Vísir - 03.09.1968, Blaðsíða 16
Þriðjudagur 3. september 1968.
P& ► - *....:
%,**M>*<*.*A&*'*>*.*rM**m I
Dagsbrún reiknar með miklu ot-
viimuleysií vetur
Fáir meðlimir verkamanna-
félagsins Dagsbrúnar hafa verið
á atvlnnuleysisskrá að undan-
fömu, eða 7—8. Er það meö
bezta móti miðað við ástandið
á vinnumarkaðnum að undan-
förnu. Þó ber þess að gæta, að
skólabörn hafa ekki bótarétt-
indi vegna atvinnuleysis. Sam-
kvæmt upplýsingum Hafsteins
Einarssonar, starfsmanns Dags-
brúnar, má þó búast við geig-
væniegu atvinnuleysi, er h'ður á
veturinn. Mörg verktakafyrir-
tæki munu í þann mund að ljúka
verkefnum sínum og hika nú
aöeins fyrst um sinn við að
segja upp fóiki. Þar sem margt
skólafólk gat ekki fengið vinnu
í Reykjavík í vor, munu færri
störf losna við skólagöngu þess
f haust en oftast áður. Hinn
venjulegi samdráttur með komu
vetrar mundi því valda miklu
atvinnuleysi verkafólks, ef svo
fer sem horfir, að sögn Haf-
steins.
Bætur vegna atvinnuíeysis
nema 146 krónum á dag fyrir
einhleypt fólk, 165 krónum fyr-
ir hjón og 19 krónum að auki
fyrir hvert barn upp að þremur..
Hafa bætumar því hæstar orð-
ið um 222 krónur fyrir fjöl-
skyldumenn.
Frímerki með
séra Friðriki
N. k. fimmtudag, 5. september,
gefur póst- og símamálastjórain út
nýtt frímerki í tilefni af því að
á þessu ári er öld liðln frá fæðingu
séra Frlðriks Friðrikssonar. Frímerk
ið er með mynd af höggmynd Sig-
urjóns Ólafssonar, sem stendur við
Lækjargötu í Reykjavík. Verðgildi
merkisins er 10 krónur og annað-
ist Courvoisier í Sviss prentunina.
Séra Friðrik Friðriksson fæddist
25. maí 1868 að Hálsi í Svarfaöar-
dal. Við ótrúlega erfiðar aðstæður
brauzt hann f því að fara mennta-
10. síða.
Verkstjórar
gefa út bók
„Verkstjórn og verkmenning“
heitir ný bók, sem Verkstjórasam-
band Isiands gefur út. Formálsorð
ritar Jakob Gíslason raforkumála-
stjóri, en kaflaheiti bókarinnar
! skýra að nokkru leyti innihald
hennar. Sigurður E. Ingimundarson
verkfræðingur skrifar þáttinn
Verkstjórn og vísindi, Hákon Guð-
mundsson yfirborgardómari skrif-
ar Starfsaðstöðu verkstjóra, Frið-
geir Grímsson verkfræðingur ritar
Öryggi á vinnustað, Adolf J. Pet-
ersen verkstjóri ritar Verkstjórn
og vinnustaði, og sami maður rit-
ar einnig eftirmála.
Bókin er 168 blaðsíður, prentuð
í Prentsmiðjunni Odda h.f.
LOKAÐI HLÖÐUM
OPNAÐI MÁL-
VERKASÝNINGU
Það eru ekki allir sem kvarta
undan heyleysi, a.m.k. ekki i
Þingeyjarsýslu. Roskinn bóndl á
Fljótsbakka, Elnar Karl Sigvalda
son, gerði sér litið fyrir, lokaði
hlöðum sínum og fór til Akur-
eyrar og opnaði þar málverka-
sýningu f Landsbankasalnum.
Hann sýnir þar um 40 málverk
auk vatnslitamynda og teikn-
inga eftir þvf sem húsnæði f
sýningarsal leyfir. Einar hefur
málað og teiknaö í frístundum
frá bernsku. Á fulloröinsárum
bjó hann sér málarastofu heima
hjá sér, þar sem hann helgar
r;ig málaralistinni þegar hlé er
á önnum. Er eflaust fróðlegt að
sjá hvemig Einar tiáir heima-
sveit sína f málverkunum, því að
afar sjaldgæft er, að bændur
máli f frístundum sfnum.
Johnson á fundi með ráðherrum sínum.
