Vísir - 14.08.1968, Blaðsíða 12
72
VI S I R . Miðvikudagur 14. ágúst 1968.
HOWARD RIGSBY:
Að Nornarifi
„Það ér mjög fallega gert af yð-
ur...“
„Við erum laus við alla form-
festu héma. Líkt og tíðkast í brezk
um gistikrám. Þau vilja hafa þaö
þannig, hjónin. En hér er þó frá-
brugðið því, sem tíðkast i brezkum
krám, að hér er miðstöðvarhiti,
mjög þægilegur meira að segja. Og
maturinn getur ekki betri verið ...“
„Eruð þér læknir?“
Nei, hann kvaðst vera eölisfræð-
ingur. Þau héldu inn langan gang-
inn unz hann nam staðar úti fyrir
hurð með koparþynnu á „2-L”,
stóð grifið á þynnuna.
Þetta reyndist vera rúmgott horn-
herbergi, búið stórri lokrekkju og
öðrum húsgögnum I nítjándu ald-
ar stíl. Á veggjum hengu olíu-
málverk og vatnslitamyndir — allt
sjávarmyndir. Christian St. Laurent
setti frá sér ferðatöskuna hennar
og svipaðist um. Og það var eitt-
hvað f svip hans, sem vakti með
henni hugboð um að herbergið rifj-
aði upp fyrir honum einhverjar end-
urminningar, ekki sem ánægjuleg-
astar.
„Ég vona að yður falli vel við
hafið", sagði hann og virti fyrir sér
málverkin. „Þér komizt ekki hjá að
hafa náin kynni af því hérna. Það
blasir jafnvel við yður á herberg-
isveggjunum".
„Hafið þér dvalizt hér lengi?“
spurði hún.
„Nokkra mánuði“.
„Leggið þér stund á slaghörpu-
leik?“ spurði hún enn.
„1 rauninni ekki...“
„Þér lékuð Brahms mjög vel...“
Hún virti fyrir sér herbergiö, heyrði
brimsjóina brotna við ströndina.
„Einu sinni hugðist ég verða slag-
hörpuleikari. En það,tókst ekki“
„Því miður hlýt ég að viöurkenna,
að ég hef aldrei séð yður I kvik-
mynd“, sagði hann. „Ekki heldur á
leiksviði. En ég hef að sjálfsögðu
oft séð myndir af yður I blöðum og
tlmaritum, og eins hef ég lesið
dóma gagnrýnendanna um leik yð-
ar á sviði... t.d. I síðasta leikrit-
inu, „Það snjóar“. Þeir hrósa yður
ákaft“.
„Það leikrit hefur verið kvik-
myndað“, sagöi hún. „Töku mynd
arinnar lauk í gær“ .
„Það skýrir komu yöar hingaö“.
Hún kinkaði kolli. „Að vissu
leyti“, sagði hún. „Við höfum unn
ið að töku myndarinnar hér I fjÖU
unum.“
„Að visáu leyti", endurtók hann.
„Það er einkennilegt hve oft gest
ir koma hingað fyrir hendingu. Og
nú, þegar þér eruö hingað komin,
geri ég ráð fyrir aö yður koim
margt einkennilega fyrir sjónir.“
„Já“, svaraði hún „Einmitt...“
Hann kinkaöi enn kolli. „Þannig
er það I fyrstu", sagði hann. „En
þegar þér hafið dvalizt hér nokkra
hríð, finnst yður allt mun einkenni
legra þar, sem þér oruð áður . ..
þér og við“. Hann brostii. ,,En þér
áttið yður betur á hlutunum, þegar
þér hafið hresst yður á kokkteil og
snætt kvöldverö. Viljiö þér halda
hópinn með mér, eða vera ein við
kvöldverðinn?"
„Þakka yður fyrir, ég vil gjarna
þiggja boö yðar“, flýtti hún sér
að segja. Fannst sem hún mætti
ekki til þess hugsa aö vera látin
eki
„Ég býð yðar þá frammi I bóka-
safninu", sagði hann. Þegar hann
hafði svipazt um I herberginu enn
einu sinni kinkaði hann kolli og
fór. Og hún stóð ein eftir I her-
berginu, með brimgnýinn i eyrum
sér.
