Vísir - 15.08.1968, Blaðsíða 2
VÍSIR . Fimmtudagur 15. ágúst 1968/
o □ Fram — □ □ Vestmannaeyjar
NU ÞARF FRAM „BARA
AD VINNA KR
ÆÆ
—i Ætli Fram að verða íslaadsmeistari í knattspyrnu
• TVÖ DÝRMÆT stig
voru í veöi í gærkvöldi
þegar Fram lék við Vest-
mannaeyinga á Laugardals
vellinum. Annað fékk
Fram, þó munaði sáralitlu
að Vestmannaeyingum
tækist að ná báðum. Slíkt
hefði þó verið sanngjarnt
eftir gangi leiksins. Fram-
arar áttu seinni hálfleik-
inn að mestu, án þess að
skora, þrátt fyrir upplögð
tækifæri, m. a. vítaspyrnu.
% Eftir sem áður eru
Framarar með í kapp-,
hlaupinu um íslandsbikar-!
inn, eru jafnir Akureyring-
•••••••••••••••••••••
Staðan
í 1. deild í knattspyrnu
eftlr leikinn i cær:
★ Fram — IBV 0—0
KR 8 5 2 1 23—13 12
ÍBA 8 3 4 1 14-8 10
FRAM 8 3 4 1 13-10 10
VALUR 8 2 4 2 13—11 8
ÍBV 8 2 15 11—19 5
13K 8 0 3 5 3—16 3
Markahæstu menn:
Kári Árnason ÍBA 8
Ólafur 'russon KR 7
Helgi Númason Fram 7
Hermann Gunnarss. Val 6
Reynir Jónsson Val 6
Eyleifur Hafsteinss. KR 5
Gunnar Felixsoi. KR 4
Þórólfur Beck KR 3
Sævar Tryggvason ÍBV 3
Þormóöur Einarsson ÍBA 3
Síðustu sendingar á leik-
mann sem skorar mark.
Einar Árnason Fram 3
Sigmar Pálmason ÍBV 3
Skúli Ágústs^ r: ÍBA 3
Valsteinn Jónsson ÍBA 3
Þóróifur Beck KR 2
Karl Hermannsson ÍBK 2
Höröur Markan KR 2
Reynir Jónsson Val 2
Ólafur Lárusson KR 2
Eyleifur Hafsteinss. KR 2
Gunnar Felixson KR . 2
Guöni Jónsson ÍBA 2
Næsti leikur veröur annað kvöld
5 Laugardalsvellinum kl. 8 og
há leika ÍBV og Fram .
um, en KR er efst með 12
stig, tveim stigum meira
en Fram og Akureyri.
Fyrri hálfleikurinn í gærkyöldi
bauð upp á góða skemmtun, hörð
upphlaup á báða bóga, það var
bjargað á línu naumlega viö bæöi
mörkin og skotið og skallað fram-
hjá eða fallega varið. Mátti varla
á milli sjá hvort liðiö væri betra
I þessum leik, Vestmannaeyingar
eitilharðir og ákveðnir aö venju,
sannarlega lið sem er á uppleið og
hefur vaxið með þeim verkefnum
sem 1. deildin hefur sett því. —
Verður þetta lið án efa óárenni-
legt eftir 1—2 ár, ef mér skjátl-
ast ekki.
Seinni hálfleikurinn varö samt
hálfgerður einstefnuakstur að
marki Vm.eyinga. Þeim tókst ekki
lengur að láta boltann ganga milli
manna gátu' naumast „hreinsað“
frá marki sfnu, en fengu á sig
stöðuga pressu. Framarar fengu af
bragös tækifæri til aö skora mörk,
en allt kom fyrir ekki, það var
bjarg..: á línu, eða skotiö yfir.
Hámarki náði þessi misheppn-
aöa sókn Fram á 33. mfn. þegar víta
snyrna var réttilega dæmd af dóm
aranum, Magnúsi Péturssyni. Helgi
Númason skaut fast og ákveðið,
UTAN á stöngina og fram hjá!
Á 36. mín átti Sævar miðherji
ÍBV gott skot, sem var nærri lagi,
markvörðui Fram réði ekki beint
við boltann, missti hann frá sér,
en Sigmar, sem kom aðvífandi
kom við boltann með hendi. Þarna
hefði taflið getað snúizt svo að
Fram hefði misst bæði stigin, — og
þar meö möguleikann á Islands-
meistaratitli að mestu leyti.