Johnson hoðar fund í öryggis-
ráði USA og ríkisstjórninni
— Rætt um Tékkóslóvak'iu og Rúmeniu
Johnson er í þann veginn að
standa upp úr ruggustólnum í
Texas og fara til Washington dg
mun nú oftar heyrast til hans um
alþjóðamál aö lokinni hvild. Fyrir
dyrum er fundur öryggisráðs
Bandaríkjanna og ríkisstjórnarinn-
ar.
Miðstjóm Kommúnistaflokks
Tékkóslóvakíu hefir gefið hinni
nýju forsætisnefnd (presidium),
sem er að meirihluta skipuö frjáls-
Prins í stuttri Reykja-
víkurheimsókn
Aga Khan prins, forstjóri
flóttamannahjálpar Sameinuðu
hióðanna kemur til Islands á
föstudaginn kemur. Kemur hann
um kl. 3.30 til Reykjavíkur, ræð
ir við forsætisráðherra klukkan
4 og utanríkisráðherra. — Til
Bessastaða heldur Shadruddin
Aga Khan kl. 5.30 en um kvöld-
ið snæðir hann kvöldverð með
utanríkisráðherra. Á Iaugardags
morgun ræðir prinsinn við for-
ystumenn Hlerferðar gegn hungri
og að auki fær hann ökuferð
um Reykjavík fram að hádegis-
verði.
Þar meö lýkur stuttri heimsókn
prinsins, sem flýgur utan með
þotu F.í. kl. 13.30. Prinsinn mun
þannig heimsækja öll Norðurlöndin
í þessari ferð sinni.
Þess skal getiö að prinsinn er
ekki sá Aga Khan, sem tvívegis
kom hér á leiö sinni til Bandaríkj-
anna í fyrra og hitt eö fyrra. Sá
var foringi múhameðstrúar-
manna, Karim Aga Khan aö nafni.
lyndisstefnumönnum og miðstefnu-
mönnum fyrirmæli um, að gera
allt sem unnt er til þess að ná
samkomulagi um brottflutning
hernámsliðsins eins fljótt og unnt
er, en tónninn i ummælum am-
bassadors Sovétríkjanna í París
er á aðra leið, þ. e. að sovétliðið
Drengur
fyrir bíl
í Hafnarfiröi varð drengur á reiö
hjóii fyrir vörubifreiö í gærmorg-
un rétt um kl. 11 á gatnamótum
Reykjavíkurvegar, Vesturgötu og
Strandgötu. Sáu sjónarvottar vöru
bifreiöina fara yfir bæði hjól reiö
hjólsins og drenginn veltast í göt-
una og töldu allir fullvíst, að dreng
urinn heföi stórslasazt. Það þótti
því mesta mildi, þegar í ljós kom
við læknisrannsókn, að meiðsli
drengsins voru óveruleg.
■ verði kyrrt í Tékkóslóvakíu „með-
an Sovétrikjunum sé ógnað“. (Sjá
I nánara á síðu erlendra frétta).
/wwwwwwwwww
Freymóður opnur
sýntngu á
luiigurdug
0 Freymóöur Jóhannsson,
listmálari, er að opna sýningu
í Bogasalnum. Sýningin verður
opnuð á laugardaginn kl. 14.30
og lýkur 15. september. Frey-
móður hefúr oft haft einkasýn-
ingar á Noröurlöndum, einkum
í Danmörku, þar sem hann
dvaldi um 7 ára skeið við list-
nám og starf. Þá hefur hann
haldið sýningar oftlega hér
heima, m. a. á 8 stöðum utan
Reykjavíkur, á sumum staöanna
oftar en einu sinni.
• Myndin var tekin af Frey-
móöi í vinnustofu sinni, þar
sem hann vár að ljúka viö eina
af myndum sínum.
Sárulítil veiði
— eitt skip tilkynnti um afla / nótt
Sáralítil veiði var á síldarmiðun-
um í nótt þrátt fyrir að síldin þok-
ist jafnt og þétt suöur á bóginn.
Skipin köstuðu lítið enda sunnan
bræla og leiðindaveður. Aðeins eitt
skip tilkynnti um afla, en það var
Ásberg meö 50 tonn. í morgun var
þá komið sæmilegt veður en tals
vefð þoka. Sá afli sem veiðist fer
að mestu leyti í salt. Sfldin heldur
sig enn á milli 8. og 9.° og stefnir
fremur í austurátt en að-hún nálg-
ist landið. Þó er talib, aö ef hún
komi taisvert lengra suður á bóg-
inn verði mun auðveldara að fást
við hana, því þar'er dýpi ekki eins
mikið og á þeim svæðum þar sem
hún hefur haldið sig í sumar. Ekki
voru margir bátar að veiðum í nótt
og halda margir kyrru fyrir og bíða
í ofvæni eftir þvl að veiðin glæöist.
/