ANNAR KAFLI.
Þegar hún tók upp farangurinn,
setti hún svefntöfluglasið niður í
skúffu I lítilli dragkistu með marm
araplötu, sem stóö hjá lokrekkj-
unni. Og henni fannst, sem þetta
ætti sér hvergi stoð I raunveru-
leikanum og sjálf væri hún hvorki
þessa heims né annars, hvorki lífs
né liðin.
Klukkan sex var bjöllu hringt ein
hvers staöar niðri, og hún hélt fram
á ganginn. Þykk og mjúk gólfá-
breiðan kæfði fótatak hennar, og
þegar hún nálgaðist opnar bóka-
safnsdyrnar, þótti henni sem hún
heyrði óminn af rödd Christians
þar inni. Hún nam staðar við dyrn
ar leit inn fyrir og kom þegar auga
á hann.
Hann stóö við arininn, sneri baki
að eldinum og virtist vera að tala
við einhvern sem sat á legubekk
þar fyrii framan. Ekki gat hún samt
séð þann mann, þar eð bronzvasi
mikill með krýsantemum, sem stóð
á borði fyrir aftan legubekkinn,
skyggði á hann. Svo heyröi hún
aðra rödd, einnig karlmanns, en
svo hvílslága að hún gat naumast
greint orðin:
„Chris... ég á við, að það sé
eins víst að þeir myrði þig“.
Hún var ekki með öllu viss um
að hún hefði heyrt rétt, en vannst
ekki tlmi til að hugleiða þaö nán
ara, því að Christian kom um leið
auga á hana í dyrunum og gekk
rakleitt til hennar, án þess að hon
um yrö’ svo mikiö sem litið til
mannsins, sem sat bak viö blóma-!
vasann cg hann hafði verið að
ræöa við.
Þégar þau gerigu niður stígann; J
leituðu oröin, sem' hún hélt sig
hafa heyrt sögð í bókaherberginu, I
aftur á hug hennar. Rödd mannsins ■
sem falinn var sjcnum hennar, •
hafði verið vo lág, að hún gat;
ekki verið viss um að sér hefði j
ekki misheyrzt. í þetta skiptið
veitti hún öllu niðri I salnum nánari
athygli en áður. j
Arinninn var miklum mun stærri
þar en uppi I bókasafnsherberg- ^
inu og logaöi þar glatt I stórum .
rekaviöardrumbum. Þykk en eilít-1
ið snjáð ábreiða, austurlenzk, huldi!
dökkt eikargólfiö að mestu, legu;
t jkkir og hægindastólar voru!
dregnir sirzi, borð og skrifborð úr •
dökku ma’ óní en á veggjum gat!
r líta mörg málverk, hin ólíkustu 1
að stíl og aldri. Eitt málverkið
það sem hékk yfir arinhillunni.
var miklu • mun stærst, þrir tii
fjórir metrar að minnsta kosti. Ab-
strakt málverk, hugsaði hún með
sér en vissi ekki nákvæmlega hvern
ig bærj að flokka það, eða skildi
tjáningu þess. En hafifi sa&Öi þar
til sín, gífurlegur, hálfgagnsær brot-
sjór og grillti þar 1 framhliðina á
kránni, einnig klettarif og sjávar-
hamra. Þar gat einnig að líta drauga
legan vita og rekald og skipsflök á
fjöru. Og svo voru það þokubólstr-
ar, og I þokunni mátti greina and-
lit, meðal annars var andlitið á hr.
Bean þar þekkjanlegt. Loks voru
þar englar ...
Hún virti fyrir sér málverkiö, og
enn einu sinni fannst henni sem
hún heföi glatað allri fótfestu I raun
veruleikanum, aö hún væri hvorki
lífs eöa liðin. Sem snöggvast spurði
hún sjálfa sig, hvort hugsanlegt
væri aö hún hefði rekizt á viðar-
flutningabíl eða orðiö fyrir bjargi,
sem féll á veginn ... hvort líkams-
leifar hennar lægju einhvers stað-
ar undir hömrunum og sálin væri
á einhverju millibilsreiki, I hópi
löngu framliðinna, sem vildu henni
vel og væru að búa hana undir
næsta áfangann.