Framliðið skortir enn eitthvað af
gerandi, menn eða mann, sem getur
skotið úr þröngri aðstöðu. Það er
ekki nóg að vera góöur úti á vellin
um, eiga góða útherja, sem gefa á
hættusvæðið, ef ekki er unniö úr
efninu.
Þorbergur í markinu var bezti
maður Fram, en vörnin í heild stóð
sig ágætlega, miðjuhlekkirnir stór-
vel í seinni hálfleik, áttu miðju vall
arins allan tímann, en framlínan
var slöpp.
Vestmannaeyjaliðið virðist efl-
ast með hverjum leik, — og topp-
liðin,- KR og Fram hafa sannarlega
ekki átt „sjö dagana sæla” í viður-
eignum sínum við þessa nvliða í
deildinni.
Magnús, Pétursson dæmdi þenn-
an leik, og gerði það af mikilli
prýöi. — jbp —
Víkingar unnu
í 1. flokki
Úrslitaleikur Isiandsmótsins í 1.
flokki B liöa F iykjavíkurfélaganna
var leikinn á gamla Melavellinum
í gærkvöldi, og áttust viö Vík-
ingur og Reykjavíkurmeistararnir í
þessum flokki KR.
Víkingur van- leikinn 2—1.
I hálfleik var staðan 1—1, en í síð
ari hálfleik en þá léku Víkingar
meö aöeins 10 menn, skoruðu þeir
sigurmarkiö.
Þetta sama Víkingslið vann
Hauka í Bikarkeppninni á dögun-
um, nokkuð sem A-liði Víkings
tókst ekki í 2. deildar keppninni.
Njarðvíkingar gera
það ekki enda-
sleppt í bikar-
keppninni
UMF Njarðvík, sem leikur í 3
deild, sló út úr Bikarkeppninni B liö
Vestmannaeyinga nú fyrir
skömmu, 1—0, og er það annað liö-
ið sem þetta kraftmikla Suöurnesja-
lið slær út, hitt liðið var B lið
Þróttar, og var það gert í fjörugum
leik og tókst eftir framlengingu,
2-1.
GLÆSILEG TILÞRIF!
Það er ekki hægt að segja annað en að markvörðurinn á myndinni sýni glæsileg tilþrif. Þetta er
hinn ungi markvörður Keflavíkurliðsins, sem er þarna að verki, boltinn rúllar áfram, — en hvert?
Hann lenti öruggiega ekki í netiriu, því ekkert mark var skorað í þessum Ieik Keflavfkur og Vals. ‘
Portúg'ólsk bl'ób skrifa mikið um Island:
Benfica, Sinatra - og dr. Bamard
Mikið hefur verið ritað og
rætt um væntanlegan Ieik og
leiki Vals og Benfica i blöðum
í Portúgal. Eins og Vísir skýrði
frá fyrir skömmu sendi blaðiö
Record mann hingaö, og hafa
birzt eftir hann fjölmargar grein
ar um Val, ísl. knattspymu,
land og þjóð i blaði hans.
Þá hefur blaðið A Bola skrif
að mikið um land og þjóð og
knattspymumál hér. I því blaöi
birtist grein nú nýlega eftir
fréttaritara blaðsins í Belgíu,
þar sem hann fer lofsamlegum
orðum um íþróttamennsku Vals
manna, er hann kynntist þegar
þeir kepptu við Standard Liege,
segir hann þar að Valsmenn séu
mjög góðir knattspyrnumenn,
ekki sízt þegar það sé athugað
að þeir séu algjörir áhugamenn.
Þá segir hann frá leikjum KR og
Nantes í Frakklandi. Blaöið hef-
ur og haft viðtal við tvo júdó-
menn úr Ármanni, Ragnar Jóns-
son og Reimar Stefánsson, sem
voru við æfingar í Portúgal fyr-
ir nokkru.
Skemmtileg grein í blaðinu
sagöi m. a. eitthvað á þá leið
að þessi heimsókn Benfica hing-
að vekti álíka athygli og ef að
Frank Sinatra kæmi hingað með
alla sína menn, — eða þá að dr.
Bamard kæmi hingað og fram-
kvæmdi hjartaflutning á sjúkra-
húsl hér f borginni.
Þess má að lokum geta, að
blaðið hefur ráðið sérstakan
fréttaritara hér á landi, Kjartan
L. Pálsson, sem mun senda blað-
inu fréttir af einstökum leikj-
um Vals, leikmönnum og öllu
sem forvitnilegt kann að veröa
fyrir Portúgala, sem eru mjög
forvitnir um allt sem viðkemur
íslandi um þessar mundir.