Vísir - 19.08.1968, Side 8
100
V í SIR . Mánudagur 19. ágúst 1968.
VISIR
Útgefandi. Reykjaprent h.í.
Framkvæmdastjóri Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Aðstoöarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjóri: Jón Blrgir Pétursson
Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingastjóri: Bergþór Úlfarsson
Auglýsingar: Aðalstræti 8. Símar 15610 11660 og 15099
Afgreiösla: Aöalstræti 8. Simi 11660
Ritstjóm: I augavegi 178. Sími 11660 (5 linur)
Áskriftargjald kr. 115.00 á mánuði innanlands
í lausasölj kr. 7.00 eintakið
Prentsmiðia Visis — Edda h.f.
Unga fólkið og þjóðmálin
þjóðviljinn sagði á dögunum, að þess yrði nú hvar-
vetna vart að ungt fólk hefði fengið „nýja og gleggri
innsýn í þjóðfélagsmál en oft áður“, og það sem meira
væri, þetta unga fólk hefði með virkum aðgerðum
krafizt þess að verða þátttakendur í ákvörðunum,
sem teknar væru í þjóðfélögunum. Sem dæmi um
þetta nefnir blaðið vitaskuld óeirðirnar í Vestur-
Þýzkalandi og Frakklandi, sem alltaf er verið að lof-
syngja á þeim bæ, en svo bætir það við, að þessa hafi
líka orðið „mjög áþreifanlega vart“ hér á íslandi, og
sönnun þess á að hafa fengizt í forsetakosningunum.
Það er svo sem ekki nýtt að Þjóðviljanum og Tím-
anum verði tíðrætt um úrslit forsetakosninganna.
Bæði blöðin hafa látlaust stagazt á þeim þann hálfan
annan mánuð, sem liðinn er síðan. Þau skrifa eins og
úrslitin hafi verið stórsigur fyrir stjórnarandstöðuna,
og margt af því hefur verið miður smekklegt og ólík-
legt að það hafi allt fallið hinum nýja forseta vel í geð.
En það eru nýjar upplýsingar, að stjórnarandstæðing-
ar viti nákvæmlega um skiptingu atkvæðanna milli
aldursflokka, þannig að þeir geti fullyrt að unga fólk-
ið hafi allt skipað sér í sömu fylkinguna. Um þau hlut-
föll er engu hægt að slá föstu, fremur en í öðrum leyni-
legum kosningum. Væri óskandi að senn rynni upp
fyrir höfundum þessara skrifa, að meiri háttvísi væri
gagnvart forsetanum að láta þau niður falla.
Viðvíkjandi innsýn ungs fólks í þjóðfélagsmál, væri
ekkert undarlegt þótt hún færi vaxandi með aukinni
menntun; en kröfur þess um þátttöku í ákvörðunum
um landsmálin verða þó að miðast við kosningaald-
urinn. Fyrr getur það tæplega gert miklar kröfur í
því efni, þótt vitaskuld sé sjálfsagt og gott að það
reyni sem fyrst að mynda sér stjórnmála- og félags-
legar skoðanir og láta þær í ljós með viðeigandi hætti.
Kosningaaldurinn hefur nú verið færður niður í 20
ár, og sumir vilja jafnvel færa hann enn neðar, en
meðal unga fólksins sjálfs voru skiptar skoðanir um
breytinguna síðast og mundi áreiðanlega ekki síður
verða, ef til orða kæmi að færa aldurstakmarkið neðar.
Fólk innan við tvítugt hefur yfirleitt ekki „glögga
innsýn“ í þjóðmálin. Til þess skortir það aldur og
reynslu og margt jafnvel áhuga. Og þótt það gangi í
stjórnmálasamtök unglinga, getur það átt eftir að
skipta um skoðun og skipa sér í annan flokk þegar
það fær kosningarrétt. Það er því hæpið að leggja mjög
mikið upp úr skoðunum unglinga í þessu efni, þótt
þar sé vitaskuld um undantekningar að ræða.
Fordæmi einstakra flokka og starfandi stjómmála-
manna á hverjum tíma ræður miklu um það, hvar
unga fólkið skipar sér í fylkingu. Með aukinni innsýn
í þjóðmálin virðist unga fólkið hér á landi verða æ
fráhverfara kommúnistum, og er það vitaskuld mjög
æskileg þróun. Þjóðviljinn skyldi þvi varlega eigna
sínum flokki mikiö af þeim ungmennum, sem nú em
að vaxa upp í landinu.
Uppreistarsinnar frá Angolu í þjáifun í Thysville i Kongó.
Vaxandi kvíði
portúgalskra
valdhafa út af
nýlendum í Afríku
, öll kommúnistaríki og Arabaríki að
1 beita áhrifum sínum til stuðnings
i við Alsír vegna bannsins á flug-
( ferðum til landsins.