„Þetta málverk er eftir frú Bean”,
mælti Christian. „Það tekur nokk-
um tíma að átta sig á því, en þé?r
fáið gleggri skilning á því, þegar
þér hafið dvalizt hér dálítinn tíma“.
Dálítinn tíma ... það var undar-
legt, hugsaði hún, að það virtist
vera gert ráð fyrir að hún ætlaði
að dveljast þarna, rétt eins og ekki
kæmi til greina aö hún héldi áfram
ferð sinni I fyrramálið. Hún var
að því komin að færa það I tal við
hann, en ákvað að sleppa þvl. —
Hvers vegna var eins víst að hann
yrði myrtur? Hana langaði líka til
að spyrja hann að því. Þetta var
allt hvað öðru undarlegra, hugsaði
húameð sér, þegar þau gengu fram-
hjá afgreiðsiuboröinu og inn að bam
um. Hún hefði ef til vill heldur átt
að leita gistingar I einhverri veg-
búð og heyja þar næturlangt sálar-
stríð I ömurlegum svefnklefa ein
síns liðs.
Sjálfur barinn var eins og far-
þegasalur I gömlu seglskipi — var
það líka I rauninni, sagði Christian I
henni. Farþegásalur I einu af þess- I
um gömlu, stóru seglskipum, sem ’
sigldu á milli Boston og San Fran- j
cisco. Þegar það var rifið fyrir mörg !
um árum þá hafði hr. Bean keypt |
alla viði úr salnum og síðan endur-
byggt hann þarna, sem hluta af j
kránni. Hr. Bean stóð sjálfur á bak
við barborðið, klæddur hvítum
jakka. Það hefði mátt halda að þoku
suddinn á rúðunum I kýraugunum
væri sælöður, það var eins og hr
Bean riðaði eilítið, þegar hann
blandaði drykkinn, svo sannfærandi
var umhverfið og hún upr því fegn
ust að fá sér sæti á s$?n, dregnum
rauðu leðri. sem Christian baufi
henni.
„Hvað má bjóða yður?“ spurði
hann.
„Eitthvað sterkt", svaraði hún
l lágt.
Hún lokaði augunum. Hún hafði
ekki bragðað mat daglangt. Ef til
vill mundi hún aldrei bragða mat
framar. Aldrei koma til sjálfrar sín
aftur.
Þegar hún opnaði augun, var
hann kominn með drykkinn. Hann
sagöi að þetta væri sérstök romm-
blanda, sem hr. Bean vissi einn
hvemig væri sett saman.
„En hún hressir. það fer ekki á
milli mála“, sagði hann og lyfti glasi
sínu. Virti hana enn náið fyrir sér.
„Öruggt meðal við hverju sem er“,
sagöi hann. „Deyfir þjáningarn-
ar....“
Svissnesk úr.
Vcstur þýzkar og franskar klukkur.
Allt veljaekkt merkí.
Þórður Kristófersson úrsm.
Sala og viðgerðaþjónusta
Hrfsateig 14 (Hornið við Sundlaugaveg.)
Sírni 83616 - Pósth6í£ 538 - Reyljavík.
N
Þú skalt ekki berjast á mótl, hvíti
maður, ef þú vilt sjá félaga þinn á lífi.
Nú leggjum við til orustu við óvini
okkar, Ho-don flokkinn. Þeir eru hvítir,
og hafa engan feld, eins og þú, en þeir
hafa haia, eins og allir sannir menn.
En sagt er, að guð þeirra, Jadben-
Otho, hafi ekki hala. Og þegar þeir sjá
guð sinn með okkur, mun hjarta þeirra
og hugur fyllast efa og ótta og um leið
minnka baráttuþrek þeirra.
'OGREIDDIRÍ
REIKNINGAR *
LÁTIÐ OKKUR INNHEIMTA...
öoð sparar vdur t'ima og á/>ægindi
INNHEIMT USKRIFST OFAN
T larnargötu 10 — III hæd —Vonarstrætismegin — Simi 13175 (31inur)