
Bjamasonar íeikur fyrir 3ansi
og söngvarar hljómsveitarinnar
koma fram.