) Bouteflika utanríkisráðherra sendi
( fyrrnefndum ríkjum orðsendingu
/ um þetta í gær. Einnig sendi hann
[\ orðsendingu til U Thants fram-
Ikvæmdastjóra Sameinuöu þjóðanna
og baö um stuöning hans.
□ Varsjá: Kunnur pólskur komm-
únistaleiðtogi, sem á sæti í
stjórnmálaráðinu, Edward Gierek,
hvatti í gær til aukins skoðana-
f' frelsis í landinu, og kvað fólkið
V eiga að njóta þess réttar, aö geta
f gagnrýnt það, sem miður fer,
j bæði að því er varöar menn og
;( málefni.
}[ □ Tókíó: Heimsins stærsta olíu-
\ skipi var hleypt af stokkunum
í Japan í morgun. Það er 312.009
j iestir, Frú Lynch, kona forsætis-
r ráðherrans í írska lýðveldinu, gaf
) skipinu heiti: Universe Ireland. —
í\ Skipið verður í olíuflutningum milli
// Kuwait við Persaflóa. Alls verða
Ví byggð 6 olfuskip af þessari stærö
I/ fyrir sama félag.
?) □ Ceauscescu, leiðtogi Rúmeníu,
ú var ágætlega fagnað við kom-
h una til Tékkóslóvakíu í gær, og
y viðræður hófust að kalla nær þegar.
(i Þær fjalla m. a. um aukin við-
\ skipti og 20 ára vináttu- og sam-
/ starfssáttmáia.
/ □ Tokíó: Sala á japönskum bíl-
\ um af Nissan-gerð hefst brátt
Iá Bretlandi. Hafa verksmiðjumar
samið við sölufyrirtæki á Bretlandi.
Hafa verksmiðjumar samið við
söiufyrirtæki á Bretlandi, en dreif-
endur hafa myndað dótturfyrirtæki.
Japönsku verksmiðjurnar hafa haft
sama hátt á til þess að koma fram-
leiðslunni á markað í Frakklandi
og Portúgal.
í Portúgal og í löndutn Portú
gals í Afríku ríkir vaxandi
kviCi um framtíöina. Það er svo
komiö aö tilgangsiaust er taliö
að reyna aö ieyna þessu, þvi að
uppreisnarhreyfing er i þremur
löndum Portúgals í Afríku:
Mozambique, Portúgölsku Guin
eu og Angólu.
Portúgal sem undir 40 ára ein
ræðisstjórn er oröiö fátækasta
land Vestur-Evrópu hefir
160.000 manna ljð undir vopnum
til þess að halda velli í Afríku
en þótt um skæruhemað sé aðal
lega að ræða enn, getur fariö
svo að þaö dragi til alvarlegri
tíöinda, því aö frelsissinnaðir
blökkumenr frá fyrrnefndum
iöndum eru í hernaðarlegri þjárf
un f Kongó og víðar og þegar
frá líöur má að minnsta kosti
gera ráð fyrir síharðandi átök-
um og ef til vill víðtækri bylt-
ingu gegn hinum portúgöisku
yfirráðendum.
Af hálfu Salazars einræðis-
herra og stjómar hans er litið á
þessi lönd, sem hluta hins portú
gals’. - ríkis, þau séu eins portú
gölsk og „Minho Algarve" (tvö
af fylkjum Portúgals), en jafnvel
helzti hugsjónasérfræðingur
Salazarsstjórnarinnar kallaði
þetta eitt sinn „há-rómantískt
bull“, og yfirleitt er litið á þessi
lönd sem nýlendur. Sameinuðu
þjóðirnar hafa ekki til dæmis
fallizt á afstöðu Portúgals varð
andi þessi lönd, senj haldið er
fram til þess að girða fyrir er-
lend afsWpti.
Hitt er svo annað mál, að
Sameinuöu þjóðirnar standa
máttvana gagnvart hinu portú-
galska nýlenduveldi, segir í
grein í Aftenposten um þessi
mál, alveg eins og Samemuöu
þjóðirnar hafa engan mátt tii
þess að hafa áhrif á þróunina í
öðrum hluta Suður-Afrfku, Suð
ur-Afríku-lýðveldinu og Rhodes
íu, já, einnig í Suðvestur-Afríku
sem ríkisstjóm Suöur-Afríku
stjómar í trássi við vilja Sam-
einuðu þjóðanna, samþykktir
þeirra og fyrirmæli.
Og meðan svo er heldur
áfram hin sorglega þróun í
portúgölsku nýlendunum.
(Grein, sem hér er stuðzt við, er •
eftir Halldór Sigurðsson frétta-
ritara blaðsins, sem hefir kynnt
sér þessi mál sérstaklega og
er blaðið nú að birta um þau
greinaflokk eftir hann).